Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Blaðsíða 40
Tíska *Tískubloggarinn og ofurpæjan Elin Kling kynnir nýja fatalínusem hún hannar í samstarfi við unnusta sinn, Karl Lindman,listrænan stjórnanda tímaritsins Interview. Línan sem verðuropnuð fimmta maí er innblásin af ferðalögum til evrópskralanda, túristaparadísa og af elegans áttunda áratugarins.Elin Kling hefur áður hannað fatalínu en þá í samstarfi viðverslunarkeðjuna H&M. Totême verður meðal annars fáanleg á vefsíðunni net-a- porter.com sem sendir til Íslands. Totême er ný fatalína frá Elin Kling E f þú fengir að eiga fataskáp einhvers, hver myndi það vera og af hverju? Í fljótu bragði þá langar mig eiginlega ekkert að eiga fataskáp sem einhver annar á í dag. Það yrðu kannski skápar sem voru í eigu sterkra kvenna á áttunda áratugnum. Ég er t.d. mikill aðdáandi Stevie Nicks, Marianne Faithfull og Anitu Pallenberg og þeirra klæðaburðar á þeim tíma. Það er eitthvað við frjálsræðið í fatavalinu hjá þeim sem var svo áreynslulaust og töff. Áttu þér uppáhaldsflík? Mér þykir alltaf mjög vænt um kjól sem ég keypti mér fyrir skírn sonar míns. Það er kjóll frá Alexander McQueen og hef notað hann mjög mikið síðan þá. Hver er uppáhaldsverslunin þín? Þegar ég kaupi mér eða skoða föt hér heima fer ég iðulega í GK Reykjavík, Suit og Kíosk. En mér líður langbest á götumörkuðum erlendis. Að finna flík sem heillar mig og prútta svo um verð er eitt það skemmtilegasta sem ég geri. Mikið af þeim sem fötum sem ég nota dagsdaglega er ein- mitt fundið á svona mörkuðum. Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst þátt í? Þau eru eflaust alveg nokkur, en engin sem ég skammast mín fyrir. Ég var t.d. að skoða fermingarmyndirnar mínar í gær. Ég var í hvítum X18-skóm með örugglega 20 sentimetra þykkum botni – al- veg hræðilegir. Hvað kaupir þú þér alltaf þótt þú eigir nóg af því? Það er ekkert sem mér dettur í hug í fljótu bragði – er ótrúlega nægjusöm. Áttu einhverja dýrmæta flík sem þú tímir ekki að nota? Nei, alls ekki. Ég elska að nota fötin mín við öll tækifæri, kann t.d. eiginlega ekki að bera virðingu fyrir dýrum flíkum. Hendi t.d. alltaf fötunum bara á gólfið er ég hátta mig á kvöldin. Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna? Mér finnst alltaf nauðsynlegt að hafa nokkra varaliti í snyrti- buddunni. Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó þegar kemur að fatakaupum? Nei, eiginlega ekki. Ég reyni helst að taka ekki hlutina of alvar- lega. Ef þú fengir aðgang að tímavél sem gæti flutt þig aftur til árs að eigin vali og þú fengir dag til að versla, hvaða ár myndirðu velja og hvert færirðu? Ég myndi vilja fara til ársins 1967 á Car- naby Street í London. Finna mér góða moddara-dragt og skella mér svo á tón- leika. Myndi samt helst vilja hanga með Anitu Pallenberg og Keith Richards og skoða skápinn þeirra. VARALITIR NAUÐSYNLEGIR Í SNYRTIBUDDUNA Líður langbest á götumörkuðum Anita Pallenberg og Keith Rich- ards eru miklar tískufyrirmyndir. Kjóll frá Alex- ander McQueen sem Írisi þykir afar vænt um. Íris Dögg er mikill aðdáandi Stevie Nicks, Marianne Faithfull og Anitu Pallenberg og klæðaburðar þeirra á áttunda áratugnum. ÍRIS DÖGG EINARSDÓTTIR LJÓSMYNDARI ER ÁVALLT SMART TIL FARA EN EITT AF HENNAR UPPÁHÖLDUM ER AÐ FINNA FLOTT- AR FLÍKUR Á GÖTUMÖRKUÐUM. ÍRIS OPNAÐI NÝVERIÐ LJÓS- MYNDASÝNINGUNA //W// Á LJÓSMYNDASAFNI REYKJAVÍKUR. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Flottir varalitir eru nauðsynlegir. Ljósmynd/Íris Dögg Marianne Faithfull og Mick Jagger. Íris myndi vilja fara til ársins 1967 á Carnaby Street í London og finna sér góða moddara-dragt. Modismi er tískustefna sem skaut upp koll- inum í Bretlandi á sjöunda ratugn- um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.