Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Síða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.5. 2014
BÓK VIKUNNAR Tvífari gerir sig heimakominn er ný
ljóðabók eftir Anton Helga Jónsson og þar er meðal annars að
finna ljóð sem fékk Ljóðstaf Jóns úr Vör í byrjun þessa árs.
Bækur
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR
kolbrun@mbl.is
Fjölmargir lesendur hafa dálæti ásögulegum spennubókum og einslík, afar vönduð, er nú á markaði.
An Officer and a Spy er skáldsaga eftir
Robert Harris en þar er Dreyfus-málið í
forgrunni. Aðalpersóna bókarinnar er
franski liðsforinginn Georges Picquart
sem árið 1895 fylgist með því þegar Alf-
red Dreyfus, sem sakfelldur hefur verið
fyrir njósnir
og dæmdur í
lífstíðarfang-
elsi, er sviptur
tign og auð-
mýktur op-
inberlega fyrir
framan æp-
andi múg.
Dreyfus er
fluttur á
Djöflaeyju þar
sem hann er í
fangelsisvist
við ömurlegar
aðstæður. Á
meðan fer Pic-
quart, sem í
byrjun hafði
verið sann-
færður um sekt Dreyfusar, að efast og
kemst loks á þá skoðun að saklaus maður
hafi verið sakfelldur. Hann tekur að berj-
ast fyrir því að réttlætið nái fram að
ganga og hinn raunverulegi njósnari
verði sóttur til saka, en æðstu menn hers-
ins kæra sig ekki um að sannleikurinn
komi í ljós. „Hvaða máli skiptir að einn
gyðingur sé í vist á Djöflaeyju?“ spyr
einn þeirra Picquart.
Robert Harris er
þekktur breskur
spennusagnahöf-
undur, skrifaði
meðal annars met-
sölubækurnar
Föðurland (en þar
hefur Adolf Hitler
unnið seinni heims-
styrjöldina) og
Pompeii. Officer
and a Spy fékk frá-
bæra dóma í
heimalandinu og
rataði á lista helstu
stórblaða yfir bestu bækur ársins. Í bók-
inni fylgir Harris Dreyfusmálinu mjög
nákvæmlega og nær allar persónur bók-
arinnar eru byggðar á raunverulegum
persónum og sömuleiðis er atburðum að
mestu fylgt, en um leið verður lesandinn
vitanlega að hafa í huga að hann er að
lesa skáldverk þar sem höfundur tekur
sér ákveðið frelsi. Bókin er spennandi, af-
ar fróðleg og sneisafull af áhugaverðum
persónum, þar á meðal er rithöfundurinn
Emile Zola sem beitti sér mjög í Drey-
fus-málinu, George Clémenceau sem
var vinur Picquarts og varð forsætisráð-
herra, og Pauline hin gifta ástkona Pic-
quarts kemur mjög við sögu í bókinni.
Barátta Picquarts er aðdáunarverð en
leynilögreglan fylgdist með honum og líf
hans var jafnvel í hættu. Bók sem er
sannarlega þess virði að lesa.
Orðanna hljóðan
SPENNU-
SAGA UM
HETJU
Barátta Picquarts fyrir
réttlætinu var hetjuleg.
Sérlega vönduð
spennusaga.
S
itinn þráður úr köngulóarvef er
fyrsta ljóðabók Sigurðar Jóns
Ólafssonar, en hann hefur áður
birt ljóð í tímaritum og Lesbók
Morgunblaðsins. Sigurður, sem
er fæddur árið 1947, er með BA-próf í
bókasafnsfræði og íslensku og hefur starf-
að hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur í rúm
þrjátíu ár.
„Það er nokkurra áratuga draumur að
gefa út ljóðabók,“ segir Sigurður. „Ég
byrjaði að föndra við ljóðagerð ungur
maður, orti nokkur ljóð á ári og segja má
að þessi ljóðabók sé áratuga afrakstur. Sá
ágæti maður, Aðalsteinn Ásberg Sigurðs-
son, rithöfundur og tónlistarmaður, las
handritið yfir fyrir mig og kom með gagn-
legar athugasemdir. Niðurstaðan er bók
sem í eru fjörutíu og fjögur ljóð af þeim
sem ég hef ort og henni er skipt í fjóra
kafla. Þarna eru ljóð um náttúruna en
einnig ljóð um það sem fyrir augu ber í
borginni, sum ljóðanna tengjast bernsku-
minningum og svo eru þarna trúarljóð. Ég
lít reyndar svo á að ljóðin séu öll trúar-
legs eðlis.“
Hvað er trúin fyrir þér?
