Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Qupperneq 8
Teiknimyndin How to train your dragon 2
verður frumsýnd í Bandaríkjunum 13. júní
næstkomandi og á Íslandi viku síðar. Líkt
og í fyrri myndinni verður það Jón Þór
Birgisson, betur þekktur sem Jónsi í
Sigur Rós, sem mun eiga titillag mynd-
arinnar sem hann kallar Where No
One Goes. Jónsi samdi lagið Sticks and
Stones fyrir fyrri myndina en lagið
fékk tilnefningu til Óskarsverðlauna
2010 og varð mjög vinsælt í kjölfarið
víða um heim.
Þetta er enn ein rósin í
hnappagat Jónsa á þessu ári.
JÓN ÞÓR BIRGISSON, BETUR ÞEKKTUR SEM
JÓNSI Í SIGUR RÓS, SEMUR TITILLAG TEIKNI-
MYNDARINNAR HOW TO TRAIN YOUR DRA-
GON 2. HANN GERÐI EINNIG TIT-
ILLAGIÐ VIÐ FYRRI MYNDINA.
Jónsi endurtekur leikinn
AFP
Aðalleikarar myndarinnar á Cannes. Jay
Baruchel, Kit Harington, America Ferrera,
Cate Blanchett og Djimon Hounsou.
Fyrr á árinu kom hann fram ásamt félögum sínum í Sigur
Rós í þáttunum Game of Thrones þar sem þeir birtust sem
tónlistarmenn í brúðkaupi en lag eftir sveitina var leikið í
þættinum.
Fjölmargar Hollywood-stjörnur tala inn á kvikmyndina
How to train your dragon 2 og má þar nefna Kit Harrington
úr Game of Thrones, Cate Blanchett, Gerard Butler, Jonah
Hill og grínleikkonan Kristen Wiig úr Bridesmaids.
Jónsi í
Sigur Rós.
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.5. 2014
Getur verið að það þurfi bara smekk-legra fólk í skipulagsmál Reykjavík-urborgar? Að deilur um þéttingu
byggðar megi lægja með smekklegri þéttingu
byggðar en Reykvíkingar hafa fengið að kynn-
ast?
Byggð í Reykjavík hefur frá upphafi verið að
þéttast þótt hún hafi um leið verið að þenjast
út. Reykjavík eins og flestar borgir í heiminum
hefur einfaldlega stækkað. Hún mun halda
áfram að stækka hvort tveggja með þenslu og
þéttingu. Þétting byggðar þar sem hún er nú
þegar langþéttust, í miðborginni og elstu hverf-
um borgarinnar, er hins vegar gagnrýnd. Varla
rís hús í Vesturbænum eða miðborginni án
þess að um það verði nokkrar deilur. Íbúar á
þessu svæði virðast vera á einu máli um að
byggingarmagn sé almennt of mikið og án þess
að gert sé ráð fyrir því að íbúar nýbygging-
arinnar eigi bíla eða fái gesti á bílum. Borg-
aryfirvöld hafa stundum tekið undir þetta sjón-
armið með því að lækka byggingar um eina
hæð eða fækka íbúðum lítillega. Samt ríkir vart
sátt um nokkra nýbyggingu á svæðinu.
Borgarfulltrúar lýsa því yfir að mikilvægt sé
að þétting byggðar sé í samræmi við nánasta
umhverfi. Samt heyrir það til undantekninga
að nýbyggingar í elstu hverfum borgarinnar
taki mið af byggingarstíl og byggingarsögu
hverfanna. Útidyr úr stáli og gleri, stórar rúð-
ur án gluggapósta, gluggar án vatnsbretta eða
gluggasyllna. Allt eru þetta einkenni nýrra
húsa í mið- og vesturborginni sem er þó eina
samfellda svæði landsins sem mótað er af
byggingarstíl gagnstæðra einkenna. Eins og
fílar í postulínsbúð spretta upp hús með stál-
gluggum, iðnaðargrænum jafnvel, við hlið húsa
með aldargömlum gluggapóstum úr gegn-
heilum eðalvið. Þetta er alveg merkileg þróun
þegar hafðar eru í huga yfirlýsingar borgarfull-
trúa.
