Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014
Ármúli 32 | 108 Reykjavík | Sími 568 1888 | www.parketoggolf.is
Brooklyn Pine
Stærð: 8x243x2200mm
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú er lag að blanda geði við vini eða
í öðrum félagsskap. Stjörnurnar ýta undir
framkvæmdir í viðhaldsmálum.
20. apríl - 20. maí
Naut Forðastu að gagnrýna samstarfsfólk
þitt í dag og sættu þig ekki við ósanngjarna
gagnrýni frá því heldur. Tæmdu vasana áður
en þú stingur í þvottavélina.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt þér finnist gaman að taka
áhættu af og til þá er nú sú stund sem slíkt
á ekki við. Hikaðu ekki við að ganga til
samningaviðræðna við yfirvöld og stórar
stofnanir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ágreiningur um lán á einhverju kann
að verða til þess að þú vilt forðast ákveðinn
vin eða efast um fyrirætlanir viðkomandi.
Reyndu að sjá hlutina með augum annarra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Að taka áhættu í einhverju sem við-
kemur tjáskiptum er snjallara en kann að
virðast í fyrstu. Fáðu vin eða ættingja til að
taka þátt með þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er heldur löðurmannlegt að velta
öðrum upp úr veikleikum sínum. Ef þú nærir
þennan hluta af sjálfum þér bætir það sam-
bönd þín við aðra og ljær verkum þínum
dýpt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Góður smekkur þinn er dáður af þeim
sem deila honum með þér. Af hverju er ann-
ar aðilinn haldinn stjórnlausum ótta um það
að þú sleppir? Kannski er góð ástæða fyrir
þeim ótta.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ættir að leita uppi ókunnar
slóðir og njóta þeirrar reynslu sem af því
hlýst. Reynið að gera eitthvað nýtt í dag
sem opnar ykkur nýja sýn á umhverfið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft að hafa alla hluti á
hreinu áður en þú tekur ákvörðun í veiga-
miklum málum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu það ekki slá þig út af lag-
inu, þótt vinur þinn virki mjög annars hugar.
Reyndu að læra eitthvað nýtt þrátt fyrir að
það virðist léttvægt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Taktu frá tíma fyrir vini þína sem
þú hefur ekki haft aðstæður til að sinna um
hríð. Vertu frökk/frakkur og njóttu þín.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Taktu það ekki óstinnt upp, þótt vinir
og vandamenn vilji sýna þér ást sína og um-
hyggju í verki. Gættu þess að leggja traust
þitt á verðug verkefni og jákvæðar hugsanir.
Það eru alltaf einhverjar fréttirog eitthvað að gerast á Leirn-
um. Í hann skrifar Ármann Þor-
grímsson feitletrað „kjaftstopp“
og bætir síðan við „sjálfsagt ell-
in“:
Ekkert lengur yrki níð
engin rætin fæðist staka
árangurslaust eg þess bíð
að andinn skili sér til baka.
Jón Arnljótsson gáir til veðurs:
Þokan hylur himingeim,
hæstu fjöll og vita,
veikir trú á veginn heim
og von um ljós og hita.
En Ólafur Stefánsson er bjart-
sýnn að venju og horfir fram á
veginn:
Upp með sokka, enn er lag,
öllu góðu að sinna,
auðnu leita, yrkja brag,
elska,og gleði finna.
Ármann Þorgrímsson er í póli-
tískum hugleiðingum og kallar
þær „Úr fortíðinni“:
Fæddur inn í Framsóknar-
flokkinn sællar minningar
ungur hrakinn úr ég var
eftir miklar væringar.
Ármann heldur síðan áfram þar
sem frá var horfið. „ Flótti“ heitir
það núna á Leirnum með at-
hugasemdinni: „Farnir fjórir úr
framlínunni á stuttum tíma“.
Flýja kappar Framsóknar
fylgið minnkar allsstaðar
enginn verður eftir þar
er við nálgumst kosningar.
Þriðja ráðuneyti Hermanns Jón-
assonar var myndað í apríl 1939
með Framsóknarflokki, Alþýðu-
flokki og Sjálfstæðisflokki. Jónas
frá Hriflu vann ötullega að stjórn-
arsamvinnu „hinna ábyrgu flokka“,
en hann hafði löngum áður verið
einn harðsnúnasti andstæðingur
Sjálfstæðisflokksins:
Íhaldinu er sálin seld,
- sinnið allt úr skorðum.
