Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.5. 2014
Hrikaleg spillingin í Úkraínu á
sér engan líka í Evrópu. Sem
dæmi má nefna að 2012 setti
þingið lög um að ríkisfyrirtæki
þyrftu ekki að bjóða út inn-
kaup á vörum eða þjónustu.
Þúsundum milljarða króna af
opinberu fé er þannig varið án
nokkurs eftirlits.
Viktor Janúkóvíts, sem rek-
inn var úr forsetaembætti og
nú nýtur skjóls hjá Pútín, er
talinn hafa stolið tugmillj-
örðum dollara. Nálægt þing-
húsinu er sögufrægur garður
með útsýni yfir Dnépr. Trén
voru höggvin og
reistur þyrlu-
pallur handa
Janúkóvíts
og vinum
hans.
L
íf kjörnefndarmanna er í
hættu, þeir eru mjög
hræddir og verða að
fara huldu höfði,“ segir
Sergei Takasénkó, einn
af embættismönnum yfirkjörnefndar
Úkraínu með aðsetur í Donetsk-
héraði. Hann var ekkert að ýkja.
Vopnaðir aðskilnaðarsinnar og ribb-
aldar, hliðhollir Rússum, ráða mestu
í mörgum borgum í austurhér-
uðunum. Þeir fara hamförum og
hóta þeim öllu illu sem íhuga að
kjósa í þing- og forsetakosningunum
sem fram fara í landinu í dag
(sunnudag).
Sögurnar eru margar. Alexandra
Vítalíjevna, skólastjóri í borginni
Lúhansk, sem einnig er í austurhér-
uðunum, er í hópi mörg þúsund op-
inberra starfsmanna sem eiga að sjá
um kjörstaði. Grímuklæddir upp-
reisnarmenn rændu henni fyrir
nokkrum dögum í viðurvist nemend-
anna, stálu gemsanum hennar og
fartölvunni og fóru með hana í lög-
reglustöð sem þeir réðu yfir. Henni
var loks sleppt – en ekki er víst að
hún láti mikið á sér bæra á kjördag.
Síðustu daga hafa margir fallið í
átökum stjórnarhersins og upp-
reisnarmanna og talið að allt að tí-
undi hver kjósandi muni í reynd
varla geta mætt á kjörstað vegna
hótana og ofbeldis. Sumir munu þó
grípa til þess ráðs að fara langa leið
á bráðabirgðakjörstaði sem Úkra-
ínustjórn hefur komið á fót utan við
borgir sem uppreisnarmenn ráða.
Um 36 milljónir manna eru á
kjörskrá í Úkraínu í þessum sögu-
legu kosningum sem gætu ráðið úr-
slitum um framtíð ríkisins. Skoð-
anakannanir eru óáreiðanlegar en
líklegast er talið að auðkýfingurinn
Petro Porosénkó verði efstur í for-
setakjörinu, fái jafnvel meira en
helming atkvæði strax í fyrri um-
ferð. Hann varð á sínum tíma fyrst-
ur auðkýfinga landsins, óligarkanna,
til að taka klára afstöðu með mót-
mælendunum á Maidan-torgi í
Kænugarði og nýtur þess nú.
Porosénkó hefur bent fólki á að
ef hann nái ekki strax kjöri merki
það að enn verði nokkur bið á að
nýr forseti taki við eftir seinni um-
ferðina. Slík óvissa henti bara óvin-
um þjóðarinnar sem vilji sundra rík-
inu. Rök sem gætu hrifið. En stefna
Porosénkós er ekki síður ráðgáta en
framtíðin, hún hefur fram til þessa
aðallega farið eftir vindáttinni.
Stuðningsmenn hans segja á hinn
bóginn að hann hafi þá þekkingu á
efnahagsmálum sem þurfi til í landi
sem er á barmi gjaldþrots. Hann
hafi líka reynslu af stjórnmálum og
kunni alla klækina. Aðrir segja að
því sé líklegast að fátt breytist til
batnaðar nái hann völdum sem
reyndar eru fremur lítil hjá for-
setaembættinu.
Vladímír Pútín Rússlands-
forseti hefur ýmist sagt að kosning-
arnar yrðu skref í rétta átt eða lagt
áherslu á að fullnægja verði kröfum
aðskilnaðarsinna áður en þær verði
haldnar. Á föstudag fullyrti hann að
borgarastyrjöld væri þegar hafin í
Úkraínu. En ráðamenn í Kænugarði
segja að Pútín eigi sjálfur mesta
sök á ofbeldinu með því að ýta und-
ir átök.
