Morgunblaðið - 18.07.2014, Page 17
Harmleikur
» BBC sagði frá því í gær-
kvöldi að um borð í vélinni
hefðu verið 154 hollenskir far-
þegar, 27 Ástralar, 23 Malasar,
11 Indónesar, 6 Bretar, 4 Þjóð-
verjar, 4 Belgar, 3 Filippseying-
ar og einn Kanadamaður.
» Átökin í austurhluta Úkraínu
hafa ekki komið í veg fyrir flug
yfir svæðið en nokkur flug-
félög, þ.á m. Lufthansa, British
Airways, Air France og Delta
tilkynntu í gær að vélar þeirra
myndu ekki fljúga inn í úkra-
ínska lofthelgi á næstunni.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Allt bendir til þess að Boeing 777-
200 vél Malaysia Airlines, sem hrap-
aði í austurhluta Úkraínu á leið sinni
frá Hollandi til Kuala Lumpur í
Malasíu í gær, hafi verið skotin nið-
ur. Um borð voru 280 farþegar og
15 manna áhöfn en litlar líkur eru
taldar á að nokkur hafi komist af lif-
andi. Hörð átök hafa geisað milli
úkraínska hersins og aðskilnaðar-
sinna í Donetsk-héraði, þar sem
flugvélin fórst, en hvorugur aðili vill
kannast við að bera ábyrgð á harm-
leiknum.
Flug MH17 tók af stað frá Schip-
hol-flugvelli í Amsterdam kl. 10.15
að íslenskum tíma. Um fjórum
klukkustundum síðar rofnaði sam-
band við vélina, þar sem hún var
stödd yfir austurhluta Úkraínu, um
50 km frá landamærunum að Rúss-
landi. Sjónarvottar sögðust hafa
heyrt háværa sprengingu og í kjöl-
farið hefði vélinni rignt niður í pört-
um. Blaðamenn lýstu því hvernig lík
lágu á víð og dreif innan um brenn-
andi brakið; sum ennþá spennt við
flugvélasætin, önnur sundurtætt.
Petro Porosénkó, forseti Úkraínu,
sagði í tilkynningu í gær að hann
hefði sett sig í samband við for-
sætisráðherra Hollands, Mark Rut-
ter, og sagst vilja vekja athygli á því
að úkraínsk stjórnvöld vildu ekki
tala um harmleikinn sem atvik eða
stórslys heldur hryðjuverk. Leiðtog-
ar uppreisnarmanna í Donetsk neit-
uðu hins vegar sök og sögðust ekki
búa yfir vopnum sem gætu skotið
niður vél í þeirri hæð sem MH17 var
í þegar hún hrapaði. Samkvæmt
AFP er þó hugsanlegt að aðskiln-
aðarsinnarnir hafi ruglað vélinni
saman við úkraínska herflutningavél
og skotið hana niður með rússnesku
eldflaugakerfi sem þeir komust yfir
fyrr um daginn. Vísar fréttastofan í
færslur á samskiptasíðum leiðtoga
hins svonefnda Alþýðulýðveldis Do-
netsk máli sínu til stuðnings.
Forseti Alþýðulýðveldisins, Alex-
ander Borodai, sagði í gærkvöldi að
hann væri tilbúinn að samþykkja
nokkurra daga vopnahlé í ljósi
harmleiksins og þá hafði forsætis-
ráðherra Malasíu, Najib Razak, eft-
ir Porosénkó að forsetinn væri tilbú-
inn að semja við uppreisnarmenn
um mannúðaraðgang að svæðinu
þar sem vélin hrapaði.
Hvorugur aðilinn segist
hafa valdið harmleiknum
Heyrðu sprengingu og síðan rigndi vélinni niður í pörtum Hræðileg aðkoma
AFP
Brak og brunarústir Aðskilnaðarsinnar, sem ráða yfir svæðinu þar sem farþegaþotan fórst, og íbúar í nágrenninu
unnu að björgunarstörfum í gær. Litlu var þó að bjarga þar sem talið er að allir innanborðs hafi farist.
Flugvél hrapar
Malasísk þota af gerðinni
Boeing 777-200 hrapaði með
295 manns um borð
Donetsk
DONETSK
LUGANSK
50 km
KÆNU-
GARÐUR
ÚKRAÍNA
RÚSSLAND
RÚMENÍA
HVÍTA-RÚSSL.