Jónas mígur í þann eld
er hann kveikti forðum.
Þegar hér er komið sögu get ég
ekki stillt mig um að rifja upp stöku
Jóns Þorsteinssonar á Arnarvatni,
en Tryggvi sá, sem hér er talað um,
var Tryggvi Þórhallsson formaður
Framsóknarflokksins og síðan
Bændaflokksins. Hann var for-
sætisráðherra frá 1927-1932.
Fellur regn með fossanið
fúlt og ljótt í bragði. –
En allt er betra en íhaldið
eins og Tryggvi sagði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af veðurfari og
pólitískum hrakningum
Í klípu
ÞAÐ ERU TIL MARGAR LEIÐIR
FYRIR SVEFNLAUSA AÐ HALDA
VÖKU HVER FYRIR ÖÐRUM.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HÚN ÞARF BREIÐARI SKÍÐI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að deila speglinum.
STÖÐUUPPFÆRSLA:
Í KVÖLDMAT FÉKK ÉG MÉR ...
HANN SEGIR
AÐ VIÐ ÆTTUM
KANNSKI BARA AÐ
KOMA SEINNA OG
RÆNA HANN...
ALLT
STARFSFÓLKIÐ
HANS ER MEÐ
FLENSU NÚNA!
EINN DAGINN VERÐ
ÉG STÓRT TRÉ!
NEI, ÞÚ ERT BLÓM. ÞÚ
BLÓMSTRAR OG SVO DEYRÐU.
ÉG HEFÐI EKKI
ÁTT AÐ HÆTTA
Í SKÓLA.
Víkverji þarf að viðurkenna eitt:Hann er bókafíkill. Það gæti
reynst ósköp saklaust, að vera hald-
inn bókafíkn, en þegar Víkverji legg-
ur leið sína í bókabúðir, tala nú ekki
um á bókasöfn, sleppir hann fram af
sér beislinu og fer í einhvern óút-
skýranlegan ham. Þá er betra að
standa ekki í vegi fyrir honum. En
Víkverji er ekki aðeins bókafíkill,
heldur einnig fréttafíkill. Sú fíkn lýs-
ir sér þannig að það má ekkert fara
fram hjá honum. Óttinn við það að
missa af einhverju er hreint út sagt
óbærilegur. Þá kemur sér nú vel að
starfa á fjölmiðli, þar sem Víkverji
þarf að vera á tánum allan daginn.
Vandinn er sá að fréttafíkill nú-
tímans á enga útgönguleið. Hann er
fastur. Það eru engin mörk á því
hversu margra frétta hann getur
neytt, ef svo má segja. Hann les öll
blöð sem hann kemst yfir, missir
ekki af einum fréttatíma og grand-
skoðar fréttasíðurnar, innlendar og
erlendar, áður en hann fer á Twitter,
þar sem milljónir manna miðla frétt-
um allan sólarhringinn. Þar fær
hann allt beint í æð.
Það er vandlifað í þessum heimi.
Víkverji telur að ekki sé tekið nægi-
lega mikið tillit til fréttafíkla. Hvern-
ig á til dæmis að koma einhverju í
verk þegar allur fróðleikur heimsins
kallar beinlínis á mann? Hefur eng-
inn skilning á því? Af hverju eru síð-
an aðeins 24 klukkustundir í einum
sólarhring? Það er hvergi nærri nóg,
eins og Víkverji rekur sig á á hverj-
um degi. Fréttafíklar heimsins þurfa
nauðsynlega að bindast samtökum
um að gæta hagsmuna sinna. Þörfin
er brýn.
x x x
Víkverja hefur annars gengið held-ur erfiðlega að halda dampi í
bóklestrinum í ár. Hann strengdi
þess heit að lesa að minnsta kosti
þrjár bækur í mánuði í ár. Það er
skömm frá því að segja að honum
hefur rétt svo tekist að lesa tvær
bækur í mánuði það sem af er ári.
Það er mun minna en í fyrra – og þá
var hann næstum hálft ár í skóla.
George W. Bush las víst 95 bækur
þegar hann var leiðtogi hins frjálsa
heims árið 2006. Víkverji hefur því
enga afsökun fyrir að bæta ekki ráð
sitt. víkverji@mbl.is
Víkverji
Munnur minn er fullur lofgjörðar um
þig, af lofsöng um dýrð þína allan dag-
inn. (Sálmarnir 71:8)