Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014 Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Nýja platan er töluvert ólík fyrri plötunni. Á meðan fyrri platan varð til og fæddist þá var Low Roar ennþá einstaklingsverkefni hjá Ryan og útsetningar laganna voru ef til vill ekkert stórbrotnar. Lögin urðu til náttúrulega og svo voru þau tekin upp og blönduð á tölvu í eld- húsinu hjá honum. Á þeirri nýju urðu lögin til jafn sársaukalaust en svo var varið talsvert meiri tíma í út- setningar og alla framleiðslu. Það má segja að um margslungnari plötu sé að ræða,“ segir Leifur Björnsson, einn meðlima sveitarinnar Low Roar sem gaf út plötuna 0 fyrir skemmstu. Sveitin, sem áður var einstaklingsverkefni Ryans Kara- zija, gaf út sína fyrstu plötu árið 2011 en síðan þá hafa þeir Leifur og Logi Guðmundsson bæst í hópinn. Upptökustjórinn margreyndur Leifur segir þá félaga fara ýmsar leiðir á nýju plötunni og hafi þeir meðal annars fiktað við allskonar elektróník og strengjaútsetningar. Aðspurður út í nafnið á plötunni, 0, segir hann það til komið sökum ytri þrýstings. „Þetta er táknið fyrir núll eða bókstafurinn O, fólk má bara gera það upp fyrir sig hvað þetta er. Fyrri platan er ónefnd og við ætl- uðum ekki að láta þessa plötu heita neitt. Við vorum hinsvegar beittir þrýstingi að láta hana heita eitthvað. Þetta varð afraksturinn. Þessar tón- listarveitur og þetta nútímalega dót býður ekki upp á nafnlausar plötur,“ segir hann. Upptökustjóri plötunnar er enginn aukvisi en Andrew Scheps hefur meðal annars unnið með hljómsveitum á borð við Black Sab- bath, Red Hot Chili Peppers og Me- tallica. „Við vorum í raun ótrúlega heppn- ir að fá hann í þetta. Samstarfið kom til sökum þess að Ryan var í annarri sveit í Kaliforníu áður en hann flutti til Íslands og sú sveit var hjá stóru útgáfufyrirtæki með Andrew innan- borðs. Það tókst með þeim mikill vinskapur og það er í rauninni ástæðan fyrir því að hann bauðst til að vinna með okkur þessa plötu. Við hefðum annars aldrei haft efni á að vinna með honum. Hann er nátt- úrlega fagmaður fram í alla fing- urgóma og vinnur hratt og vel,“ seg- ir Leifur og bætir við að hann hafi húmorinn á réttum stað. „Við munum vinna áfram saman þar sem útgáfufyrirtækið sem sér um alþjóðlegu útgáfu plötunnar, Tonequake, er í eigu Andrews,“ bæt- ir Leifur við en þess má geta að 12 Tónar sjá um útgáfu plötunnar hér á landi. Margir koma að plötunni Margir tónlistarmenn, sem ekki teljast meðlimir Low Roar, komu að gerð plötunnar og má þar nefna sveitina Amiina, Mr. Sillu, Kira Kira og Mike Lindsay, sem er þekktur fyrir Tunng og Cheek Mountain Thief. Leifur ber þeim vel söguna. „Samstarfið gekk ótrúlega vel. Að mínu mati er einn stærsti kosturinn við að vinna tónlist á Íslandi sá að tónlistarbransinn er eins og ein, ekkert rosalega stór, fjölskylda. Það eru allir einhvernveginn eitt símtal í burtu og allir til í að hjálpa. Allt þetta fólk er mjög góðir vinir okkar. Silla kemur til að mynda oft fram með okkur á tónleikum og því er eins farið með Mike,“ segir hann. „Ferlið á þessari plötu var svolítið lengra en á fyrri plötunni og vissu- lega kom það upp að menn þyrftu að hverfa