„Trúin birtist í umhverfinu og nátt-
úrunni en fyrst og fremst í mannlegum
samskiptum. Ég lít svo á að allt sem er
lifandi skipti máli, hvort sem það er
manneskjan, dýrin eða gróðurinn.“
María mey er persóna í sumum
ljóðanna. Um hlutverk hennar segir Sig-
urður: „Þarna er um að ræða áhrif frá
námi mínu í Háskólanum, sem tengist
Maríufræðum og Maríukveðskap á síðmið-
öldum. Hjá mörgum skáldum er María
mey tákn hinnar fullkomnu móður og í
ljóðum mínum færi ég hana niður á jörð-
ina en upphef hana ekki til himna.“
Spurður að því hvort hann stefni á að
gefa út fleiri ljóðabækur segir Sigurður:
„Það styttist í að ég hætti að vinna og
það er aldrei að vita hvað ég geri eftir
það. En að svo komnu máli verður ekkert
gefið upp.“
Sigurður hefur unnið á Borgarbókasafn-
inu í 30 ár sem gefur sterka vísbendingu
um að bækur skipti hann miklu máli. „Ég
hef verið lestrarhestur frá unglingsárum,“
segir hann. „Ég hef alltaf lesið mikið af
ljóðum og hef alltaf ljóðabók við höndina.
Með árunum hefur minna farið fyrir lestri
á skáldsögum, nema þá sögulegum skáld-
sögum en ég les meira af ævisögum og
þjóðlegum fróðleik.“
Spurður um eftirlætisljóðskáld segir
hann: „Af skáldum frá seinustu öld er
Snorri Hjartarson í mestu uppáhaldi. Þeg-
ar ég byrjaði að lesa ljóð að einhverju
ráði hreifst ég mest af módernískum ljóð-
um og ljóðskáld eins og Þorsteinn frá
Hamri, Stefán Hörður Grímsson, Hann-
es Pétursson og Jóhannes úr Kötlum
höfðuðu mest til mín á þeim tíma; ljóð-
skáld sem eru með annan fótinn í hefðinni
og hinn í nútímanum.“
MARÍA MEY ER PERSÓNA Í NOKKRUM LJÓÐANNA
Áratuga afrakstur
„Ég lít svo á að allt sem er lifandi skipti máli, hvort sem það er manneskjan, dýrin eða gróðurinn,“
segir Sigurður Jón Ólafsson ljóðskáld en fyrsta ljóðabók hans er nýkomin út.
Morgunblaðið/Þórður
SIGURÐUR JÓN ÓLAFSSON BYRJAÐI
AÐ YRKJA UNGUR MAÐUR OG
SENDIR NÚ FRÁ SÉR FYRSTU
LJÓÐABÓK SÍNA MEÐ FJÖRUTÍU OG
FJÓRUM LJÓÐUM.
Ég ætla að segja ykkur frá uppáhaldsbókunum mínum. Fyrsta bókin
heitir Skrímsli í heimsókn eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Gu-
ettler og Rakel Helmsdal. Mér finnst hún skemmtileg af því að
hún fjallar um stóra skrímslið, það fer að veiða og
litla skrímslið átti að veiða með því, en þegar stóra
skrímslið kemur að sækja það er litla skrímslið með
gest. Og þau fara að rífast aðeins. Bókin er um vin-
áttuna og að allir eiga að vera góðir hver við annan.
Ég hef lesið fleiri Skrímslabækur og mér finnst þær
allar frábærar.
Bók númer tvö heitir Randalín og Mundi eftir
Þórdísi Gísladóttur. Hún fjallar um tvo vini og
Randalín reykir, eða hvað? Og þau fara til sálfræðings
til að fá hana til að hætta. Þau lenda í allskyns
skemmtilegum ævintýrum. Randalín er líka svo uppátækjasöm.
Strympa er þriðja bókin sem ég valdi. Þar sem Strympa snýr öllu
á hvolf í Strumpalandi, en þegar maður er kominn langt inn í bókina
er það klárt að Kjartan, vondi galdrakarlinn, stendur á bak við þetta
allt saman. En hið góða sigrar að lokum.
Skúli skelfir og Bína brjálaða eftir Francesca Simon er síð-
asta bókin sem ég valdi. Mér finnst hún skemmtileg af því að Skúli
skelfir er sniðugur og þegar Bína brjálaða á að fara passa hann er
hann klárari en hún. Snýr henni alveg á hvolf.
Í UPPÁHALDI
ANNA SIGRÍÐUR
KRISTJÁNSDÓTTIR 7 ÁRA
Anna Sigríður á sínar uppáhaldsbækur og hún segir frá þremur þeirra.
Þetta eru Randalín og Mundi, Skrímslabók og bók um Skúla skelfi.
Morgunblaðið/Golli
Skúli skelfir og Bína
brjálaða.