Morgunblaðið - 18.07.2014, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2014
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
Orange-
LAGERDAGAR
70%
Sparaðu allt að
Við rýmum fyrir nýjum vörum
af völdum húsgögnum og smávöru, komdu
og gerðu frábær kaup strax í dag.
Orange-lagerdagar frá 18. júlí til og með 31. júlí
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Öllum fyrirvörum var létt af raf-
orkusölusamningi Landsvirkjunar
og United Silicon hf. í gær.
Samningurinn var undirritaður í
mars síðastliðnum og samþykktur
af stjórnum beggja félaga.
Landsvirkjun mun samkvæmt
samningnum útvega rafmagn fyrir
kísilverksmiðju sem United Silicon
ætlar að reisa í Helguvík. Verk-
smiðjan mun nota 35 MW af afli og
er gert ráð fyrir að hún hefji starf-
semi á fyrri hluta ársins 2016. Búið
er að tryggja fjármögnun verkefn-
isins og verður hún í höndum Arion
banka annars vegar í formi hefð-
bundinnar verkefna- og lánsfjár-
mögnunar og hins vegar í útgáfu
skuldabréfa á innlendum markaði,
að því er sagði í fréttatilkynningu
félaganna tveggja.
Framkvæmdir við kísilverksmiðj-
una eiga að hefjast af fullum krafti í
þessum mánuði, samkvæmt áform-
um United Silicon. Jarðvegsfram-
kvæmdir eru þegar hafnar á svæð-
inu. Stefnt er að því að rekstur
verksmiðjunnar hefjist 1. apríl 2016.
Orkan er til
„Þetta er orðinn skuldbindandi
samningur fyrir báða aðila, sem er
fagnaðarefni,“ sagði Hörður Arnar-
son, forstjóri Landsvirkjunar. Hann
sagði að orkan sem Landsvirkjun
ætlar að afhenda United Silicon
væri til. Samningurinn kallaði því
ekki á frekari virkjanaframkvæmd-
ir. En er samningurinn teikn um að
nú sé að hefjast nýtt skeið í upp-
byggingu iðnaðar og orkuvera?
„Það ræðst mikið af aðstæðum á
erlendum mörkuðum. Við sjáum að
nú er ákveðin uppsveifla í kísil-
málmiðnaði. Þess vegna er mikill
áhugi á slíkri uppbyggingu á Ís-
landi. Ég á von á að þegar aðrar iðn-
greinar taka við sér þá sjáum við
þær líka sýna áhuga,“ sagði Hörður.
Hann sagði að Landsvirkjun mundi
ekki gera frekari orkusölusamninga
án nýrra virkjana. Undirritaður hef-
ur verið samningur vegna iðnaðar-
uppbyggingar á Bakka en ekki er
búið að aflétta fyrirvörum af honum.
Verði sá samningur að veruleika er
horft til uppbyggingar raforkuvers
á Þeistareykjum.
Mörg fyrirtæki eiga í viðræðum
við Landsvirkjun um möguleg orku-
kaup. Hvort af þeim getur orðið er
háð því að Landsvirkjun fái heimild
til frekari uppbyggingar raforku-
vera. Hörður sagði að fjallað væri
um möguleg næstu virkjanaskref í
Rammaáætlun og síðan þyrftu
stjórnvöld að ákveða um þau. Hann
sagði Landsvirkjun einkum líta til
virkjanamöguleika á Þjórsársvæð-
inu. Þar á meðal væri stækkun Búr-
fellsvirkjunar og eins nýjar virkj-
anir í Neðri-Þjórsá.
Fyrsti áfangi af fjórum
„Þetta er risastórt skref. Nú
verður ekki aftur snúið,“ sagði
Magnús Garðarsson, nýráðinn
framkvæmdastjóri United Silicon
hf. í Helguvík, um afléttingu fyr-
irvara í raforkusölusamningi við
Landsvirkjun.
Undirbúningur að byggingu
fyrsta áfanga verksmiðju United
Silicon hefur staðið í tvö ár. Magnús
sagði að þessi nýi iðnaður mundi
flytja inn mikla þekkingu og tækni.
Undanfarið hafa tólf verið við
störf á verksmiðjusvæðinu í Helgu-
vík en 250-300 manns munu vinna
við að reisa fyrsta áfanga verk-
smiðjunnar. Verksmiðjuhúsið verð-
ur 41 metra hátt og um 5.000 fer-
metrar. Þar inni verður risastór ofn
sem framleiðir kísilinn.
Þegar verksmiðjan hefur starf-
rækslu munu vinna þar um 60
starfsmenn. Stefnt er að því að reisa
alls fjóra áfanga og setja upp nýja
ofna verksmiðjunnar á um 30 mán-
aða fresti, fáist til þess næg orka. Í
fullbyggðri verksmiðju munu starfa
um 150 manns eftir tíu ár.
Hver áfangi verksmiðjunnar mun
framleiða 21.500 tonn af 99,1%
hreinum kísli á ári. Fullbyggð mun
verksmiðjan því framleiða 86.000
tonn á ári. Kísill er hálfleiðari og
mikið notaður í hátækniiðnaði.
