Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Page 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Page 13
„Hagsmunir félagsmanna okkar eru jafn ólíkir og þeir eru margir. Séu verkalýðsfélög öflug geta þau svarað því á margan hátt. Enga þá hugmynd sem bætt getur stöðu fólksins okkar má úti- loka,“ segir Að- alsteinn Árni Baldursson for- maður Fram- sýnar – stétt- arfélags í Þingeyj- arsýslum. Fargjöld í innanlandsflugi, hvert sem leið liggur, hafa hækkað mikið síðustu ár. Ná- mundað kostar farið með flug- félaginu Erni milli Húsavíkur og Reykjavíkur 15 til 20 þúsund kr, það er allt að 40 þúsund krón- ur fram og til baka. „Slíkt tekur í pyngjuna hjá landsbyggðarfólki og því munar það líka um að fá mið- ana á hálfvirði. Samstarf okkar við Erni um þetta hefur líka verið með miklum ágætum,“ segir verkalýðs- leiðtoginn. Aðalsteinn segist hafa skynjað áhyggjur hjá sínu fólki vegna þessa. Því var gengið til samninga við Erni sl. haust og keyptur vænn skammtur af miðum á 7.500 kr. ferðin. Miðarnir eru svo seldir fé- lagsmönnum aftur fyrir sömu upp- hæð. Nú hefur Framsýn keypt alls 2.340 miða og hefur gengið vel á skammt- inn. Ein besta kjarabótin „Það má eig- inlega segja að miðarnir fljúgi út. Svona fyrir utan þessa al- mennu kjara- pólitík og að sjá til þess að samningar séu virtir, sem er endalaust strögl, þá er þetta að mínu mati ein besta kjarabót sem okkar fólk hef- ur lengi feng- ið,“ segir Að- alsteinn sem skynjar mikla ánægju félagsmanna með þetta. Raunar hafi nýleg könnun leitt í ljós að 97% fé- lagsmanna Framsýnar séu ánægð með þjónustu félagsins – en 3% tóku ekki afstöðu. „Almennt segir þetta hvað verkalýðsfélögin geta gert af- skaplega margt fyrir sitt fólk sé stemningin til staðar,“ segir Að- alsteinn að síðustu. sbs@mbl.is HÚSAVÍK Framsýnir fljúga á hálfvirði 25.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Hefðbundinni steinbítsvertíð er að ljúka og Sigurður Garðarsson á Flateyri er nokkuð sáttur við aflann. „Þetta hefur að vísu verið lélegra en í fyrra en þó allt í lagi,“ segir hann. Sigurður fer venjulega út um fjög- urleytið að nóttu og vinnudegi lýkur um klukkan sex síðdegis. „Það er ekki sofið sérstaklega mikið á þess- um tíma.“ Sigurður rær á átta tonna báti, og er allt frá tveimur tímum upp í fjóra og hálfan á miðin. Hann byrjaði 14 ára á sjó, hefur haft þann starfa í hálfan fjórða áratug og nær allan tímann gert út sjálfur, skip af ýmsum stærðum og gerðum. Dauflegt er yfir Flateyri þess dagana, segir Sigurður, en þó eitt- hvað um erlenda ferðamenn. Margir aðkomumenn eigi hús í bænum sem þeir leigi útlendingum á vorin en komi sjálfir seinna í sumar. „Þetta er framtíð sjávarþorpanna; við erum örfáir sem skiljum ekki þróunina og höldum áfram að basla. Við berjumst kvótalitlir og fáum svo ölmusu að sunnan í byggðakvót- anum en vilji þeirra sem ráða hér er að byggðakvótinn fari allur á eina hendi, hér verði ein stór verksmiðja og verbúð full af útlendingum. Mér líst ekki á þá þróun.“ FLATEYRI Sigurður Garðarsson: Við erum örfáir sem skiljum þetta ekki og böslum áfram. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson „Líst ekki á þróunina“ Úlfur Logason á Akureyri byrjaði að teikna og mála smástrákur og hefur vart linnt látum síðan. Á ekki langt að sækja hæfileikana og aðrir hrífast af útkomunni; Úlfur sýnir nú 12 olíuverk og 10 penna- teikningar á arkitektastofunni Koll- gátu og þeir sem komu tveimur tímum eftir opnun voru of seinir hafi ætlunin verið að eignast verk. Allt var þá selt. „Ég vonaðist auðvitað til að selja eitthvað en átti alls ekki von á þessu,“ sagði Úlfur við Morgun- blaðið í vikunni. Sýningin hófst um síðustu helgi. Faðir Úlfs rekur Kollgátu í gömlu kartöflugeymslunni ofarlega í Grófargili. „Við pabbi höfum nokkrum sinnum rætt um að ég myndi sýna hérna og þessi tími hentaði ágætlega,“ segir Úlfur. „Flest sem ég geri er í þessum dúr, þó ekki allt. En mér finnst fólk áhugaverðasta myndefnið,“ segir Úlfur en olíuverkin eru öll andlitsmyndir - portrett - og pennateikningar af ýmsum lista- mönnum á Akureyri. „Ég hef alltaf haft gaman af því að teikna og var lengi í tímum hjá afa. Fór í bílskúrinn til hans einu sinni viku. Það var líklega frá því ég var níu ára og þar til ég var tólf. Hann kenndi mér margt gott.“ Afi Úlfs var Einar Helgason, myndlistarkennari til áratuga og þekktur knattspyrnumaður á árum áður. Einar lést skömmu fyrir síð- ustu jól og á sýningunni er einmitt afar magnað olíuverk, í einkaeign og ekki til sölu, af Einari og ömmu Úlfs, Ásdísi Karlsdóttur. „Ég hugs- aði um það þegar afi var að fara að mig langaði að mála mynd sem tengdist því. Svo sá ég ljósmynd sem pabbi tók alveg undir það síð- asta; það er mjög falleg mynd og ég ákvað að nota hana.“ Úlfur hefur verið á námskeiðum hjá Stefáni Boulter í Myndlista- skólanum á Akureyri og var á list- námsbraut í Verkmenntaskólanum á vorönn. Framtíðin er nokkuð ljós: „Ég stefni að því að verða myndlist- armaður og hef lengi gert,“ segir hann. AKUREYRI Úlfur í listargæru SEXTÁN ÁRA LISTAMAÐUR, ÚLFUR LOGASON, KVEÐUR SÉR HLJÓÐS MEÐ SÝNINGU Úlfur við málverk af afa og ömmu, Einari Helgasyni og Ásdísi Karlsdóttur. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Úlfur Logason, olíu-sjálfsmynd. Iðnnemar við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki smíðuðu í vetur forláta fuglaskoðunarhús, sem í vik- unni var komið fyrir við ána Blöndu. Við Blönduós hafa á síðustu árum fundist um 50 fuglategundir. Fuglaskoðun við Blöndu Sumarhótelið Bjarkalundur í Reykhólasveit hefur verið opnað. Reksturinn verður með sama sniði og síðustu ár og Georg Bjarnfreðarson, starfsmaðurinn eftirminnilegi úr sjónvarpsseríunni Dagvaktinni, því víðs fjarri... Opið, en enginn Georg DANMÖRK 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á man n frá 69.500* 570 8600 / 472 1111 www.smyrilline.is *Netverð á mann miðað við staðgreiðslu, lágannatímabil. FÆREYJAR 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 34.500* Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Komdu út að keyra… Berlín · Amsterdam · París Róm · Barcelóna? Ernir flýgur sex daga í viku á milli Húsavíkur og Reykjavíkur sumar sem vetur. Sumaráætlun tekur gildi 1. júní og þá er flogið í tví- gang mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga en ein ferð er miðvikudaga og sunnu- daga. Sex dagar í viku

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.