Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.5. 2014 Hrikaleg spillingin í Úkraínu á sér engan líka í Evrópu. Sem dæmi má nefna að 2012 setti þingið lög um að ríkisfyrirtæki þyrftu ekki að bjóða út inn- kaup á vörum eða þjónustu. Þúsundum milljarða króna af opinberu fé er þannig varið án nokkurs eftirlits. Viktor Janúkóvíts, sem rek- inn var úr forsetaembætti og nú nýtur skjóls hjá Pútín, er talinn hafa stolið tugmillj- örðum dollara. Nálægt þing- húsinu er sögufrægur garður með útsýni yfir Dnépr. Trén voru höggvin og reistur þyrlu- pallur handa Janúkóvíts og vinum hans. L íf kjörnefndarmanna er í hættu, þeir eru mjög hræddir og verða að fara huldu höfði,“ segir Sergei Takasénkó, einn af embættismönnum yfirkjörnefndar Úkraínu með aðsetur í Donetsk- héraði. Hann var ekkert að ýkja. Vopnaðir aðskilnaðarsinnar og ribb- aldar, hliðhollir Rússum, ráða mestu í mörgum borgum í austurhér- uðunum. Þeir fara hamförum og hóta þeim öllu illu sem íhuga að kjósa í þing- og forsetakosningunum sem fram fara í landinu í dag (sunnudag). Sögurnar eru margar. Alexandra Vítalíjevna, skólastjóri í borginni Lúhansk, sem einnig er í austurhér- uðunum, er í hópi mörg þúsund op- inberra starfsmanna sem eiga að sjá um kjörstaði. Grímuklæddir upp- reisnarmenn rændu henni fyrir nokkrum dögum í viðurvist nemend- anna, stálu gemsanum hennar og fartölvunni og fóru með hana í lög- reglustöð sem þeir réðu yfir. Henni var loks sleppt – en ekki er víst að hún láti mikið á sér bæra á kjördag. Síðustu daga hafa margir fallið í átökum stjórnarhersins og upp- reisnarmanna og talið að allt að tí- undi hver kjósandi muni í reynd varla geta mætt á kjörstað vegna hótana og ofbeldis. Sumir munu þó grípa til þess ráðs að fara langa leið á bráðabirgðakjörstaði sem Úkra- ínustjórn hefur komið á fót utan við borgir sem uppreisnarmenn ráða. Um 36 milljónir manna eru á kjörskrá í Úkraínu í þessum sögu- legu kosningum sem gætu ráðið úr- slitum um framtíð ríkisins. Skoð- anakannanir eru óáreiðanlegar en líklegast er talið að auðkýfingurinn Petro Porosénkó verði efstur í for- setakjörinu, fái jafnvel meira en helming atkvæði strax í fyrri um- ferð. Hann varð á sínum tíma fyrst- ur auðkýfinga landsins, óligarkanna, til að taka klára afstöðu með mót- mælendunum á Maidan-torgi í Kænugarði og nýtur þess nú. Porosénkó hefur bent fólki á að ef hann nái ekki strax kjöri merki það að enn verði nokkur bið á að nýr forseti taki við eftir seinni um- ferðina. Slík óvissa henti bara óvin- um þjóðarinnar sem vilji sundra rík- inu. Rök sem gætu hrifið. En stefna Porosénkós er ekki síður ráðgáta en framtíðin, hún hefur fram til þessa aðallega farið eftir vindáttinni. Stuðningsmenn hans segja á hinn bóginn að hann hafi þá þekkingu á efnahagsmálum sem þurfi til í landi sem er á barmi gjaldþrots. Hann hafi líka reynslu af stjórnmálum og kunni alla klækina. Aðrir segja að því sé líklegast að fátt breytist til batnaðar nái hann völdum sem reyndar eru fremur lítil hjá for- setaembættinu. Vladímír Pútín Rússlands- forseti hefur ýmist sagt að kosning- arnar yrðu skref í rétta átt eða lagt áherslu á að fullnægja verði kröfum aðskilnaðarsinna áður en þær verði haldnar. Á föstudag fullyrti hann að borgarastyrjöld væri þegar hafin í Úkraínu. En ráðamenn í Kænugarði segja að Pútín eigi sjálfur mesta sök á ofbeldinu með því að ýta und- ir átök. Tengsl í austur eða vestur Oft er bent á að minnst fjórðungur Úkraínumanna sé rússneskumæl- andi og eru þá íbúar Krím ekki taldir með. Mest er um rúss- neskumælandi fólk í austurhér- uðunum og því kann að virðast eðli- legt að það vilji meiri tengsl við Rússland, jafnvel innlimun hér- aðanna. Í vesturhéruðunum líta flestir á sig sem Evrópumenn og finnst Rússland að mörgu leyti vera framandi Asíuland. En flestir Úkra- ínumenn eru tvítyngdir, tala bæði úkraínsku og rússnesku og menn- ingartengsl þjóðanna eru geysimikil. Ekki má heldur gleyma að um helmingur manna í Donetsk og Lúhansk á sér úkraínsku að móð- urmáli. Nær þriðjungur allrar iðn- aðarframleiðslu Úkraínu er í austur- héruðunum, þar eru námurnar og stálverin. Þar hafa menn lengi verið þeirrar skoðunar að þeir vinni en íbúar í vesturhéruðunum séu let- ingjar og afætur. En vestrænir fréttaskýrendur segja að skoðanir fólks í austurhéruðunum séu mjög skiptar. Sumir vilji að vísu samein- ast Rússlandi en hinir séu mun fleiri sem vilji fyrst og fremst aukið forræði í héraðsmálum. Þrír af hverjum fjórum Úkraínumönnum segjast vantreysta öllum stjórn- málamönnum og það hlutfall er sagt enn hærra í austurhéruðunum. Margir kjósendur á þessum slóðum trúa auk þess að einhverju marki skefjalausum hatursáróðri aðskiln- aðarsinna og rússneskra fjölmiðla sem fullyrða að „fasistar“, með stuðn- ingi Bandaríkjanna, hafi rænt völdum í Kænugarði. Þessir kjósendur munu vafalaust sitja heima. Þeim finnst engir frambjóðendur líklegir til að sinna hagsmunum austurhéraðanna. Lífshættu- legur kjör- seðill KOSNINGARNAR Í ÚKRAÍNU GETA TRYGGT AÐ NÝ STJÓRN OG FORSETI NJÓTI MYNDUGLEIKA SEM ÞARF TIL AÐ TRYGGJA UMBÆTUR OG FRIÐ. EN AÐSKILNAÐARSINN- AR REYNA AÐ HRÆÐA FÓLK FRÁ ÞVÍ AÐ KJÓSA. Janúkóvíts SPILLINGARFURSTAR Liðsmenn vopnasveita aðskilnaðarsinna í grennd við borgina Slovjansk í Donetsk-héraði á föstudag, andspænis þeim eru stöðvar úkraínskra hermanna. Yfir 20 manns féllu í átökum í austurhéruðum Úkraínu á fimmtudag og föstudag. AFP * Við munum á innan við þrem mánuðum finna leið tilað koma á stöðugleika í austurhéruðunum.Petro Porosénkó, forsetaframbjóðandi í Úkraínu.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON kjon@mbl.is HEIMURINN I Líbíski hershöfð sem berst nú gegn st mskerfið til að sk gir órnarsto ðn við H fa ir í ra um ði n hni g BANDARÍKIN LOS ANGELES 42 ára gamall karlmaður í Kaliforníu, Isidro Garcia, hefur verið kærður fyr athæfi gagn lögaldri og d kona, sem með Garc hafa rænt s Sjálfur segi mun hafa á við móður n aðeins hafi hjónaband aldrei beitt eiginkon ofbeldi. ÍLAND Herforin kktefur bannað 15 lamönnum og að r landi án leyfis. E rangluck Shinawatr niang ð ðingará TYRKLAND ir hafa búl á fimmtudag, anog mómælenda í Istan hann mun ekki hafa tekið þátt ískotinn í höfuðið en lét í ljós reiði sína vegnaslyssins ímótmælunum. Fólkið em 301 lét lífið eftir að sprenginSoma í vikunni þar s araðilar námunnar hafa vervarð í námu. Rekstr r um manndráp af gáleysi.handteknir, sakaði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.