Magnús sagði að fyrirhuguð
stækkun verksmiðjunnar mundi
ráðast af því hvort til yrði næg raf-
orka og hvenær hún yrði tilbúin til
afhendingar.
Framkvæmdir að byrja við kísilver
Öllum fyrirvörum aflétt af raforkusölusamningi Landsvirkjunar og United Silicon hf. í Helguvík
Ekki fleiri orkusamningar án nýrra virkjana Fyrsti áfangi kísilversins tekur til starfa vorið 2016
Tölvuteikning/United Silicon
Helguvík Teikningin sýnir fyrirhugaða kísilverksmiðju United Silicon hf. í Helguvík. Bygging fyrsta áfanga er að hefjast. Rekstur á að hefjast vorið 2016.
Hörður
Arnarson
Magnús
Garðarsson
Landsnet ætlar að hefjast strax
handa við að undirbúa tengingu
fyrirhugaðs kísilvers United Sili-
con við meginflutningskerfi raf-
orku á Fitjum á Reykjanesi.
Guðmundur Ingi Ásmundsson,
aðstoðarforstjóri Landsnets, sagði
að lagður yrði níu kílómetra langur
jarðstrengur frá Fitjum til Helgu-
víkur. Spennan á strengnum verð-
ur 132 kílóvolt (kV). Jafnframt
verður byggður fyrsti áfangi nýs
tengivirkis í Helguvík sem hefur
fengið nafnið Stakkur. Nýja tengi-
virkið verður yfirbyggt eins og öll
ný tengivirki Landsnets. Í því verð-
ur háspennubúnaður fyrir 132 kV
og 33 kV spennu. Framkvæmda-
kostnaður Landsnets vegna þess-
ara framkvæmda er áætlaður vera
um 1,3 milljarðar. Framkvæmd-
irnar eiga að fara á fullan skrið í
byrjun næsta árs.
Jafnframt
vinnur Lands-
net að því að
ljúka leyfisferli
vegna Suður-
nesjalínu 2.
„Við vonumst
til að fram-
kvæmdir við
hana hefjist í
haust,“ sagði
Guðmundur
Ingi. Reiknað er með að kostnaður
við gerð Suðurnesjalínu 2 verði um
2,1 milljarður króna.
Guðmundur Ingi sagði að mikil
álagsaukning hefði verið á Reykja-
nesi vegna aukins iðnaðar, net-
þjónabúa og annarrar nýrrar starf-
semi. „Það er orðið mjög brýnt að
koma Suðurnesjalínu 2 inn til að
tryggja afhendingaröryggi raforku
til allrar þessarar starfsemi.“
Brýnt að fá Suðurnesjalínu 2
LANDSNET LEGGUR JARÐSTRENG FRÁ FITJUM TIL HELGUVÍKUR
Guðmundur Ingi
Ásmundsson
Stjórn Landssambands smábátaeig-
enda hvetur stjórnvöld til að auka
við aflaviðmiðun strandveiða í sam-
ræmi við aukinn þorskkvóta. Stjórn-
in kom saman á Hólmavík í vikunni
og á fundinum kom fram óánægja
með að ráðherra og atvinnuvega-
nefnd Alþingis hafi ekki orðið við
beiðni LS sl. vor um hækkun afla-
viðmiðunar. Bent er á að samkvæmt
núverandi reglum hafi aðeins mátt
róa í sjö daga í maí og júní á einu
veiðisvæðanna. „Með heimild til að
nýta fimmtán fasta veiðidaga (mánu-
dagur – fimmtudagur) í hverjum
mánuði mundi heildarafli aukast lít-
illega en ávinningur yrði mikill er
varðar jafnari dreifingu aflans innan
hvers mánaðar,“ segir í ályktun
stjórnar LS.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Í Eyjafirði Strandveiðum í júlí er lokið á vestur- og norðursvæðum.
Vilja 15 fasta veiðidaga
Tveir menn, sem handteknir voru
eftir alvarlega líkamsárás á Grund-
arfirði í fyrrinótt, voru úrskurðaðir
í vikulangt gæsluvarðhald í gær-
kvöld.
Rannsóknardeild lögreglunnar á
Akranesi rannsakar málið og fór
fram á gæsluvarðhaldið á grund-
velli rannsóknarhagsmuna. Menn-
irnir voru yfirheyrðir í gærkvöldi
og síðan leiddir fyrir dómara.
Sá sem fyrir árásinni varð var
fluttur með þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar á Landspítalann í gærmorg-
un. Þar gekkst hann undir aðgerð á
höfði en maðurinn hlaut alvarlega
höfuðáverka við árásina. Hann
liggur á gjörgæsludeild og er hald-
ið sofandi í öndunarvél.
Gæsluvarðhald í
viku vegna árásar
Vopnað rán var framið í matvöru-
versluninni Pétursbúð, sem stendur
við Ránargötu í Vesturbæ Reykja-
víkur í gærkvöldi. Samkvæmt
heimildum mbl.is réðust tveir menn
inn í verslunina vopnaðir barefli og
sprautunál. Komust þeir undan
með eitthvað af peningum.
Rán í Pétursbúð