Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Síða 43
Bóas hefur lengi haft áhuga á
vistvænni framleiðslu og segir
fólk almennt orðið meðvitaðra
um vistvæna orku og framleiðslu.
„Aðalorkugjafi Íslendinga er
vistvæn náttúruleg orka. Fjöl-
mörg önnur lönd í heiminum
setja mikinn fókus á þetta og
eru að vinna að því að vera með
til jafns vistvæna orku og aðra
orkugjafa en hér á Íslandi er
þetta okkar sérstaða,“ segir Bóas
en hann vinnur aðallega með
framleiðendum sem nota vist-
væna orku eða hráefni.
„Við erum mjög framarlega í
orkumálum svo það væri eðlilegt
að efla íslenska framleiðslu og
þróun og vinnslu á íslensku hrá-
efni fyrir hönnun og útflutning.“
Hvernig hófst áhuginn á sjálf-
bærni?
„Í raun og veru á þeim tíma
sem ég var að stofna fyrirtækið
mitt var ég að hugsa um
ýmislegt eins og hvernig ég
ætti að nýta mér það að vera
hönnuður frá Íslandi og nýta
náttúruna betur en bara þessa
yfirborðslegu tengingu. Ég vildi
hafa eitthvað sem er raunveru-
legt og áþreifanlegt í línunni og
fór því að skoða hvaða textílar
eru unnir hér.
Hugmyndin um sjálfbærni er
mjög sterk á Norðurlöndunum
og þar er lögð mikil áhersla á
að nota hráefni úr manns eigin
umhverfi.
Sjálfbærni er hins vegar ekki
hugtak sem mjög auðvelt er að
heimfæra yfir á tísku, miklu
frekar er hægt að tala um sam-
félagslega ábyrgð sem fyrirtæki í
tísku þurfa að sýna. Við gefum
okkur ekki út fyrir að vera
100% vistvænt fyrirtæki en það
er partur af okkar grunnstoðum
að nýta vel orku, hráefni, flutn-
ingaleiðir sem eru betri fyrir
umhverfið og fleira.“
Markaðssetning fyrirtækisins
snýst ekki um sjálfbærni heldur
um gæði. Efni sem þróuð eru
með náttúrulegum leiðum endast
oft betur, klæða mann betur og
vernda húðina. „Einnig stefnum
við að því að fá fólk til að klæð-
ast frekar flíkum úr roði en
hefðbundnu leðri. Margir sem
kaupa leðurvörur borða ekki einu
sinni kjöt.“
Bóas hefur nýverið tekið í
gagnið nýja vinnustofu en hönn-
unin fer fram á Íslandi og fram-
leiðslan að hluta til, en mest er
þó framleitt í Evrópu.
„Við vonumst til að geta haft
meiri framleiðslugetu hérlendis
og verðum líka með showroom
og þá er hægt að koma í heim-
sókn og skoða, þótt þetta verði
ekki verslun.“ Það eru engin
áform um að opna verslun hér
heima eins og er. „Ástæðan fyrir
því er að við reynum að halda
framleiðslunni og dreifingunni
erlendis og það fer ekki mikið í
gegnum Ísland þrátt fyrir að
hönnun fari fram hér. Við sjáum
frekar fyrir okkur að vera með
opnanir og sýningar fyrir hverja
árstíð hér heima þar sem fólki
gefst tækifæri á að sjá línuna og
kaupa eða gera pantanir.
Fatnaðurinn okkar er mjög
vandaður og mikil handavinna
sem fer í hverja flík.
Hráefni er líka sérvalið og allt
gert í fáum eintökum svo varan
er dýr eftir því. Við viljum einn-
ig mynda persónuleg tengsl við
okkar viðskiptavini svo við mun-
um hafa ánægju af því að taka
á móti þeim á vinnustofu okkar
frekar en í verslunarrými.“
Allt hráefni
er sérvalið
í fatnaðinn.
Bóas vildi nýta sér það að
vera hönnuður frá Íslandi
betur en bara þessa yfir-
borðslegu tengingu.
Bóas segir fatnaðinn vandaðan og mikil handavinna fari í hverja flík.
20.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
Þessi vara
er laus við:
Mjólk
Glúten
Soja
Rotvarn-
arefni
10
0%
NÁ
TTÚRULEGT
•100%
NÁTTÚRUL
EG
T
•
Fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is
P
R
E
N
T
U
N
.
I
S
UPPLIFÐUMUNINN!
Áhrifaríkur ASÍDÓFÍLUS ásamt
öðrum öflugum góðgerlum
Oft spurt?
Af hverju virka PRÓGASTRÓ DDS PLÚS 3 góð-
gerlarnir svona vel og fljótt á margameltinga-
erfiðleika eins og hægðatregðu, niðurgang,
uppþembu, kandíta, sveppasýkingu ofl.
Svar
Lykillinn er að allir góðgerlarnir í PRÓGASTRÓ
DDS PLÚS 3 eru gall- og sýruþolnir og ná að lifa
ferðina af í gegnummagann niður í smáþarmana.
Auk þess er ASÍDÓFÍLUSINN DDS 1, sem hefur
þann hæfileika að fjölga sér og dvelja í þörmunum,
vinnusamur og stöðugur.
Notkun
2 hylki á morgnana á fastandimaga geta gert
kraftaverk fyrir meltinguna! Margir fullyrða að þeir
sem hafa góðameltingu séu hamingjusamari.
- Prófaðu og upplifðu muninn
Sex nemendur sýna hönnun sína
á tískusýningunni sem haldin
verður í Listasafni Reykjavíkur,
Tryggvagötu 17. hinn 24. apríl
kl. 18. Hver nemandi sýnir sex
til átta heildarklæðnaði á sýn-
ingunni.
Nemendurnir sem koma til
með að sýna línur sínar eru
þær Áslaug Sigurðardóttir,
Berglind Óskarsdóttir,
Drífa Thoroddsen,
Ragna Sigríður Bjarnadóttir,
Rakel Jónsdóttir og Svava
Magdalena Arnarsdóttir.
ÚTSKRIFTARSÝNING FATAHÖNNUNARNEMA LHÍ
Fatahönnuðir
framtíðarinnar
ÚTSKRIFTARNEMAR FATA-
HÖNNUNARDEILDAR LHÍ
HAFA UNDARFARNA MÁN-
UÐI UNNIÐ HÖRÐUM
HÖNDUM AÐ ÚTSKRIFTAR-
SÝNINGU SINNI SEM VERÐ-
UR AÐ VONUM STÓR-
GLÆSILEG Í ÁR.
Útskriftarýningin verður glæsileg í ár.
Ljósmynd/Berglind Óskarsdóttir