Morgunblaðið - 30.04.2014, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Ég verð bara í vinnunni og svo heima með fjölskyldunni aðborða góðan mat. Ég fæ reyndar að ráða hádegismatnum ívinnunni. Það er alltaf kostur þegar maður á afmæli. Það
verður Austurlandahraðlestin fyrir alla. Maður fær að vera sér-
stakur í einn dag,“ segir Birna Hlín Káradóttir, yfirlögfræðingur
Straums fjárfestingabanka, sem fagnar 36 ára afmæli sínu í dag.
Hún hélt upp á afmælið um helgina en þá fór hún með eiginmanni
sínum, Birni Frey Ingólfssyni, á Snæfellsnes og gisti á Hótel Búðum.
„Það var alveg bongóblíða. Við fórum í göngutúr, borðuðum frá-
bæran mat. Þetta var alveg meiriháttar,“ segir Birna Hlín um ferð-
ina.
Í fyrra hélt Birna Hlín vel upp á 35 ára afmælið sitt með góðu
partíi fyrir vini en hélt svo kökuboð daginn eftir fyrir fjölskylduna.
Eftir á að hyggja segist hún ekki endilega mæla með því fyrir-
komulagi. „Það var svolítið erfitt afmælið þarna daginn eftir. Heils-
an var ekki alveg upp á sitt besta,“ segir Birna Hlín og hlær.
Fyrir utan vinnuna hefur afmælisbarnið meðal annars gaman af
hlaupum og fluguveiði. Þau hjónin fara mikið saman að veiða, oftast
í Grímsá í Borgarfirði. „Það er að vera úti í náttúrunni. Það er eitt-
hvað svo dásamlegt og afslappandi,“ segir Birna Hlín um hvað það
er sem heillar hana við stangveiðina. kjartan@mbl.is
Birna Hlín Káradóttir er 36 ára í dag
Aflakló Birna Hlín hefur áhuga á fluguveiði. Hér stillir hún sér stolt
upp með 93 cm langan lax sem hún veiddi í Vatnsdalsá árið 2012.
Velur matinn fyrir
vinnufélagana
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjanesbær Tristan Elí fæddist
30. apríl kl. 18.06. Hann vó 3.750 g og
var 51,5 cm langur. Foreldrar hans eru
Karítas Mist Hauksdóttir og Thomas
R. Mayubay.
Nýir borgarar
Akureyri Elmar Freyr Viðarsson
fæddist 18.8. 2013. Hann vó 3.712 gr
og var 51 cm langur. Foreldrar hans
eru Jón Viðar Baldursson og Ásdís
Helga Sigursteinsdóttir.
Á
sta Hrönn fæddist í
Reykjavík og ólst upp í
Kleppsholtinu en var í
sveit á sumrin hjá Katr-
ínu Magnúsdóttur og
Bjarna Ólafssyni í Skálakoti undir
Vestur-Eyjafjöllum. Ásta Hrönn
segir að hún hafi þurft að ganga í
ýmis verkefni í blönduðum búskap,
og var meðal annars kúarektor. Þar
æfði hún sig á að tala ensku við kýrn-
ar og syngja fyrir þær helstu dæg-
urlögin í fjósinu. „Það var til plata
heima hjá mér með helstu smellum
kvartettsins Mamas and the Papas,
og ég söng allar raddirnar fyrir
kýrnar. Þetta þótti gasalega fyndið í
sveitinni, sem ég frétti ekki af fyrr
en á fullorðinsárum,“ segir Ásta
Hrönn kímin.
Skólaganga Ástu Hrannar hófst í
skóla Ísaks Jónssonar, þaðan sem
leiðin lá í Laugarnesskóla, og síðan
Kvennaskólann í Reykjavík, sem þá
var ennþá grunnskóli. Kvennó var á
þeim tíma einvörðungu skipaður
námsmeyjum og einum pilti, sem var
sá fyrsti til þess að nema við skólann.
Dr. Guðrún P. Helgadóttir var rekt-
or og hóf daglegt manntal ávallt á
sömu orðunum: „Góðan dag stúlkur
… og Jón.“
Á menntaskólaárunum í MR starf-
aði Ásta Hrönn eitt sumar sem stofu-
stúlka á herragarðinum Randrup á
Jótlandi, þar sem menn ræktuðu
flæmin af kartöflum í ákavíti fyrir
„De Danske Spritt Fabrikker.“ Starf
hennar fólst hins vegar í þjónustu til
borðs, með hvíta svuntu og kappa,
þrifum á gömlum tíglagólfum með
brúnsápu og burstum ásamt því að
tína hindber í skóginum og elda fas-
ana fyrir gesti óðalseigenda. Annað
sumar starfaði hún á barna-
heilsuhælinu Schönsicht í Berch-
tesgaden í Suður-Þýskalandi. Þorpið
er frægast fyrir nágrenni við fjalla-
höll Adolfs Hitler, Arnarhreiðrið,
sem gnæfir þar á hæsta tindi. Ásta
Hrönn minnist þess að það hafi verið
skrítin tilfinning að heimsækja það.
„Þegar inn er komið er risastórt og
maður er kominn í stássstofuna hjá
þeim skötuhjúum Adolf og Evu
Braun, eins og þetta væri hvaða tý-
rólski bóndi sem er sem hefði búið
þarna,“ segir Ásta.
Nokkuð var um þýska ferðamenn
á þessum tíma, en tveir til þrír nem-
ar í MR störfuðu við heimilið á
Ásta Hrönn Maack framkvæmdastjóri á Seltjarnarnesi – 50 ára
Í fullum herklæðum Klæðnaður kvenna í Chennai er hefðbundinn miðað við það sem gerist norðar í landinu og
íþróttaiðkun hefur þar engin áhrif. Blaklið EC Software, sést hér því klætt í sinn æfingafatnað ásamt Ástu Hrönn.
Blakliðið vel klætt
Hjónin Ásta og Jón í Mahalipuram
hjá Chennai við Bengalflóa.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Sjáðu sjálfan þig
í nýju ljósi
Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is
• Einangrunargler
• Gluggar (Ál og PVC-plast)
• Hurðir (Ál og PVC-plast)
• Speglar
• Gler
• Hert gler
• Lagskipt öryggisgler
• Litað gler
• Sandblástur
• Álprófílar
• Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir á baðherbergi. Við bjóðum
upp á sérsmíðaða spegla, sturtuklefa og sturtu-
skilrúm. Þá erum við komnir með nýja útgáfu af
ljósaspeglunum okkar vinsælu.
Á heimasíðu okkar glerborg.is er gott yfirlit
yfir það sem er í boði. Auk þess bjóðum við alla
velkomna í Mörkina þar sem fagfólk veitir góða
þjónustu og allar þær upplýsingar sem þarf.