Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014 Í dag, fimmtudaginn 24. júlí, verður hið árlega Íslandsmót í sjósundi haldið í Nauthólsvík. Eins og síðustu ár eru það Coldwater og Sundsamband Ís- lands sem halda mótið í samvinnu við Securitas sem hefur verið styrktaraðili mótsins síðustu sex ár- in. Keppt verður í þremur vega- lengdum sem eru einn kílómetri, 3 km og að þessu sinni bætist 5 km vegalengd við. „Iðkendur sjósunds sem og aðrir sundmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt,“ segir í til- kynningu frá mótshöldurum. Áhorfendur eru velkomnir og Götugrill Securitas mun grilla fyrir mótsgesti og þátttakendur. Mótið byrjar kl. 17 og er nánari upplýsingar um mótið og skráningu að finna á heimasíðunni sjokapp.is. Íslandsmót í sjósundi í Nauthólsvík Morgunblaðið/Eggert Á sundi Vinsældir sjósundsins hafa vaxið hröðum skrefum síðustu ár. Samtökin Hjólafærni á Íslandi hafa gefið út kort til að aðstoða fólk við að ferðast um landið á vistvænan hátt. Um tvö kort er að ræða. Annars vegar hjólareiðakort af Íslandi, sem sýnir umferðarþunga á vegum, þannig að hægt sé að forðast vegi með mikla umferð. Þá sýnir kortið m.a. einnig hvar er hægt að fá hjóla- viðgerðarþjónustu og á hvaða stöð- um vegir liggja í gegnum ár. Hins vegar var gert kort sem sýn- ir allar mögulegar áætlunarferðir um landið í rútum og strætisvögn- um. Hjólafærni á Íslandi er fræðaset- ur um samgöngur og hjólreiðar. „Við leggjum metnað í að styðja við vist- vænan ferðamáta. Á Íslandi hefur verið skortur á upplýsingum um hvað hægt sé að gera með almenn- ingssamgöngur á Íslandi. Með þess- um kortum er verið að reyna að koma þessum upplýsingum á fram- færi og hvetja fólk til að nýta þessa möguleika sem eru til staðar,“ segir Sesselja Traustadóttir, fram- kvæmdastýra Hjólafærni á Íslandi. Kortin eru á ensku en Sesselja vonar að þau verði þýdd á íslensku bráðlega. Þá segir hún að kortin opni á nýjar ferðaleiðir. „Hjólakortið hjálpar fólki að nýta sér aðrar leiðir en þjóðveginn. Á kortinu sést hvar umferðin er þyngst og enginn hefur gaman af því að hjóla í návígi við bíla. Svo eru bílstjórar heldur ekkert ánægðir með að keyra nálægt hjól- reiðamönnum. isb@mbl.is Landið hjólreiðavætt Samgöngur Á kortinu má sjá allar áætlunarferðir í rútum um landið.  Íslandskort gefið út sem styður við vistvænan ferðamáta Bréf innan einka- réttar munu hækka um 11,5% eftir að Póst- og fjarskiptastofnun samþykkti, að hluta til, beiðni Íslandspósts um hækkun gjald- skrár fyrir bréf innan einka- réttar. Beiðni Íslandspósts var um hækk- un sem næmi á bilinu 19-26% eftir því um hvaða þjónustuflokk var að ræða. PFS mat það svo að til- greindar forsendur Íslandspósts fyrir verðhækkun væru ekki að öllu leyti fyrir hendi og því gæti stofn- unin ekki samþykkt hækkunarbeiðni félagsins óbreytta. Ingimundur Sigurpálsson, for- stjóri Íslandspósts, er ekki ánægður með niðurstöðuna. Hún sé ekki í samræmi við þær tölur sem Íslands- póstur miðaði við. „Við teljum að þetta dugi ekki til að standa undir þeirri þjónustu sem lög og reglur gera ráð fyrir,“ segir Ingimundur. „Í meginatriðum er það vegna aukins tilkostnaðar og minnkandi magns bréfa. Íslandspóstur ætlaði að halda úti tilteknu þjónustukerfi og það eru takmörk fyrir því hvað er í því með þær kröfur sem eru gerðar til þess. Með minnkandi magni verð- ur dreifing dýrari,“ segir Ingimund- ur. ash@mbl.is Dýrara að senda póst Ingimundur Sigurpálsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.