Morgunblaðið - 30.04.2014, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Kvikmyndasafn Íslands lýkur sýn-
ingardagskrá sinni undir yfirskrift-
inni „Rússneskur vetur“ með kvik-
myndinni Stríð og friður (Vojna i
mir) í leikstjórn Sergei Bondartsjúk
eftir samnefndu skáldverki Leós
Tolstoj. Í raun er um myndaflokk að
ræða því myndirnar eru alls fjórar
og verða sýndar í Bæjarbíói, bíóhúsi
Kvikmyndasafnsins. Fyrsti hlutinn
var sýndur í gærkvöldi, en þar sagði
af vináttu Pierre Bezukhov og And-
reij Bolkonskíj prins. Annar hlutinn,
sem sýndur er í kvöld kl. 20, fjallar
um ástarmál prinsins sem fellir hug
til Natösju Rostovu greifadóttur.
Annað kvöld, þ.e. fimmtudag, verður
þriðji hlutinn sýndur kl. 20, en þar er
innrás hers Napóleons í Rússland
árið 1812 í forgrunni atburða, en vin-
irnir tveir taka þátt í þeirri orrustu.
Fjórði og síðasti hluti verður sýndur
laugardaginn 3. maí kl. 16, en þar
skýrast loks örlög Pierre Bezukhov,
Andreij Bolkonskíj og Natösju Ro-
stovu. Þess má geta að fyrri mynd-
irnar tvær, sem eru frá árinu 1966,
eru talsettar á ensku en hinar, sem
eru frá 1967, eru á rússnesku með
enskum neðanmálstexta.
Aðalhlutverk Í hlutverkum Bezukhov, Rostovu og Bolkonskíj eru Sergei
Bondartsjúk, Ljúdmíla Saveleva og Vjatsjeslav Tikhonov.
Vetrinum lýkur með Stríði og friði
MÚSÍK Í
LJÓSVAKA
Guðmundur Emilsson
ge224@simnet.is
Lærði þulu sem ilmar af lífs-
reynslu. Er þetta barnagæla,
heilræðavísa um tímans tönn eða
bara kátína? Fjallkóngar syngja
hundblautir og hrollkaldir: „Nú á
ég hvergi
heima“. Eru
samt harla glað-
ir. Sagt var um
þann landlæga
kviðling (ÞH/
Mbl): Með eilítið
víðari og djarfari
lestri má segja
að vísan fjalli al-
mennt um tilvist-
arvanda manns-
ins, stöðu hans í
eyðilegum heimi þar sem hvergi er
athvarf að finna. Þulan er svona.
Fer augljóslega rangt með:
Þetta dreymdi. Fjörur dýrar.
Þá var vorið. Ég með væng.
Norður svifið. Hitti svani.
Mófugl heyrði. Sjófugl, hvali.
Sá á kesti. Allt um kring.
Tók að hlaða. Líkt og hafið.
Þá kom vetur. Sól með vori.
Vængjaþytur. Hafði enn þrótt –
Allt var horfið. Nema hafið.
Hugverk standa. Afrek einstakl-
inga. Þeim fer að vísu fækkandi.
En minnisvarðar falla unnvörpum
enda reistir á kostnað fjöldans.
Bjartur sagði – hann var ekki alvit-
laus: Meðan ég sækist ekki eftir
annarra manna gróða kæri ég mig
ekki um að bera annarra manna
skuld. Hann færði ekki út kvíarnar.
Byggði hvorki sigurboga né píra-
mída. En ól með sér draum um
hreindýr. Við það fór hann yfir
strikið. Það mælti mín móðir.
Nefndu landamæri. Jökulsá á
Fjöllum? Hún er elfur.
Annar átti sér tvo drauma.
Hilmar Oddsson kvikmyndaskáld
sagði af honum. Helgi er ungur
maður sem dreymir um að verða
rithöfundur. Hann snýr til æsku-
stöðva sinna með það í huga að
skrifa sína fyrstu skáldsögu.
Ákveður að skjóta að minnsta
kosti eitt hreindýr. En dýrið sést
hvergi og hann fyllist örvæntingu.
Þetta listaverk lifir í hugskoti.
Prédikarinn segir 3:19: Eins og
skepnan deyr, svo deyr og mað-
urinn því að allt er hégómi. Erfitt
að kyngja því.
Fyrir þúsund árum fundu Kelt-
ar, Frakkar og fleiri upp söguna
af Tristan og Ísól. Sagt var um þá
banvænu ást (SA/Vísir): Girnist
Tristan Ísól bara af því að hún er
lofuð og hann getur aldrei eignast
hana? Um tónverkið: Maður þarf
ekki að vita neitt um tilurð þess.
Til að njóta. Og alls ekkert um
Wagner. Það er vandmeðfarið.
Gerir kröfur. Stendur enn á
draumfjörum.
YouTube-slóð (11 mín.):
Richard Wagner – Tristan and Is-
olde – Prelude, Act. 1 Daniel Bar-
enboim, Bayreuth Festival.
Á draumfjörum
Draumur Í kvikmyndinni Eins og skepnan
deyr ákveður persóna að skjóta hreindýr.
Reki á Horn-
ströndum.
www.gudmunduremilsson.com
7
12
12
L
ÍSL
TAL
14
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
THE OTHERWOMAN Sýnd kl. 5:40 - 8 - 10:20
SPIDERMAN 2 3D Sýnd kl. 7 - 10
RIO 2 2D Sýnd kl. 5:40
A HAUNTED HOUSE 2 Sýnd kl. 10
HARRY OG HEIMIR Sýnd kl. 5 - 8
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
TRANSCENDENCE KL.5:30-8-10:30
TRANSCENDENCEVIP KL.5:30-8-10:30
THEAMAZINGSPIDER-MAN23D KL.5-8-10:55
DIVERGENT KL.5:10-8-10:50
CAPTAINAMERICA23D KL.5:10-8-10:45
NOAH KL.5-8
NEEDFORSPEED KL.10:40
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
AKUREYRI
CAPTAINAMERICA23D KL.5:15-8-10:10
NOAH KL.8
NEEDFORSPEED KL.10:45
MUPPETSMOSTWANTEDKL.5:30
COSIFANTUTTEÓPERAENDURFLUTTKL.16:00
TRANSCENDENCE KL.5:30-8-10
THATAWKWARDMOMENTKL.5:50-8-10:10
DIVERGENT KL.10:30
TRANSCENDENCE KL.5-8-10:35
THEAMAZINGSPIDER-MAN23DKL.4:50-7:40-10:35
DIVERGENT KL.7:40-10:30
CAPTAINAMERICA23DKL.4:50-7:40-10:30
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
EMPIRE
ENTERTAINMENT WEEKLY
TOTAL FILM
KEFLAVÍK
TRANSCENDENCE KL.8-10:30
THEAMAZINGSPIDER-MAN22DKL.10:10
THATAWKWARDMOMENTKL.8
CHICAGO SUN-TIMES
ENTERTAINMENT WEEKLY
WASHINGTON POST
PORTLAND OREGONIAN
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI METSÖLUBÓK
TOTAL FILM
EMPIRE
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM CHRISTOPHER NOLAN LEIKSTJÓRA DARK KNIGHT ÞRÍLEIKSINS OG INCEPTION
LOS ANGELES TIMES
CHICAGO SUN TIMES