Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Page 57
25.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Á sunnudag eru síðustu for-
vöð að sjá leikrit Auðar
Övu Ólafsdóttur, Svanir
skilja ekki, í Þjóðleikhús-
inu. Gagnrýnandi Morgunblaðsins
sagði verkið skoða „þann ein-
kennilega galdur sem þarf til að hið
margþætta og flókna samband hjóna
gangi upp og sé farsælt.
2
Sýning sænska ljósmyndarans
Hans Månsson, Vatnaver-
öld: Tuttugu metrar af fjalla
læk verður opnuð í anddyri
Norræna hússins í dag, laugardag, kl.
14. Sænski náttúrufræðingurinn Stefan
Edman heldur fyrirlestur á opnuninni.
Sýningin stendur til 16. júní.
4
Stórsveit Reykjavíkur stend-
ur fyrir árlegu Stórsveita-
maraþoni á Munnhörpunni
í Hörpu á morgun, sunnudag,
milli kl. 13-16. Stórsveitin og fimm
gestahljómsveitir leika hver í um 30
mínútur. Aðgangur er ókeypis.
5
Raflosti, framsækinni hátíð
fyrir nýja list þar sem rafmagn
og tækni eru notuð við sköp-
un eða flutning verkanna, lýk-
ur í Reykjavík á laugardag. Klukkan 15
er samkoma hjá Siglingafélagi Reykja-
víkur við Ingólfsgarð og klukkan 20
„Stórleikar“ í Sölvhól, tónleikasal
Listaháskóla Íslands.
3
Listahátíð í Reykjavík
stendur nú yfir og er um að
gera fyrir alla listunnendur að
fara á tónleika, skoða hinar
margbreytilegu sýningar eða mæta á
aðrar forvitnilegar uppákomur sem
gæða lífið lit og auka lífsfyllinguna.
MÆLT MEÐ
1
Sýningin Lusus naturae, sem er afrakstur samstarfs Ólafar Nor-dal myndlistarmanns, Þuríðar Jónsdóttur teiknara og GunnarsKarlssonar, verður opnuð í Hafnarborg í dag, laugardag,
klukkan 14. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar og er á efri hæð
menningarmiðstöðvarinnar. Þar getur að líta viðamikið myndbands-
verk á þremur stórum skjám. Lifandi tónlistargjörningur verður
þrisvar á sýningunni, fyrst við opnunina í dag og aftur á morgun,
sunnudag, klukkan 15, og loks á fimmtudagskvöldið kemur. Þá verð-
ur flutt tónsmíð Þuríðar og eru flytjendur Gunnar Guðbjörnsson ten-
ór, Snorri Heimisson á kontrafagott og Íslenski flautukórinn.
Á sýningunni mætast ólíkar listgreinar og skapa flæðandi upplifun
myndlistar og tónlistar. Lusus naturae er latneskt hugtak, sem
gjarnan var notað um óskilgreind fyrirbæri í náttúrunni, það óút-
skýranlega og óflokkanlega, hverskonar afmyndun og bjögun, hvort
sem hún var af manna völdum, tilviljun eða frávik frá eðlilegri þróun.
Lusus þýðir brandari og því er lusus naturae brandari náttúrunnar.
Í verkinu er sokkið niður í djúp hafsins og fylgst með lífshlaupi
skáldlegra lífvera, óskilgreindra „lususa“ sem eru í senn undarlegir
og heillandi í afmyndun sinni. Verkið er draumkennt og fagurt eins
og djúpið, á mörkum hins hlutbundna og óhlutbundna.
Þau Gunnar, Þuríður og Ólöf hafa áður unnið saman að metn-
aðarfullum verkefnum. „Verkin gerast í einhverskonar djúpi og við
leitum nokkuð inn í gróteskuna, sem húsaskreyti,“ segir Ólöf. „Það
þróaðist upp úr endurreisninni, var ekki álitið list en mikill frjálsleiki
og fantasía fékk að njóta sín í þessum hlutum. Við leitum í fantast-
ískar verur sem gróteskan hefur varðveitt.“
Hún segir myndbandsverkunum varpað upp á stór tjöld og undir
hljómi tónverk Þuríðar. „Síðan flytjum við aðra útgáfu tónverksins,
sem er rúmar tuttugu mínútur, í tónlistargjörningunum. Myndefnið
byggist að hluta á mannslíkamanum en samt eru þetta einskonar dýr
og Þuríður notar líka mikið hljóð sem eru raunveruleg í bland við
rafhljóð.“ Veruleiki og skáldskapur togast því á í heimi þessa metn-
aðarfulla verkefnis, sem listamennirnir hafa unnið að um skeið. „Já,
þetta er heilmikið verkefni,“ segir Ólöf.
SÝNINGIN LUSUS NATURAE OPNUÐ Í HAFNARBORG
Brandari náttúrunnar
SÝNINGARVERKEFNI ÓLAFAR NORDAL, ÞURÍÐAR
JÓNSDÓTTUR OG GUNNARS KARLSSONAR ER
Á DAGSKRÁ LISTAHÁTÍÐAR.
Gunnar Karlsson, Ólöf Norðdal, Þuríður Jónsdóttir og Gunnar Guð-
björnsson hafa skapað hrífandi heim myndverks og tónlistar.
Morgunblaðið/Eggert
„Það má því segja að verðlaunin
hafi haft töluverð áhrif,“ segir
Anna Þorvaldsdóttir og vísar þar
til Tónlistarverðlauna Norð-
urlandaráðs sem hún hlaut 2012.
er viðstödd flutning, en þess utan skipu-
legg ég mig þannig að ég hafi góðan
tíma inn á milli til að loka mig af. Við
maðurinn minn fluttum heim til Íslands í
fyrra eftir að hafa verið á flakki í tæp
tvö ár þar á undan, að miklu leyti vegna
minna tónlistarverkefna og þar áður
bjuggum við erlendis í tæp sex ár. Mér
finnst hins vegar dásamlegt að vera kom-
in aftur heim.“
ferðast talsvert vegna flutnings verka
sinna og því liggur beint við að spyrja
hvort henni reynist aldrei erfitt að finna
tíma til að semja. Eða getur hún kannski
skrifað á hótelherbergjum? „Nei, ég get
ekki unnið alveg nógu vel á ferðalögum.
Ég þarf að geta lokað mig af til að
skrifa. Ég er lánsöm með það að verk
mín eru flutt víða og ég reyni því að
velja af kostgæfni þá tónleika þar sem ég
samhengi að fullu. En áður en ég fékk
verðlaunin var ég búin að skapa mér
ákveðinn vettvang í Bandaríkjunum. Verð-
launin juku sýnileika minn og opnuðu mér
nýjar dyr að Evrópu, þar með talið Norð-
urlöndunum. Það má því segja að verð-
launin hafi haft töluverð áhrif.“
Af vef Önnu, annathorvalds.com, má sjá
að hún hefur haft nóg að gera síðustu
misseri. Aðspurð segist hún þurfa að
Morgunblaðið/Kristinn