Morgunblaðið - 30.04.2014, Qupperneq 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Það virðist vera nokkuð al-gengur hlutur í teikni-myndasögum, að þegarmenn eru komnir ofan í
holu með söguþráðinn að þá sé bara
ýtt á takka og byrjað upp á nýtt á
byrjunarreit. Ein slík var kvik-
myndaserían um Kóngulóarmann-
inn í leikstjórn Sams Raimis, sem
eftir tvær ágætar og eina mistæka
mynd þótti ekki líkleg til frekari af-
reka. Var þá bara byrjað upp á nýtt,
með nýjum aðalleikara, leikstjóra
og handritshöfundum, og kom nýja
útgáfan í bíó fyrir tveimur árum. Og
líkt og lóan kemur gjarnan á vorin
er Lói mættur enn á ný til þess að
bjarga New York úr klóm illmenna.
Myndin hefst svo sem ágætlega.
Peter Parker (Andrew Garfield) á
annasamt líf sem Kóngulóarmað-
urinn og missir næstum því af út-
skriftinni sinni fyrir vikið. Kær-
astan hans, Gwen Stacy (Emma
Stone), er dúx og heldur þar ræðu
um hverfulleika lífsins. Jafnframt fá
áhorfendur ákveðnar vísbendingar
um að maðkur hafi verið í mysunni
þegar foreldrar Peters ákváðu að
skilja hann eftir hjá frænda sínum
og frænku, sem ólu hann upp.
Einkum má nefna tvo galla á
þessari mynd. Annar þeirra er sá að
það er enginn hörgull á vondum
gæjum í myndinni og tekur því tæp-
an tvo og hálfan klukkutíma að
vinna bug á þeim öllum. Myndin
verður því miður nokkuð langdregin
á köflum fyrir vikið. Sá fyrsti sem
kynntur er til sögunnar er Electro
(Jamie Foxx), öðru nafni Max Dill-
on. Hann á greinilega að vera ein-
hvers konar misskilinn snillingur/
geðsjúklingur og vísindamaður, en
starf hans er ekki metið að verð-
leikum. Ef það er einhver fasti í of-
urhetjumyndum, þá er hann sá að
slíkir menn eru oftast bara einu
slysi í rannsóknarstofunni frá því að
verða ofurþrjótar, og Max er engin
undantekning.
Því miður er allt of lítið unnið
með persónu Max/Electro í mynd-
inni, sem færir okkur að hinum
galla myndarinnar. Málið er að þó
að myndin sé löng er megninu af
þeim tíma varið í ástarsamband
Peters og Gwen Stacy, og þá sálar-
angist sem fylgir, því að Peter ótt-
ast að tilvera sín sem Kóngulóar-
maðurinn eigi eftir að koma í bakið
á sér og þeim sem hann elskar. Sá
söguþráður endar í drama, sem
fylgir upphaflegu teiknimyndasög-
unni nokkuð samviskusamlega en
tekst ekki nógu vel að hreyfa við
áhorfendum.
Þrátt fyrir þetta komast leik-
ararnir flestir vel frá sínu. Þó að
Garfield sé kannski ekki jafnoki
Tobys Maguires í hlutverki
Kóngulóarmannsins nær hann samt
að sameina vissan þokka og húmor í
hlutverkinu. Emma Stone stendur
sig ágætlega sem Gwen Stacy, en
ekki mikið meira en það. Þeir sem
bregðast mest eru illmennin, þar
sem Jamie Foxx nær ekki alveg að
koma geðsjúklingnum/snillingnum
Max Dillon til skila fyrr en hann er
orðinn að Electro, og Paul Giamatti
af öllum mönnum er fenginn í hlut-
verk hins dæmigerða rússneska
mafíósa, sem verður að Nashyrn-
ingnum. Hefði vart verið hægt að
finna mann sem passaði verr við
hlutverkið.
