Morgunblaðið - 30.04.2014, Qupperneq 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
✝ Álfhildur Stein-björnsdóttir
fæddist að Reykjum
í Húnaþingi vestra
11. apríl 1933. Hún
lést á Ljósheimum,
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands, Selfossi
17. apríl 2014.
Álfhildur ólst
upp í foreldra-
húsum á Syðri-
Völlum í Húnaþingi
vestra. Foreldrar hennar voru
Steinbjörn Jónsson, f. 1896, d.
1989, bóndi og söðlasmiður, og
kona hans, Elínborg Jónasdóttir,
f. 1902, d. 1988.
Systkini Álfhildar eru Samúel
Ósvald, f. 1934, d. 2001, Anna, f.
1936 og Sigurður, f. 1937. Fóst-
urbræður eru Steinbjörn Björns-
son, f. 1929 og Pétur Haukur
Guðmundsson, f. 1948.
Álfhildur giftist Sverri Sigur-
jónssyni, f. 28.2. 1934, þann 17.
júní 1961. Foreldrar hans voru
Sigurjón Guðmundsson, f. 1898,
1963 fluttu þau til Þorlákshafnar
að Reykjabraut 19 í nýtt hús sem
Sverrir hafði byggt fyrir fjöl-
skylduna. Fyrstu árin var Álf-
hildur heimavinnandi og sinnti
fjölskyldu og heimili. Seinna
vann hún í nokkur ár við skrif-
stofustörf en setti síðan á stofn
eigin rekstur, meðal annars
heimagistingu sem hún starf-
rækti í mörg ár og naut sín vel í
hlutverki gestgjafans.
Álfhildur var mikil áhuga-
manneskja um gróður og garð-
rækt og ræktaði upp úr sand-
inum á frumbýlingsárum
Þorlákshafnar fallegan garð á
Reykjabrautinni ásamt því að
taka virkan þátt í uppgræðslu
sandanna í kringum þorpið. Það
veitti henni mikla ánægju að sjá
hvað það starf hefur skilað mikl-
um árangri.
Kvenfélag Þorlákshafnar var
Álfhildi afar hugleikið og var
hún virk í starfi þess, m.a. sem
formaður í fjögur ár. Þar naut
hún sín í góðum félagsskap við
vinnu að mörgum góðum mál-
efnum sem kvenfélagið hafði for-
göngu um.
Útför Álfhildar fer fram frá
Þorlákskirkju, Þorlákshöfn, í
dag, 30. apríl 2014, og hefst at-
höfnin kl. 14.
d. 1959, bóndi og
kona hans, Ingileif
Auðunsdóttir, f.
1905, d. 1982,
Grímsstöðum í V-
Landeyjum.
Börn Álfhildar
og Sverris eru:
Hrönn, f. 17.1. 1962,
Hlín, f. 27.8. 1965 og
Hlynur, f. 2.3. 1969,
d. 5.1. 1974. Hrönn
er gift Guðna Pét-
urssyni og eru börn þeirra Hlyn-
ur, f. 1991 og Arna, f. 1995. Hlín
er gift Hreggviði Jónssyni og eru
þeirra börn Leifur, f. 1993, Alma
Rún, f. 1997 og Sverrir, f. 2001.
Álfhildur stundaði nám við
Héraðsskólann að Reykjum í
Hrútafirði og Húsmæðraskólann
á Blönduósi. Hún fór einnig í
Húsmæðraskóla til Danmerkur
eitt sumar.
Álfhildur og Sverrir kynntust
árið 1958 og hófu fljótlega sam-
búð á Selfossi og unnu þá bæði
hjá Kaupfélagi Árnesinga. Árið
Virðing og þakklæti eru þau
orð sem koma fyrst upp í hugann
þegar ég hugsa til hennar Öllu
tengdamóður minnar.
Virðing fyrir persónuleika
hennar og þakklæti fyrir að hafa
verið hluti af fjölskyldu hennar í
þau tæp þrjátíu ár sem ég hef
fengið að ganga með fjölskyldunni
í gegnum súrt og sætt.
Mín fyrsta minning sem tengist
Öllu er þegar dætur hennar ásamt
vinkonum stóðu fyrir skemmtun-
um í bílskúrnum á Reykjabraut-
inni sem við krakkarnir í Þorláks-
höfn hópuðumst á. Þar stóð hún
álengdar og fylgdist með. Falleg
og glæsileg kona.
Ekki óraði mig fyrir því þá að
síðar yrði hún tengdamóðir mín.
Árin liðu. Það kom að því að ég
varð heimagangur á Reykjabraut-
inni. Sverrir og Alla tóku mér
opnum örmum. Hafa samt örugg-
lega hugsað hvort hann væri nógu
góður fyrir dótturina þessi dreng-
ur en ég fann fljótt að þarna hafði
ég eignast góða og umhyggju-
sama tengdaforeldra.
Nýr kafli hófst síðan í lífi þeirra
þegar langþráð barnabörnin
komu. Fyrir þau var alltaf tími og
öruggt skjól að finna.
Margs er að minnast úr lífi fjöl-
skyldunnar sem alla tíð hefur ver-
ið mjög samhent í því sem hún
hefur tekið sér fyrir hendur. Allar
samverustundirnar á Reykja-
brautinni. Alla úti á lóð að huga að
gróðrinum og ekki var Sverrir
langt undan ef þurfti að breyta og
bæta, sem þurfti oft. Ógleymanleg
ferðalög innanlands sem utan.
Sumarhúsið okkar í Tungunum
sem hefur gefið okkur svo margar
góðar stundir og þjappað fjöl-
skyldunni enn meira saman. Þar
naut Alla sín best úti á palli að
baka pönnukökur með fjölskyld-
una á vappi í kringum sig og
pönnukökurnar borðaðar beint af
pönnunni.
Alla alltaf til staðar þegar á
þurfti að halda.
Alla var höfuð sinnar fjöl-
skyldu. Hún var ákveðin en rétt-
sýn og gaf öllum tækifæri til þess
að tjá skoðanir sína á þeim málum
sem voru efst á baugi hverju sinni.
Gat reyndar verið dálítið stjórn-
söm svo okkur sem yngri erum
þótti stundum nóg um en við fyr-
irgáfum henni það alltaf því oftast
voru hennar ráð til góðs. Þegar
mikið lá við notaði hún stundum
þessi fleygu orð „þetta verður
svona“ og þá vissum við að það
yrði þannig og þar við sat.
Okkar samband var alltaf gott
og innihaldsríkt. Hún hafði reynd-
ar nokkrar áhyggjur af holdafari
mínu. Fannst ég fullþykkur og
hrósaði mér alltaf þegar henni
fannst að ég hefði eitthvað runnið
en skammaði mig þá líka ef það
fór á hinn veginn.
Við áttum oft góðar samræður
um lífið og tilveruna. Hún sagði
mér að hún hefði átt góða ævi þótt
ýmislegt hefði dunið á eins og
gengur. Góðan eiginmann sem
vildi allt fyrir hana gera. Góðar,
kærleiksríkar og ákveðnar dætur
sem kippti í kynið og góð barna-
börn. Þá sagði hún mér líka oft að
hún ætti góða tengdasyni. Það
þykir mér vænst um.
Að leiðarlokum vil ég þakka
henni fyrir samfylgdina og allt
það sem hún og Sverrir hafa gert
fyrir mig, Hrönn og börnin okkar
Hlyn og Örnu.
Það verður seint fullþakkað.
Hennar verður saknað.
Guðni Pétursson.
Það er með þakklæti og hlýjum
hug sem ég skrifa þessi minning-
arorð um tengdamóður mína, Álf-
hildi Steinbjörnsdóttur, eða Öllu
eins og hún var alltaf kölluð. Ég
hitti hana fyrst fyrir tæpum þrjá-
tíu árum þegar Hlín bauð mér til
Þorlákshafnar að kynna mig fyrir
foreldrum sínum. Alla hló dátt
þegar hún frétti að strákurinn
héti Hreggviður og væri frá Þórs-
höfn, haldandi að dóttirin væri að
koma með töffara úr Reykjavík.
Ég fékk frábærar móttökur hjá
þeim Öllu og Sverri í þessari
fyrstu heimsókn og þannig hefur
það ávallt verið síðan. Ég hef talið
mig heppinn að eiga þau sem
tengdaforeldra, bæði heilsteyptar
manneskjur með vinnusemi og
heiðarleika að leiðarljósi. Það var
gaman að sjá hvað þau unnu
byggðarlaginu sínu. Þar áttu þau
myndarlegt heimili sem bar
smekkvísi Öllu gott vitni. Garður-
inn við Reykjabraut 19 var hennar
stolt enda með afbrigðum fallegur
og vel hirtur.
Tengdamóðir mín var fróð-
leiksfús kona og hún lagði sig
fram við að tala og rita fallegt ís-
lenskt mál. Hún naut þess einnig
að ferðast og upplifa nýja hluti.
Alla hafði gaman af lestri bóka og
gilti þá einu hvort um væri að
ræða ævisögur, skáldsögur eða
heimildabækur. Þó svo að hún
væri frekar lokuð að eðlisfari þá
var hún glaðvær. Hún var hrein-
skiptin í öllum samskiptum, já-
kvæð og laus við dómhörku á
menn og málefni. Alla var mikill
fagurkeri, hafði gaman af að
klæða sig í falleg föt og allt fram á
síðasta dag var henni umhugað
um að líta smekklega út.
Ömmuhlutverkið var henni
hugleikið. Barnabörnin sóttu mik-
ið í að vera hjá ömmu og afa í Þor-
lákshöfn, enda ósjaldan sem
amma tók að sér að líta eftir þeim.
Henni var í mun að fylgjast með
vexti og framgangi þeirra og það
mátti sjá stolt og gleði þegar hún
horfði á hópinn sinn.
Alla talaði oft um „litlu fjöl-
skylduna“ sína en það voru syst-
urnar tvær, tengdasynir og
barnabörnin, sem öll eru á svip-
uðum aldri. Við áttum saman
margar ánægjulegar stundir á
heimilum okkar, á ferðalögum og
þá sérstaklega í sumarbústaðn-
um. Það leyndi sér ekki að sam-
heldni og gott samkomulag í litlu
fjölskyldunni veitti henni mikla
hamingju. Hún minnti okkur oft á
að slík sátt og samheldni í fjöl-
skyldum væri ekki sjálfgefin. Að
sjá litlu fjölskylduna vaxa og
dafna var henni eflaust sérstak-
lega dýrmætt eftir þá raun að
hafa misst ungan son af slysför-
um.
Alla og Sverrir dvöldu saman á
hjúkrunarheimilinu Ljósheimum
á Selfossi síðustu rúm tvö árin.
Þrátt fyrir heilsuleysi tókust þau
á við veikindi sín af jákvæðni og
æðruleysi, þakklát fyrir góða og
hlýja umönnun. Það var einstak-
lega gaman að sjá hversu fallegt
þeirra samband var, þau voru
sannir vinir, lífsförunautar og
sálufélagar.
Á kveðjustund er ég þakklátur
fyrir allar fallegu minningarnar
um góða og trausta konu sem ég
kveð með virðingu í huga. Nú fær
hún að hvíla við hlið sonar í kirkju-
garðinum í bænum sínum sem
hún unni svo mjög. Elsku Sverrir,
megi góður guð veita þér styrk.
Hreggviður.
Elsku amma, mikið finnst mér
það óraunverulegt að vera erlend-
is og skrifa minningargrein um
þig.
Ég mun aldrei gleyma heim-
sóknunum á Reykjabrautina. Ég
var alltaf svo spenntur þegar við
keyrðum í gegnum Þrengslin að
hitta ykkur afa. Svo fékk ég
kannski eins og eina skál af
sveskjugraut, hoppaði í rúmunum
og þeyttist um húsið svo þú hefðir
nú örugglega nóg að gera við að
sinna mér. Eins þegar þið fluttuð
á Sunnubrautina. Alltaf var hægt
að treysta á að fá nóg af kræs-
ingum og herbergisfylli af hlýju
og umhyggju. Núna í seinni tíð
þegar heilsan hefur gert þér grikk
hefur umhyggjan alltaf verið á
sínum stað.
Ég á svo margar góðar minn-
ingar um þig, elsku amma. Öll
gælunöfnin sem þú kallaðir mig
og hvernig þér tókst alltaf að rugl-
ast á nöfnunum á okkur í fjöl-
skyldunni. Útilegurnar á rússaj-
eppanum og sumarbústaða- og
utanlandsferðirnar með stórfjöl-
skyldunni. Á öllum þessum stöð-
um varstu með stóra hlýja faðm-
inn með aðdáun í augum að dást
að okkur. Hún er ekki minni að-
dáun mín á þér núna þegar minn-
ingarnar streyma fram í hugann.
Þú varst einstaklega hjartahlý
og ástkær kona sem vildi öllum
vel og sagðir ekki slæmt orð um
nokkra manneskju. Þú varst
óhrædd við að segja þína skoðun
og varst stundum mjög hreinskil-
in. Þú studdir alltaf við bakið á
mér sama hvað ég tók mér fyrir
hendur. Ég er þakklátur fyrir
það. Í gegnum árin hafa margir í
fjölskyldunni haft það á orði að þú
eigir mikið í mér. Mér hefur alltaf
þótt vænt um að heyra það.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau, er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
(Ingibjörg Sig.)
Þegar ég kvaddi þig áður en ég
lagði af stað í nokkurra mánaða
ferðalag til annarrar heimsálfu,
hugsaði ég innst inn að þetta gæti
orðið okkar síðasta stund saman.
Við kvöddumst því afskaplega vel
og innilega og ég er óendanlega
þakklátur fyrir það.
Ég vildi gjarnan fá að fylgja
þér síðasta spölinn, elsku amma,
en ég verð hjá þér í anda og minn-
ingin um þig mun ávallt fylgja
mér.
Guð geymi þig, amma mín, og
hafðu þökk fyrir allt sem við átt-
um saman.
Þinn ömmustrákur,
Leifur.
Elsku Alla amma. Við trúum
eiginlega ekki að við séum að
skrifa þetta. Þegar við lítum til
baka rifjast upp svo margar ótrú-
lega skemmtilegar og góðar
minningar.
Í þau ófáu skipti sem við tróð-
um okkur inn á ykkur afa á
Reykjabrautinni til að gista
tókstu alltaf jafnyndislega á móti
okkur. Hvort sem við gistum í afa-
holu eða fengum að vera alveg
einar í gestastofunni komstu alltaf
fram við okkur eins og prinsessur
og passaðir að allt væri fullkomið.
Þá náðum við oft í stóra skart-
gripaskrínið þitt með skeljunum
og hlóðum á okkur fallegum háls-
menum og hringum. Við stálumst
gjarnan í fína konfektið þitt og
eyddum heilu dögunum í gömlu
fötunum þínum sem okkur fannst
alltaf svo falleg. Alltaf tókuð þið
afi vel í að horfa á leikrit eða tón-
leika sem við settum upp fyrir
ykkur og svo fögnuðuð þið gífur-
lega að þeim látalátum loknum.
Það er eitt af því sem okkur þykir
vænst um, þú varst alltaf tilbúin
til að hlusta á okkur og eyða tíma
með okkur. Það hefur örugglega
ekki alltaf verið auðvelt að eiga við
okkur tvær, en alltaf komstu fram
við okkur eins og jafningja þína.
Garðurinn á Reykjabrautinni
er okkur sérstaklega minnisstæð-
ur. Á sumrin var þetta fallegasti
staður í heimi. Þú varst með svo
mikið af flottum blómum í garð-
inum og vorum við sammála um
að hjartablómið þitt væri það fal-
legasta sem við höfðum séð. Þú
lagðir svo ótrúlega vinnu í garðinn
þinn, eins og allt annað sem þú
tókst þér fyrir hendur. Það var
aldrei neitt hálfklárað. Svo voru
það alveg sérstakar stundir þegar
þú fórst með vöfflujárnið út á pall
og bakaðir eins margar vöfflur
fyrir okkur og við gátum í okkur
látið.
Það er svo margt sem kemur
upp í hugann þegar við hugsum
um þig, yndislegu einkennin þín,
fyndnu uppátækin þín og
skemmtilegu nöfnin sem þú kall-
aðir okkur. Þú varst alltaf jákvæð
og lífsglöð og þó að heilsunni
hrakaði tókst þér alltaf að líta á
björtu hliðarnar. Það kom nú ekk-
ert væl til greina.
Núna þegar þú ert farin sjáum
við hvað það hefur verið dýrmætt
að eiga ömmu eins og þig. Þú sett-
ir okkur alltaf í fyrsta sæti og
gerðir allt til að okkur liði vel. Það
verður skrýtið að fara í heimsókn
til afa án þess að þú sért þar, bjóð-
andi okkur konfekt og kyssandi
okkur í bak og fyrir. Við gætum
örugglega skrifað heila bók
tengda þér, allar Spánarferðirnar,
góðu stundirnar á Reykjabraut-
inni og Sunnubrautinni og yndis-
legu sumardagarnir uppi í bústað
eru minningar sem við geymum
að eilífu.
Við erum svo ótrúlega þakklát-
ar fyrir allt sem þú hefur gert fyr-
ir okkur, elsku amma. Takk fyrir
allt.
Þínar ömmustelpur,
Arna og Alma.
Mín kæra móðursystir Álfhild-
ur er látin og heimsmyndin
skekkist þegar þeir sem ávallt
hafa verið til staðar hverfa á brott.
Systkinin frá Syðri-Völlum, Alla,
Ósi, Dúdda og Siggi, voru náin og
mikill samgangur og samheldni á
milli fjölskyldna þeirra alla tíð, og
einnig við fósturbræðurna Steina
og Pétur.
Í þessum litla frændgarði var
Alla frænka einn hornsteinanna.
Hún var glæsileg og bráð-
skemmtileg kona sem tók virkan
þátt í samfélaginu og hafði lifandi
áhuga á mönnum og málefnum.
Hún bjó yfir innri festu og styrk
og lét ekki auðveldlega hagga sér.
Í lífsins ólgusjó var það sennilega
þessi styrkur sem fleytti henni yf-
ir erfiðustu brimskaflana. Það var
ætíð gott og hressandi að ræða við
hana um það sem á manni brann,
ekki síst þegar við höfðum ólíka
sýn á hlutina.
Alla og Sverrir bjuggu lengst af
á Reykjabraut í Þorlákshöfn og
áttu þar hlýlegt og fallegt heimili.
Þau voru höfðingjar heim að
sækja og þaðan á maður margar
dýrmætar og skemmtilega minn-
ingar. Þann vetur sem ég kenndi í
Þorlákshöfn kom ég nánast til
þeirra daglega, oftar en ekki á
matmálstíma og dvaldi fram á
kvöld. Það var gaman að vera hjá
þeim og samverustundirnar ætíð
notalegar. Minningin um Öllu
frænku mun lifa með mér.
Kæri Sverrir, Hrönn, Hlín og
fjölskyldur, mínar innilegustu
samúðaróskir.
Við kveðjum þig, vinur, í síðasta sinn
og söknuður hug okkar fyllir.
Nú minningar vakna um vinskap og
tryggð
er vorsólin tindana gyllir.
Nú þakkað skal allt sem við áttum með
þér,
það ætíð mun hug okkar fylla.
Brátt sumarið kemur með sólskin og yl
þá sólstafir leiðið þitt gylla.
(Aðalheiður Hallgrímsdóttir)
Guðrún Alda Gísladóttir.
Það fækkar smám saman sam-
ferðafólkinu. Nú þegar Alla er
fallin frá koma margar minningar
upp í hugann. Kynni okkar Öllu
hófust þegar eiginmenn okkar,
Sverrir og Jón, voru samstarfs-
menn hjá Trésmiðju KÁ á Selfossi
um 1960. Kunningsskapur þeirra
leiddi til þess að þeir ákváðu að
setjast að í Þorlákshöfn sem var í
örri uppbyggingu. Þeir byggðu
sér íbúðarhús hlið við hlið og
stofnuðu trésmíðafyrirtæki sem
þeir nefndu Tréverk og var fyrstu
árin staðsett í bílskúrum á milli
húsanna. Árið 1963 vorum við Alla
og börnin sem þá voru fædd flutt í
nýju húsin, við Jón með þrjú börn
en Alla og Sverrir með Hrönn.
Tveim árum seinna bættust Hlín
og Erna við og seinna Hlynur,
yndislegur lítill drengur og uppá-
hald allra.
Samgangur var mikill og börn-
in léku sér mikið saman enda
yngri telpurnar okkar og systurn-
ar Hrönn og Hlín á svipuðum
aldri. Vinskapur dætra okkar hef-
ur haldist fram á þennan dag og
verður okkur Öllu örugglega
áfram til mikillar gleði. Eftir-
minnilegar eru margar sameigin-
legar sumarferðir um landið og
samvera um áramót sem haldin
voru hátíðleg til skiptis á heimil-
unum. Oft var hlaupið á milli húsa
og stóð heimili þeirra Öllu og
Sverris börnum okkar Jóns ætíð
opið og þar nutu þau góðra ráða
og hjartahlýju.
Alla var heilsteypt og heiðarleg
manneskja sem alltaf var hægt að
treysta. Hún var einnig mjög virk
í félagsmálum og störfuðum við
báðar í nýstofnuðu kvenfélagi á
staðnum og að ýmsum málum
sem nauðsynleg voru í litlu og
ungu samfélagi.
Alla var mikil húsmóðir og bar
heimili þeirra Sverris ljósan vott
um smekkvísi hennar og myndar-
skap, hvort sem litið var innan
húss eða utandyra í garðinum
þeirra.
Á þessum árum saumuðum við
mæðurnar nánast öll föt á börnin
og var þá oft leitað ráða hvor hjá
annarri, eins var um ýmislegt
annað í daglega lífinu.
En sorgin gleymir engum, Alla
og Sverrir urðu fyrir þeirri óbæri-
legu sorg að missa litla drenginn
sinn, hann Hlyn, af slysförum,
fjögurra ára gamlan. Það var mik-
ið áfall einnig fyrir okkur hin. Það
var eins og dagarnir eftir það
hefðu að einhverju leyti misst sinn
lit. Það þekkir sjálfsagt enginn
nema sá sem reynir hve þung sorg
það er að missa barnið sitt.
Þó við fjölskyldan flyttumst frá
Þorlákshöfn um 1980 eftir um 20
ára nábýli hélst áfram gott sam-
band milli okkar og barnanna.
Það var Bergþóru ómetanlegur
stuðningur að eiga ykkur að þegar
við Jón bjuggum í Noregi um tíma
og hún þá með Jónínu Kristínu
litla. Þá var gott að hlaupa yfir til
Öllu, eiga með henni dýrmætar
stundir, þiggja góð ráð og alltaf
var hún boðin og búin að gæta
barnsins.
Fátt hefur verið sagt en margt
ósagt af samskiptum okkar Öllu
og fjölskyldna okkar.
Sverrir minn, þú hefur misst
mikið en barst þig vel eins og þér
er lagið þegar ég kom við hjá þér á
dögunum.
Við, fjölskylda Jóns, þökkum
Öllu samfylgdina og vottum þér,
dætrum ykkar og fjölskyldum
þeirra okkar dýpstu samúð.
Hólmfríður, Tómas, Guð-
ríður, Bergþóra og Erna.
Í dag kveðjum við Álfhildi vin-
konu mína og á kveðjustund er
margs að minnast.
Álfhildur verður mér alltaf
minnisstæð, hún var falleg kona
með bjart yfirlit og mikla útgeisl-
un.
Við kynntumst þegar við vor-
um báðar að byrja að búa í Þor-
lákshöfn. Þessi kynni okkar urðu
að traustri vináttu, hún kom að
norðan og ég kom að sunnan. Hún
sagði mér frá æskuárunum í
Húnavatnssýslunni og ég henni
frá æsku minni í Landeyjunum.
Eftir því sem hún sagði mér voru
þau fyrir norðan á undan okkur
Sunnlendingum t.d. í menntamál-
um. Þegar hún klárar skyldunám
þótti sjálfsagt á hennar heima-
slóðum, að allir færu í héraðs-
skóla. Þegar við kynntumst hafði
hún farið í framhaldsnám eftir
skyldunám en mér stóð það ekki
til boða, nema ég fór í húsmæðra-
skóla.
Álfhildur var fljótlega ein af
okkar sterku stoðum í Kvenfélagi
Þorlákshafnar, en við höldum upp
á 50 ára afmæli félagsins nú í maí.
Allt sem henni var falið var unnið
af alúð og myndarskap, hvort sem
var við veisluborð eða í vinnugalla
og stígvélum úti í skrúðgarði. Þar
áttum við kvenfélagskonur saman
mörg falleg sumarkvöld og alltaf
var Alla jafn tillögugóð og bjart-
sýn, ekki að gefast upp þó að litlar
hríslur lifðu ekki af veturinn, þá
var bara að gróðursetja nýjar.
Margar ferðir fórum við saman
bæði innanlands og utan, ýmist
með mökum okkar og einnig með
kvenfélaginu. Það var ætíð gott að
vera með Öllu, henni var eiginlegt
að vera róleg og yfirveguð og stutt
í húmorinn. Eitt sinn vorum við
herbergisfélagar í Edinborg, að
loknum góðum degi vorum við að
festa blund þegar brunaboði hót-
elsins fór í gang. Berfættar og á
náttkjólunum stukkum við niður
stigana, niðri hittum við félaga
okkar, sumar í útiskóm og úlpum.
Álfhildur
Steinbjörnsdóttir