Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Síða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Síða 32
Ég vildi að þær upplifðu ævintýralegt boð sem þær gerðu enda sátum við sem fastast frá klukkan sjö til þrjú um nóttina og rifjuðum upp sögur af ömmu Gauju og afa Sigga,“ segir Sigurlaug um frænkuboðið sitt. Kjötbollurnar í boðinu voru í ætt við þær sem hægt er að fá á veitingastaðnum Alla Vedova í Feneyjum en hakkið sitt fær Sigurlaug alltaf hjá Bjössa í Kjöthöllinni. KRÆKLINGUR OG PAVLOVUR Frænkuboð Sigurlaugar Frá vinstri: Sigrún Sigurðardóttir, móðir Sigurlaugar, Stefanía Arnardóttir, Bryndís Christensen, Sigurlaug Margrét sjálf, Gígja Tryggvadóttir, Harpa Arnardóttir og Ásta Arnardóttir. ÞAÐ VAR SETIÐ OG SPJALLAÐ LANGT FRAM Á NÓTT Í MATARBOÐI SIGURLAUGAR MARGRÉTAR JÓNASDÓTTUR. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Morgunblaðið/Rósa Braga Sigurlaug valdi allt hráefnið af kostgæfni. Tómatana fékk hún frá Friðheimum og súrdeigsbrauðið hjá Marenzu í Kaffi Flóru. 32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.5. 2014 Matur og drykkir 1 kg ferskir tómatar góð handfylli basilíka nokkrir dropar góð ólífuolía salt 3 hvítlauksrif 8 sneiðar súrdeigsbrauð Afhýðið tómatana ef þið viljið. Fræhreinsið og skerið í litla bita. Setjið í skál og kryddið með salti, pipar og handfylli af basilíku og lát- ið bíða í stutta stund svo kryddið blandast vel við tómatana. Grillið súrdeigsbrauðið vel og vandlega, í grilli eða í ofni, það er betra að hafa það vel dökkt. Nuddið hressi- lega hvítlauknum á brauðið og setjið olíu á það. Raðið brauðinu á disk, setjið tómatana ofan á hverja sneið og berið strax fram. Bruschetta með tómötum „Besta reglan ef maður ætlar að halda gott matarboð er að bjóða skemmtilegu fólki, ég held að það sé best að fólk hafi það í huga, þá getur maturinn klúðrast að vild.“ É g bauð elskulegum frænkum mínum heim og við rifjuðum upp saumaklúbbinn sem amma Gauja stofnaði fyrir okkur og Hlyn frænda. Amma var frábær og við elskuðum hana öll, hún sendi okkur oft í sjoppuna í Grímsbæ að kaupa bagatello og við fengum að kaupa hlauporma fyrir afganginn,“ segir Sigurlaug Margrét Jón- asdóttir útvarpskona. Síðastliðið laugardagskvöld útbjó hún dýrindis kræklingarétt, spagettírækjurétt og fleira til. Amma Sigurlaugar rak um árabil hannyrðaverslunina Hlíð í Kópavog- inum og það lá því beint við að stofna saumaklúbb fyrir barnabörnin en í honum fengu þau prins póló og kók og lærðu að smyrna púða sem eru allir til enn í dag. „Síðan þá höfum við stelpurnar hist og þóst vera í saumaklúbbi en höfum svo sem ekki saumað neitt en talað og hlegið þeim mun meira.“ Sigurlaug segir það sinn veikleika að vilja halda tíð matarboð og ef það er ekkert tilefni sé bara að búa það til. Boðin eru yfirleitt ekki formleg þótt oft sé sparimatur eldaður og lagt fallega á borð. Oft sé jafnvel nóg að eiga parmesanost og dásamlega tómata og gera pasta pomodor. „Þegar ég bauð frænkum mínum vildi ég pússa fallegu glösin mín og diskana frá Margréti á Akureyri, strauja dúkinn, kaupa blóm og vera lengi að undirbúa veisluna svo að þær fengju það á tilfinninguna að ég væri búin að undirbúa þetta lengi, ég vildi gefa þeim að borða eitthvað sem ég elska og það var eitthvað svo yndislegt að setjast niður með penna og blað og teikna upp matarboðið sem ég geri reyndar oft. Svo var að hringja í bændur, sem er ennþá skemmtilegra, ég byrjaði á því að hringja í Friðheima og fékk senda dásamalega tómata, síðan var það Ís- landsskelin og svo að lokum var hringt í blómabóndann Gísla í Dalsgarði sem lét mig fá marglitaðar og fallegar rósir.“ Sigurlaug segist geta nefnt mörg skemmtileg matarboð sem hún hefur farið í í gegnum tíðina en að öðrum ólöstuðum séu áramótafjölskylduveisl- ur Holt-fjölskyldunnar frábær. „Þau eru miklir vinir okkar og bjóða okk- ur öllum um hver áramót og það sem er skemmtilegast er að fjölskyldan stækkar, barnabörnin eru farin að taka sitt plás og allir elska þessa hefð. Þau elda handa okkur kalkún og svínakjöt, meðlætið er stórkostlegt og kökurnar eru þannig að maður fer að hágráta þegar maður borðar þær. Svo eru samkvæmisleikir og heimilisfaðirinn fer niður í kjallara og dregur fram gamlar vínflöskur og um síðustu jól smökkuðum við rauðvín frá árinu 1945. Þetta er sannkallað fjölskylduboð og er eitthvað betra en það?“ Polpetti di carne 450 g mjölmiklar kartöflur 3 hvítlauksrif 250 g gott nautahakk 4 msk. rifinn parmesanostur 1 eggbrauðrasp handfylli af steinselju olía til steikingar Sjóðið kartöflurnar í örlitlu salti þar til þær eru mjúkar, maukið þær með töfrasprota og bætið maukuðum hvítlauk út í og hrærið létt saman. Bæt- ið kjötinu út í og blandið vel saman með töfrasprot- anum. Kryddið með steinselju, parmesanosti og eggi, kryddið svo með pipar og salti. Geymið í kæli í 2 klst., þannig verður auðveldara að gera bollurnar. Þá er að búa til bollurnar og gott að rifja upp gamla takta ömmu með kjötfarsið, takið til skeið, setjið vatn í glas og byrjið. Notið lófann og skeiðina til að forma bollurnar og þess á milli skal kæla skeiðina í vatninu, þá verður þetta fullkomið. Hitið olíu á pönnu og djúpsteikið bollurnar. Legg- ið á pappír, saltið örlítið, hellið freyðivíni í glas og réttið gesti ykkur bolluna og glasið, bollurnar eru bestar nýsteiktar.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.