Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.5. 2014 Menning S igurþór Jakobsson situr í sófa á vinnustofu sinni, berfættur og af- slappaður. Honum á hægri hönd er Ríkharður Jónsson borinn á gullstól eftir einn frækilegasta sig- ur íslenska landsliðsins í knattspyrnu og á vinstri hönd brosir landsfaðirinn sjálfur, Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, kumpánlega við gestum enda nýbúinn að ganga yfir Evrópu- sambandið – á skítugum skónum. Við fætur hans eru fimm hænur, fjórar brúnleitar og ein hvít. Athygli vekur að sú hvíta liggur örend á bakinu. Hverju sætir það? „Hún er útlensk, hitt eru allt landnáms- hænur,“ segir Sigurþór sposkur á svip. „Ég hef miklu meira yndi af portrettmyndum sem segja eitthvað.“ Ekki svo að skilja að málarinn sé endilega að viðra eigin skoðanir en verkið byggist á grein sem Haraldur Ólafsson veðurfræðingur ritaði í Morgunblaðið fyrir fjórum árum undir yfirskriftinni „Sannleikur ungra bænda og Evróputrúboðsins um hermál“. Hún lætur ekki að sér hæða, andagiftin. Hægt verður að berja þetta verk og önnur, gömul og ný, augum á vinnustofu Sigurþórs á Skólavörðustíg 1 a, 3. hæð, nú um helgina, laugardag og sunnudag, milli klukkan 13 og 17. Og á sama tíma 17. júní. Hjer skeði hið ólíklega Málverkið af Ríkharði á gullstólnum byggist líka á efni úr Morgunblaðinu, frægri ljósmynd sem Ólafur K. Magnússon tók eftir sögulegan sigur Íslendinga á Svíum, 4:3, vestur á Melum 29. júní 1951. Ríkharður gerði sér þá lítið fyr- ir og skoraði öll mörk Íslands. Myndin birtist á baksíðu blaðsins daginn eftir. Á öðru mál- verki á vinnustofu Sigurþórs sést Ríkharður leggja knöttinn í mark Svía. „Þúsundir áhorfenda sáu Íslendinga sigra Svía í fyrsta landsleik þessara þjóða í knatt- spyrnu sem fram fór á Íþróttavellinum í Reykjavík í gærkvöldi. – Ekki munu miklar sigurvonir hafa verið bundnar við þennan leik af Íslendinga hálfu, þar sem við eina sterk- ustu knattspyrnuþjóð í Evrópu var að etja. En hjer skeði hið ólíklega,“ segir í umfjöllun Morgunblaðsins um leikinn 30. júní 1951. Sig- urþór man vel eftir afrekinu en var of ungur til að fara á leikinn. Sjálfur lék hann síðar fyrir landsliðið í knattspyrnu, sex leiki, og kynntist Ríkharði persónulega. „Þegar ég kom inn í landsliðið var Rikki fyrirliði og tók afskaplega vel á móti mér. Lét líka vel um mig mælt í blöð- unum. Ég er mjög þakklátur fyrir kynni mín af þessum mikla afreksmanni,“ segir hann. Eins og í kúrekamyndunum Ríkharður lék með ÍA á þessum árum og Sig- urþór minnist þess sem barn þegar það gull- aldarlið kom í bæinn. „Skagamenn voru eins og hetjurnar í kúrekamyndunum. Komu í bæ- inn, gengu frá okkur og fóru svo aftur. Að- dáunin var mikil og þar var Rikki fremstur meðal jafningja.“ Sigurþór rifjar upp að 29. júní 1951 sé lík- lega einn merkasti dagurinn í sögu íslenskra íþrótta en fyrr um daginn hafði frjálsíþrótta- landsliðið, með Örn Clausen og Gunnar Hus- eby í broddi fylkingar, unnið frækilega sigra á bæði Norðmönnum og Dönum í Ósló. „Þetta var makalaus sigurdagur fyrir Ís- lendinga og mér fannst tilvalið að rifja hann upp í tilefni af lýðveldisafmælinu. Lyfta mér upp og vonandi öðrum í leiðinni. Það hefur verið svo mikil neikvæðni undanfarin ár.“ Sigurþór er fæddur árið 1942 og þar af leiðandi hér um bil jafn gamall og lýðveldið. „Líf mitt er lýðveldistíminn og ég finn að hjartað slær með þessu afmæli,“ segir hann. Fleiri boltaverk eru á sýningunni, stórt málverk af mönnum að henda hnettinum á milli sín. Nei, þetta er ekki prentvilla. Hnett- inum en ekki knettinum. „Sumir kappleikir eru upp á líf og dauða,“ segir málarinn. Þá er þarna Landsbankabolti – hvell- sprunginn. „Landsbankinn styrkti Íslands- mótið í knattspyrnu fyrir hrun og gaf börnum þá hundruð bolta. Dóttursonur minn fékk einn og við æfðum okkur stíft á Landakots- túninu. Boltinn sprakk á sama tíma og banka- kerfið.“ Hann þagnar. „Þegar maður eldist verður það smáa svo verðmætt.“ Hestar eru einnig fyrirferðarmiklir á sýn- ingunni og í sérstöku rými í stiganum á leið upp á vinnustofuna, Nonpareille Art Gallery, eru þeir á fyrsta farrými. „Ég er enginn hestamaður – eignaðist að vísu einu sinni folald þegar ég var strákur í sveit – en hesturinn er afskaplega falleg skepna. Við mennirnir getum lært margt af hestinum. Hann setur bakhlutann bara upp í élin og bítur þau af sér. Kvartar aldrei.“ Annars er Sigurþór til þess að gera nýbyrj- aður að sýsla með fígúruna. Var meira í af- strakt áður. „Ég hef fiktað við margt gegnum tíðina. Fyrsti myndlistarkennarinn minn var Ragnar Kjartansson, afi alnafna síns sem nú er að gera garðinn frægan erlendis. Ragnar var frábær leiðbeinandi og hans mottó var, að við hefðum gaman af því sem við værum að gera. Hann var duglegur að fara með okkur nemendur í ferðir og lét okkur teikna hér og þar í náttúrunni eða inni á söfnum. Þessi mynd var teiknuð í einni slíkri ferð,“ segir Sigurþór og bendir á kotroskna geit á veggn- um. Ártalið er 1964. Fyrstu sýningu sína hélt Sigurþór á Mokka 1971. Þrír gestir eiga verk á sýningunni, börn listamannsins, Þuríður og Þór, og tengdason- ur, Ryan Blair Sullivan frá Bandaríkjunum. „Ég er þeim þakklátur, fyrir að hafa verkin sín hér,“ segir Sigurþór. Snýst allt um peninga Sigurþór lærði myndlist í Bretlandi á sjöunda áratugnum og mótaði sú dvöl hann. „Ég fór mikið á söfn og nærðist á myndlist fyrri alda. Það er besti skóli sem maður getur fengið. Þess utan var mikil gerjun í menningarlífinu í Bretlandi á þessum tíma, ekki síst í tónlist- inni. Þar fóru Bítlarnir fremstir í flokki.“ Í seinni tíð hefur Sigurþór dvalist talsvert í New York og sækir þangað innblástur. Hann segir marktækan mun á afstöðu Íslendinga og Bandaríkjamanna til listarinnar. „Þegar ég segi frá því úti að ég sé í myndlist er ég spurður hvernig verk ég sé að gera. Hér heima er fyrsta spurningin iðulega: Selurðu eitthvað? Það snýst allt um peninga. Ekki bara í myndlistinni, heldur almennt. Í frétt- unum um daginn var einhver maður að viðra háleita hugmynd en fréttamaðurinn skaut pælinguna strax niður með þessari spurningu: En kostar þetta ekki gríðarlega mikinn pen- ing?“ Hann þagnar. „Ef til vill hafði Vilmundur heitinn Gylfason rétt fyrir sér? Okkur var ágætlega til vina og einu sinni rakst ég á hann fyrir utan Alþing- ishúsið eftir að hann var sestur á þing. „Jæja, Vimmi minn,“ sagði ég. „Er ekki gaman að vinna með mestu gáfumönnum þjóðarinnar? Vilmundur sparkaði þá létt í húsið og ráðlagði mér að halda ekki eitt augnablik að þar ynnu gáfuðustu menn þjóðarinnar. „En Dúddi,“ sagði hann. „Samt eru fréttamenn ennþá vit- lausari.“ Hann var skemmtilegur karakter, Vilmundur.“ Sigurþór þykir ekki gott hversu lágt mynd- listinni sé gert undir höfði í samfélaginu. „Það byrja allir og enda á því að teikna og skapa. Komirðu inn á barnaheimili eða elliheimili eru allir að dunda sér við sköpun af einhverju tagi. Það gefur fólki svo mikið. Það er líka svo skemmtilegt við börnin að maður segir þeim ekkert hvað þau eigi að teikna eða mála. Þau vita það alveg sjálf. Síðan er lokað fyrir þessa sköpunarþörf. Þegar þeir komast á unglings- aldur hætta alltof margir að teikna og mála. Skynsemin drepur sköpunina.“ Skynsemin drepur sköpunina SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON OG RÍKHARÐUR JÓNSSON VERÐA Í ÖNDVEGI Á SÝNINGU SEM SIGURÞÓR JAKOBSSON MYNDLISTARMAÐUR HELDUR Á VINNUSTOFU SINNI Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG UM HELGINA OG 17. JÚNÍ. TILEFNIÐ ER SJÖTÍU ÁRA AFMÆLI LÝÐVELDISINS. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Myndir: Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is  Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og landnáms- hænurnar ganga broshýr yfir Evrópusambandið.  Ríkharður Jónsson skorar eitt af fjórum mörkum sínum gegn Svíum. Sigurþór Jakobsson myndlistarmaður innan um verk sín á vinnustofunni. Í bakgrunni myndin fræga af Ríkharði Jónssyni bornum af velli á gullstól. Morgunblaðið/Golli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.