PÓ
LL
A
N
D
Shaktarsk
Amsterdam
HOLLAND
MALASÍA
Kuala Lumpur
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2014
570 8600 / 472 1111
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Komdu með
á Ólafsvöku
í Færeyjum
NETVE
RÐ
27.800*
Brottfö
r:
Frá Sey
ðisfirð
i 24. jú
lí
Frá Fæ
reyjum
30. júlí
*1 fullorðinn, fram og til baka
til Færeyja, svefnpokapláss.
Stjórnvöld í Egyptalandi reyndu í
gær að binda enda á blóðsúthelling-
arnar á Gaza-svæðinu. Fregnir
hermdu að Ísraelar og leiðtogar
Hamas-samtakanna hefðu samþykkt
vopnahlé, sem átti að taka gildi í
nótt, en þær voru dregnar til baka.
Avigdor Lieberman, utanríkis-
ráðherra Ísraels, og talsmaður
Hamas sögðu að fréttirnar væru
ekki réttar en viðræðunum yrði
haldið áfram. Fréttaveitan AFP
hafði eftir stjórnmálaskýrendum í
Kaíró að Egyptar hefðu reynt án ár-
angurs að fá Hamas-samtökin til að
fallast á tafarlaust vopnahlé án
nokkurra skilyrða en síðan hafið við-
ræður sem miðuðu að því að Ísraelar
kæmu með einhverjum hætti til
móts við kröfur samtakanna.
Fundu flugskeyti í skóla
Alls hafa 237 Palestínumenn beðið
bana í loftárásum Ísraelshers á
Gaza-svæðið síðustu níu daga. Ísr-
aelar segja að markmiðið með hern-
aðinum sé að stöðva flugskeytaárás-
ir Hamas á Ísrael. Þeir hafa einnig
sakað Hamas-samtökin um að nota
óbreytta borgara sem skildi með því
að fela vopn í íbúðarbyggingum,
skólum og á sjúkrahúsum.
Palestínuflóttamannahjálpin
(UNRWA) kvaðst í fyrradag hafa
fundið 20 flugskeyti í mannlausum
skólum á Gaza og sagði að fordæma
bæri þá sem feldu vopn í skólabygg-
ingum.
AFP
Sorg Palestínumenn syrgja fjögur
börn sem létu lífið í loftárás á Gaza.
Reynt að
koma á
vopnahléi
Vilja koma til móts
við kröfur Hamas
Stjórnvöld í Rússlandi mótmæltu í
gær hertum refsiaðgerðum Banda-
ríkjanna og Evrópusambandsins
gegn landinu vegna meintrar aðstoð-
ar Rússa við aðskilnaðarsinnaða
uppreisnarmenn í Úkraínu.
Barack Obama Bandaríkjaforseti
tilkynnti í fyrradag refsiaðgerðir
sem beinast gegn rússneskum fjár-
málafyrirtækjum, olíufyrirtækjum
og vopnaframleiðendum.
„Við ætlum ekki að sætta okkur
við kúgun með hótunum og áskiljum
okkur rétt til að grípa til refsiað-
gerða,“ sagði í harðorðri tilkynningu
frá rússneska utanríkisráðuneytinu.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
mótmælti einnig aðgerðum Banda-
ríkjastjórnar og sagði þær hafa
„mjög alvarlegar afleiðingar“ fyrir
samskipti ríkjanna. „Ég er fullviss
um að þetta skaðar langtímahags-
muni Bandaríkjanna, bandarísku
þjóðarinnar,“ sagði hann.
Úkraínumenn fagna
Stjórnvöld í Úkraínu fögnuðu
refsiaðgerðunum, meðal annars
ákvörðun Evrópusambandsins um
að stöðva fjármögnun Fjárfestingar-
banka Evrópu og Endurreisnar- og
þróunarbanka Evrópu á verkefnum í
Rússlandi. Rússneska utanríkis-
ráðuneytið sagði að Evrópusam-
bandið hefði beygt sig undir kúgun
Bandaríkjanna í málinu.
Leiðtogar Bandaríkjanna og Evr-
ópusambandsins segja að markmiðið
með aðgerðunum sé að fá Rússa til
að knýja aðskilnaðarsinnana til að
hætta þriggja mánaða uppreisn sem
hefur kostað 600 manns lífið.
Refsiaðgerðirnar urðu til þess að
tvær helstu hlutabréfavísitölur
kauphallarinnar í Moskvu lækkuðu
um 2,7% og 4,0%. bogi@mbl.is
„Sættum okkur
ekki við kúgun“
Rússar mótmæla refsiaðgerðum
AFP
Átök Björgunarmenn í rústum húss
eftir flugskeytaárás í A-Úkraínu.