Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.4. 2014 Matur og drykkir Þ órunn Lárusdóttir leikkona ákvað að bjóða til smá páska- uppskeruhátíðar og fá vinnufélaga síðustu fimm mánaða í mat. Hópurinn stóð á bak við gerð skyndihjálparlagsins sem Rauði krossinn lét útbúa, bæði þau sem komu að listrænu vinnunni og svo skipuleggjendurnir. Sjálf er Þórunn verkefnisstjóri afmælisárs Rauða krossins. Áður en við snúum okkur að matnum finnst Þórunni ekki úr vegi á þessari miklu ferðahelgi að minna fólk á að hægt er að ná í skyndihjálparappið ókeypis á heimasíðu Rauða krossins. „Þetta hefur verið fimm mánaða verkefni og af því að við höfum ekki öll hist, þrátt fyrir að hafa verið í tölvupóstssamskiptum fannst mér kjörið að bjóða heim í tilefni uppskerunnar en ég útbjó alls kyns létta og páskalega rétti og einnig kokteil sem ég vil kalla skyndihjálparkokteil! Þetta er skemmtilegur og ólíkur hópur en þetta var virkilega vel heppnað, myndaðist góð stemning og mat- urinn rann ljúflega niður.“ Þórunn og eiginmaður hennar, Snorri Petersen, bjóða oft heim í mat og eru óhrædd við að standa í tilraunamennsku. „Krabbasalatið geri ég yfirleitt alltaf þegar ég býð heim í hádeg- isverð, það er einfalt og ofsalega vinsælt og hummusinn klikkar aldrei. Sjávarréttasalatið hef ég gert áður en ég breytti því aðeins og í stað alls kyns grænmetis notaði ég bara grænkál og jarðarber. Mér fannst sjávarfangið eiginleg njóta sín betur þannig og punkt- urinn yfir i-ið er svo karamellukenndu furuhneturnar. En allar þess- ar uppskriftir eru þannig að fólk getur breytt um hlutföll eins og það vill, þetta er mjög frjálslegt og ekkert sem þarf að vera akk- úrat. Þetta eru léttir og ferskir réttir sem eru svolítið páskalegir og hægt að útbúa með skömmum fyrirvara.“ MATARBOÐ Í VOGAHVERFINU Vor í lofti og léttir réttir * „Allar þessar uppskriftireru þannig að fólk geturbreytt um hlutföll eins og það vill, þetta er mjög frjálslegt.“ SMOKKFISKUR, TÍGRISRÆKJUR, KRABBAKJÖT, HUMMUS OG KARAMELLUFURUHNETUR HLJÓMA EKKI ILLA Í PÁSKAFRÍINU. ÞÓRUNN LÁRUSDÓTTIR BAUÐ HEIM Í VORLEGAN HÁDEGISRÉTT. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Þórunn Lárusdóttir leikkona fór létt með að útbúa salöt og snittur. Erfitt er að segja til um magn í þessari uppskrift en það má leika sér með það fram og aftur, engin sérstök regla eða hlutföll. Þórunn ákveður eitthvert magn af kryddi til viðmið- unar en smekkur ræður algerlega ferðinni. salatblöð að eigin vali klettasalat jarðarber furuhnetur 2 tsk. hlynsíróp tígrisrækjur smokkfiskur 4-5 hvítlauksrif ½ msk. fersk, rifin engiferrót 3 msk. góð olía 2 msk. hvítvín chilipipar eftir smekk Blandið saman olíu, mörðum hvítlauksrifjum, engifer, hvítvíni og kryddi og marinerið rækjurnar og smokkfiskinn í um 30- 60 mínútur í blöndunni fyrir steikingu og steikið svo í örfáar mínútur. Rist- ið furuhneturnar á þurri pönnu þar til þær brúnast. Hellið þá hlynsírópinu yfir. Þær festast dálítið saman þegar þetta er gert en það er allt í lagi. Þegar hnet- urnar kólna er hrært í þeim og þá losna þær í sundur og þá er þeim stráð yfir salatið. Setjið jarðarberin næst og tígr- isrækjurnar og smokkfisk- urinn fara síðst. Gæta þarf þess að setja ekki rækj- urnar og smokkfiskinn beint af pönnunni á salatið heldur kæla örlítið fyrst. Létt páskasalat með tígrisrækju og smokkfiski Sítrónutoppur superberry-safi eða annar góður berjasafi fersk bláber sítrónusneiðar til skrauts Hlutföllin eru um það bil 3⁄4 sítrónu- toppur og ¼ berja- safi. Eitt bláber er sett ofan í hvert glas og sítrónusneið á barm- inn á hverju glasi til skrauts. Skyndihjálparkokteillinn ið á þeim, fræhreinsið og skerið í litla bita. Bætið sam- an við krömdum hvítlauk, saxaðri basilíku og olíu. Snittubrauðin, grilluð eða ristuð, eru smurð með geistaosti eða hreinum rjómaosti. Paprikumaukið má gera fyrirfram og geyma í kæli. Ef það er gert er samt gott að vera búinn að útbúa paprikurnar en eiga eftir að setja hvítlaukinn og basilíkuna saman við og gera það samdægurs. 2 rauðar paprikur 2-3 hvítlauksrif væn lúka fersk basilíka 2 msk. jurtaolía (ekki bragðmikil) snittubrauð geitaostur eða hreinn rjómaostur Bakið paprikur í ofni við 180°C í rúma klst. Látið kólna inni í ofninum. Takið þær út og fjarlægið ysta lag- Litríkar ljúffengar snittur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.