Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Page 16
1 Sópaðu reglulegaBróðurpartur óhreininda á gólfinukemur að utan. Til þess að koma
að mestu leyti í veg fyrir það þarf að
sópa reglulega stéttina fyrir utan heim-
ilið, gangstéttina, bílskúrinn, pallinn og
allt það sem stigið er á áður en gengið
er inn. Þá er snjallt að hafa mottu báð-
um megin við útidyrahurðina. Muna
bara að ryksuga reglulega þessa fyrir
innan og dusta þessa fyrir utan.
2Hreinar loppurEf þú átt gæludýr, hund eða kött,er gott að hafa handklæði ein-
hvers staðar nálægt útidyrahurðinni til
að þurrka af skítugum loppum og koma
þannig í veg fyrir að dýrin beri inn með sér
allskonar óhreinindi.
3Heimatilbúinn hreinsirEitt besta efni sem hægt er að notaá gler, glugga og spegla er einfald-
lega vatn með smá ediki út í. Fínt að miða
við 1 tsk. af borðediki á móti 2 dl af vatni.
4 ÞrifaáætlunÞað er gott að koma sér upp ákveðnuskipulagi þegar kemur að þrifum á heimilinu.
Þrískipt áætlun er upplögð:
1. Verkefni sem þarf að gera á hverjum degi eða
nokkrum sinnum í viku.
2. Verkefni sem þarf að gera vikulega eða mán-
aðarlega.
3. Verkefni sem þarf að gera einu sinni til
tvisvar á ári.
5Gerðu ítarlegan listaHafðu listann yfir þrif ítarlegan, það stuðl-ar að skilvirkni í þrifum á heimilinu. Ekki
skrifa „Taka til í svefnherberginu“, skrifaðu frekar ná-
kvæmlega hvað þarf að gera, eins
og til dæmis: skipta á rúmunum,
ryksuga undir rúmi, sortera í
nærfataskúffu og því um líkt.
6 Þrif í dagsljósiÞað er betra að ryksuga ídagsbirtu. Þá sést betur ná-
kvæmlega hvar rykið hefur fallið.
7TónlistHlustaðu á fjöruga tónlist ámeðan þú þrífur, það kemur
manni í meira stuð og gerir þrifin
einfaldlega skemmtilegri. Tónlist
gerir allt einfaldlega miklu betra.
8Hirtu um bækur þínarEflaust erum við öll miklirlestrarhestar en við lesum
nú ekki allar bækurnar á hverjum
degi og hvað þá allar í einu. Það
þarf að hugsa vel um þessar elskur sem eiga það til
að safna töluverðu ryki á sig. Gott er að fara með
þurran málningarbursta yfir bækurnar og dusta
þannig rykið af þeim.
9Hrein sturtuhengiSturtuhengi dragaí sig mikinn raka
og eftir smá tíma getur
komið vond lykt af
þeim. Í staðinn fyrir að
henda þeim og kaupa
ný er miklu sniðugra að
henda þeim í þvottavél-
ina. Nýtum hlutina okk-
ar vel.
10 Þrif á glugg-unumÞó að það sé
betra að ryksuga í
dagsbirtu er því ekki
eins farið með gluggana.
Gler þornar fyrr í sól-
inni og því er líklegra
að það komi rákir þegar
það er þrifið. Mun betra
er að þrífa gluggana í
seinni part dags, í
skammdeginu eða þegar
skýjað er.
ÝMSAR GÓÐAR HUGMYNDIR SEM HJÁLPA TIL VIÐ AÐ HALDA HEIMILINU HREINU
10 snyrtileg ráð fyrir heimilið
Morgunblaðið/Þórður
HEIMILISSTÖRFIN ERU KANNSKI EKKI Í
UPPÁHALDI HJÁ MÖRGUM OG ÞAÐ ER MEIRA
EN AÐ SEGJA ÞAÐ AÐ HALDA HEIMILINU
HREINU. SUNNUDAGSBLAÐIÐ HAFÐI UPPI Á
NOKKRUM GÓÐUM HÚSRÁÐUM SEM KOMA
SÉR VEL OG GOTT ER AÐ HAFA Í
HUGA VIÐ HVERSDAGSLEG VERK.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.5. 2014
Fjölskyldan Hvar og hvenær? Gerðubergssafn, laugardag kl. 14.Nánar: Gengið verður frá safninu niður að Elliðaám og fiskarnir
skoðaðir í náttúrunni. Kaffi verður eftir á í safninu.
Dagur farfiskanna
SPARAÐU
25%
AFÖLLUM
RÚMFÖTUM
22. - 26.MAÍ
140x200/60x63 cmBómull. 6.995,- NÚ5.246,-
Fjer rúmföt
140x200/60x63 cmBómull. 6.995,- NÚ5.246,-
Happiness rúmföt
SPARAÐU
25%
AFÖLLUM
HANDKLÆÐUM
22. - 26.MAÍ
Ýmsir litir. 40x60 cm895,- NÚ671,- 50x100 cm1.795,- NÚ1.346,-
70x130 cm3.495,- NÚ2.621,- 100x150 cm4.995,- NÚ3.746
Basehandklæði