Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.5. 2014
Læknar eru sá hópur há-
skólamenntaðra manna þar
sem sjálfsvíg eru algengust.
Sjálfur hefur Óttar horft á
eftir þó nokkrum kollegum
sínum sem hafa fyrirfarið sér.
„Læknar vita hvernig á að
fyrirfara sér og hafa ótak-
markað aðgengi til þess, að
töflum og öllu mögulegu og
vita hvað þarf að gera.
Læknar líta sitt eigið sjálfsvíg
ekki sömu augum og sjálfsvíg
annarra. Þeim finnst að sín
sjálfsvíg séu af miklu betur
ígrunduðum ástæðum, það
sé alveg tvennt ólíkt. Þeim
finnst sjálfsvíg vera ákveðin
staðhæfing og yfirlýsing og
menn skilja sínar tilraunir
mjög vel en sýna á meðan til-
raunum annarra kannski
mjög lítinn skilning. Þeir sem
koma á bráðamóttöku og
hafa reynt að fyrirfara sér
segjast einmitt oft hafa fund-
ið hreinlega andúð frá heil-
brigðisstarfsfólki enda er það
ríkt í læknum að vilja bjarga
annarra manna lífum og
þarna er einhver sem gengur
þvert gegn því.“
Fjölskyldum haldið í
heljargreipum
Þeir sem hóta sjálfsvígi eru
eina fólkið í geðheilbrigð-
iskerfinu sem er nauðgung-
arvistað og svipt sjálfræði án
þess að vera með nein geð-
rofseinkenni. Óttar hefur séð
margt fólk sem hefur verið
nauðungarvistað og fengið
góðan bata og er á því að
það eigi að gera það í þess-
um tilfellum en segir þetta
afskaplega flókinn og erfiðan
meðalveg.
„Sjálfsvígshótun er af-
skaplega öflug hótun og
stjórntæki og það er hægt að
stjórna heilu fjölskyldunum
og geðdeildunum með því að
vera alltaf að hóta að drepa
sig. Það eru fjölskyldur út um
allt land sem tipla á tánum í
kringum einhvern einstakling
sem er alltaf að hóta því. Þá
er spurningin: hvað á maður
að taka þessar hótanir alvar-
lega? Það er svo erfitt að sjá
þetta fyrir. Hvort þetta er
raunveruleg hótun eða enn
ein hótun til að stjórna sínu
umhverfi.“
Margir
fletir
S
jálfsvígið er eitthvað sem
ég hef velt mikið fyrir
mér. Ég man hvenær ég
sem unglingur varð
meðvitaður um að hægt
væri að ljúka lífi sínu og í gegnum
tíðina hef ég kynnst mörgum sem
hafa velt því fyrir sér að fyrirfara
sér eða hafa framið sjálfsvíg,“ segir
Óttar Guðmundsson geðlæknir um
tilurð bókar sinnar Þarf ég að deyja
ef ég vil ekki lifa? Óttar segir mik-
ilvægt að ná sambandi við þá sem
hugleiða sjálfsvíg og ef umræðan
opnist verði fólk tilbúnara til að
virða þessar alvarlegu hugmyndir.
„Umræðan er lokuð og meðal
annars vegna gamalla trúarástæðna.
Í fjölskyldum þar sem einhver hefur
fyrirfarið sér verður það mikið
leyndarmál. Þetta er einhver erf-
iðasti dauðdagi sem hægt er að
horfast í augu við; að foreldri eða
barnið manns hafi ekki viljað lifa.“
Að það sé hámark eigingirninnar
að fyrirfara sér, segir Óttar vera
mýtu. Það sem hann finni vel þegar
farið sé í gegnum bréf þeirra sem
fyrirfara sér og talað við þá sem
hafa reynt, sé að þeir telja það til-
litssemi við eigið umhverfi. Það sé
best fyrir alla að þeir hverfi. Lang-
flestir sem fyrirfara sér kljást við
þunglyndi. Verst sé þegar fólk
drekki ofan í alvarlegt þunglyndi og
dauðahugsanir. „Þegar fólk er búið
að þróa með sér lélega sjálfsmynd
og þessi hugmynd er búin að blunda
mjög lengi í sál viðkomandi getur
það gerst að menn eru að drekka,
eitthvað kemur upp á og þeir
ákveða að gera alvöru úr þessu.“
Óttar segist persónulega hafa
mestar áhyggjur af þeim ungu karl-
mönnum sem eru milli 18-24 ára,
sem erfitt er að ná til en í þeim
hópi hefur sjálfsvígum fjölgað. „Þeir
eru hvatvísir og þeir fremja sjálfs-
víg sem takast, öfugt við konur.
