Morgunblaðið - 18.07.2014, Page 33
viljum við trúa því að þér hafi
verið ætlað stærra hlutverk á
öðrum stað og takir á móti öllum
ættingjum og vinum þegar
þeirra tími kemur með brosið
þitt bjarta.
Við fjölskyldan sendum Lilju,
Leonardo og Loriönu innilegar
samúðarkveðjur.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
svo hlusti englar guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
og festi á hann streng og rauðan
skúf.
Úr furutré, sem fann ég út við sjó,
ég fugla skar og líka úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.
Þeir geta sumir synt á læk og tjörn,
og sumir verða alltaf lítil börn.
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
og sameinar með töfrum loft og jörð.
Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt.
Um varpann leikur draumsins
perluglit.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
og hlustið, englar guðs í Paradís.
(Davíð Stefánsson)
Elsa Eiríksdóttir Hjartar
og fjölskylda.
Elsku fallega og yndislega
frænka mín, í dag hefðir þú orð-
ið átján ára.
Ég á svo margar góðar og fal-
legar minningar um þig, elsku
engilinn minn, og ég er svo
þakklát fyrir síðustu heimsókn
þína til Íslands. Við eyddum
góðum tíma saman og spjölluð-
um um allt og ekkert og skelli-
hlógum að okkur. Það var alltaf
svo mikið líf og fjör í kringum
þig, og þú elskaðir að hitta vini
og fjölskyldu.
Ég er svo þakklát fyrir að við
fjölskyldan eyddum saman síð-
ustu jólum sem þú sagðir að
væru skemmtilegustu jólin og
þú komst svo til Íslands og varst
með fjölskyldunni yfir áramótin,
af því þú saknaðir okkar svo
mikið.
Ég er svo þakklát fyrir að
hafa fengið að kynnast þér, þú
varst svo falleg bæði að innan og
að utan. Ég vildi óska þess að
við sem eftir stöndum hefðum
fengið að hafa þig hjá okkur
lengur en þér var ætlað annað
hlutverk í öðrum heimi. Ég er
ekki sátt við að þér hafi ekki
verið úthlutaður meiri tími með
okkur, en ég fæ víst engu um
það ráðið. Ég sem betur fer fékk
að segja þér að ég elskaði þig í
okkar síðasta símtali. Elska þig
út fyrir endimörk alheimsins,
elskan mín.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Þín frænka,
Sigurey Valdís.
Í dag hefði elsku frænka mín
hún Lívey átt afmæli og það var
afmælisdagur sem hún hlakkaði
mikið til, að verða átján ára.
Ekki hvarflaði það að okkur að
við værum að kveðjast í síðasta
sinn þegar þú varst að fara frá
okkur síðast. Það er svo sárt að
hugsa til þess að fá aldrei að
hitta þig aftur, knúsa þig þegar
þú kemur í heimsókn eða heyra
þig hlæja þegar ég er eitthvað
að fíflast. Minningarnar um Lí-
veyju fá mann til að brosa og
hlæja þrátt fyrir kökkinn í háls-
inum og tárin. Elsku Lívey mín,
við munum geyma þig í hjarta
okkar alla tíð, elsku fallega
frænka mín.
Heimsins þegar hjaðnar rós
og hjartað klökknar.
Jesús gefðu mér eilíft ljós
sem aldrei slökknar.
(Höf. ókunnur)
Elsku Lilja, Leonardo og Lo-
riana, megi Guð styrkja ykkur á
þessum erfiðu tímum, hugur
okkar er hjá ykkur.
Eiríkur Pétur
og fjölskylda.
HINSTA KVEÐJA
Elsku Lívey mín, til
hamingju með 18 ára af-
mælið, elsku engill, vildi að
ég gæti knúsað þig. Það líð-
ur ekki sá dagur sem ég
hugsa ekki til þín, ég sakna
þín svo mikið. Ég er svo
þakklát fyrir allar minning-
arnar sem ég á um þig. Ég
mun aldrei gleyma þér,
elsku fallega frænka.
Hvíldu í friði, elsku engill.
Elska þig. Þín
Ragney Líf.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2014
Raðauglýsingar
Smáauglýsingar 569 1100
Ferðalög
F1 á Monza – Ítalíu
Nokkur sæti laus í 10 daga formúlu-
ferð um Bayern, Austurríki, Slóveníu
og Ítalíu. Úrvals staðsetning í stúk-
unni við brautina í Monza. Flogið til
München 1. sept. Verð kr. 335.000
p.p. í tvíbýli. Fararstjóri: Jón Baldur.
Nánari upplýsingar í 897 3015 eða
jb@isafoldtravel.is.
Sumarhús
Rotþrær – vatnsgeymar
– lindarbrunnar
Rotþrær og siturlagnir.
Heildarlausnir – réttar lausnir.
Heitir pottar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
TILBOÐ – TILBOÐ – TILBOÐ
Teg: 99562 Þægilegir og vandaðir
dömuskór úr leðri. Mjúkur sóli.
TILBOÐSVERÐ: 3.500.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
SITT AF HVORU TAGI
Teg. 4457 - sívinsæll og frábær,
fæst í 70-95CD skálum á kr. 5.800,-
Teg. 130409 - má nota hlýralaust,
fæst í 70-85 B og 75-85C skálum á
kr. 5.800,-.
Teg. 302231 - létt fylltur og fæst í
70-85B og 75-85C á kr. 5.800,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.–föst. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
Teg. 232-12: Léttir og sumarlegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 36–40. Verð: 17.800.
Teg. 144-01: Sérlega mjúkir, léttir og
þægilegir dömuskór úr leðri, skinn-
fóðraðir. Stærðir: 36–40.
Verð: 14.800.
