Morgunblaðið - 18.07.2014, Side 14
HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS
ÓTRÚLEGT
VERÐ!
20-45%
AFSLÁTTUR
VE
RSL
AÐU Á NETINU
WWW.GAP.IS
NETTILBOÐ Á
HVERJUM DEG
I!
ÞÚ FÆRÐ ALVÖRU HJÓL OG FYLGIHLUTI HJÁ OKKUR! GREIÐSLUDREIFING Í ALLT AÐ 36 MÁNUÐI.
96.900,-
67.830,-
29" MONGOOSE TYAX SPORT
79.900,-
47.900,-
26" MONGOOSE SWITCHBACK COMP
29er
49.900,-
39.900,-
24" MONGOOSE ROCKADILE
42.900,-
29.990,-
20" MONGOOSE ROCKADILE
ÁL HJÓL MEÐ DEMPARA OG 7 GÍRUM FYRIR KRAKKA FRÁ 6ÁRA ÁL HJÓL MEð DEMPARA OG 21GÍR FYRIR KRAKKA FRÁ 8 ÁRA LEIKA SÉR UM HELGAR - HJÓLA Í VINNUNA Á VIRKUM DÖGUM
SVIÐSLJÓS
Ingileif Friðriksdóttir
if@mbl.is
„Hlutfall miðaldafræðinga hér á
landi rauk skyndilega upp,“ segir
Sif Ríkharðsdóttir dósent, en hún er
formaður skipulagsnefndar alþjóð-
legrar miðaldaráðstefnu, sem nú
stendur yfir í Reykjavík.
Hátt í 500 erlendir gestir sækja
ráðstefnuna, sem er á vegum New
Chaucer Society, virts fræðafélags á
sviði miðaldafræða, en gestgjafar
eru hugvísindasvið og Hugvísinda-
stofnun Háskóla Íslands. Sif segir
gaman að sjá svo marga miðalda-
fræðinga samankomna á einum
stað.
Um er að ræða alþjóðlega ráð-
stefnu miðaldafræðinga sem haldin
er annað hvert ár, til þessa til skipt-
is í Bretlandi og Bandaríkjunum en
er nú í fyrsta skipti á Íslandi. Er
það liður í stefnu Háskóla Íslands að
efla vísindastarf á sviði miðalda og
að halda áfram uppbyggingu háskól-
ans í alþjóðlegu samstarfi á sviðinu.
Andi miðaldanna svífur yfir
vötnum í Háskóla Íslands
Fjölmenn mið-
aldafræðiráðstefna
haldin þessa dag-
ana á Íslandi í
fyrsta skipti
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fjöldi Ráðstefnan í ár, sem haldin er í Háskóla Íslands, er sú fjölmennasta hingað til, en um 500 gestir sækja hana.
Gestirnir koma hvaðanæva, meðal annars frá Bandaríkjunum, Evrópu, Ástralíu og Japan.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2014
J. Case Tompkins er miðaldafræð-
ingur sem tekur þátt í ráðstefnu
New Chaucer Society í Reykjavík.
Tompkins hyggst í dag kynna rit-
gerð sem hann skrifaði um mið-
aldafræði og fá viðbrögð við
henni. „Einnig er ég hér til að sjá
hvað annað fólk er að kynna og fá
hugmyndir og innblástur frá því,“
segir hann. Tompkins skrifaði
doktorsritgerðina sína um mið-
aldafræði og hefur rannsakað
fagið í þaula. Hann segir þessa
ráðstefnu vera
eina af mörgum
sem hann hefur
farið á til að efla
þekkingu sína á
sviðinu.
Tompkins
segir það gaman
að fá mismun-
andi viðhorf frá
mörgu fólki, en
hann hefur farið á ýmsa áhuga-
verða fyrirlestra. „Það hefur til
dæmis verið talað um það hvernig
hægt sé að vekja áhuga á grein-
inni. Hún hefur stundum orðið
svolítið undir og sumir háskólar
ekki veitt henni nægilegan stuðn-
ing.“
Skemmtilegasti fyrirlesturinn
segir hann að hafi verið um dóna-
brandara Chaucers. „Chaucer er
fullur af dónabröndurum og þeir
hafa verið stúderaðir fram og til
baka,“ segir hann hlæjandi. „Það
hefur verið mjög áhugavert.“
Dónabrandarar í rannsókn
J. Case Tompkins
Matthew Frost
er útgefandi hjá
Manchester Uni-
versity Press og
kom hingað til
lands til að sitja
ráðstefnuna og
hitta rithöfunda.
„Ég er með
marga rithöf-
unda á mínum
snærum frá öll-
um heiminum: Ameríku, Ástralíu
og Evrópu. Það er miklu betra
að hitta þá alla hérna á einum
stað í stað þess að þurfa að
ferðast til allra þessra landa og
hitta þá hvern í sínu lagi,“ segir
hann.
Frost segir marga velta því
fyrir sér hver tilgangur þess sé
að rannsaka verk höfunda eins
og Chaucers og Shakespeares í
þaula, en svarið sé einfalt. „Það
er alltaf hægt að finna nýjar leið-
ir til að nálgast efnið. Það er
ótrúlegt hve mikið nýtt kemur
upp á ráðstefnum sem þessari,“
útskýrir hann. „Það er alltaf ver-
ið að finna eitthvað nýtt til að
segja um handrit sem eru 1000
ára gömul og það er mjög áhuga-
vert að heyra það.“
Frost bætir því við að ekki sé
verra að ráðstefnan sé haldin
hér á landi þar sem margir njóti
þess að skoða landið í leiðinni.
Sjálfur geti hann þó ekki stopp-
að lengi þar sem hann sé að fara
á fleiri ráðstefnur á næstu vik-
um.
Finna alltaf
nýjar
nálganir
Matthew Frost