Þær gera fleiri tilraunir en sjaldnar
með banvænum afleiðingum eins og
hjá strákunum. Þeir gera tilraun
sem tekst, en konurnar eru frekar
að kalla á hjálp. Aðdragandinn að
því að þeir stytta sér aldur er oft
styttri. Oft kemur neysla inn í en
líka ákveðin félagsleg vandamál.
Vandamál þeirra hafa verið í
brennideplinum undanfarið og tals-
vert verið skrifað um unga karl-
menn sem eru að detta úr skóla, af
vinnumarkaði, eru á örorku og
liggja kannski í tölvuleikjum enda-
laust. Þetta er hópur í ákveðinni
sjálfsvígshættu. Auk ungra karl-
manna hefur sjálfsvígum einnig
fjölgað í hópi eldra fólks.“
Hefur afstaðan til sjálfsvíga
breyst?
„Já hún hefur breyst en þó er
ennþá mikil fordæming, bæði verða
sjálfsvegendur fyrir henni og einnig
aðstandendur. Það er leitað eftir
blórabögglum. Þetta hlýtur að vera
einhverjum að kenna. Gerði ég eitt-
hvað? Var þetta vegna þess að við-
komandi var ekki lagður inn nauð-
ungarinnlögn eða fékk ekki lyf? Það
er aldrei hægt að fyrirbyggja öll
sjálfsvíg. Sjálfsvíg hafa verið óað-
skiljanlegur hlutur í sögu mann-
kynsins. Og munu alltaf vera það.
En maður vill alltaf hafa þennan
hóp sem minnstan.“
Heimspekingar hafa lengi velt
fyrir sér sjálfsákvörðunarrétti
mannsins yfir eigin lífi.
„Menn hafa velt því fyrir sér
hvort við eigum lífið sjálf, guð eða
hvort það er til dæmis samfélagið
sem er búið að kosta okkur til náms
og leikskóla og gera allt mögulegt –
á það kannski þetta líf? En ég skrif-
aði þessa bók því ég vil koma því til
skila að það er alltaf von. Ég hef
séð það margoft gerast að fólk hef-
ur stokkað upp spilin og fengið nýtt
líf. Ég lít svo á að dauðahugsanir
séu hluti af þunglyndi sem er sjúk-
dómur sem hægt er að meðhöndla.
Svo er þetta auðvitað bara svo mikil
sóun að drepa sig – lífið er nú ekki
það langt í sjálfu sér að það þurfi að
stytta það enn frekar. Þetta er of-
boðsleg sóun á mjög mörgu.“
Í ár munu um 400 manns gera tilraun til að kveðja eigið líf ...
... Þar af eru um 50-100 tilraunir alvarlegar*.
*Þegar talað er um alvarlega tilraun er til dæmis átt við þegar fólk notast við skotvopn, banvæna lyfjaskammta og þegar fólk reynir að hengja sig, þegar litlu mátti muna að viðkomandi létist.
Hefur mestar áhyggjur
af ungum karlmönnum
Morgunblaðið/Kristinn
Á Íslandi falla 35-40 manns
fyrir eigin hendi á hverju ári...
af þeim eru 75% karlmenn.
*
ÓTTAR GUÐMUNDSSON GEÐLÆKNIR SEGIR ERFIÐAST AÐ KOMA Í VEG FYRIR SJÁLFSVÍG UNGRA KARLMANNA. ÞEIR SÉU
HVATVÍSIR OG TILRAUNIR ÞEIRRA TIL ÞESS AÐ SVIPTA SIG LÍFI HEPPNAST OFTAR EN UNGRA KVENNA SEM REYNA SLÍKT.
„Vandamál þeirra hafa verið í brennideplinum undanfarið og talsvert verið skrifað um unga karlmenn sem eru að detta
úr skóla, af vinnumarkaði, eru á örorku og liggja kannski í tölvuleikjum endalaust,“ segir Óttar Guðmundsson geðlæknir.
* Það er erfitt að vera vinur einhvers sem þjáist af þunglyndi enþað er hins vegar eitt það hlýlegasta, göfugasta og besta sem þúgetur nokkurn tímann gert.“ Stephen FryÞjóðmálJÚLÍA MARGRÉT ALEXANDERSDÓTTIR
julia@mbl.is