Tengsl í austur eða vestur
Oft er bent á að minnst fjórðungur
Úkraínumanna sé rússneskumæl-
andi og eru þá íbúar Krím ekki
taldir með. Mest er um rúss-
neskumælandi fólk í austurhér-
uðunum og því kann að virðast eðli-
legt að það vilji meiri tengsl við
Rússland, jafnvel innlimun hér-
aðanna. Í vesturhéruðunum líta
flestir á sig sem Evrópumenn og
finnst Rússland að mörgu leyti vera
framandi Asíuland. En flestir Úkra-
ínumenn eru tvítyngdir, tala bæði
úkraínsku og rússnesku og menn-
ingartengsl þjóðanna eru geysimikil.
Ekki má heldur gleyma að um
helmingur manna í Donetsk og
Lúhansk á sér úkraínsku að móð-
urmáli.
Nær þriðjungur allrar iðn-
aðarframleiðslu Úkraínu er í austur-
héruðunum, þar eru námurnar og
stálverin. Þar hafa menn lengi verið
þeirrar skoðunar að þeir vinni en
íbúar í vesturhéruðunum séu let-
ingjar og afætur. En vestrænir
fréttaskýrendur segja að skoðanir
fólks í austurhéruðunum séu mjög
skiptar. Sumir vilji að vísu samein-
ast Rússlandi en hinir séu mun
fleiri sem vilji fyrst og fremst aukið
forræði í héraðsmálum. Þrír af
hverjum fjórum Úkraínumönnum
segjast vantreysta öllum stjórn-
málamönnum og það hlutfall er sagt
enn hærra í austurhéruðunum.
Margir kjósendur á þessum slóðum
trúa auk þess að einhverju marki
skefjalausum hatursáróðri aðskiln-
aðarsinna og rússneskra fjölmiðla
sem fullyrða að „fasistar“, með stuðn-
ingi Bandaríkjanna, hafi rænt völdum
í Kænugarði. Þessir kjósendur munu
vafalaust sitja heima. Þeim finnst
engir frambjóðendur líklegir til að
sinna hagsmunum austurhéraðanna.
Lífshættu-
legur kjör-
seðill
KOSNINGARNAR Í ÚKRAÍNU GETA TRYGGT AÐ NÝ
STJÓRN OG FORSETI NJÓTI MYNDUGLEIKA SEM ÞARF TIL
AÐ TRYGGJA UMBÆTUR OG FRIÐ. EN AÐSKILNAÐARSINN-
AR REYNA AÐ HRÆÐA FÓLK FRÁ ÞVÍ AÐ KJÓSA.
Janúkóvíts
SPILLINGARFURSTAR
Liðsmenn vopnasveita aðskilnaðarsinna í grennd við borgina Slovjansk í Donetsk-héraði á föstudag, andspænis þeim eru
stöðvar úkraínskra hermanna. Yfir 20 manns féllu í átökum í austurhéruðum Úkraínu á fimmtudag og föstudag.
AFP
* Við munum á innan við þrem mánuðum finna leið tilað koma á stöðugleika í austurhéruðunum.Petro Porosénkó, forsetaframbjóðandi í Úkraínu.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is
HEIMURINN
I Líbíski hershöfð
sem berst nú gegn st
mskerfið til að sk
gir órnarsto
ðn við H
fa ir í
ra
um
ði
n hni g
BANDARÍKIN
LOS
ANGELES
42 ára gamall
karlmaður
í Kaliforníu,
Isidro Garcia,
hefur verið
kærður fyr
athæfi gagn
lögaldri og d
kona, sem
með Garc
hafa rænt s
Sjálfur segi
mun hafa á
við móður n
aðeins hafi
hjónaband
aldrei beitt eiginkon
ofbeldi.
ÍLAND
Herforin
kktefur bannað 15
lamönnum og að
r landi án leyfis. E
rangluck Shinawatr
niang
ð ðingará
TYRKLAND
ir hafa
búl á fimmtudag, anog mómælenda í Istan
hann mun ekki hafa tekið þátt ískotinn í höfuðið en
lét í ljós reiði sína vegnaslyssins ímótmælunum. Fólkið
em 301 lét lífið eftir að sprenginSoma í vikunni þar s
araðilar námunnar hafa vervarð í námu. Rekstr
r um manndráp af gáleysi.handteknir, sakaði