Morgunblaðið - 24.07.2014, Side 27

Morgunblaðið - 24.07.2014, Side 27
kortadeild Morgunblaðsins 2000- 2001. Hún var jarðfræðingur hjá Raunvísindastofnun HÍ 1997-2000, sérfræðingur hjá umhverfisráðu- neytinu 2001-2004, deildarstjóri um- hverfis- og skipulagsmála hjá Vega- gerðinni frá 2004 til ársloka 2012 og umhverfis- og öryggismála eftir skipulagsbreytingar í ársbyrjun 2013. Framkvæmdir og náttúran En í hverju eru þá störf Matt- hildar fólgin svona dags daglega? „Þau snúast nú helst um að inn- leiða og viðhalda faglegu verklagi við framkvæmdir Vegagerðarinnar þeg- ar kemur að umhverfisþáttum. Sjá t.d. til þess að framkvæmdir séu þannig skipulagðar og þeim þannig stjórnað að landröskun og mengun sé haldið í lágmarki og að allur frá- gangur sé til fyrirmyndar. Þetta er í raun viðleitni til að haga fram- kvæmdum í sem mestri sátt við land og þjóð.“ Matthildur er félagi í Jarðfræða- félagi Íslands frá 1997, í Jöklarann- sóknafélaginu 1997-2000, hefur verið formaður umhverfisnefndar Nor- ræna vegasambandsins (NVF) á Ís- landi frá 2004, sat í stjórn Foreldra- félags Selásskóla 2012-2014 og situr í stjórn Íbúasamtaka Árbæjar, Ár- túnsholts og Seláss frá 2013. Fjölskylda Eiginmaður Matthildar er Eiríkur Björnsson, f. 6.12. 1959, tannlæknir. Hann er sonur Björns Eiríkssonar, skrifstofustjóra í Reykjavík ,og Hjördísar Halldórsdóttur, hjúkr- unarkonu í Reykjavík. Börn Matthildar og Eiríks eru Björn Ívar Eiríksson, f. 14.6. 2000, grunnskólanemi, og Þórdís Matthea Eiríksdóttir, f. 19.3. 2003, grunn- skólanemi. Alsystkini Matthildar eru Þórlaug Braga Stefánsdóttir, f. 11.12. 1966, þjónustufulltrúi hjá Nýherja, búsett í Reykjavík; Hrafnhildur Brynja Stef- ánsdóttir, f. 26.5. 1969, upplýsinga- fulltrúi Landhelgisgæslunnar, búsett í Reykjavík; Arna Björk Stef- ánsdóttir, f. 13.7. 1971, sagnfræð- ingur, búsett í Reykjavík. Hálfsystkini Matthildar, samfeðra, eru Dagný Stefánsdóttir, 3.12.1946, bóndi í Seljanesi í Reykhólahreppi; Guðmundur Unnþór Stefánsson, f. 6.6. 1948, fyrrv. framkvæmdastjóri Sjóvéla, búsettur á Álftanesi; Stefán Stefánsson, f. 10.12. 1949, verkamað- ur, búsettur í Kópavogi; Gunnar Stefánsson, f. 21.1. 1953, lögfræð- ingur, búsettur í Kópavogi, og Ása Björg Stefánsdóttir, f. 6.9. 1954, bóndi í Árbæ í Reykhólahreppi. Foreldrar Matthildar voru Stefán Guðmundsson, f. 16.6. 1922, d. 16.6. 2007, framkvæmdastjóri fjáröflunar Framsóknarflokksins, og Matthea J. Jónsdóttir f. 7.7. 1935, d. 9.8. 