Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Qupperneq 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Qupperneq 41
25.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 É g er búin að taka 12. september frá og þann 11. september verð ég hlekkjuð við Kitchen Aid-hrærivélina því ég er búin að lofa upp í ermina á mér. Ég er að fara að baka brúðar- tertu enda ekki á hverjum degi sem elsku George Clooney okkar gengur í það heilaga. Við Kolbrún Bergþórsdóttir, samstarfskona mín, höfum fylgst náið með ástarlífi stórleikarans síðustu ár. Þótt hann hafi verið á töluverð- um lausagangi og með skuldbindingarfælnina í botni er samt ekki annað hægt en að halda með honum. Ég meina – maður með þetta útlit fær einhvern veginn endalausa sénsa. Svona maður á alltaf inn- eign – sama hvað. Þegar horft er yfir kærustuhóp Clooneys er ákveðið útlit sem heillar leikarann. Ef það er eitthvað sem hann á erfitt með að stand- ast þá eru það forkunnarfagrar, hávaxnar, dökkhærðar sleggjur. Vandamálið er að hann hefur yfirleitt ekki tollað með þeim degi leng- ur en tvö ár. Þá hefur kemestríið verið farið að dala og hann gefist upp. Tala nú ekki um þegar kærusturnar hafa ýtt á hann að ganga í hjónaband. Þá hefur hann reimað á sig hlaupaskóna og hlaupið hratt á brott (svona eins og margir menn gera). Sem er svo sem alveg skiljanlegt. Það er ekkert til meira ósjarmer- andi en of „needy“ píur. Það er varla hægt að eiga þannig vinkonur – hvað þá að búa með þeim. Svo má ekki gleyma því að maður með þetta útlit verður náttúrlega að leyfa fleiri en einni að njóta – annað væri hreinræktuð sóun. Maður eins og hann er líka meðvitaður um kemestrí. Kemestrí er eitt það verðmætasta sem til er því það er ekki hægt að búa til – hvorki með peningum né völdum. Ef það væri hægt að búa til ke- mestrí myndi fólk líklega búa það til með hverjum sem er – því það er eitthvað svo notalegt að laðast að annarri manneskju. Þegar fólk er á valdi kemestrísins skiptir ekkert annað máli í heiminum og það er ekki rými fyrir neitt nema þá sem eru í klístraðir saman í ke- mestríinu. Með tímanum eyðist kemestríið upp (því miður), jafnvel þótt fólk reyni að halda öðru fram. Ef þið heyrið fólk einhvern tímann segja að ástin breytist með aldrinum þá er það raunverulega að meina – ke- mestríið hverfur og fólk reynir að gera gott úr öllu saman … Eða eitthvað í þá áttina. Það að lögfræðingurinn Amal Alamuddin hafi náð að gera Clooney svo rangeygðan af hrifningu að hann sé búinn að taka 12. september frá er því eiginlega stórfrétt. Hann hefur bara einu sinni á ævinni gengið í hjónaband en það var með hinni undurfögru Taliu Balsam. Clooney og Balsam voru saman á árunum 1984-1987. Svo kom babb í bátinn og þau hættu saman en kemestríið var svo tryllt að þau byrj- uðu aftur saman og giftu sig í Las Vegas 1989. Hjónabandið entist þó ekki nema í smá tíma. Fyrir utan kökubaksturinn er í mörg horn að líta. Ég geri ekki ráð fyrir öðru en að við Bergþórsdóttir látum sérsauma á okkur sérstaka kjóla til að klæðast í brúðkaupinu. Rautt kemur sterklega til greina enda klæðir sá litur okkur báðar og svo er rauður líka litur ást- arinnar. Við erum ekkert að velta fyrir okkur fatnaði Clooneys og Alamuddin – þau hljóta að spjara sig. martamaria@mbl.is George Clooney og Amal Alamuddin ætla að gifta sig 12. september. Það er ekki hægt að búa til „kemestrí“ Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911 www.facebook.com/spennandi - www.spennandi.com Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16 3322 & Innate - frönsk hönnun vor 2014
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.