Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Blaðsíða 13
Kirkjan á Holtastöðum í Langadal er
reisuleg og í þjóðlega stílnum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Um þessar mundir vantar presta til
starfa víða úti á akri drottins. Nokk-
ur embætti í Reykjavík eru að losna
en einnig úti á landi. Þannig er nú
auglýst eftir sóknarpresti á Skaga-
strönd, en sá þjónar sex sóknum og
jafnmörgum kirkjum í Húnaþingi,
Bergsstaðasókn í Svartárdal, Ból-
staðarhlíð og Holtastöðum í Langa-
dal og Hofs-, Höskuldsstaða- og
Hólaneskirkjum á Skaga. Á svæði
þessu eru um 700 sálir samanlagt.
Þá vantar bæði sóknarprest og
prest í Egilsstaðaprestakalli, en
undir það heyra alls fjórtán sóknir
og kirkjur á Fljótsdalshéraði, Seyð-
isfirði, Borgarfirði eystra, í Jökuls-
árhlíð en afskekktastur kirkjustað-
anna er Möðrudalur á Fjöllum.
Þarna búa alls um 4.000 manns, á
svæði sem nær frá ystu nesjum til
innstu dala. Sr. Jóhanna Sigmars-
dóttir á Egilsstöðum og sr. Lára G.
Oddsdóttir á Valþjófsstað, sem þjón-
að hafa eystra, hætta í sumar sjötug-
ar að aldri.
SKAGASTRÖND – HÉRAÐ
Hvar eru
prestarnir?
20.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
„Þetta er fjölbreytt starf og skap-
andi. Maður þarf að vera verklaginn,
kunna réttu handtökin og geta tekið
málin. Jú og svo er gott að hafa verið
til sjós þannig að maður skilji hvern-
ig veiðarfærin eiga að virka,“ segir
Kristmundur Sumarliðason, neta-
gerðarmaður í Ólafsvík.
Hann vinnur í landi en er oft úti á
miðum; er netamaður á Sveinbirni
Jakobssyni SH. „Að vera netamaður
heitir á mannamáli að vera yfirborg-
aður háseti,“ segir Kristmundur
sem sinnir netagerðinni alltaf þegar
frátafir eru á sjósókn. Stendur þá
vaktina í Stakkholtshúsinu í Ólafs-
vík, þar sem er aðstaða útgerðar
Steinunnar SH. „Að setja saman
snurvoð er tíu daga vinna fyrir tvo
karla, en þetta flykki er 620 möskvar
eða með 61 metra höfuðlínulengd.
Og aftast á voðinni kemur svo pok-
inn sjálfur sem tekur tæplega tonn
af fiski,“ segir Kristmundur sem
lauk námi í netagerðariðn árið 2001
undir leiðsögn Aðalsteins Snæ-
björnssonar.
„Þetta er fjölbreytt vinna, einn
daginn er saumaskapur, hinn daginn
leysning og svo fótreipisgerð. Já, ég
myndi sannarlega leggja inn gott
orð kæmi ungt fólk til mín og leitaði
ráða um hvort netagerð væri verð-
ugt starf til að legga fyrir sig.“
ÓLAFSVÍK
Ólsarinn Kristmundur Sumarliðason netagerðarmaður með nálina á lofti.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Saumar og fótreipisgerð
Íslenski hópurinn kemur heim umhelgina, eftir vikudvöl. Krakk-arnir eru á aldrinum 15-17 ára,
sjö frá Vopnafirði, eitt frá Þórshöfn
og eitt frá Bakkafirði. Ferðin er
lokahnykkur þriggja ára verkefnis
undir yfirskriftinni Rímur og rokk.
Ungmennin hafa síðustu tvö ár
unnið með rímur og þjóðlög, síðasta
sumar bættust í hópinn jafnaldrar
þeirra frá Vesterålen í Norður-
Noregi og saman unnu þau á
Vopnafirði undir stjórn Steindórs
Andersens kvæðamanns, Hilmars
Arnar Hilmarssonar tónskálds,
Baldvins Eyjólfssonar tónlistar-
kennara og Sigrid Randers-Pehrson
þjóðlagasöngkonu.
Í vikunni vann hópurinn að dag-
skrá sem tók eina klukkustund í
flutningi; íslenski hópurinn lærði
norsk þjóðlög og þau norsku
spreyttu sig á íslenskum rímum.