2009, listmálari. Úr frændgarði Matthildar Báru Stefánsdóttur Matthildur Bára Stefánsdóttir Guðmundur Guðmundsson b. á Dunki í Hörðudal J. Matthildur Kristófersdóttir saumak. og húsfr. í Rvík. Jón Guðmundsson sjóm. og verkam. í Rvík Matthea J. Jónsdóttir listmálar í Rvík Kristín Einarsdóttir húsfr. á Dunki Kristófer Kristófersson b. og smiður á Þverá og Keldunúpi á Síðu Sigurbjörg Einarsdóttir húsfr. í Kambshjáleigu Eyjólfur Jónsson b. í Kambshjáleigu í Hálssókn Guðmundur Eyjólfsson, b. og rithöfundur á Þvottá Þórunn Jónsdóttir húsfr. á Þvottá í Álftafirði Stefán Guðmundsson framkvæmdastj. í Rvík. Vilborg Jónsdóttir húsfr. á Rannveigarstöðum Jón Björnsson b. á Rannveigarstöðum í Álftafirði Bergur Kristófersson b. á Keldunúpi á Síðu. Hanna Bergsdóttir fv. starfsm. Álafoss Gígja Magnúsdóttir vaktstjóriáveitinga- staðnum Vox. Björk Magnúsdóttir fornleifafræðingur Guðbjörg Jónsdóttir húsfr. í Rvík. Margrét Frímannsdóttir fv. veitingastj. Margrét Runólfsdóttir hótelstj.á Flúðum Guðlaug Þórarinsdóttir, húsfr. á Þverá og Keldunúpi Guðný Jónsdóttir húsfr. í Múla í Álftafirði. Ingibjörg Guðmundsdóttir b. á Þiljuvöllum í Berufirði. Alda Snæbjörnsdóttir rith. í Grindavík Sigurborg Björnsdóttir húsfr. í Múla. Björn Jónsson rekstrarstj. Vega- gerðarinnar í Ólafsvík Afmælisbarnið Matthildur Bára. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014 Helga Bachmann leikkonafæddist í Reykjavík 24.7.1931. Foreldrar hennar voru Hallgrímur Jón Jónsson Bach- mann, ljósameistari LR og Þjóðleik- hússins, og k.h., Guðrún Þórdís Jónsdóttir kjólameistari. Hallgrímur var sonur Jóns Bach- mann, b. í Steinsholti, bróður Borg- þórs, föður leikkvennanna Önnu, Þóru og Emelíu Borg. Meðal bræðra Guðrúnar var Gísli alþm. og Guð- mundur Kamban rithöfundur. Guð- rún var dóttir Jóns, b. í Litlabæ, hálfbróður Stefáns, föður Eggerts söngvara og Sigvalda Kaldalóns. Eiginmaður Helgu var Helgi Skúlason, leikari og leikstjóri, sem lést 1996. Börn þeirra eru Þórdís, Hallgrímur Helgi, Skúli Þór og Helga Vala. Helga ólst upp í Reykjavík og dvaldi í Skálholti á sumrin sem ung stúlka. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Hallormsstaðaskóla 1948, stundaði nám við Leiklistarskóla Lárusar Pálssonar og við Leiklistarskóla Gunnars R. Hansens. Helga hóf að leika hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1952, var fastráðin þar 1962-76 og fastráðin við Þjóðleik- húsið 1976-2000. Hún var án efa í hópi fremstu leikkvenna hér á landi á sinni tíð en meðal eftirminnileg- ustu hlutverka hennar má nefna Jó- hönnu, í Föngunum í Alton, eftir Sartre; Elenu, í Vanja frænda; Höllu í Fjalla-Eyvindi; Heddu Gabler; Antígónu Sófóklesar; Úu í Kristni- haldi undir Jökli, og Alice í Dauða- dansi Strindbergs. Þá lék hún í kvik- myndum,, s.s. Í skugga hrafnsins, og Atómstöðinni. Helga var einnig leikstjóri. Hún setti á svið leikgerð sína á Reykja- víkursögum Ástu, í Kjallaraleikhús- inu, leikgerð sína og Helga, eig- inmanns síns, á Njálssögu, í Rauðhólum og samdi nýtt stytt handrit að leikritinu Marmara, eftir Guðmund Kamban. Hún var fyrsti formaður Hlaðvarpans, sat í stjórn Friðarsamtaka listamanna, hlaut leiklistarverðlaunin Silfurlampann, 1968, og var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1986. Helga lést 7.1. 