Morgunblaðið - 18.07.2014, Page 1
VINNA Í ÁLVERINU
MINNIR Á SVEITINA
HJÁ AFA OG ÖMMU
F Ö S T U D A G U R 1 8. J Ú L Í 2 0 1 4
Stofnað 1913 167. tölublað 102. árgangur
FÍFLALÆTI Á
TÓNLEIKUM
ÚTI Á LANDI
ARNAR DAN MEÐ
NÝJAN EINLEIK
Í TJARNARBÍÓI
GRÍSALAPPALÍSA 41 LANDSLIÐIÐ Á LÍNU 38ÁLBÓNDI 10
orkugjafi
MÚLTI SPORT
FJÖREFNI FYRIR ÍÞRÓTTAMANNINN
eykur kraft
www.gulimidinn.is
Talið er að 280 farþegar og 15 manna
áhöfn hafi látið lífið þegar Boeing
777-200 vél Malaysia Airlines hrap-
aði í austurhluta Úkraínu í gær.
CNN hafði eftir háttsettum banda-
rískum embættismanni í gærkvöldi
að vélin hefði verið skotin niður en
eitt ratsjárkerfi hefði merkt þegar
kveikt hefði verið á eldflaugakerfi á
jörðu niðri, skömmu áður en vélin
fórst, og annað kerfi hefði numið
hitamerki þegar eldflaug lenti á vél-
inni. Hann sagði að unnið væri að því
að greina feril flaugarinnar til að
rekja uppruna hennar.
Vélin hrapaði í Donetsk-héraði,
þar sem bardagar hafa geisað milli
úkraínska hersins og aðskilnaðar-
sinna. Báðir aðilar kenna hinum um
harmleikinn en úkraínsk stjórnvöld
hafa sakað uppreisnarmenn um að
hafa skotið niður a.m.k. tvær her-
flugvélar sl. daga.
Flugvélin sem fórst í gær er af
sömu gerð og önnur vél Malaysia
Airlines sem hvarf 8. mars sl. á leið
frá Kuala Lumpur til Peking. 239
farþegar voru um borð í flugi MH370
þegar vélin hvarf en hvorki tangur
né tetur hefur fundist af vélinni,
þrátt fyrir gríðarlega umfangsmikla
alþjóðlega leit. »17
Farþegaþota skotin niður
Hrapaði í austurhluta Úkraínu 280
farþegar og 15 manna áhöfn talin af
AFP
Hræðileg aðkoma Sjónarvottar sögðu vélinni hafa rignt niður í pörtum og
að líkamsleifar hefðu legið á víð og dreif innan um brakið.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Frystitogarinn Kristina EA 410,
stærsta skip íslenska fiskiskipaflot-
ans, losnaði af sjálfsdáðum klukkan
20.40 í gærkvöld eftir að skipið hafði
tekið niðri á Transaboða, sem er
vestan við Selsker, um sjö sjómílur
(13 km) frá Grundarfirði. Þar sat
skipið fast. Veður var gott.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
barst beiðni um aðstoð frá Kristinu
EA vegna óhappsins klukkan 18.30.
Björgunarsveitir á norðanverðu
Snæfellsnesi voru strax ræstar út.
Varðskipið Þór, sem statt var við
Vestmannaeyjar, hélt á strandstað.
Einar Þór Strand, formaður svæð-
isstjórnar björgunarsveitanna á
Snæfellsnesi, sagði að 50-60 manns
úr björgunarsveitum og þremur
slökkviliðum hefðu komið að björg-
unaraðgerðum á fjórum björgunar-
skipum. Lítils háttar leki kom að
rými fyrir fiskileitartæki. Tvær litlar
dælur höfðu vel undan lekanum, að
sögn Einars. Kristina EA hélt til
Grundarfjarðar þar sem kafari átti
að kanna skemmdirnar.
Um borð í Kristinu EA var 32
manna áhöfn. Enginn meiddist við
óhappið, að sögn Þorsteins Más
Baldvinssonar, forstjóra Samherja
sem á skipið. Töluvert mikill frystur
afli var um borð.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður Kristina EA kom til hafnar í gærkvöld. Þyrla LHG flaug vestur með slökkviliðsmenn og dælur.