En kannski hefur það allt aðra merkingu í
huga borgarfulltrúa heldur en í huga nágrann-
ans þegar talað er um samræmi í umhverfinu.
Hugmyndir Samfylkingarinnar um þróun íbúð-
arbyggðar til dæmis við gömlu höfnina í Vest-
urbæ eru þær, að sögn, að þar verði byggðar
ódýrar íbúðir, t.d. stúdentaíbúðir og félagslegar
íbúðir eða íbúðir með einhvers konar kvöðum
sem geri þær ódýrar. Er líklegt að slíkar íbúðir
skarti gluggasyllum og trégluggum? Það er
ekki útilokað en þegar verðmiðinn er ákveðinn
af stjórnmálamönnum eru ekki miklar líkur á
því að útlitið taki mið af umhverfinu.
Þegar þétting byggðar er af þessum toga er
baráttan gegn byggingarmagni ekki gegn
magninu sem slíku heldur vörn gegn árás á
byggingarstíl sem Reykjavíkurborg ætti að sjá
sóma sinn í að vernda.
Útlitið skiptir máli
* Steypt hús með glugga-póstum, bárujárnshúsmeð trégluggum, gluggasyllur,
vatnsbretti, útdyr úr við. Er til
of mikils mælst þegar ný hús
eru reist innan um eldgömul?
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridurandersen.is
Hafdís Huld Þrastardóttir átti
afmæli í vikunni og hamingjuóskum
rigndi yfir hana á
samfélagsmiðlum.
Tónlistarkonan
virtist ánægðust
með eina afmæl-
isgjöfina en undir
kvöld birti hún mynd á twitter af
sér með afar fallegt úkúlele.
Enn er verið að skrifa og spjalla
um Pollapönk á twitter og fólk
víða að lætur í ljós álit sitt á hljóm-
sveitinni og Eurovision-lagi hennar.
Matthias Køhler frá Danmörku er
einn þeirra og lét þessi orð falla í
gær: „Við ættum að fá alla þessa
ömurlegu þjóðarleiðtoga heims,
læsa þá inni í herbergi og neyða þá
til að hlusta á Pollapönk og hleypa
þeim ekki út fyrr en þeir hafa náð
að verða vinir.“
Þessa dagana er rifist um það
hvort það sé einkabíllinn eða reið-
hjólið sem gerð sé
aðför að og sýnist
sitt hverjum.
Baggalúturinn
Bragi Valdimar
Skúlason er með
nýtt innlegg í um-
ræðuna og skrifar á Facebook: „Ég
mótmæli þessari gegndarlausu að-
för að einkaþotunni.“
Þorbjörg Marinósdóttir, rithöf-
undur og mark-
aðsstjóri, eða
Tobba Marinós
eins og hún er
jafnan kölluð, velti
fyrir sér frægum
kvennatvíeykjum í vikunni. Á Fa-
cebook skrifaði hún: „Af hverju eru
engin fræg kvennatvíeyki á Íslandi?
Allt karlmenn! Halli og Laddi,
Simmi og Jói, Radíusbræður, Jón og
Sigurjón, Auddi og Sveppi, Benedikt
og Fannar …“ Nokkrir vina hennar
nefna Skoppu og Skrítlu sem dæmi,
einn tilnefnir Tvær úr tungunum og
annar skrifar: „Voru Selma og
Hansa ekki einu sinni team?“
AF NETINU
Vettvangur
Secret Solstice tónlistarhátíðinni, sem haldin verður í fyrsta
sinn hér á landi 20.-22.júní næstkomandi var ýtt úr vör með
risastóru partíi í London á föstudag þar sem íslensku plötu-
snúðarnir Intro beats og Yamaho spiluðu fyrir dansi ásamt
enskum kollegum þeirra. Fór gleðin fram í Trapeze Basement
klúbbnum. Massive Attack leiðir risastóran hóp listamanna
sem koma fram á hátíðinni í Laugardal.
Skífum þeytt í
London
Natalie G. Gunnarsdóttir er DJ Yamaho. Hún þeytti skífum í
undirbúningsteiti Secret Solstice í London á föstudag.