Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014 Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is ELDHÚSTÆKI falleg minning á fingur www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind PI PA R\ TB W A • SÍ A • 12 16 6 6 Giftingarhringar Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Harðir bardagar héldu áfram á Gaza- ströndinni í gær en ekkert bólar enn á vopnahléi á milli Hamas-samtakanna og ísraelskra stjórnvalda. Meirihluti mannréttindaráðs Sameinuðu þjóð- anna samþykkti í gær að rannsaka árásir Ísraelsmanna á Gaza. Fulltrúi Bandaríkjanna greiddi atkvæði á móti slíkri rannsókn en Evrópuþjóðir sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom til Ísraels í gær til að reyna að koma á vopnahléi. Hann sagði eitthvað hafa miðað í sam- komulagsátt þó enn væri mikið verk óunnið. Navi Pillay, mannréttindastjóri SÞ, fordæmdi vopnabrölt bæði Ha- mas-liða og Ísraela á Gaza undafarn- ar vikur. Hún sagði á neyðarfundi mannréttindaráðs SÞ að Ísraelar hefðu ekki gert nóg til að vernda óbreytta borgara. „Það lítur út fyrir að sterkar líkur séu til þess að al- þjóðalög hafi verið brotin á þann hátt sem gæti flokkast undir stríðsglæpi,“ sagði Pillay. Dómsmálaráðherra Ísraels, Tzipi Livni, gaf hins vegar lítið fyrir gagn- rýnina og sagði mannréttindaráð SÞ vera „and-ísraelska“ stofnun. Réðust á skóla Tugir þúsunda Palestínumanna hafa flúið heimili sín frá því að árás- irnar hófust. Ísraelsk stjórnvöld halda því fram að þau leggi sig fram um að vernda líf óbreyttra borgara. Þannig vari herinn íbúa við loftárás- um til að þeir geti komið sér undan. Gaza-búar segjast hins vegar ekki hafa í nein hús að venda. Ísraelar hafa gefið út rýmingarviðvaranir eða lokað 43% af Gaza-svæðinu samkvæmt mannúðarstofnun SÞ. Landamærin að Ísrael og Egyptalandi eru lokuð. Aðeins þeir sem eru særðir, veikir eða hafa erlend vegabréf fá að yfirgefa svæðið. „Gaza er einstakt í sögu stríðs- rekstrar sem átakasvæði með girð- ingum þannig að óbreyttir borgarar geta ekkert flúið,“ segir Chris Gunn- ess, talsmaður flóttamannahjálpar SÞ í Palestínu. Um 118.000 manns hafast nú við í 77 skólum sem stofnunin rekur. Skól- arnir eru yfirfullir og ekki hannaðir til að hýsa fólk. Þá hafa þeir ekki sloppið við árásir Ísraelshers. Fyrr í vikunni féll sprengja á einn þeirra svo að 300 manns þurftu að yfirgefa hann. „Við sögðum þeim þrisvar sinnum hvað væri þarna. Þeir hafa nákvæm GPS- hnit og það var SÞ-flagg á húsinu,“ segir Gunness. Íbúarnir á Gaza geta ekkert flúið  Mannréttindaráð SÞ samþykkti rannsókn á árásum Ísraela AFP Eyðing Palestínskar stúlkur á ferli innan um rústir húsa eftir loftárás Ísr- aelsmanna á Gaza. Í gær voru 16 dagar liðnir frá því að árásirnar hófust. Fjöldi látinna eykst » Erlendur verkamaður lést af völdum eldflaugar sem skotið var frá landsvæðum Palest- ínumanna í suðurhluta Ísraels í gær. » Þar með hafa 35 menn, þrír óbreyttir borgarar og 32 her- menn, látið lífið í Ísrael frá því að hernaðurinn hófst fyrir rúmum tveimur vikum. » Eftir áframhaldandi árásir Ísraelshers í gær er fjöldi fall- inna Palestínumanna kominn í að minnsta kosti 685. Dráttarbátar byrjuðu að flytja skemmtiferðaskipið Costa Concordia frá ströndum Giglio-eyjar, þar sem það hefur legið í tvö og hálft ár, til Genoa þar sem skipið verður rifið í brotajárn. Þúsundir heimamanna, ferðamanna og fréttamanna fylgdust með því þegar skipinu var snúið við svo hægt væri að draga það af stað. Búist er við því að skipið komist á lokaáfangastað sinn á sunnudag. AFP Hinsta för skemmtiferða- skipsins Costa Concordia Þúsundir fylgdust með brottförinni frá Giglio

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.