Morgunblaðið - 18.07.2014, Page 11
Vinkona mín ætlar að gangaað eiga vin minn í sumar.Eins og gengur tók hópurungra kvenna sig til, lét
vekja hana með látum og fékk gæsin
síðan að leika listir sínar fram eftir
degi. Um kvöldið settumst við niður,
hlógum dálítið meira og dýfðum
ávöxtum í súkkulaði.
Þó langt væri liðið á kvöldið var
dagskránni hvergi nærri lokið. Næst
var komið að því að kynna það nýj-
asta í snyrtivöruheiminum fyrir hinni
tilvonandi frú. Eða það hélt ég alla-
vega. Þegar hér var komið sögu
var ég ekki mjög spennt, heldur
farin að geispa og sá ekki fyrir
mér að taka bakföll af hlátri yfir
möskurum og andlitskremi.
Dyrabjallan glumdi og
eftir stutta stund birtist
hress kona í dyragætt-
inni. Hún dró á eftir sér
tösku á hjólum, kom sér
fyrir í stofunni og dró því
næst upp bleikan gervilim.
Þessu átti ég svo sannarlega
ekki von á.
„Mikið er hún sniðug að
brjóta ísinn á þennan hátt,“
hugsaði ég þó með mér,
bjartsýn og viss um að titr-
arar veki jafnan lukku meðal
ungs fólks og því hafi verið til-
valið að koma með hlut af
þessu tagi í partíið.
Konan sneri tækinu á alla
kanta, lýsti eiginleikum þess,
svaraði spurningum vinkvenn-
anna og lét það því næst ganga
á milli. Eftir að ungu konurnar
höfðu allar fengið að handleika
liminn, dró hún næsta hlut upp
úr pokanum. Þegar við mér blasti enn
stærri og nú skærgrænn gervilimur
fóru að renna á mig tvær grímur.
Voru kynningar á möskurum kannski
farnar að snúast um eitthvað annað
en nafn þeirra gefur til kynna? Ég
hallaði mér að vinkonu minni og
spurði hana í hálfum hljóðum hvers
konar snyrtivörukynning þetta
væri eiginlega. Vinkonan horfði á
mig, brosti út að eyrum, hló inni-
lega og benti mér síðan vinsam-
lega á að hér stæði yfir kynn-
ing á hjálpartækjum
ástarlífsins, aldrei hafi stað-
ið til að kynna maskara og
því hefði ég greinilega mis-
skilið tilgang fyrirtækisins
hrapallega. Þegar ég opin-
beraði misskilning minn meðal
vinkvennanna uppskar ég svo
mikinn hlátur að nágrann-
arnir hafa eflaust hrokkið upp
af værum blundi.
Þegar heim var komið var
ég engu fróðari um hinar ýmsu
gerðir augnhárabursta heldur
verkjaði mig aðeins í spékopp-
ana eftir hlátrasköll kvöldsins.
Stundum getur bara verið ald-
eilis ágætt að vera ekki með á
nótunum, lífið er kannski bara
skemmtilegra þannig.
»Þegar við mér blastienn stærri og nú skær-
grænn gervilimur fóru að
renna á mig tvær grímur...
Heimur Láru Höllu
Lára Halla Sigurðardóttir
larahalla@mbl.is
Star Wars „Silúett“ af farartækinu Atap sem kemur fyrir í Star Wars-kvikmyndunum sem Oddur er hrifinn af.
og prentað hafi verið á bakhliðina á
gler. Myndin er prentuð eða brennd
inn í álið (e. infused), en ekki á álið.
Þetta gerir það að verkum að end-
ingartími myndanna er mjög langur
og þær þola veðrun, geta verið úti og
það má strjúka af þeim með blautri
tusku. Ég vel líka myndefnið að
hluta til út frá því hvað kemur vel út
í álinu.“
Sendi Kenny póst
Oddur hefur selt eina af mynd-
um sínum til Hollywood, en hana
keypti raunveruleikastjarnan Kenn-
eth Joel Hotz, betur þekktur sem
Kenny í þáttunum Kenny vs
Spenny. „Hann er mjög þekktur í
Bandaríkjunum og hefur unnið til
margra verðlauna fyrir störf sín.
Hann hefur m.a. skrifað handrit fyr-
ir þættina Southp Park sem margir
þekkja hér á landi. Ég sendi honum
skilaboð á Facebook og spurði hvort
hann gæti sent mér ljósmynd af sér í
góðri upplausn af því mig langaði að
nota hana í verk hjá mér. Hann
gerði það og á klippimyndinni sem
ég bjó til er hann sjálfur í miðjunni,
rétt eins og raunveruleikapersónan
sem hann leikur, sem er mjög sjálf-
hverf. Kenny varð svo hrifinn af
myndinni að hann keypti hana, í áli
að sjálfsögðu.“
Skepnur Þær eru margslungnar myndirnar sem sjá má úr verkunum.
www.odee.is
Facebook: Odeeart
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2014
Mörg eru uppátæki mannfólksins. Á
markað eru komnar gallabuxur rifnar
í tætlur af óargadýrum. Hér er ljón í
Japan að tyggja og rífa gallabuxur
sem seldar verða sem „Dýragarðs-
gallabuxur“, stíliseraðar af klóm og
tönnum ljóna, tígra og bjarndýra.
Tuggðar galla-
buxur flottar?
AFP
Skuldabréf FAST-1 slhf.
Birting lýsingar
Útgefandi: FAST-1 slhf., kennitala 450112-0620, Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík.
FAST-1 hefur birt lýsingu sem samanstendur af samantekt, verðbréfalýsingu og útgefanda-
lýsingu allt dagsett 17. júlí 2014. Lýsingin er birt í tengslum við stækkun skuldabréfaflokksins
FAST-1 12 1, útgefnum af FAST-1 og töku viðbótarinnar til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ
OMX Iceland hf.
Lýsingin er gefin út á íslensku. Útprentuð eintök af lýsingunni má nálgast á skrifstofu útgefanda
að Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík í 12 mánuði frá birtingu hennar. Rafræn eintök má nálgast
á vefsíðu félagsins, http://fast1.co.is/fjarhagsupplysingar.
Nafnverð útgáfu
Gefin verða út og seld skuldabréf að nafnverði 9.923.950.000 kr. Áður hafa verið gefin út bréf
að nafnvirði 2.400.360.000 kr. og verður stærð flokksins, eftir stækkun, því 12.324.310.000
íslenskra króna. Heildarstærð flokksins getur mest orðið 17.000.000.000 íslenskra króna.
Taka til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf.
FAST-1 hefur óskað eftir því að NASDAQ OMX Iceland hf. taki viðbótarbréfin til viðskipta
á Aðalmarkaði og mun verða tilkynnt um slíkt með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara.
Skilmálar skuldabréfanna
Skuldabréfin eru verðtryggð með vísitölu neysluverðs og bera fasta 4,2% árlega vexti. Vextir og
afborgun af höfuðstóli greiðast fjórum sinnum á ári, 15. september, 15. desember, 15. mars og
15. júní fram að lokagjalddaga sem er 15. júní 2042.
Auðkenni skuldabréfaflokksins
Auðkenni skuldabréfaflokksins í viðskiptakerfi NASDAQ OMX Iceland hf. er FAST-1 12 1, ISIN
númer bréfanna er IS0000021889. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt hjá Verðbréfaskráningu
Íslands hf. í 10.000 kr. einingum.
Reykjavík, 18. júlí 2014.
Stjórn FAST-1 slhf.
islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook