Morgunblaðið - 30.04.2014, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
✝ Gísli J. Kjart-ansson fæddist
í Reykjavík 22. júlí
1934. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans 20. apríl
2014.
Foreldrar hans
voru Kjartan Ein-
arsson, f. 4. desem-
ber 1910, d. 18.
ágúst 1976, og Sæ-
unn Gísladóttir, f.
15. febrúar 1911, d. 5. janúar
2007. Systur Gísla eru: Mar-
grét, f. 4.10. 1931, Svava, f.
18.11. 1935, og Ingibjörg, f.
26.10. 1937.
el Kjersti Varðardóttir. Barn
Gísla og Birtu Kristínar Helga-
dóttur er Oliver Helgi, f. 30.
desember 2010, Fanney Þor-
björg, f. 5. maí 1992, og Björn
Ásgeir, f. 3. september 1998.
Gísli ólst upp á Hverfisgötu í
Reykjavík. Hann lærði járn-
smíði í vélsmiðjunni Sindra og
fór síðan í Vélskóla Íslands og
útskrifaðist þaðan sem vélfræð-
ingur 1962. Gísli starfaði meðal
annars hjá Umbúðamiðstöðinni
hf. og á togaranum Otri frá
Hafnarfirði. Frá 1980 til 2004
vann Gísli á vélaverkstæði, við
vélavörslu og við verkeftirlit
hjá Bandaríkjaher í herstöðinni
á Keflavíkurflugvelli. Gísli og
Lóa bjuggu lengst af í Sævið-
arsundi 22 og síðustu ár í
Breiðuvík 18.
Gísli verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju í dag, 30. apr-
íl 2014, og hefst athöfnin kl. 15.
Gísli kvæntist
Júlíönu S. Aradótt-
ur (Lóu) 5. júlí
1958. Börn þeirra
eru: 1) Helgi, f. 13.
júlí 1962. Maki
Þórunn Arn-
ardóttir, f. 11.
ágúst 1966. Börn
þeirra eru Hugrún,
f. 7. febrúar 1995,
og Hrafnhildur, f.
28. maí 1997. 2)
Sæunn, f. 31. desember 1963.
Maki Guðmundur Ásgeir
Björnsson, f. 6. september 1962.
Börn þeirra eru: Gísli Rafn, f. 6.
júní 1986, unnusta hans er Rak-
Pabbi, sem hefur verið til
staðar allt okkar líf, er látinn.
Pabbi var hlýr og hafði áhuga á
samferðafólki sínu en ræddi
sjaldnast um sjálfan sig. Hann
hafði fyrir vana að líta inn til
okkar systkinanna til að vita
hvort allt væri í lagi og fá frétt-
ir af sínu fólki. Skemmtilegast
fannst honum þegar öll fjöl-
skyldan var samankomin á
góðri stund. Pabbi var greiðvik-
inn og hjálpsamur. Ef eitthvað
stóð til, flutningur í nýtt hús
eða lagfæringar, vildi hann allt-
af fá að leggja sitt lóð á vog-
arskálarnar. Sama hvernig stóð
á, alltaf var hann tilbúinn að að-
stoða og helst vinna verkið
sjálfur. Pabbi var ákaflega
barngóður og hafði unun af því
að hafa barnabörnin í kringum
sig og passaði þau hvenær sem
á þurfti að halda. Hann vildi
líka hafa allt í toppstandi heima
fyrir. Mikill tími fór í að sinna
viðhaldi í Sæviðarsundinu og í
Breiðuvík tók hann virkan þátt í
öllu sem sneri að umsjón húss-
ins.
Pabbi spilaði brids reglulega
í áratugi og oft spiluðu þau
mamma saman. Hann hafði
gaman af íþróttum og sérstak-
lega knattspyrnu. Hann fylgdi
Fram að málum og smitaði
Helga af fótboltaáhuganum og
fóru þeir oft saman á leiki.
Seinni árin fylgdist hann með
ensku knattspyrnunni og smit-
aði mömmu af þeim áhuga.
Mamma hafði hins vegar smitað
hann af golfbakteríunni. Hann
var fljótur að skáka henni þar
og fór snemma holu í höggi.
Eftir að pabbi hætti að vinna
spiluðu þau oft golf, jafnvel á
hverjum degi. Ekki spillti fyrir
að í Breiðuvík gátu þau ekið á
golfbílnum að heiman og beint
út á völl. Þannig voru pabbi og
mamma samhent í áhugamálum.
Í mörg ár fór fjölskyldan saman
á skíði. Þessi skíðaáhugi hefur
haldist innan fjölskyldunnar og
börn Sæunnar hafa öll æft og
keppt og verið í fremstu röð. Þá
minnumst við margra skemmti-
legra tjaldferða að sumarlagi.
Pabbi og mamma keyptu sér
tjaldvagn, seinna fellihýsi og
loks hjólhýsi. Í slíkum ferðum
fannst pabba ekki verra að hafa
barnabarn með í för. Jafnframt
ferðuðust pabbi og mamma
saman víða erlendis til að skoða
sig um, fara á skíði eða spila
golf.
Pabbi fylgdist vel með þjóð-
málum og hafði skoðanir á
mörgu. Hann fylgdi Sjálfstæð-
isflokknum að málum. Við átt-
um margar samræður um
stjórnmál og honum fannst ekki
alltaf að uppeldið á okkur systk-
inunum hefði tekist sem skyldi
hvað varðaði okkar skoðanir.
Hann tók samt mark á öðrum
og fannst gaman að kryfja mál
til mergjar. Pabbi var búinn
seiglu og úthaldi. Það kom ekki
síst í ljós á síðustu árum þegar
hann breytti að mörgu leyti um
lífsstíl. Hann greindist svo með
krabbamein fyrir síðustu jól. Í
veikindunum sýndi hann æðru-
leysi og beitti kímnigáfu sinni
sem hann flíkaði ekki oft. Við
minnumst margra tilsvara hans
á líknardeildinni svo sem þegar
hann bað um að sér yrði færður
matseðillinn eða þegar mamma
vildi að hann færi í nýjan bol þá
sagði hann: „Hvað, heldurðu að
það sé einhver tískusýning
hérna?“ Pabbi dvaldist á líkn-
ardeildinni síðustu tvo mánuði
ævinnar og naut þar frábærrar
umönnunar og aðhlynningar.
Við kveðjum föður okkar með
söknuði, virðingu og þakklæti.
Helgi og Sæunn.
Tengdafaðir minn, Gísli Júl-
íus Kjartansson, er nú fallinn
frá. Ég mun minnast Gísla sem
hægláts, orðvars, bóngóðs en
ekki minnst barngóðs manns.
Þegar ég kom fyrst til einka-
dóttur hjónanna Gísla Júlíusar
og Júlíönu Sigríðar í Sæviðar-
sund 22 á haustmánuðum 1978
var mér tekið af mikilli vin-
semd. Gísli tók mér strax vel og
fór alla tíð vel á með okkur.
Hann hafði netta bíladellu og
kunni vel til verka á þeim vett-
vangi, enda vélvirki. Ég hins
vegar hafði enga þekkingu á
slíkum tækjum fyrir utan það
sem tilheyrði ökuskírteini.
Sama var hvað á bjátaði á þeim
vettvangi, alltaf var Gísli boðinn
og búinn til aðstoðar. Aldrei
minnist ég þess að hann hafi
neitað neinu þegar til hans var
leitað yfirhöfuð. Hvort sem það
var við áður nefndar bílavið-
gerðir, gæta barnabarna sinna,
flutninga, mála íbúð og síðar
hús okkar hjóna eða, eftir að
kom að starfslokum, að fara í
hesthúsið til gegninga vegna
anna okkar unga fólksins. Gísli
hafði alltaf haft mikið gaman af
íþróttum og útiveru, nánast sí-
gauni, því maður varð var við
eirðarleysi ef ekki var eitthvert
ferðalag í kortunum, innan- eða
utanlands. Þegar ég kynntist
hjónunum stunduðu þau skíði af
kappi, bæði göngu- og svigsk-
íðamennsku. Síðar tók mikill
golfáhugi við. Það var síðan á
öðru sumri sem Gísla tókst að
ná þeim árangri sem alla golf-
áhugamenn dreymir um. Hann
fór nefnilega holu í höggi á 6.
holu Korpúlfsstaðavallar. Þá
strax orðinn meðlimur í Ein-
herjaklúbbnum. Ekki minnist
ég þess að Gísli stærði sig af
þessu afreki en gekk, og ók síð-
ar, alltaf stoltur með einherja-
merkið á golfpokanum. Á bana-
legu sinni var Gísli prúður við
okkur ættingjana og kurteis við
starfsfólk í þeirri erfiðu baráttu
sem hann átti í fyrir lífi sínu, en
hann ætlaði ekki að gefast upp.
Þrátt fyrir mjög útbreiddan
sjúkdóm hélt hann glettninni og
hafði fram á síðustu stundu
gaman af því að hlusta á um-
ræður okkar hinna þó hann
gæti ekki lagt mikið til málanna
annað en að maður varð var við
örlítið glott þegar það átti við í
umræðunni. Ég kveð þig með
þessum orðum, Gísli Júlíus
Kjartansson, indæli tengdafaðir
minn, megir þú hvíla í friði.
Guðmundur Ásgeir
Björnsson.
Í dag kveðjum við systkinin
hinstu kveðju mág okkar og
góðan vin, Gísla Júlíus Kjart-
ansson. Hann er látinn eftir erf-
itt veikindastríð.
Systir okkar, Júlíana Sigríð-
ur, Lóa, fluttist frá Patreksfirði
til Reykjavíkur ung að aldri og
hóf þar störf. Síðar höfðu heilla-
dísirnar spunnið örlagaþráð
sinn á þann veg, að hún hitti
Gísla af tilviljun á dansleik í
Reykjavík. Með þeim tókust
strax góð kynni, sem síðar
leiddu til hjónabands árið 1958
og hefur sambúð þeirra alla tíð
verið traust og farsæl í 56 ár.
Frá fyrstu tíð voru kynni okkar
systkina af Gísla afar ánægju-
leg. Okkur virtist hann vera
duglegur sómapiltur, sem leit
björtum augum á framtíðina.
Fljótlega beindist áhugi þeirra
Lóu að því að eignast eigin
íbúð. Það var nú ekki auðveld
sýn á þessum tíma fyrir févana
fólk, peningakreppu og lokaðar
lánastofnanir. Þrátt fyrir úr-
tölur varð samt ekki aftur snú-
ið, heldur festu þau kaup á fok-
heldri kjallaraíbúð. Mér er
ennþá í fersku minni dæmalaus
dugnaður Gísla og elja við að
fullgera íbúðina, hann sá um
múrvekið, miðstöðvarlögnina og
málaði allt í hólf og gólf. Síðan
fluttu þau í fallegu íbúðina sína.
Ævi þeirra Lóu og Gísla hef-
ur verið góð og gæfurík. Þau
eignuðust tvö mannvænleg börn
og á sumrum var tjaldvagninn
dreginn fram og fjölskyldan
ferðaðist vítt og breitt um land-
ið og naut náttúrunnar. Þegar
golfbakterían heltók hjónin var
golfið stundað af miklum móð,
jafnvel fram á vetur.
Gísli Kjartansson var góð-
lyndur, hjálpsamur og greiðvik-
inn maður. Eftir góð kynni sam-
lagaðist hann fljótt fjölskyldum
okkar systkina.
Gísli útskrifaðist úr Vélskól-
anum ungur að árum og var vél-
stjórastarfið hans ævistarf. Við
systkinin minnumst og þökkum
fyrir hinar mörgu ánægjustund-
ir með Gísla á ættarmótum, há-
tíðum á Vogi á Mýrum og
þorrablótum á heimilum okkar.
Mikill öðlingur og góður dreng-
ur er genginn. Við þökkum
liðna tíð og sendum hugheilar
samúðarkveðjur til systur okk-
ar, barnanna Sæunnar og
Helga, barnabarnanna, systra
Gísla og annarra ástvina. Bless-
uð sé minning Gísla Kjartans-
sonar
Þórhallur Arason,
Ingólfur Arason,
Una Aradóttir,
Jón Arason.
Gísli J.
Kjartansson
✝ María SigríðurJúlíusdóttir
Húsfreyja var fædd
á Akureyri þann
31. maí 1927 og lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Sóltúni,
Reykjavík þann 21.
mars 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Júlíus Sig-
urður Hafliðason,
sjómaður frá Ak-
ureyri, fæddur 12.7. 1893, látinn
18.7. 1974 og Sigríður Ingiríður
Stefánsdóttir, húsfreyja frá
Syðsta-Móa, Haganeshr. í
Skagafirði, fædd 21.6. 1900, lát-
in 23.6. 1972, þau skildu. María
var sú fimmta í röðinni af sjö
systkinum en þau voru Magnea
Júlíusdóttir, f. 1919, d. 2006,
Gréta Emelía Júlíusdóttir, f.
1922, d. 2005, Hafsteinn Stefán
Júlíusson, f. 1924, d. 2008, Krist-
ján Júlíusson, f. 1926, d. 1998,
María Sigríður Júlíusdóttir, f.
1927, d. 2014, Þórunn Ólafía Júl-
íusdóttir, f. 1928 og Gunnar Dúi
Júlíusson, f. 1930, d. 2002. Sam-
feðra systkini eru Júlíus Júl-
íusson, f. 1942, Hafliði Júlíusson,
f. 1946 Gylfi Júlíusson, f. 1950,
d. 2002. María giftist Þórði Ein-
arssyni þann 16. mars 1949.
Hann er fæddur á Selskeri,
Gufudalssókn, A-Barðastr.sýslu,
þann 25. október 1921. Þórður
lést 24. nóvember 1996. María
og Þórður eignuðust 3 börn. 1)
Hugrúnu Guðríði Þórðardóttur,
f. 1948. Börn hennar eru a)
María Þórunn
Helgadóttir Sveins-
dóttir, f. 1965, son-
ur hennar er Ævar
Örn Sigurðsson, f.
1991 b) Ævar
Sveinsson, 1969,
sonur hans er Hilm-
ir Dan Ævarsson, f.
1999. 2) Ásgeir
Ebeneser Þórð-
arson, f. 1950. Börn
hans eru a) María
Dís Ásgeirsdóttir, f. 1976, sonur
hennar er Máni Ákason, f. 1997,
b) Álfhildur Ásgeirsdóttir, f.
1983, börn hennar eru Elmar
þór Magnússon, f. 2002, Emil
Þór Magnússon, f. 2007 og
Telma Magnúsdóttir, f. 2013 og
c) Óli Þór Olsen, f. 1989. 3) Júl-
íus Þórðarson, f. 1960. Fyrir átti
María soninn Sævar Sæmunds-
son, f. 1945. Börn hans eru a)
Sæmundur Sævarsson, f. 1967,
dætur hans eru Bára Sæmunds-
dóttir, f. 1995, Brynja Sæmunds-
dóttir, f. 2002 og Björk Sæ-
mundsdóttir, f. 2005. b) Guðrún
Ösp Sævarsdóttir, f. 1969. börn
hennar eru Anna María Sigurð-
ardóttir, f. 1991, Elvar Jóhann
Sigurðsson, f. 1996 og Bjarki
Rúnar Sigurðsson, f. 1997. c)
María Sif Sævarsdóttir, f. 1973
börn hennar eru Viktor Ari
Jónsson, f. 1993, Elín Ása Ein-
arsdóttir, f. 2001 og Hjörtur Elí
Einarsson, f. 2003.
Útför Maríu fór fram 3. apríl
2014, í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Það eru ekki margir sem hafa
lesið minningargreinar um sig,
en það hafði amma mín. Fyrir
rúmum sex árum veiktist hún
það mikið að ég skrifaði þetta til
hennar. Þegar hún svo hresstist
aftur sagði ég henni að ég hefði
verið búin að skrifa grein og hún
vildi þá ólm fá að heyra hana.
Þetta var stund sem ég gleymi
aldrei. Að sitja við gluggann í
herberginu hennar og eiga með
henni þessa tilfinningaþrungnu
stund var bæði furðulegt en
samt svo fallegt.
Elskuleg amma hefur haldið á
vit nýrra ævintýra. Þegar ég
hugsa um þig amma mín þá er
það glugginn í forstofunni sem
kemur fyrst upp í hugann. Sem
lítil stelpa standandi á tröpp-
unum að bíða eftir að þú opn-
aðir, bros færðist yfir fallega
andlitið þitt í gleði yfir að sjá
mig, allur líkaminn hristist af
hlátri og þú kallaðir uppyfir þig
þakkarorð þegar ég smaug í út-
breiddan faðm þinn. Það
streymdi á móti mér þessi
sterka hamingja að vera ein af
þínum. Þú varst ekki ólík gler-
inu í hurðinni; litskrúðug, glað-
leg, falleg og dularfull. Við átt-
um sameiginlega hluti sem ég
erfði frá þér og það var dásam-
legt að geta talað um þá og
heyra þínar sögur og upplifanir
af því að sjá og finna meira en
margir aðrir. Sem ung kona
þurftir þú að gefa pabba frá þér
og voru það þér erfiðar minn-
ingar en samt fann maður alltaf
sterkt þakklæti til góðhjörtuðu
hjónanna Guðrúnar og Sæmund-
ar sem tóku pabba að sér í Hrís-
ey. Þú varst óeigingjörn í garð
okkar en þakkaðir og gladdist í
hvert sinn sem þú sást okkur.
Þegar ég flutti suður hittumst
við mun oftar og áttum oft sam-
an gott spjall um liðna daga og
þótti mér vænt um að fá að
heyra þína sögu sem ung kona á
stríðsárunum. Þegar ég flutti
norður á ný veiktist þú mikið, en
þá fann maður þann mikla styrk
sem þú hafðir og hæfileika. Þú
vissir ávallt ef von var á mér og
þú gast sagt mér hvað þú sást á
minni álfajörð hér fyrir norðan
ásamt öðrum hlutum. Afi Þórður
var þér mikill vinur og var sárt
að finna söknuð þinn þegar hann
kvaddi þennan heim en þú áttir
sterka að sem hjálpuðu þér með
kærleik sínum.
Elsku amma mín, í hjarta
mér varstu ein af dýpstu rótum
lífs míns og á ég eftir að minn-
ast þín alla tíð. Bros þitt, hlátur
og hlýr faðmur mun nú dansa í
öðrum heimi og meðal annarra
sálna sem í dag gleðjast yfir að
hafa þig hjá sér. Hugrúnu, Ás-
geiri, Júlíusi, börnum og barna-
börnum sendi ég kærleik og
styrk. Góða ferð, elsku amma,
og takk fyrir að vera mér og
fjölskyldu minni svo dýrmæt.
Í álfheimum hún áði
á leið í annan heim.
Hún heilræði af þeim þáði
og hlátur færði þeim.
Með álfunum nú dansar
draumum mínum í.
Bæn brátt Drottinn ansar.
Ber sál þína hærra en ský.
Þó langar þrautir nú kveðjir
þá mun ég sakna þín.
Elju og einlægni þína erfði,
elsku amma mín.
