Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Síða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Síða 39
NÝ RAFHLAÐA SEM SÝND VAR Í VIKUNNI MENGAR EKKI, HITNAR EKKI OG GÆTI KOMIÐ RAFBÍL 480 KÍLÓMETRA Á EINNI HLEÐSLU. Fyrirtækið Power Japan Plus ásamt Kyushu há- skólanum í Japan tilkynnti í vikunni að rafhlaða sem þeim tókst að búa til væri 100% endurvinn- anleg, hún væri mun ódýrari í framleiðslu og tuttugu sinnum fljótari að hlaðast en þær rafhlöð- urnar sem eru notaðar í dag. Rafhlaðan, sem kölluð er Ryden, gerir drauminn um langdrægan rafmagns- bíl aðeins raunverulegri því hún á að duga fjölskyldu- bifreið 480 kílómetra á einni hleðslu. Vegalengdin frá Reykjavík til Ísafjarðar eru 455 kílómetrar og kæmust því fimm einstaklingar á Aldrei fór ég suður fyrir rúmlega 100 krónur. Ólíkt flestum rafhlöðum nútímans er enga þungmálma eins og nikkel eða kóbolt að finna í nýju rafhlöðunni en þessi tvö efni brotna illa niður í náttúrunni og menga mikið. Rafhlaðan hitnar ekki og skemmist ekki þótt hún sé ekki tæmd reglulega. Hún var sýnd í fyrsta sinn á Electric Drive Transportation Associa- tion ráðstefnunni og vonast framleiðandinn til að geta framleitt rafhlöður fyrir bíla strax á næsta ári. HÖNNUN OG UPPFINNINGAR Ný ofurrafhlaða AFP Nintendo leikjatölvan er ein vinsælasta leikjatölva sögunnar. Einn vinsælasti leikur Nintendo var leikurinn Duck Hunt og þurfti þá að kaupa sérstaka byssu með. Hægt var að fá Nintendo tölvu, byssu og leikinn á 14.950 krónur árið 1991. Þegar byssunni var miðað á skotmark á skjánum, sem yfirleitt var önd á flugi eins og í tilviki Duck hunt, og tekið var í gikkinn nam byssan hvort skotmarkið hafði verið hitt eða ekki. Þegar tekið var í gikkinn málaði tölvan allan skjáinn svartan, allt nema skotmark- ið sem var teiknað hvítt. Innst í byssuhlaupinu var ljósnæm díóða sem nam hvort byssunni væri miðað á svartan flöt eða hvítan á skjánum og þannig gat tölvan skorið úr um hvort gæsin féll til jarð- ar eða hélt flugi sínu áfram. Íslendingar, sem og aðrir, tóku miklu ástfóstri við Duck Hunt enda ekki á hverjum degi sem hægt var að leika sér með byssu inni í stofu. Lengi vel var Duck Hunt aðal- leikur Nintendo þangað til pípulagningamaðurinn Marío kom til sögunnar með leiknum Mario Bros. GAMLA GRÆJAN 25.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 * Tæknin hefur gefið jafnvel hljóðlátustunemendum rödd.Jerry Blumengarten, kennari og rithöfundur Haraldur blátönn var konungur Dana 958- 986 en hann lést árið 986. Haraldur þótti afar fær í að fá fólk af mismunandi uppruna til að tala saman. Þegar sænski tæknirisinn Ericson var að koma með sína nýjustu uppfinningu á markað fyrir 20 árum gat hann látið tæki frá mismunandi framleiðendum tala saman. Nafnið Bluetooth var því kjörið til að nota um þessa nýju samtalstækni tækjanna. Um 95% allra farsíma styðja Blueto- oth-tæknistaðalinn og flestallar fartölvur sömuleiðis. Það er lítið mál til dæmis að láta mús frá Apple tala saman við far- tölvu frá HP, þökk sé Bluetooth-staðlinum. Bluetooth-staðallinn var fyrst fundinn upp til að minnka snúrur. Staðallinn, sem hefur þróast mikið gegnum árin, sendir upplýsingar í önnur pöruð tæki sem eru nálægt í gegnum útvarpsbylgjur. Bluetooth-merkið, sem flestir kannast við, er stafirnir H og B í rúnaletri settir saman í eitt tákn sem á að tákna Har- ald blátönn. TÖFF TÆKNISTAÐREYND Nefnt eftir Haraldi blátönn Teiknuð mynd af Haraldi Blátönn sem var konungur Dana. Nintendo byssan Smáralind | Sími 512 1330 Opið Sunnudaga 13-18 iPadmini Netturogflottur Verð frá:49.990.- iPadAir Kraftmikillog léttur Verð frá:84.990.- iPad hvarsemer, hvenærsemer Hágæðaheyrnartól SolRepublic Verð frá:6.990.-

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.