Losnaði af strandstað
Frystitogarinn Kristina EA steytti á boða út af Grund-
arfirði Lítils háttar leki Mikill viðbúnaður á staðnum
Grand Hótel í
Sigtúni verður
langstærsta hót-
el landsins eftir
að fyrirhugðari
stækkun þess
lýkur á næstu ár-
um. Ólafur
Torfason, eig-
andi Íslands-
hótela, bindur
vonir við að
framkvæmdir við
stækkunina geti
hafist um áramótin. Alls 311 her-
bergi eru nú á hótelinu og verður
100 bætt við.
Skipulagsyfirvöld eiga eftir að
samþykkja endanlegt útlit hótelsins
og fjölbýlishúsa sem byggð verða á
sömu lóð. Þar verða um 100 íbúðir
fyrir almennan markað og verður
grafinn bílakjallari sem verður að-
gengilegur bæði íbúum húsanna og
gestum hótelsins. »2
100 ný herbergi
á Grand Hótel
Í Sigtúni Grand
Hótel.
Öllum fyrirvörum var létt af raf-
orkusölusamningi Landsvirkjunar
og United Silicon hf. í gær. Lands-
virkjun mun útvega rafmagn fyrir
kísilverksmiðju sem United Silicon
ætlar að reisa í Helguvík. Verk-
smiðjan mun nota 35 MW af afli og
er gert ráð fyrir að hún hefji starf-
semi á fyrri hluta ársins 2016.
Hörður Arnarson, forstjóri
Landsvirkjunar, sagði að orkan
sem Landsvirkjun ætlaði að af-
henda United Silicon væri til.
Samningurinn kallaði því ekki á
frekari virkjanaframkvæmdir.
Framkvæmdir við byggingu
fyrsta áfanga verksmiðjunnar eiga
að hefjast í þessum mánuði. Magnús
Garðarsson, nýráðinn fram-
kvæmdastjóri United Silicon hf. í
Helguvík, sagði að 250-300 manns
mundu vinna við framkvæmdirnar.
Þegar fyrsti áfangi fer í gang munu
vinna þar um 60 manns. »6
Bygging kísilvers
United Silicon hf. í
Helguvík að hefjast
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skortur er á iðnaðarmönnum á lands-
byggðinni og er útlit fyrir að flytja
þurfi inn vinnuafl á næstunni. Þetta
segir Friðrik Á. Ólafsson, forstöðu-
maður byggingarsviðs hjá SI, en
hann er jafnframt tengiliður við tíu
meistarafélög í byggingariðnaði úti á
landi. Hann segir nýframkvæmdir á
íbúðamarkaði og vegna hótelgeirans
hafa skapað fjölda starfa og að annir
séu vegna viðhaldsverkefna í sumar.
„Það er skortur á iðnaðarmönnum í
byggingargeiranum. Mín skoðun er
sú að einhverjir iðnaðarmenn séu á
atvinnuleysisskrá sem ættu ekki að
vera það. Þeir ættu að vera í öðrum
úrræðum,“ segir Friðrik og vísar m.a.
til einstaklinga sem hafa orðið skerta
starfsgetu og geta því ekki lengur
unnið líkamlega erfið störf. Friðrik
telur að vegna skorts á iðnaðar-
mönnum verði leitað að vinnuafli utan
landsteinanna.
Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá
Vinnumálastofnun, telur aðspurður
að líklegt sé að skortur sé orðinn á
vinnuafli í vissum greinum.
Kísilver kalla á erlent vinnuafl
Guðmundur Ragnarsson, formað-
ur VM – Félags vélstjóra og málm-
tæknimanna, segir stöðuna góða.
„Rætist áform um uppbyggingu
stóriðju, m.a. vegna kísilvera, er hætt
við að það fari að skorta fólk. Það er
lítil endurnýjun í greininni og við
náum rétt svo að halda í horfinu. Ým-
is fyrirtæki byrjuðu að flytja inn
málmiðnaðarmenn erlendis frá fyrir
nokkrum árum og það er viðbúið að
það muni færast í vöxt ef öll þessi
verkefni verða að veruleika.“
MAtvinnuleysið »4
Skortur á
starfsfólki
úti á landi
Talið kalla á inn-
flutning á vinnuafli