Þegar allt kemur til alls er fram-
vinda myndarinnar einfaldlega of
hæg til þess að halda manni og has-
aratriðin allt of fá, sérstaklega mið-
að við það að þegar hlutirnir fara
loksins á flug er nýbúið að kynna til
söguna annan ofurþrjót, beint úr
öðru „óhappi“ á rannsóknarstof-
unni, og svo í blálokin er búinn til sá
þriðji, svona rétt til þess að ljúka
sögunni á jákvæðari nótum en ást-
arsögu Peters og Gwen. Á heildina
litið virðist sem ekki hafi verið hægt
að ákveða hvort hér væri um að
ræða rómantískt drama eða has-
armynd og verður myndin rysjótt
fyrir bragðið.
Hæg „Þegar allt kemur til alls er framvinda myndarinnar einfaldlega of hæg til þess að halda manni,“ segir m.a. í
gagnrýni um nýjustu kvikmyndina um Kóngulóarmanninn, The Amazing Spider-Man 2.
Óþokki á óþokka ofan
Smárabíó, Laugarásbíó og
Sambíóin
The Amazing Spiderman 2 bbmnn
Leikstjóri: Marc Webb. Handrit: Alex
Kurtzman, Roberto Orci og Jeff Pinkner,
byggt á sögu eftir Stan Lee og Steve
Ditko. Aðalhlutverk: Andrew Garfield,
Emma Stone, Jamie Foxx, Dane DeHaan,
Paul Giamatti og Sally Field.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR
Árni Bergur Zoëga útskrifast með
BA-gráðu í tónsmíðum frá Listahá-
skóla Íslands nú í vor og heldur af
því tilefni útskriftartónleika sína í
Salnum í kvöld kl. 21.
Á efnisskrá er m.a. verkið KATA-
BASIS II - Incubation Within the
Æthochroic Osseous Vault: In me-
dio Umbræ Mortis fyrir blandaðan
kammerhóp og sópran. „Verkið,
sem er í fjórum köflum, sækir inn-
blástur í forngrískar galdraathafnir
og lýsir alkemískri för í djúp hinna
goðsagnakenndu heima undir-
meðvitund-
arinnar,“ segir í
tilkynningu. Þar
kemur einnig
fram að Árni
Bergur hafi
brennandi áhuga
á dulspekilegum
og trúarlegum
efnum og vinni
markvisst að því
að samtvinna
tónsköpun sína og andlega iðkun.
Aðgangur er ókeypis.
Útskriftartónleikar Árna B. Zoëga í Salnum
Árni Bergur
Zoëga
Bandaríski tónlistarmaðurinn Willy
Mason heldur tónleika í Mengi í
kvöld kl. 21 en honum til halds og
trausts eru Emilíana Torrini og
Mara Carlyle. Annað kvöld, þ.e.
fimmtudaginn 1. maí kl. 20, leikur
hljómsveitin Amiina fyrir gesti, en
sveitin er nýkomin heim frá Tyrk-
landi þar sem hún lék í Istanbúl.
Sviðslistamaðurinn Friðgeir Ein-
arsson sýnir verk sitt Tiny Guy
föstudaginn 2. maí og laugardaginn
3. maí kl. 20 bæði kvöld. Verkið
greinir frá rannsóknum Friðgeirs á
mannsheilanum, en meginniður-
staða hans er að við séum of löt til
að hugsa. Aðgangseyrir er 2.000
krónur. Verslunarrými Mengis er
opið miðvikudaga til laugardaga
milli kl. 12 og 18.
Tónlist Fjölbreytt dagskrá er í Mengi, en
meðal listamanna er Willy Mason.
Willy Mason, Am-
iina og Tiny Guy
Dægurlaga-
söngvarinn og
lagahöfundurinn
Paul Simon og
barnsmóðir
hans og eig-
inkona í 22 ár,
söngkonan Edie
Brickell, leidd-
ust fyrir dóm-
ara í Connecti-
cut í gær þegar þau voru kölluð
fyrir vegna kæru um átök á
heimili sínu um helgina.
Simon greindi dómaranum frá
því að þau Brickell hefðu aldrei
þessu vant átt í rifrildi en það
væri leyst, og þau elskuðu hvort
annað.
