Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014 ÞYKKSKORIÐ BEIKON Þykkt og bragðmikið fyrir þá sem vilja kröftugt beikon. Gæðavara úr völdu svínafille, matarmiklar og ljúffengar sneiðar. HEFUR ÞÚ STERKAR BEIKONTILFINNINGAR? Prófaðu þykkskorna beikonið frá SS. Þykkt og bragðmikið Gott á grillið eða pönnuna Sérvalið svínafille 100% íslenskt kjöt PI PA R\ TB W A – SÍ A Uppgangur Kína er vinsælt um-fjöllunarefni og efnahagsspár um að brátt muni þeir bruna fram úr Bandaríkjamönn- um og verða mesta efnahagsveldi heims eru iðulega dregnar fram. En Kínverjar eru ekki bara vel á veg komnir með að fara fram úr Banda- ríkjamönnum í landsframleiðslu, þeir virðast einn- ig ætla að verða skuldseigari.    Stephen Green hefur greint kín-verskt efnahagslíf fyrir bank- ann Standard Chartered. Í nýrri skýrslu hans segir að í júní hafi samanlagðar skuldir Kínverja náð 251% af landsframleiðslu, þ.e fé- lagsleg lán, lán milli banka yfir af- lönd og landamæri, skuldabréfaút- gáfa, ýmisleg skuggabanka- starfsemi og ríkisskuldir. Þetta hlutfall hefur hækkað um 20 pró- sentustig síðan í lok árs 2013 og 100 prósentustig miðað við landsfram- leiðslu á undanförnum fimm árum. Í Bandaríkjunum er hlutfall heildar- skulda af landsframleiðslu 260%. Kínverjar gætu því náð þeim á næsta ári.    Ambrose Evans-Pritchard, blaða-maður Daily Telegraph, skrif- ar að matsfyrirtæki og eftirlits- stofnanir, þar á meðal kínverski seðlabankinn, hafi áhyggjur af því hvað skuldir Kínverja vaxi hratt, ekkert síður en umfangi þeirra. Hann segir að þetta þýði ekki að hrun sé í vændum í Kína, en líklega muni hægja verulega á hagvexti.    Síðan segir hann: „Nánast allurheimurinn hefur verið dreginn inn í svikamyllu ósjálfbærra skulda. Hægt er að láta þær hverfa að hluta með verðbólgu, eða fara leið verð- hjöðnunar með gjaldþrotum og ferðum lánardrottna til rakarans (eins og sagt er þegar gefnar eru eftir skuldir). Veljið eitrið.“ Stephen Green. Skuldum vafðir Kínverjar STAKSTEINAR Veður víða um heim 23.7., kl. 18.00 Reykjavík 14 skýjað Bolungarvík 15 skýjað Akureyri 20 skýjað Nuuk 11 upplýsingar bárust ekki Þórshöfn 12 þoka Ósló 30 heiðskírt Kaupmannahöfn 27 heiðskírt Stokkhólmur 28 heiðskírt Helsinki 27 heiðskírt Lúxemborg 27 léttskýjað Brussel 27 heiðskírt Dublin 22 léttskýjað Glasgow 25 heiðskírt London 27 heiðskírt París 26 skúrir Amsterdam 27 heiðskírt Hamborg 27 heiðskírt Berlín 27 heiðskírt Vín 21 þrumuveður Moskva 26 heiðskírt Algarve 26 heiðskírt Madríd 36 heiðskírt Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 28 heiðskírt Róm 27 léttskýjað Aþena 30 léttskýjað Winnipeg 18 léttskýjað Montreal 22 þrumuveður New York 29 heiðskírt Chicago 21 léttskýjað Orlando 30 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:10 22:59 ÍSAFJÖRÐUR 3:47 23:33 SIGLUFJÖRÐUR 3:28 23:17 DJÚPIVOGUR 3:33 22:36 Sigurður VE 15, nýtt skip Ísfélags Vestmannaeyja, er væntanlegur til heimahafnar í Vestmannaeyjum um hádegisbilið á morgun, föstudag. Skipið verður til sýnis bæjarbúum og gestum sama dag frá klukkan 14 til 17. Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélags Vestmannaeyja, sagði að heimsigling Sigurðar VE frá Tyrk- landi, þar sem skipið var smíðað, hefði gengið eins og í sögu. „Þetta er allt á áætlun. Það hefur verið blíðu- veður alla leið, eins gengur í Mið- jarðarhafinu á þessum árstíma, og svo hefur hann fengið gott veður í Atlantshafinu,“ sagði Eyþór. Eftir heimkomuna verður byrjað á að útbúa Sigurð VE á makrílveiðar sem hann byrjar að nokkrum dögum liðnum. Eyþór sagði að kaupin á nýja skipinu væru liður í endurnýjun skipaflota félagsins. Gamli Sigurður VE er farinn og eins er búið að selja Guðmund VE og Þorstein ÞH. „Þetta er stórt og mikið skip og númerinu stærra og meira í öllum búnaði en eldri skipin,“ sagði Eyþór. Nýi Sigurður VE er með tólf kæli- tanka fyrir aflann, samtals 2.970 rúmmetra, og mjög öflugt kælikerfi sem tryggir góða meðferð aflans og ferskleika. „Þetta er til að styðja við landvinnsluna og er partur af þeirri þróun að uppsjávaraflinn fer meira í landvinnslu en áður,“ sagði Eyþór. gudni@mbl.is Sigurður VE er væntanlegur á morgun  Nýtt skip Ísfélagsins verður til sýnis í Vestmannaeyjum kl. 14.00-17.00 Ljósmynd/Eyþór Harðarson Sigurður VE Kemur á morgun. Vonir standa til að ekkert heimili á landinu verði utan þjónustusvæðis Ríkisútvarpsins þegar notendur hafa gert ráðstafanir til að taka á móti stafrænum útsendingum en hliðrænum útsendingum verður al- farið hætt um áramótin. Gunnar Örn Guðmundsson, for- stöðumaður tæknikerfa RÚV, segir að samkvæmt áætlun eigi allir að vera jafn vel eða betur settir eftir breytingarnar, en þó sé ljóst að ákveðin svæði, s.s. hálendið, hluti Hornstranda og sérlega djúpir dal- ir verði áfram skuggasvæði. Gunn- ar segir að alls hafi 0,3% lands- manna verið þjónustulaus en vel hafi gengið að fækka á þeim lista. Skipin ná sendingum Hvað varðar útsendingar á mið- unum umhverfis Ísland segir Gunn- ar stærri skipin ná sendingum RÚV gegnum gervihnött en litlu bátarnir, sem fara styttra frá landi, geta í einhverjum tilfellum náð sendingum með sama móti og heimilin, þ.e. með stafrænum mót- tökubúnaði. holmfridur@mbl.is Þjónustu- lausum fækkar ört  Skipin ná gervi- hnattasendingum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.