Teg. 571: Þessir sígildu skór komnir
aftur. Mjúkt leður, skinnfóður og góð
breidd. Stærðir: 36–42.
Verð: 15.785.
Teg. 7275: Mjúkir og þægilegir
dömu-skór úr leðri, skinnfóðraðir.
Litir: svart og hvítt. Stærðir: 36–42.
Verð: 14.685.
Teg. 171: Mjúkar og þægilegar
dömumokkasíur úr leðri, skinnfóðr-
aðar. Litir: hvítt og svart. Stærðir: 37
– 42. Verð: 14.685.
Teg. 83: Mjúkar og þægilegar dömu-
mokkasíur úr leðri, skinnfóðraðir.
Litir: rautt og svart. Stærðir: 36–42.
Verð: 14.685.
Teg. 7273: Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir. 36–42. Verð: 14.875.
Teg. 806204: Sérlega þægilegir og
góðir dömuskór úr leðri, skinn-
fóðraðir. Stærðir: 36–42.
Verð: 15.684.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.– föst. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
Combi Camp
81 en fyrst skráður 97 sk 2015 Verð
250 þ 5679642. 7774296.
professor@simnet.is
Kaupum alla bíla
Hærra uppítökuverð
Við staðgreiðum bílinn þinn og þú
getur þar með fengið staðgreiðslu-
afslátt af nýja bílnum. Sendu okkur
upplýsingar í gegnum www.seldur.is
og við sendum þér staðgreiðslutilboð
þér að kostnaðarlausu.
Bílaþjónusta
NICOLAI
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
Húsviðhald
Þjónustuauglýsingar 569 1100
www.adal.isSími 590 6900
þetta snýst um
svomiklumeira
en bílinn
Nissan Primera
99´ Ný skoðaður 2015 númer innlögð
biluð pakkdós í gírkassanum annar
bíll fylgir í varahluti. Verð 150 þús.
5679642, 6867177, 7774296
professor@simnet.is
Nissan Vanetta
með hálfa skoðun nýtt púst, þarf að
skipta um handremsubarka renna
diska. Verð 200 þús.
5679642, 8687177, 7774296
professor@simnent.is
Ýmislegt
Stóri
fornbókamarkaðurinn
Bókaveisla við Austurvöll
Allar bækur 400 kr. stk.
Tímarit 200 kr. st.
Þúsundir bóka og rita. Mikið úrval
Í gamla sjálfstæðishúsinu við Austurvöll
Gengið inn frá Austurvelli og Vallarstræti.
Opið föstudaga og laugardaga kl. 12-17
Verið hjartanlega velkomin.
Félagsstarf eldri borgara
!
"#
$
%
& '
& ( )
'
*#
!
*
+
,*# -.
# /&
# 0 &1 #*# $(
'& ( 2(1 .
!"
#$#% 3!
1
(1 4 2(1 .
#*# &
5, ' &
&1
*# &
1
5*# - ( & 216.
1 &1 '
&' 7
4*# 7 &
5, 7
#, &
&1 *#"*#
(
)
8
) **# 9
&1 ) '
)
) 55,# 3!
1
(1 &
' mikil tilbreyting fyrir 16 ára ung-
ling með svolitla heimþrá. Ég
minnst þess hve foreldrar Ásgeirs
Péturs tóku einstaklega vel á móti
mér og hve ég var velkominn. Ég
hef oft minnst á það áður hvað það
var mikils virði fyrir okkur utan-
bæjarunglingana í heimsvistinni
að vera boðin á heimili félaga okk-
ar á Akureyri. Við Ásgeir Pétur
áttum svo samleið öll árin í nýju
heimavistinni. Við sex góðir fé-
lagar bjuggum í þremur samliggj-
andi herbergjum á fjórða-,
fimmta- og sjöttabekkjargangi.
Oft var gengið á milli herbergja og
hin ólíklegustu mál rædd. Ásgeir
Pétur var ekki hraðmæltur en
ákaflega rökfastur og hafði skoðun
á flestum málum. Ef ég man rétt
var málfundafélagið Óðinn starf-
andi fyrir þriðju bekkinga (fyrsta
árs nemendur). Ásgeir Pétur var
formaður þann vetur og hóf þar í
raun rökleg málflutningsstörf.
Lögfræðin lá vel fyrir honum sem
ævistarf. Ásgeir Pétur starfaði alla
tíð á Akureyri, lengst af við Hér-
aðsdóm Norðurlands. Hann starf-
aði einnig að félagsmálum, m.a.
fyrir Sjálfsbjörg á Akureyri.
Ásgeir Pétur var góður félagi
en að vissu marki lokaður per-
sónuleiki sem ekki var auðvelt að
komast að. Hann varð fyrir því að
fá mænuveiki 11 ára gamall og
lamast að hluta á hendi og fæti.
Hann gekk því með fótspelku og
við göngustaf alla tíð. Án efa hefur
þessi hreyfihömlun haft varanleg
áhrif á skapgerð hans. Mér var
sagt að fyrir veikindin hefði hann
verið kraftmikill og líflegur ung-
lingur og efnilegur skíðamaður í
heimabæ sínum með mikinn
metnað til þess að ná árangri í
þeirri íþrótt.
Þegar horft er til baka yfir lífs-
gönguna höfum við mætt miklum
fjölda samferðamanna. Sameigin-
leg ganga er þó mislöng. Flestir
hverfa í móðu liðins tíma, með
öðrum eigum við samleið í leik,
starfi og minningum. Einn af
þeim sem ekki hverfa úr minning-
unni er Ásgeir Pétur. Hann var
hjartahlýr, traustur og góður fé-
lagi. Við samstúdentar hans frá
MA 1964 minnumst hans með
mikilli virðingu. Guð blessi minn-
ingu góðs drengs.
Þráinn Þorvaldsson.