Morgunblaðið - 30.04.2014, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Frá okkur færðu
skyrturnar þínar
tandurhreinar og
nýstraujaðar
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380
ÞVOTTAHÚS
EFNALAUG
DÚKALEIGA
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Feimni er valkostur, ekki einkenni á
persónuleikanum. Gefðu þér góðan tíma til
þess að undirbúa textann svo allir geti
gengið sáttir frá borði.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú nýtur þín í samskiptum við aðra í
dag og ljómar af innri gleði sem skilar sér
til annarra. Reynsla þín, skoðanir, trú og
tilfinningar eru algerlega einstakar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú býrð yfir miklum fróðleik sem
þú getur miðlað til annarra ef þú ert tilbú-
in/n til að gefa af þér. Enginn er fullkom-
inn og þá þú ekki heldur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Náinn vinur eða starfsfélagi gæti
viljað hjálpa þér í dag. Gættu þess bara að
ganga ekki of nærri þér, andlega eða lík-
amlega.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú átt ekki eftir að sjá eftir því að
vinna bak við tjöldin í dag. Menn vilja bara
heyra hvað gerðist en ekki hvað þér finnst.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert umkringd/ur fólki sem getur
hjálpað þér til að komast áleiðis í vinnu og
einkalífi. Sýndu því skilning og þér mun
verða launað þótt síðar verði.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert kappsfull/ur og það svo að þú
átt erfitt með að halda aftur af þér þegar
betur færi á því. En áhugi þinn virkar smit-
andi á aðra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gefðu þér tíma til þess að
sinna vandamálum þeirra, sem til þín leita.
Galdurinn er að hafa frumkvæðið sjálf/ur
en ekki bara bíða byrsins.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er í góðu lagi að láta sig
dreyma um fjarlæg lönd og álfur ef þú
bara manst að hafa báða fætur á jörðinni
hér heima við. Efldu trúarlíf þitt og leitaðu
svara við spurningum þínum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vinir þínir gætu valdið þér von-
brigðum í dag. Ef þú tekur eitthvað of per-
sónulega er það bara mannlegt. Áhugi þinn
á samskiptum er smitandi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Að undanförnu hefurðu verið að
endurmeta lífsviðhorf þitt. Treystu því að
hrósið sem þú færð fyrir það er þess virði
að hafa smá áhyggjur og stundum bak-
verk.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Notaðu daginn til þess að ganga í
félag eða samtök sem hjálpa þeim sem
minna mega sín. Léttu á hjarta þínu því þá
líður þér betur á eftir.
Kristbjörg Freydís Steingríms-dóttir fagnaði sumarkomunni
á Leirnum með þessum vísum:
Sunnanþeyrinn syngur
sólin skín í heiði,
blundinn losa blómin
og brumið á meiði
á tjörnum og í móum
er mikið á seyði.
Tásuskýin svífa
í sólgeisladans
svona heilsar sumarið
í sveitum norðanlands.
Og á mánudaginn setti hún þessa
morgunvísu á Leirinn:
Ennþá gengur allt í hag
ennþá hjartað slær
ég er aðeins eldri í dag
en ég var í gær.
En Jóni Arnljótssyni þótti sumarið
ekki byrja vel:
Er kom hann á fætur, þá kviknaði á peru,
nú karlinum var eigi rótt,
því ferlegu vandræðin framundan eru:
ÞAÐ FRAUS EKKI SAMAN Í NÓTT.
Kveðja barst á Leirnum frá Magn-
úsi frá Sveinsstöðum:
„Góða kvöldið og gleðilegt sumar
með góðum þökkum fyrir vísurnar í
vetur. Um daginn þegar útsynning-
urinn fór sem mest fyrir brjóstið á
mönnum gerði ég vísukorn og bætti
svo annarri við í dag eftir þriggja
daga veðurblíðu.
Yfir veðri er ég dapur
ógnar vindur mjög til baga.
Útsynningur nokkuð napur
næðir yfir flesta daga.
Nú er allt með öðrum brag
afar fátt til baga.
Sunnanblærinn bætir hag
blíða alla daga.“
Það liggur vel á Arnþóri
snjallsímaleirskáldi sem sendir
snjallsíma-sumarleir úr snjallsíma:
Syngur lóa, selir kæpa.
Sefur tófa úti í mó.
Margir sóa, ýmsir æpa.
Aðrir þróa hugar ró.
Ósjálfrátt rifjast upp þessi staka
eftir Glosa, – meistara Guðmund
Þorláksson:
Kæpir selur, kastar mer,
konan fæðir, ærin ber,
fuglinn verpur, flugan skítur,
fiskur hrygnir, tíkin gýtur.
Ármann Þorgrímsson er í öðrum
þönkum og segir: „Þannig er þetta
bara“:
Segja verð ég sannleikann
sem þó fáum líka kann,
lofa margir lausnarann
en lítið gera fyrir hann.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vorið kallar á vísur um
veðrið og náttúruna
Í klípu
„ÞETTA VAR VIÐVÖRUNARSKOT.
HUNSKASTU ÚT ÚR SKRIFSTOFUNNI
MINNI OG FARÐU AÐ VINNA. NÆST
VERÐURÐU EKKI SVO HEPPINN!“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG MÁLAÐI TALSVERT Á SPÍTALANUM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... stóra spurningin.
ÞÚ ERT ÞÖGULL Í
KVÖLD, LÚÐVÍK.
ÉG VEIT ...
EINHVERRA HLUTA
VEGNA ER ÉG EKKI
MJÖG MÁLGEFINN
NÚNA.
VÁ, HVAÐ ÞÚ
LÍTUR VEL ÚT!
ÞAKKA
ÞÉR!
GRETTIR ... ÞAÐ VÆRI NÚ
SNIÐUGT AÐ SEGJA
EITTHVAÐ FALLEGT
VIÐ LÍSU LÍKA.
Víkverji nýtur þess að þurfa aðéta ofan í sig fyrri fullyrðingar.
Fyrir viku sá hann ástæðu til að
skrifa um sumardaginn fyrsta og
hafði á orði að yfirleitt væri ekkert
sumarlegt við daginn, lúðrasveitir
gengju um stræti bláar af kulda
með kappklædda halarófu á eftir
sér. Víkverji gat sagt sér sjálfur að
fyrst honum dytti í hug að skrifa
svona væri gefið að blíðviðri yrði
sumardaginn fyrsta og sú varð
rauninn. Víkverji velti fyrir sér
hvort nú væri ráð að koma sér upp
„fótboltahjátrú“, sem sumir eru
haldnir og trúa því að tilteknar at-
hafnir á leikdegi skipti sköpum eigi
lið þeirra að bera sigur úr býtum.
Það myndi kalla á árlegan pistil um
að sumardagurinn fyrsti standi ekki
undir nafni.
x x x
Víkverji hefur komist að því aðekki er bara Alþingi á Íslandi.
Á Hjaltlandi er rekið málfundafélag
sem ber nafnið Alþingi eða Althing.
Þar fara fram kappræður og eru
greidd atkvæði um mál fyrir og eft-
ir. Gefur það mynd af því hversu
sannfærandi ræðumenn eru. Í lok
mars var haldinn þar fundur um
það hvort nú væri rétti tíminn fyrir
Skota að heimta sjálfstæði. Fyrir
kappræðurnar voru 56 með, 55 á
móti og 29 óákveðnir. Eftir þær
voru 70 með, 48 á móti og 22 óá-
kveðnir. Sjálfstæðismenn hafa
greinilega verið í essinu sínu á
fundinum.
x x x
Málfundafélagið Alþingi varstofnað árið 1950 og kemur
saman í grunnskólanum Tingwall í
samnefndu þorpi. Það er við hæfi
því að Tingwall þýðir Þingvellir.
Tingwall stendur við Loch Tingwall
eða Þingvallavatn og þar er lítið
nes, sem nefnist Tingaholm eða
Law Tinga Holm, og á Þinghólma
kom samkvæmt alfræðiritinu Wi-
kipediu á netinu fyrsta þing Hjalt-
lands saman. Á Alþingi Hjaltlands-
eyinga má ræða allt, en
umræðuefnin hjá málfundafélaginu
eru ekki alltaf alvarleg. 1955 var
umræðuefnið hvort dráttarvélin
nýttist hjáleigubóndanum betur en
eiginkona. Dráttarvélin hafði betur.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er styrkur minn og lofsöngur,
hann varð mér til hjálpræðis.
(Sálmarnir 118:14)