Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Síða 30
Matur og drykkir Færri innihaldsefni betri *Að lesa utan á umbúðir matvæla geturverið góð skemmtun, en oft getur líkaverið ógnvekjandi að sjá langan lista yfirinnihaldsefni sem við sem neytendurkunnum takmörkuð skil á. Gott er að hafaeftirfarandi þumalputtareglu í huga þegarinnihaldslýsing er lesin, sérstaklega unnin matvæli: því styttri sem innihaldslýsingin er því betra. orku til lengri tíma og henta því lík- amanum vel, og eru því nauðsyn þeim sem stunda heilsubætandi hreyfingu og íþróttir, segir Sigríður og telur ýmsa aðra hollustu til. „Kartöfluna er hægt að elda á marga vegu og óteljandi uppskriftir til. Gamla góða suðan stendur alltaf fyrir sínu, svo er hægt að gratínera hana, baka, steikja, djúpsteikja, grilla, nota í heit og köld kartöflusalöt, baka úr henni brauð og kökur og gera konfekt svo eitthvað S éra Björn Halldórsson prestur í Sauðlauksdal við Patreksfjörð pantaði árið 1758 nokkrar kart- öflur frá Kaupmannahöfn. En þar sem hann fékk kartöflurnar ekki fyrr en ári síðar þá telst hann í öðru sæti, því fyrstur til að rækta kartöflur á Íslandi varð Svíinn Friedrich, kallaður Hastfer hrútabarón. Það var árið 1758 á Bessastöðum. Björn ræktaði kartöflur með góðum árangri og breiddi út boð- skapinn um hollustu og gæði þeirra, og er honum yfirleitt eignaður heiðurinn af því að hefja kartöflurækt á Íslandi. Kartaflan telst vera sérlega hentug til þess að sjá mannkyninu fyrir ákveð- inni grunnnæringu. Plantan þykir mjög aðlögunarhæf, vex við ólík og einföld skilyrði, er því auðveld í ræktun. „Kart- aflan hefur alhliða næringargildi sem fastur hluti hverrar máltíðar er hún góð undirstöðufæða,“ segir Sigríður Valdís Bergvinsdóttir á Akureyri, mikil áhuga- manneskja um kartöflur. Faðir hennar, Bergvin Jóhannsson á Áshóli í Grýtu- bakkahreppi er formaður Félags kart- öflubænda „og ég hef áhugann og alla mína visku um kartöflur beint frá hon- um.“ Hún segir kolvetni lífsnauðsynleg mannslíkamanum þar sem heili og taugakerfi nota þau sem sinn aðal- orkugjafa. „Kolvetnin í kartöflum gefa sé nefnt,“ segir Sigríður. „Kartaflan hefur verið lofsungin sem gjöf af himn- um og brauð jarðar, enda var hún mikil blessun fyrir almúgann í Evrópu þegar hún barst þangað. Segja má að hvergi hafi hún verið eins ríkjandi hluti fæð- unnar og á Írlandi og að írska þjóðin hafi á tímabili nánast lifað á kartöflum einum saman. En kartöflurækt og neysla kartaflna hefur bjargað mörgum mannslífinu og því eru þær taldar vera nauðsynlegur hluti af fæðuörygginu.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson GÓÐ, ALHLIÐA NÆRING Kartaflan hefur bjargað mörgum mannslífum! KARTÖFLUR ERU MIKILVÆGUR HLUTI HOLLS OG FJÖLBREYTTS MATARÆÐIS. ÞÆR ERU AUK ÞESS LÉTTAR Í MAGA OG AUÐMELTANLEGAR,“ SEGIR SIGRÍÐUR VALDÍS BERGVINSDÓTTIR Á AKUREYRI. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Sigríður Valdís úti í góða veðrinu með kartöfluklattana og pestóið sem hún útbýr. Hvernig á að bera sig að? Að setja niður  Flestar jarðvegsteg- undir eru nothæfar fyrir kartöflurækt en þær hafa mismunandi eig- inleika. Algengast er mold og mýrarjarðvegur en einnig eru kartöflur oft ræktaðar í sand- jarðvegi.  Sýrustigið skiptir máli í jarðveginum en það er mælt í pH-tölu. Æskileg- ast er að pH í kart- öflugörðum sé um 5,5. Ef jarðvegurinn er bas- ískari, þ.e. pH-talan er há, þá er hætta á að kartöflurnar spillist af kláðasjúkdómum.  Nauðsynlegt er að stinga vel upp jarðveginn og bera í hann áburð áð- ur en sett er niður. Talað er um að það þurfi 200 gr af áburði á fermetra.  Lífrænni mold til blands við jarðveginn er náttúrulega gott að bæta á annað slagið því mold- in bæði fýkur til og rýrn- ar. Einnig er gott að huga að hitastiginu þegar sett er niður . Það er nauð- synlegt að hafa jarðveg- inn þurran og ekki of kaldan og gott að nýta sólarhlutann af deginum við niðursetningu ef möguleiki er.  Áburðurinn virkar best við 13 – 14 stiga hita þegar kartaflan er komin niður. Spírun  Góðar spírur fást með því að hafa kartöfl- urnar í grunnum kössum í um 4 vikur við 10 – 15 gráða hita.  Talað er um að það þurfi 22-27 kg á 100m² og um 75 cm milli raða a.m.k. hjá stórbændum sem þurfa að nota vélar við að setja niður og taka upp. Í heimagörð- um má vera styttra á milli.  Best er að hafa 25-35 cm á milli kartaflna. „Faðir minn miðaði alltaf við að ef kartafla var sett niður við tána á skónum hans væri sú næsta við hælinn. Þá var bilið rétt. Bara spurning um að tékka á skóstærðinni hjá honum!“ segir Sigríður.  Best er að setja kart- öfluna um það bil 8 cm niður í jörðina.  Gott er að setja glært plast eða trefjadúk yfir kartöflubeðin þar til grösin eru komin svolít- ið upp. KARTÖFLUKLATTAR 2 egg 2 msk. matarolía 1-2 msk hrásykur (má sleppa) 2 ½ dl spelt 4 tsk. vínsteinslyftiduft 1 tsk. Maldoonsalt 2 ½ bolli mjólk eða ab-mjólk 1 dl hafragrjón eða bankabygg 300 gr soðnar kartöflur, stapp- aðar Hrærið egg, matarolíu og hrásykur saman í skál. Bætið spelti, vín- steinslyftidufti, maldonsalti saman við. Hrærið mjólkinni saman við og bætið kartöflum og hafra- grjónum/bankabyggi út í. Steikið klatta á pönnuköku- pönnu, hafið ekki of mikinn hita á pönnunni. KARTÖFLUPESTÓ 2 dl matarolía 200 g kartöflur, soðnar og kældar 1 búnt basilika 1 búnt myntulauf eða fersk timjan Handfylli klettakál eða spínat 70 g pistasíukjarnar 50 gr graskersfræ 2 hvítlauksgeirar 2 msk. Parmesanostur Salt (Himalayan) Pipar Setjið allt saman nema kartöflurnar í matvinnsluvél og maukið vel. Stappið kartöflurnar og bætið út í. Saltið og piprið eftir smekk. Setjið á krukkur og geymið í kæli. Pestóið er virkilega gott ofan á klatta brauð og kex en líka hægt að smyrja því ofan á alls konar grillmat: kjöt, fisk, kjúkling og grænmeti. Gefur grill- matnum gott bragð. Pestóið er hægt að geyma í um það bil tvær vikur í ísskáp.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.