Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Tvö ný hótel á landsbyggðinni bæt- ast við keðju Fosshótela í sumar. Annars vegar er um að ræða nýtt hótel í Franska spítalanum á Fá- skrúðsfirði, Fosshótel Austfjörðum, sem verður formlega opnað á laugardaginn kemur á frönskum dögum. Hótelið tók til starfa hinn 1. júní sl. en þar eru 26 herbergi í fyrsta áfanga. Stækkun er áformuð. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, verður heiðursgestur við opnunina. Húsið er á vinstri mynd- inni hér fyrir ofan. Eins og sjá má setur það mikinn svip á bæinn. Við hlið sjúkraskýlisins Húsið var reist á Fáskrúðsfirði 1903 og stendur við hlið sjúkraskýlis sem var fyrsta húsið sem Frakkar reistu á Fáskrúðsfirði 1896. Skýlið hefur líka verið endurbyggt. Minjavernd tók ákvörðun um að endurbyggja Franska spítalann árið 2008. Var húsinu fundinn staður við Hafnargötu, neðan við Læknishúsið sem Frakkar reistu 1907. Þessi tvö hús hafa síðan verið tengd með göngum undir Hafnargötuna. Hús Franska spítalans stóð ónotað í tæpa hálfa öld og var því orðið mjög illa farið þegar það var endurbyggt. Hins vegar er um ræða endurbætt Fosshótel Vatnajökli, skammt frá Höfn, en þar var 40 herbergjum bætt við og eru þar nú 66 herbergi. Fosshótel eru dótturfélag Íslands- hótela. Að sögn Ólafs Torfasonar, eiganda Íslandshótela, koma nýju hótelin tvö í stað tveggja hótela Fosshótela sem hættu rekstri í fyrra, á Hellu og í Freysnesi í Skaftafelli. Heildarfjöldi Fosshótela er því óbreyttur milli ára. Reksturinn á Hellu var erfiður og ákváðu Fosshótel að endurnýja ekki leigusamning. Eigendur húsnæð- isins í Freysnesi ákváðu að hefja hótelrekstur á eigin spýtur. „Fáskrúðsfjörður var ekki í okkar hring. Okkar vantaði hótel á Norð- austurlandi. Endurbygging Minja- verndar fól í sér spennandi valkost. Það verður ráðist í að bæta þar við 21 herbergi fljótlega. Það fékkst byggingarlóð við hliðina á Franska spítalanum og þar verður byggt í sama stíl. Það er spennandi að sjá hver eftirspurnin verður. Verða Frakkar fyrst og fremst meðal gesta?“ spyr Ólafur en Íslandshótel reka nú 13 hótel. Tvö ný Fosshótel bætast í keðjuna  Fosshótel opnar ný hótel á Höfn og á Fáskrúðsfirði  Íslandshótel reka nú alls 13 hótel á landinu Ljósmynd/Fosshótel/Birt með leyfi Tvö ný hótel Fosshótel Austfjörðum er hér á vinstri myndinni. Nýtt og endurbætt Fosshótel Vatnajökli er á myndinni til hægri. Íslandshótel keyptu húsnæðið á Höfn fyrir ári. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hvalbátanir komu með fjórar lang- reyðar til vinnslu í Hvalstöðinni í Hvalfirði í gærkvöldi. Aftur virðist vera að lifna yfir hvalveiðunum eftir þoku og brælu að undanförnu. „Það hafa verið miklar þokur sem hafa tafið okkur frá veiðum, lítið skyggni og hvalirnir hverfa í þokuna,“ sagði Gunnlaugur F. Gunnlaugsson, stöðvarstjóri í Hvalstöðinni, í gær. Þá voru Hvalur 8 og Hvalur 9 með tvo hvali hvor á síðunni á leið inn í Hval- fjörð. Gunnlaugur segir að stutt sé á miðin, aðeins um 12 tíma stím í land. Hann segir einstakt að þegar Hvalur 8 komi að bryggju verði aðeins 25 klukkustundir liðnar frá því báturinn hélt til veiða. Um 90 starfsmenn vinna í Hval- stöðinni í sumar enda unnið á 8 tíma vöktum allan sólarhringinn. Nóg var að gera í nótt