Samkvæmt frétttamiðlum sáu
lögreglumenn sem kallaðir voru
að heimilinu lítilsháttar meiðsli
á öðru þeirra og var heimilis-
ofbeldi kennt um. Í kjölfarið yf-
irgaf annað hjónanna heimilið,
þar til í dag, en ekki er greint
frá því hvort þeirra það var.
„Nú förum við aftur heim og
fylgjumst með syni okkar í
hafnabolta,“ sagði Simon við
fréttamenn. „Hvorugt okkar
hefur neina ástæðu til að finn-
ast sér ógnað eða að óttast eitt-
hvað.“
Paul Simon og Edie Brickell fyrir rétti
Paul Simon
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Fös 2/5 kl. 19:30 28.sýn Lau 17/5 kl. 19:30 32.sýn Sun 25/5 kl. 19:30 35.sýn
Fös 9/5 kl. 19:30 30.sýn Sun 18/5 kl. 19:30 33.sýn
Lau 10/5 kl. 16:00 31.sýn Lau 24/5 kl. 19:30 34.sýn
Salurinn veltist um af hlátri. Fáránlega skemmtilegt!
Svanir skilja ekki (Kassinn)
Fös 2/5 kl. 19:30 21. sýn Mið 7/5 kl. 19:30 23. sýn Lau 17/5 kl. 19:30 25.sýn
Lau 3/5 kl. 19:30 22. sýn Fös 9/5 kl. 19:30 24. sýn Sun 18/5 kl. 19:30 26.sýn
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur um undarlegt eðli hjónabandsins.
Eldraunin (Stóra sviðið)
Mið 30/4 kl. 19:30 3.sýn Sun 11/5 kl. 19:30 6.sýn Fim 22/5 kl. 19:30 9.sýn
Sun 4/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 15/5 kl. 19:30 7.sýn Fös 23/5 kl. 19:30 10.sýn
Fim 8/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 16/5 kl. 19:30 8.sýn
Tímalaust meistaraverk - frumsýning 25.apríl.
Litli prinsinn (Kúlan)
Mið 30/4 kl. 11:00 Aukas. Sun 4/5 kl. 16:00 12.sýn Lau 17/5 kl. 14:00
Mið 30/4 kl. 17:00 Aukas. Lau 10/5 kl. 14:00 Aukas. Lau 17/5 kl. 16:00
Lau 3/5 kl. 14:00 Aukas. Lau 10/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 18/5 kl. 14:00
Lau 3/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 11/5 kl. 14:00 13.sýn Sun 18/5 kl. 16:00
Sun 4/5 kl. 14:00 11.sýn Sun 11/5 kl. 16:00 14.sýn
Falleg sýning um vináttuna og það sem skiptir máli í lífinu.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 2/5 kl. 20:00 66.sýn Lau 3/5 kl. 20:00 68.sýn
Fös 2/5 kl. 22:30 67.sýn Lau 3/5 kl. 22:30 69.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
SPAMALOT–„alveg konunglega skemmtilegt bull“ Morgunblaðið
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag –★★★★★ – BL, pressan.is
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Mið 30/4 kl. 20:00 Sun 11/5 kl. 20:00 Sun 1/6 kl. 20:00
Lau 3/5 kl. 20:00 Fim 22/5 kl. 20:00 Fös 6/6 kl. 20:00
Sun 4/5 kl. 20:00 Fös 23/5 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas
Fim 8/5 kl. 20:00 Lau 24/5 kl. 20:00
Fös 9/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00
Ótvíræður sigurvegari Olivier Awards 2013.
BLAM (Stóra sviðið)
Þri 13/5 kl. 20:00 1.k Lau 17/5 kl. 14:00 Fös 20/6 kl. 20:00 aukas
Mið 14/5 kl. 20:00 2.k Sun 18/5 kl. 14:00 6.k Lau 21/6 kl. 20:00 aukas
Fim 15/5 kl. 20:00 3.k Sun 18/5 kl. 20:00 7.k Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Fös 16/5 kl. 20:00 4.k Fim 19/6 kl. 20:00 aukas
Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar!
