Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Síða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Síða 37
20.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 Lagnaefni fyrir tölvur og net Viftulausir netskiptar frá Þýskalandi. Margar gerðir af patch panelum, cat5e tengi o.fl. DVB-T2 fyrir nýju stafrænu útsendinguna frá RÚV og gervihnattamóttakari sambyggður í sama tækinu Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is 25ÁRA 1988-2013 Þar sem gervihnattabúnaðurinn fæst Eigum mikið úrval af loftnetum og móttökurum fyrir stafræna móttöku á RÚV Fáðu yfir 100fríar stöðvar meðgervihnattabúnaðifrá okkur Tækninni fleygir fram og nú er hægt að fylgjast með til dæmis egglosi, þroska fóst- urs og svo svefnmynstri barna með hjálp snjallsíma og allt er gert til þess að einfalda líf tilvonandi og/eða nýbakaðra foreldra. Sé leitað eftir „pregnancy apps“ á smáforritas- íðu Apple má finna yfir 1.600 forrit sem tengjast meðgöngu með einhverjum hætti og eru ýmist ókeypis eða til sölu gegn vægu gjaldi. Smáforritið Pink Pad Period & Fertility Tracker auðveldar konum að fylgj- ast með hvenær þær eru sem frjósamastar vilji þær verða óléttar. Þá er My Pregnancy Today frá Baby Center einnig vinsælt og hefur hlotið góða einkunn notenda. Það er sannkölluð upplýsingaveita um meðgöngu en mörgum finnst það kostur að fá allar viðeigandi upplýsingar í smáum skömmtum frekar en að lesa heilu bækurnar. Forritið gefur notendum nýjar upplýs- ingar um þroska fóstursins á hverjum degi auk annars fróðleiks sem gagnast verðandi foreldrum. Þegar barnið er svo komið í heiminn er hægt að hlaða niður forritinu Baby Bundle sem gerir foreldrum kleift að skrá lúra, matartíma og hæð og þyngd barnsins svo fátt eitt sé nefnt. Þá hjálpar smáforritið Nursing við að hafa yfirsýn yfir brjóstagjafirnar og úr hvaða brjósti gefið var síðast. Fjöldi smáforrita eru í boði sem nýtast fyrir verðandi foreldra og nýbakaða foreldra. Smáforrit fyrir verðandi foreldra Eftirlitssamfélag nútímans hefur verið í brennidepli í kjölfar Snow- den-málsins. Í bókinni Dragnet Na- tion: A Quest for Privacy Security and Freedom in a World of Relent- less Surveillance eftir rannsóknar- blaðakonuna Juliu Angwin er eftir- litið sem haft er með almennum borgurum sagt vera eitthvað sem austurþýska Stasi-lögreglan hefði verið hrifin af. Í bókinni leitast Angwin við að þurrka út sín staf- rænu fótspor í því skyni að endur- heimta einkalíf sitt. Það hefur sjaldan verið auðveldara að fylgjast með almenningi á netinu. Morgunblaðið/Ernir Á flótta undan eftirlitinu Það er margt sem þarf að hafa í huga ef markmiðið er að vera vin- sæll á samskiptavefnum Twitter. Samkvæmt markaðssérfræðingum búa bestu færslurnar yfir a.m.k. einu af eftirfarandi: Upplýsingum, innsýn og húmor. Þá skiptir máli að velja góða andlitsmynd og hafa góða lýsingu á því sem maður ætlar að skrifa um á vefnum. Þá er gott að minnast á þá sem talað er um með því að nota merkið @, enda er dónalegt að baktala. Aðrar reglur gilda um Twitter en Facebook. Á netinu eru gagnleg ráð. Að slá í gegn á Twitter

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.