og svo verður einnig í dag. „Það eru allir mjög glaðir þegar vel veiðist, í þessu eins og öðrum veiðiskap,“ segir Gunnlaugur. Starfsmennirnir hafa verið í ein- hverju dundi þegar ekki hafa verið verkefni við vinnsluna. Menn hafa líka fengið að fara heim enda segir Gunnlaugur að ekki hafi verið tíðarfar til að mála mikið. Með þessum fjórum hvölum er 51 langreyður komin á land í Hvalfirði. Heimilt er að veiða 154 dýr. Skipin veiddu 134 hvali á síðasta ári. Fjórir hvalir veiddust í gær  Lifnar yfir hvalveiðimönnum Morgunblaðið/Árni Sæberg Á land Nóg er að gera í hvalnum. „Við eigum ekki að þurfa að bíða eft- ir dómi sögunnar. Það þarf óháða, alþjóðlega rannsókn á hugsanlegum stríðsglæpum á Gaza, núna. Og það á að vera okkar krafa. En fyrsta krafan er sú að blóðbaðinu linni, Ísr- aelsher leggi niður vopn, Hamas leggi niður vopn,“ sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri á útifundi félagsins Ísland-Palestína á Ingólfs- torgi í gær. Dagur lauk ræðu sinni á kröfu um frelsi Palestínu. „Við krefjumst alþjóðlegrar verndar fyrir Palestínumenn. Við krefjumst þess að herkvíin um Gaza verði rofin. Við krefjumst frjálsrar Palestínu,“ sagði Dagur í ræðu sinni. Að fundi loknum gengu fundar- menn að Stjórnarráðinu með álykt- un fundarins þar sem Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður forsætis- ráðherra, tók við ályktuninni fyrir hönd Sigmundar Davíðs Gunnlaugs- sonar forsætisráðherra. Í ályktuninni eru fjöldamorð Ísr- aelsstjórnar á íbúum Gaza fordæmd og íslensk stjórnvöld hvött til að beita öllum tiltækum ráðum til að endi verði bundinn á blóðbaðið taf- arlaust og umsátrinu um Gaza aflétt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Útifundur Stjórnvöld voru hvött til að beita öllum ráðum til að endi verði bundinn á blóðbaðið á Gaza. Mótmæltu stríðsátökum  Borgarstjóri krafðist frjálsrar Palestínu í ræðu sinni á útifundi í gær Tillaga um ráðningu nýs bæjar- stjóra í Hafnarfirði verður lögð fram á fundi bæjarráðs árdegis í dag. Ekki fékkst uppgefið í gær- kvöldi hver hefur orðið fyrir valinu. Þrjátíu sóttu um stöðu bæjar- stjóra eftir að hún var auglýst. Val- nefnd skipuð oddvitum Sjálfstæð- isflokksins, Bjartrar framtíðar og Samfylkingarinnar hefur metið umsækjendur með aðstoð Hag- vangs. Rósa Guðbjartsdóttir, odd- viti Sjálfstæðisflokksins og formað- ur bæjarráðs, staðfesti í gærkvöldi að niðurstaða væri komin og tillaga um ráðningu bæjarstjóra yrði lögð fram á fundi bæjarráðs í dag. Sjálfstæðisflokkurinn og Björt framtíð mynduðu meirihluta eftir kosningarnar í vor en þá féll meiri- hluti Samfylkingarinnar og VG. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir var síðasti bæjarstjóri á liðnu kjör- tímabili. helgi@mbl.is Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar kynntur í dag Sigmundur Davíð Gunn- laugsson forsætisráðherra sendi forsætisráðherra Ísraels bréf í gær vegna stöðu mála á Gaza. Í bréfinu kallar Sigmund- ur eftir því að Ísrael axli sína ábyrgð á stöðu mála og láti þeg- ar af hernaðaraðgerðum sínum á Gaza sem séu „gríðarlega um- fangsmiklar og veki alvarlegar spurningar í ljósi alþjóðlegra skuldbindinga og mannúðar- sjónarmiða.“ „Axli ábyrgð“ SIGMUNDUR SENDI BRÉF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.