Morgunblaðið - 18.07.2014, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2014
Hrap farþegaþotu MalaysianAirlines yfir Úkraínu er ógn-
vænlegur atburður. Hann er fágæt-
ur, en þó ekki einstakur.
Bandarískt herskip skaut íranskafarþegaflugvél niður fyrir ald-
arfjórðungi, en foringjar þess töldu
hana vera árásarvél sem stefndi ör-
yggi skipsins í hættu.
Sovétríkin skutu niður farþega-flugvél frá Suður-Kóreu 1983 og
neituðu í 14 ár að viðurkenna ódæð-
ið.
Þegar þetta er skrifað er ekkióyggjandi hvers vegna vélin
hrapaði í gær. Þó er talið nær öruggt
að flugskeyti hafi grandað henni.
Þeir tveir aðilar sem eru líklegastir
til að bera ábyrgð á því bera af sér
sakir. Víst þykir að enginn hafi vilj-
andi skotið vélina niður.
Fernt vekur með öðru athyglifréttaskýrenda á þessu stigi:
1) Að flugfélög, þar á meðal mörg
evrópsk, skuli hafa látið vélar sínar
fljúga yfir hið ótrygga ófriðarsvæði.
2) Að Pútín forseti, sem var að tala
við Obama um efnahagsþvinganir
skuli hafa nefnt flugvélarhrapið, en
Bandaríkjaforseti hafði þá ekkert
um það heyrt.
3) Að verið geti að Rússar hafi
fengið óöguðum og lítt þjálfuðum
hópi „andspyrnumanna“ í austur-
hluta Úkraínu háþróuð vopn, sem
geti fargað flugvélum í 33.000 feta
hæð.
4) Að flugvélin, sem hlaut þessi óg-
urlegu örlög skuli vera frá Malaysian
Airlines, sömu gerðar og vél félags-
ins sem hvarf með óskiljanlegum
hætti fyrir fáeinum mánuðum.
Flestum spurningum er ennósvarað og áhrif ódæðisverks-
ins á viðkvæmt ástand eru enn óljós.
Hryllingsatburður
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 17.7., kl. 18.00
Reykjavík 11 súld
Bolungarvík 11 alskýjað
Akureyri 18 skýjað
Nuuk 10 léttskýjað
Þórshöfn 16 alskýjað
Ósló 20 skýjað
Kaupmannahöfn 22 léttskýjað
Stokkhólmur 23 heiðskírt
Helsinki 22 heiðskírt
Lúxemborg 28 heiðskírt
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 21 skýjað
Glasgow 22 léttskýjað
London 27 léttskýjað
París 31 heiðskírt
Amsterdam 27 léttskýjað
Hamborg 27 heiðskírt
Berlín 27 heiðskírt
Vín 27 skúrir
Moskva 25 skýjað
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 37 heiðskírt
Barcelona 27 heiðskírt
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 20 þrumuveður
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 21 alskýjað
Montreal 17 skýjað
New York 25 skýjað
Chicago 22 skýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:51 23:18
ÍSAFJÖRÐUR 3:21 23:58
SIGLUFJÖRÐUR 3:02 23:42
DJÚPIVOGUR 3:12 22:55
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Það er alltaf gaman að vinna leikinn
og sýslumaður hefur tekið undir
sjónarmið okkar sem óskuðum eftir
lögbanninu. Hér í sveitinni voru
miklir hagsmunir í húfi en stóri
punkturinn í málinu er samt sá að
þetta er spurning um hver framtíð-
arskipan ferðamála í landinu skuli
vera,“ segir Pétur Snæbjörnsson,
hótelstjóri í Hótel Reynihlíð í Mý-
vatnssveit.
Sýslumaðurinn á Húsavík, Svavar
Pálsson, samþykkti í gær lögbanns-
kröfu félagsmanna í Landeigendafé-
lagi Reykjahlíðar við gjaldtöku fé-
lagsins við Námafjall og Leirhnjúk.
Lögbannið tekur gildi þegar lögð
hefur verið fram 42 millj. kr. trygg-
ing. Frestur til að ganga frá henni er
til miðvikudags í næstu viku.
Upphaflega stóð til að innheimta
gjald af ferðamönnum við Leirhnjúk,
Námaskarð og Dettifoss. Fallið var
frá því á síðastnefnda staðnum þegar
samningur náðist við forsvarsmenn
Vatnajökulsþjóðgarðs um uppbygg-
ingu og úrbætur við fossinn sem mið-
ast við að hlífa landinu eftir megni
við álagi vegna vaxandi fjölda ferða-
manna sem þangað koma á hverju
ári.
Gjaldtaka hófst hinsvegar við
hveri austan Námafjalls og við Leir-
hnjúk sem er á Kröflusvæðinu fyrir
um mánuði. Alls 17 eiga hlut í Land-
eigendafélaginu Reykjahlíð. Sjö
þeirra fóru fram á lögbannið.
„Í sjálfu sér eru engin viðbrögð af
okkar hálfu við þessu. Niðurstaðan
er fengin og við lútum henni. Það fór
sem fór og nú bíðum við eftir því
hvort þeir sem höfðu betur geta lagt
fram þá tryggingu sem krafist er,“
sagði Guðrún María Valgeirsdóttir,
formaður Landeigenda við Mývatn
ehf., sem er jafnframt sveitarstjóri
Skútustaðahrepps.
Guðrún María minnir á að lög-
bannskrafan hafi í raun snúist um
hvort samþykki allra félagsmanna
þyrfti fyrir því að hefja innheimtu
aðgöngugjalds á umræddum ferða-
mannastöðum eða hvort samþykki
meirihlutans dygði í þessu sam-
bandi.
Lögbann á gjaldtöku samþykkt
Gjaldfrjálst í
Mývatnssveitinni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Í Námaskarði Sýslumaðurinn á Húsavík hefur samþykkt lögbannskröfu.
Sýningarsalur í Skipholti 35 • Seljabót 7, Grindavík • www.pgv.is • Sími 510 9700
• Barnalæsing
• Mikil einangrun
• CE vottuð framleiðsla
• Sérsmíði eftir málum
• Glerjað að innan
• Áratuga ending
• Næturöndun
VELDU VIÐHALDSFRÍTT
PVC gluggar og hurðir - íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar