Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Page 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Page 30
Matur og drykkir Hollusta rauðrófunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg *Upplagt er að bæta rauðrófum eða rauðrófusafaút í heilsudrykkina. Þær gefa djúpan og rauðanlit og eru uppfullar af næringarefnum. Rauðrófanhefur hreinsandi eiginleika og er meðal annarsrík af járni, andoxunarefnum og fólínsýru. Húner talin hafa góð áhrif á húðina og lifrina. Líkimanni ekki við rauðrófubragð er um að gera að bæta við appelsínu eða epli í safann sem mót- vægi. „Ég reyni að blanda mér svona drykk reglulega eða alltaf þegar tími gefst,“ segir Tobba Marinós, rithöfundur og markaðsstjóri Skjásins en hún á von á sínu fyrsta barni í júní. „Þetta er góð leið til þess að fá aukna orku fyrir daginn, til dæmis ef maður er lystarlítill á morgnana. Þá hjálpar engifer til þess að draga úr morgunógleðinni en ég var mjög slæm af henni á tímabili en almennt þykir engifer vera allra meina bót. Karl, maðurinn minn, er ekki mikið fyrir þessa dæmigerðu holl- ustudrykki en honum finnst þessi mjög góður. Þetta er ferskur drykkur en engifer gerir það að verkum að drykkurinn rífur svo- lítið í,“ segir Tobba. MORGUNBOMBA FYRIR TVO 1 lúka spínat 1 frosinn banani hálft epli (helst Pink lady) 1 bolli frosið mangó 2 cm ferskt engifer 3 döðlur vatn eftir þörfum Morgunógleðin loks að baki Engifer er í miklu uppáhaldi. Tobba Marinós DRYKKIR STÚTFULLIR AF NÆRINGU Grænir ofurdrykkir MORGUNBLAÐIÐ LEITAÐI TIL NOKKURRA VEL VALINNA EINSTAKLINGA SEM SETJA HEILSUNA JAFNAN Í FYRSTA SÆTIÐ OG FÉKK AÐ VITA HVER ÞEIRRA UPPÁHALDS GRÆNI DRYKKUR VÆRI. ÁHERSLURNAR ERU ÓLÍKAR SEM SÝNIR AÐ ÞAÐ MÁ LEIKA SÉR MEÐ HRÁEFNIÐ OG BREYTA TIL EFTIR ÞVÍ HVAÐ TIL ER Í ÍSSKÁPNUM HVERJU SINNI. María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Daði Hrafn Sveinbjarnarson er crossfit þjálfari hjá CrossFit Sport. Hann segir gott að byrja daginn á einum grænum drykk. „Þetta er fljótlegt, einfalt og stútfullt af orku. Maður fær ótrúlegt magn af vítamínum, trefjum og svo líður manni bara svo vel af þessu. Ég nota mikið af spínati og mangó í svona drykki og leik mér svo við að bæta t.d. banana eða pró- teindufti út í – allt eftir því í hvernig skapi ég er í hverju sinni. Í þennan drykk set ég líka Matcha-te en það er gríðarlega andoxunarríkt og inniheldur auk þess meira magn koffíns en hefðbundið kaffi. Það gefur manni jafna orku yfir daginn og ég nota það mjög mikið í drykki sem þessa,“ segir Daði. EITURGRÆNN HULK: 250 ml eplasafi (ég nota Cawston-epla og rabarbarasafa, en hvaða eplasafi sem er virkar vel) lúkufylli af spínati 1 cm engiferbútur, afhýddur og gróft saxaður ½ grænt epli ½ þroskað mangó (má vera frosið) safi úr hálfri límónu 5-6 lauf fersk mynta ½ tsk. Matcha-duft klaki fyrir þá sem vilja.Mangó og myntulauf gefa drykknum frísklegt bragð. Morgunblaðið/Þórður Bætir Matchadufti út í Daði Hrafn Sveinbjarnarson Harpa Ingólfsdóttir er hagfræðingur og þriggja barna móðir. Hún lifir mjög heilsusamlegu lífi og æfir t.d. crossfit af kappi. „Ég blanda mér mjög oft svona drykki, nánast dag- lega. Kost- urinn við þá er hversu fljótlegir þeir eru og umfram allt hollir“. Að- spurð segist Harpa ekki halda upp á eitthvert eitt hráefni. „Það fer allt eftir því hvernig drykk ég bý til, hvort um er að ræða grænan drykk eða berjadrykk. Möguleikarnir eru óteljandi. Þessi drykkur er mjög ferskur á bragðið og góð leið til þess að ná þessari grænu hollustu án þess að þurfa að pína hana í sig. Krakkarnir meira að segja elska þennan drykk,“ segir Harpa. GRÆNN OG FERSKUR DRYKKUR: 2 lúkur af spínati 1 avókadó Vænn biti af engiferrót 1 epli 1 Froosh með mangó- og appels- ínubragði. Harpa Ingólfsdóttir Börnin elska drykkinn Drykkir sem þessir eru góð leið til þess að fá inn aukna holl- ustu í mat- arræðið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Oddrún Helga Símonardóttir heldur úti heimasíðunni Heilsu- mamman.com og gefur les- endum síðunnar uppskriftir af hollum mat auk þess sem hún heldur reglulega námskeið. „Ég blanda svona drykki að meðaltali þrisvar til fimm sinn- um í viku. Drykkurinn er frísk- andi og næringarríkur og slær líka á sætuþörfina sem er kost- ur. Ég er mjög hrifin af því að nota íslenska grænkálið í drykki sem þessa og engifer. Á sumrin er síðan gott að bæta við ferskri myntu. Þessi drykkur er svolítið sætur og flestum finnst hann mjög góður, líka þeim sem ekki eru vanir græna bragðinu. Þetta er drykkur sem krökkunum mín- um finnst mjög góður. Ég mæli með því að fólk sem er að byrja að blanda sér drykki leitist við að gera það sem því þykir gott á bragðið. Svo er smátt og smátt hægt að draga úr sætunni. Það á enginn að þurfa að pína heilsu- drykki í sig og ef þetta á að verða að vana þurfa drykkirnir líka að bragðast vel,“ segir Odd- rún. GRÆNN OG „GORDJÖSS“ 2,5 dl frosið mangó; 1 epli (helst lífrænt og setja það þá með hýðinu í); ½-1 stöngull sellerí; 1 msk. engifer (rifið í rif- járni); 2 msk. safi úr sítrónu; 2-3 msk. möluð graskersfræ eða möluð hörfræ; Vænn skammtur af græn- káli; 3 dl vatn (eða eftir smekk). Slær á sætuþörfina Oddrún Helga útbýr þennan drykk reglulega fyrir alla fjölskylduna. Hann er frískandi og slær á sætu- þörfina. Morgunblaðið/Árni Sæberg Oddrún Helga Símonardóttir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.