(Gösp)
Þín
Guðrún Ösp Sævarsdóttir.
María Sigríður
Júlíusdóttir
✝ Bergþóra Guð-mundsdóttir
fæddist á Ísafirði
16. nóvember 1961.
Hún varð bráð-
kvödd á Akranesi
22. mars sl.
Bergþóra var
dóttir þeirra Guð-
bjargar Bergþóru
Árnadóttur, hús-
móður, f. 1928 í
Neskaupstað og
Guðmundar Jósefs Sigurðs-
sonar, járnsmiðs, f. 1924 í Hnífs-
dal, d. 1992. Bergþóra var yngst
systkina sinna en þau eru: Guð-
mundur Sigurður, f. 1949, Pét-
ur, f. 1950, Árni, f. 1954, d. 2007,
Jónína Sesselja, f. 1955, Ólafur
Már, f. 1957 og Einar Valur,
1958. Bergþóra eignaðist þrjú
börn: 1) Guðbjörgu Þóru, f.
1982, ættleidda af hjónunum
Kristínu Karlsdóttur og Ingi-
mar Halldórssyni, Ísafirði. Eig-
inmaður Guð-
bjargar Þóru er
Þórarinn Örn Eg-
ilsson og eiga þau
Egil Ingimar, áður
átti Þóra Erni Leo
og Arnar Mána sem
Þórarinn gengur í
föðurstað. 2) Gaut
Inga, f. 1985, ætt-
leiddan af sömu
hjónum, Kristínu
og Ingimar. Gautur
á eina dóttur, Kristínu Báru. 3)
Einar Val Ásgeirsson, f. 1988,
son Bergþóru og Ásgeirs Gunn-
arssonar. Unnusta hans er Ca-
milla Lang og eru þau búsett í
Danmörku. Bergþóra ólst upp á
Ísafirði og lauk námi þar við
gagnfræðaskólann. Hún stund-
aði margvísleg störf til sjós og
lands.
Útför Bergþóru fór fram í
kyrrþey frá Fossvogskapellu, 4.
apríl 2014.
Elsku Bergþóra mín.
Finnst skrítið að hafa heyrt í
þér í fyrradag og að í dag sértu
farin. Ég heyrði það á þér að
Bakkus konungur var búinn að
ná valdi á þér. En ég hugga mig
við það að í dag ertu hjá þeim
máttuga algóða Guði sem ég veit
að þú leitaðir til og hefur hjálpað
þér svo mikið. Það var oft svo
mikill hugur í þér og þú hlakkaðir
svo til að fá að vera amma og til
staðar fyrir börnin þín og fólkið
þitt, og ég átti svo auðvelt með að
sjá þig fyrir mér í því hlutverki.
Þú varst oft svo dugleg að berjast
og ég man hvað ég var stolt af þér
og fannst það mikil forréttindi að
fá að vera til staðar fyrir þig við
að gera upp erfiðu fortíðina þína
sem mér fannst þú gera svo vel.
Endalaust af minningum flæðir
um í hausnum á mér og ég er
virkilega þakklát fyrir að hafa
kynnst þér og þakklát fyrir tím-
ana sem við áttum saman. Þú átt-
ir svo einstaklega fallegt hjarta
og ég fann alltaf svo mikla hlýju
frá þér. Takk fyrir hláturinn, sím-
tölin, kaffibollana í Kópavoginum
og síðan en ekki síst það sem ég
fékk að læra af þér. Þú átt eftir að
eiga stað í hjarta mínu um alla tíð.
Elska þig, flotta hetjan mín
Þegar raunir þjaka mig,
þróttur andans dvínar,
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni,
láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
(Gísli á Uppsölum.)
Þín vinkona.
Elín Arna.
Bergþóra
Guðmundsdóttir
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
skal senda hana með æviágripi í
innsendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent er ráðlegt að
senda myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og láta umsjón-
armenn minningargreina vita.
Minningargreinar