frá um stund til að sinna öðr- um verkefnum. Allt samstarf við aðra listamenn gekk þó mjög vel fyr- ir sig,“ endurtekur hann. Útgáfutónleikar í haust „Það sem af er þessu ári höfum við verið að fylgja eftir fyrri plötunni. Við erum búnir að fara tvær tón- leikaferðir til Evrópu á þessu ári og höfum verið nokkuð iðnir við að spila hérna heima. Við höfum meðal ann- ars spilað á ATP, Sónar og þessum stærri hátíðum. Við förum síðan eina Evrópuferð í haust og svo er í bígerð fyrsta Ameríkutónleikaferð sveit- arinnar,“ segir Leifur. „Við stefnum síðan á, í samstarfi við 12 Tóna, að halda útgáfutónleika snemma í haust. Það verður það helsta sem við gerum á Íslandi áður en við höldum út í tónleika- ferðalagið,“ segir Leifur að lokum. Sveit Low Roar skipa Leifur Björnsson, Ryan Karazija og Logi Guðmundsson. „Eins og ein, ekkert rosalega stór, fjölskylda“  Sveitin Low Roar gefur út sína aðra breiðskífu  Upptökustjór- inn reyndur “Eipshit geðveik ef ekki besta myndin í sumar” -T.V. BIOFIKILL.COM ÍSL. TAL "Besta stórmyndin í sumar. Þú verður gersamlega agndofa“. - P. H., Movieline Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar ÍSL. TAL TÖFRANDI MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA "Þú sérð ekki fyndnari mynd í sumar!" -T.V., Biovefurinn.is "Ég hló svo mikið að ég skammaðist mín”!" -Guardian POWERSÝNINGKL. 10:10 -New York Daily News ★ ★ ★ ★ ★ L L 12 12 14 14SEX TAPE Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:10 HERCULES Sýnd kl. 8 - 10:10 (P) PLANET OF THE APES 3D Sýnd kl. 8 - 10:40 22 JUMP STREET Sýnd kl. 5 AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 5 TÖFRALANDIÐ OZ 2D Sýnd kl. 4 Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Verið velkomin í heimsókn! Opið virka daga kl.10-18 30% Í ÖLLUM STÆRÐUM SÓFAR Verð áður 333.900 kr. frá233.730kr. Dallas AFSLÁTTUR af öllum sófum / sófasettum *Í VÖLDUM ÁKLÆÐUM Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST Basel Verð áður 284.900 kr. frá199.430kr.Verð áður 181.00 kr. frá127.330kr. Tungusófar 2+tunga Hornsófar 2H2 Sófasett 3+1+1 frá 180.530kr. verð áður 257.900 frá 233.730kr. verð áður 333.900 frá 260.330kr. verð áður 371.900 Verðdæmi: Torino 3ja sæta Sófasett 3+1+1 frá 144.130kr. verð áður 205.900 frá 300.230kr. verð áður 528.066 Verðdæmi: Texas Eins og áður hefur komið fram stendur Sena fyrir Reykjavík Co- medy Festival dagana 23. til 26. október í samvinnu við alþjóðlegar grínhátíðir í Noregi, Svíþjóð, Belg- íu, Íslandi og víðar. Nú hefur enn einn grínarinn staðfest komu sína á hátíðina sem haldin verður í Hörpu, en um er að ræða uppistandarann Whitney Cummings. Cummings á glæsilegan feril að baki þrátt fyrir ungan aldur, en hún er aðeins 32 ára gömul. Hún var fyrirsæta áður en hún gerðist uppistandandari en stóra tækifærið kom þegar hún gekk til liðs við Ashton Kutcher í þáttunum Punk’d á MTV-sjón- varpsstöðinni. Síðan þá hefur hún komið fram í þáttum á borð við The Tonight Show with Conan O’Brien, Down and Dirty á HBO og Chelsea Lately á E! Whitney Cummings í Hörpu í haust Reynd Whitney Cummings hefur unnið með Ashton Kutcher og Conan O’Brien.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.