Rímur og rokk er samstarfsverk-
efni menningar- og fræðasetursins
Kaupvangs á Vopnafirði og Menn-
ingarráðs Vesterålen-héraðs en
hugarfóstur Sigríðar Dóru Sverr-
isdóttur á Vopnafirði.
„Ég hef alltaf viljað vinna með ís-
lenskuna,“ sagði Sigríður Dóra við
Morgunblaðið í vikunni. Hún varð
landskunn á sínum tíma fyrir hag-
yrðingakvöldin Með íslenskuna að
vopni og hlaut fyrir menningar-
verðlaun Samtaka sveitarfélaga á
Austurlandi og viðurkenningu frá
menntamálaráðuneytinu á Degi ís-
lenskrar tungu um árið 2002.
„Ég held að rímurnar séu að
komast aftur í tísku, til dæmis er
dans- og rímnaverk á leið á svið í
Þjóðleikhúsinu,“ segir Sigríður
Dóra. „Mér fannst íslenskir dæg-
urlagatextar orðnir dálítið ódýrir og
fyrst við eigum þessa gullfallegu
texta sem rímurnar eru langaði mig
að koma þeim á framfæri. Ég gæti
trúað að öll orð sem til eru í ís-
lensku séu í rímunum; þetta eru
heilu bækurnar; hver bálkur skáld-
saga og alveg kjörið að nota text-
ana.“
Ungmennin kveða rímurnar upp
á gamla mátann og leika undir á
hljóðfæri. Markmið verkefnisins er
að viðhalda menningararfleifðinni
sem felst í rímum og þjóðlögum
ásamt því að þróa áfram þessi
fornu kvæðaform með margvíslegri
tónlist við ýmis kvæðalög Íslend-
inga og Norðmanna og flétta þessar
tvær menningararfleifðir saman og
Sigríður Dóra er himinlifandi með
hvernig til hefur tekist.
Við verkefnið hefur hún notið að-
stoðar Hrundar Snorradóttur hjá
Austurbrú og þær eru saman með
hópinn ytra.
VOPNAFJÖRÐUR, ÞÓRSHÖFN, BAKKAFJÖRÐUR
Rokk og rímur í Noregi
NÍU UNGMENNI AF
NORÐAUSTURLANDI HAFA
Í NOKKRA DAGA VERIÐ
Í VESTERÅLEN Í NORÐUR-
NOREGI OG KYNNT
ÍSLENSKAR RÍMUR.
Í Noregi. Frá vinstri Enok Örn Pálsson, Edda Björk Vatnsdal, Sigurrós Halldórsdóttir, Erla Salóme Ólafsdóttir, Ágúst
Máni Jóhannsson, Ágústa Skúladóttir (situr) Hrefna Brynja Gísladóttir, Ágúst Jóhannsson og Friðrik Ágúst Egilsson.
Ljósmynd/Hrund Snorradóttir
Fossavatnsgangan verður á Ísafirði 3. maí. Þetta er
elsta skíðagöngukeppni landsins og sú langfjölmenn-
asta, enda hentar hún öllum. Aðstæður eru frábær-
ar nú: Snjór hefur ekki verið meiri síðustu 20 ár.
Fossavatnsgangan vinsæl
Hin árlega Sæluvika Skagfirðinga verður sett í tengslum
við atvinnulífssýninguna Lífsins gæði og gleði á Sauðár-
króki um næstu helgi. Þá hefst vikulöng dagskrá með tug-
um menningarviðburða vítt og breitt um héraðið.
Sæluvika, gæði og gleði
Menningarráð Austurlands
hefur í tíu ár verið í samstarfi
við Menningarráðið í Vesterå-
len. Fjöldi listamanna hefur
dvalið í listamannaíbúðum í
báðum löndum og mörg sam-
starfsverkefni verið í gangi.
Vert er að nefna að Eyþing
er líka í samstarfi við Norð-
mennina og þrír ungir Akur-
eyringar gerðu það gott í Ves-
terålen sl. haust. Hlutu þá
fyrstu verðlaun í svæðisbund-
inni stuttmyndakeppni.
Gott samstarf
Skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja
K
raftaverk
Skafkorti›
Þú skefur gylltu himnuna af þeim löndum sem þú
hefur heimsótt og útbýrð þannig persónulegt heimskort.
Stærð: 82 X 58 cm - Kr. 2.990