Dagbók Jazzsöngvarans (Nýja sviðið)
Fös 2/5 kl. 20:00 5.k Sun 4/5 kl. 20:00 Fös 9/5 kl. 20:00
Lau 3/5 kl. 20:00 6.k Fim 8/5 kl. 20:00 Lau 17/5 kl. 20:00
Nýtt verk frá CommonNonsense sem færðu okkur Tengdó, Grímusýningu ársins 2012
Ferjan (Litla sviðið)
Mið 30/4 kl. 20:00 aukas Lau 17/5 kl. 20:00 23.k Lau 31/5 kl. 20:00 32.k
Fös 2/5 kl. 20:00 13.k Sun 18/5 kl. 20:00 24.k Sun 1/6 kl. 20:00 33.k
Lau 3/5 kl. 20:00 14.k Þri 20/5 kl. 20:00 25.k Þri 3/6 kl. 20:00 34.k
Sun 4/5 kl. 20:00 15.k Mið 21/5 kl. 20:00 aukas Mið 4/6 kl. 20:00 35.k
Þri 6/5 kl. 20:00 16.k Fim 22/5 kl. 20:00 26.k Fim 5/6 kl. 20:00 aukas
Mið 7/5 kl. 20:00 17.k Fös 23/5 kl. 20:00 27.k Fös 6/6 kl. 20:00 36.k
Fim 8/5 kl. 20:00 aukas Lau 24/5 kl. 20:00 aukas Lau 7/6 kl. 20:00 37.k
Fös 9/5 kl. 20:00 18.k Sun 25/5 kl. 20:00 28.k Mið 11/6 kl. 20:00 38.k
Sun 11/5 kl. 20:00 19.k Þri 27/5 kl. 20:00 29.k Fim 12/6 kl. 20:00
Mið 14/5 kl. 20:00 20.k Mið 28/5 kl. 20:00 30.k Fös 13/6 kl. 20:00
Fim 15/5 kl. 20:00 21.k Fim 29/5 kl. 20:00 31.k Lau 14/6 kl. 20:00
Fös 16/5 kl. 20:00 22.k Fös 30/5 kl. 20:00 aukas
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
Hamlet litli (Litla sviðið)
Mið 30/4 kl. 10:00 * Mið 7/5 kl. 10:00 * Þri 13/5 kl. 10:00 *
Fös 2/5 kl. 10:00 * Fim 8/5 kl. 10:00 * Mið 14/5 kl. 10:00 *
Sun 4/5 kl. 13:00 4.k Fös 9/5 kl. 10:00 * Fim 15/5 kl. 10:00 *
Sun 4/5 kl. 15:00 5.k Lau 10/5 kl. 13:00 ** Fös 16/5 kl. 10:00 *
Þri 6/5 kl. 10:00 * Sun 11/5 kl. 13:00 Sun 18/5 kl. 13:00
Harmsaga Hamlets fyrir byrjendur. * Skólasýningar. **Táknmálstúlkuð sýning
Der Klang Der offenbarung Des Göttlichen (Stóra svið)
Mið 28/5 kl. 20:00 1.k Fim 29/5 kl. 20:00 2.k Fös 30/5 kl. 20:00 3.k
Myndlistarverk fyrir svið eftir Ragnar Kjartanson. Tónlist Kjartan Sveinsson
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Wide Slumber (Aðalsalur)
Lau 24/5 kl. 20:00 Sun 25/5 kl. 20:00 Mán 26/5 kl. 20:00
Miða má nálgast hjá Listahátíð í Reykjavík
Útundan (Aðalsalur)
Lau 3/5 kl. 20:00 Sun 4/5 kl. 20:00
Athugið! Takmarkaður sýningafjöldi og knappt sýningatímabil
Danssýningin Death (Aðalsalur)
Fim 29/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Sviðslistahátíð ASSITEJ fyrir unga áhorfendur (Aðalsalur)
Mið 30/4 kl. 9:00 Fös 2/5 kl. 9:00 Sun 4/5 kl. 9:00
Fim 1/5 kl. 9:00 Lau 3/5 kl. 9:00