Morgunblaðið - 30.04.2014, Síða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Hollenski myndlistarmaðurinn Pie-
ter Holstein hefur gefið Safnasafn-
inu í Eyjafirði 38 grafíkverk eftir
sig. 24 verk bárust safninu árið 2012
og 14 fyrir stuttu. Er þar nú eitt
stærsta safn þessa kunna myndlist-
armanns á einum stað.
Holstein kveðst hafa hrifist af
Safnasafninu, hvernig það vinnur
með tilliti til jafnréttis og umburð-
arlyndis og gefur jaðarfólki og sér-
stæðum einstaklingum svigrúm til
að tjá sig í samstarfi við þá sem hafa
lokið löngu og ströngu listnámi. Sýn-
ing á gjöfinni verður opnuð 17. maí.
Pieter Holstein fæddist árið 1934,
stundaði meðal annars listnám í
New York og var prófessor í frjálsri
grafík við Rijksakademie van Beel-
dende Kunst í Amsterdam. Snemma
á sjöunda áratugnum kom hann í
verkum sínum fram með heillandi
myndmál byggt á reynslu og draum-
sýnum mannsins. Hann nálgaðist
viðfangsefni sín frá ýmsum sjón-
arhornum, sviðsetti meðal annars
þekkt ævintýri á nýstárlega máta og
notaði tilvitnanir í heimspeki og eig-
in texta til að leggja áherslu á inni-
hald verkanna, eða snúa út úr þeirri
meiningu sem skoðandinn telur
rétta.
Yfirbragð grafíkverka hans er
hverfult, dulmagnað, og vekur
áleitnar spurningar um stöðu
mannsins í náttúrunni, um vistkerfi
sem fer sífellt hrakandi, um falskar
ímyndir sem raska jafnvægi hlut-
anna, um skammvinna sælu og
væntingar. Verkin eru frumleg og
krefjandi, skærir litir eru notaðir
sparlega og undirstrika inntakið,
hvort sem það liggur ljóst fyrir eða
þarfnast skýringar. Stundum er eitt-
hvað óhugnanlegt á sveimi í verk-
inu, tvíræðni sem glittir í, eða dulbú-
in hótun, svo menn verða að geta sér
til um hvort hún er raunveruleg, stíl-
bragð, sjónhverfing til að afvega-
leiða, varfærnisleg stríðni. Í öðrum
verkum eru persónuleg minni, tilvís-
anir í stríð og aðrar hörmungar.
Hvort sem grafíkverkin eru í litlu
eða stóru upplagi eru öll blöðin ein-
stök því litasamsetningin er breyti-
leg.
Um og eftir 1970 hrifust margir
ungir íslenskir myndlistarmenn af
hugmyndafræði Pieters Holsteins
og grafíkverkum hans, kímni þeirra
og óvæntu samhengi hlutanna. Síðar
urðu íslenskir listnemar í Hollandi
fyrir frjóum áhrifum af verkum
hans, og endurómur þeirra, örlítill
vottur, stingur stöku sinnum upp
kollinum á ólíklegustu sýningum
sem ósjálfráð tileinkun í hug-
myndaheim brautryðjandans.
Verk Pieters Holsteins má finna í
söfnum víða, meðal annars í Hol-
landi, Museum of Modern Art í New
York og Nýlistasafninu.
Ævintýri Eitt grafíkverkanna 38 sem Holstein hefur gefið Safnasafninu í
Eyjafirði. Margir íslenskir listamenn hrifust af myndheimi hans.
Holstein gefur
Safnasafninu verk
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Önnur einkasýning spænska mynd-
listarmannsins Ignacios Uriartes í i8
galleríi verður opnuð í dag kl. 17.
Uriarte sýnir þrjár myndaraðir sem
einkennast af endurtekningu og
vinnur hann sem fyrr verk sín úr
einföldum og ódýrum efnivið, pappír
og ritföngum sem ætti að vera hægt
að finna á hvaða skrifstofu sem er.
Uriarte var skrifstofumaður í nokkr-
um fyrirtækjum í áratug, vann að
myndlist í frístundum en sneri sér
alfarið að listinni árið 2003, myndlist
sem hann kallaði skrifstofumyndlist
í samtali við Morgunblaðið árið 2010.
Það er ljóst að töluverða þolin-
mæði þarf til að vinna verk á borð
við þau sem Uriarte sýnir í i8. Í
myndaröðinni 1s & 0s sem hann
vann á árunum 2011-14 eru 128 A4-
blöð þakin vélrituðum tölustöfum, 0
og 1. Og ekki er nóg með það heldur
eru blöðin vélrituð á jafnmargar rit-
vélar sem listamaðurinn fann í safni
60 ára gamallar skrifstofuvöruversl-
unar í Vigo á Spáni. Hver mynd í
röðinni hefur því sín sérkenni og let-
urgerð og ástand ritvélarinnar hefur
áhrif á útkomuna, m.a. aldur ritvél-
arborðans, auk þess sem blöðin eru
ólík að áferð og lit, eins og fram
kemur í texta listfræðingsins Jóns
Proppé um sýninguna.
Uriarte kallar myndirnar „ritvéla-
teikningar“ og segir hverja ritvél
búa yfir ákveðnum persónuleika sem
skili sér í myndunum. „Tölustafirnir
0 og 1 eru vísun í tvíundakerfið,
talnakerfi tölvunnar,“ segir Uriarte.
„Það er eins og ritvélarnar séu að
reyna að líkja eftir tölvum og út
kemur þýðingarlaus talnaruna,“
bendir Uriarte á. Teikningarnar
minni á einfalda gagnagrind í for-
ritun, fylki (e. matrix) á borð við þau
sem oft sjáist í kvikmyndum. Blaða-
manni verður hugsað til Matrix-
þríleikjarins þar sem talnarunur
koma mikið við sögu.
Þriggja ára vinna
„Það tók mig þrjú ár að gera
þessa myndaröð. Í byrjun gekk
þetta hægt því ég þurfti að finna all-
ar þessar ólíku ritvélar, hringdi í vini
og fann eina og eina þannig. Svo
komst ég í samband við þetta safn á
Spáni og fór þangað tvisvar, fyrst í
tíu daga og svo í viku. Ég fór þangað
með aðstoðarmanni mínum og við
vélrituðum allan daginn í tvær og
hálfa viku,“ segir Uriarte.
Hinar myndaraðirnar tvær á sýn-
ingunni í i8 eru Four Colour Docu-
ments og Amorphous Transition
Matrix og eru þar á ferðinni form-
legri tilraunir, eins og Jón Proppé
bendir á í sínum texta. Í fyrri röðinni
raðar Uriarte fjórum línustrikuðum
ferhyrningum, sem eru jafnstórir og
í sömu hlutföllum og A4-blöð og í
fjórum litum, þ.e. svörtum, bláum,
rauðum og grænum, á eins marga
vegu og hægt er á myndfletinum.
Ferhyrningarnir skarast og mynd-
ast þá nýir litir. Uriarte segir röðina
tengjast hinum stafræna heimi líkt
og ritvélateikningarnar og að hann
líti á hana sem e.k. fljótandi dans.
Í Amorphous Transition Matrix
eru svo 16 teikningar sem byrja á
einfaldri útlínu sem dregin er með
einni hreyfingu og án umhugsunar á
blöð þannig að óreglulegt sporöskju-
form myndast. Það fyllir Uriarte svo
með kerfisbundnu kroti sem lýsist
og dökknar svo úr verður þrívítt
form.
Frekari fróðleik um sýninguna og
Uriarte má finna á i8.is.
Kerfisbundin skrifstofulist
Ignacio Uriarte sýnir þrjár myndaraðir í i8 galleríi
Tölustafirnir 0 og 1 slegnir á 128 blöð með 128 ritvélum
Morgunblaðið/Eggert
Tímafrekt Ignacio Uriarte á sýningu sinni í i8. Þriggja ára vinna liggur að baki einni myndaraðanna á sýningunni.
Upplýst hefur verið að Jón Jónsson
mun semja þjóðhátíðarlagið í ár.
Það ber vinnuheitið „Ljúft að vera
til“ og verður frumflutt í júní. Jón
mun á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
koma fram með Fjallabræðrum og
Sverri Bergmann.
Af öðrum flytjendum sem fram
koma á hátíðinni eru Quarashi, Ka-
leo, Skálmöld, Baggalútur, Fjalla-
bræður og Sverrir Bergmann,
Mammút, Jónas Sigurðsson og
Skítamórall. Samkvæmt upplýs-
ingum frá skipuleggjendum verður
á næstu vikum tilkynnt um fleiri
listamenn sem koma munu fram.
Allar nánari upplýsingar eru á dal-
urinn.is.
Morgunblaðið/Eggert
Poppstjarnan Jón Jónsson.
Jón Jónsson semur þjóðhátíðarlagið í ár
Goddur eða Guðmundur Oddur
Magnússon, prófessor í grafískri
hönnun, heldur í dag kl. 12.10 fyr-
irlestur í fyrirlestraröð Hönnunar-
og arkitektúrdeildar Listaháskóla
Íslands, sem nefnist Sneiðmynd, í
Þverholti 11 í fyrirlestrarsal A.
„Í þessum fyrirlestri mun Goddur
fyrst og fremst sýna grafísk verk
sín, fjalla um eigin feril og áhrifa-
valda í grafískri hönnun sem spann-
ar 40 ár. Hann hefur fyrst og
fremst unnið að hönnun fyrir menn-
ingarstofnanir og listamenn.
Fjallað verður um hugmynda-
fræðileg tengsl lista og hönnunar.“
Morgunblaðið/Golli
Sneiðmynd Guðmundur Oddur Magn-
ússon, betur þekktur sem Goddur.
Goddur fjallar um
eigin hönnunarferil