2011. Merkir Íslendingar Helga Bachmann 90 ára Guðlaugur V. Eiríksson Kjartan T. Ólafsson Ólöf Bjarnfreðsdóttir 85 ára Árni Hemmert Sörensson Ásdís Kristjánsdóttir Hulda Heiður Sigfúsdóttir Magnús H. Sigurjónsson Margrét Jónsdóttir 80 ára Ása María Kristinsdóttir Víglundur Þorsteinsson 75 ára Arnar Daníelsson Birna Zophaníasdóttir Fjóla Benediktsdóttir Guðmundur K. Jónmundsson Kolbrún Árnadóttir Lilja Amalía Ingimarsdóttir Ólafur Þ. Guðmundsson 70 ára Bára Friðriksdóttir Bragi Sigurðsson Egill Örn Jóhannesson Guðrún Áskelsdóttir Kristín R. Magnúsdóttir Lilja Hanna Baldursdóttir Páll Magnússon 60 ára Anna Beverlee Saari Bjarni Jónsson Edda María Guðbjörnsdóttir Eiríkur Þorsteinsson Guðrún Ísleifsdóttir Kristinn Rafnsson Magnús Andrésson Reynir S. Engilbertsson Sólrún Guðleifsdóttir 50 ára Aigar Tamm Gísli Jónsson Hafdís Þorleifsdóttir Helga Kristín Bragadóttir Magnús Egilsson Margrét Eysteinsdóttir Skúli Helgi Skúlason Svanhildur Guðlaugsdóttir Vilhelm Patrik Friðriksson Þóra Þórðardóttir Ægir Már Kárason 40 ára Arunas Rimdeika Ágústa Kristín Ágústsdóttir Árný Björg Bergsdóttir Borgþór Vignisson Elín Gunnarsdóttir Elísa Einarsdóttir Guðbrandur Óli Albertsson Guðni Einarsson Heiðrún Þorsteinsdóttir Inga Stella Pétursdóttir Inga Þórunn Sigurðardóttir Kristina Jóhannsson Sigríður Hildur Snæbjörnsdóttir Sigurjón Þór Sigurjónsson Sjöfn Sigurðardóttir Vilhjálmur H. Jónsson 30 ára Aldona Boguniecka Antoine Hrannar Fons Brynjar Konráðsson Friðbjörn Ásbjörnsson Grégory D.F. Cattaneo Guðrún B. Kristófersdóttir Heiðar Berg Hallgrímsson Kai Ören Eidsvik María K. Kristjánsdóttir Reynir Tómas Emilsson Rhea Pardillo Juarez Sunna Kristín Hilmarsdóttir Sæmundur H. Emilsson Til hamingju með daginn 30 ára Þórir ólst upp í Vogunum, er búsettur í Reykjanesbæ, lauk BSc- prófi í íþróttafræðum frá HR og er íþróttakennari við Njarðvíkurskóla og knattspyrnuþjálfari þar. Maki: Dagmar Þráins- dóttir, f. 1991, örygg- isvörður í Leifsstöð. Dóttir: Elísabet María, f. 2009. Foreldrar: Haukur Þór- isson, f. 1959, og María Kristjánsdóttir, f. 1954. Þórir Rafn Hauksson 40 ára Ingi ólst upp á Sauðárkróki og er verk- stjóri hjá Sjávarlöðri. Maki: Oddný Ragna Pálmadóttir, f. 1989, þroskaþjálfi. Bróðir: Þórir, f. 1981. Foreldrar: Kristín Inga- dóttir, f. 1948, húsfreyja, og Guðmundur Trausta- son, f. 1947, d. 1986. Fósturfaðir: Jón Hjör- leifsson, f. 1943, fyrrv. starfsmaður hjá Steinull. Ingi Guðmundsson 30 ára Unnar ólst upp í Breiðholtinu, býr í Kópa- vogi, lauk prófi í lyfjafræði frá Kaupmannahafnarhá- skóla og er lyfjafræðingur hjá Actavis og Lyfjavali. Maki: Stella Rögn Sigurð- ardóttir, f. 1984, lyfja- fræðingur. Sonur: Patrekur Leó, f. 2012. Foreldrar: Sigurður Guð- mundsson, f. 1949, og Steinunn Kristín Árna- dóttir, f. 1950, d. 2014. Unnar Darri Sigurðsson MOSFELLSBAKARÍ Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is Ert þú búin að prófa nýja súrdeigsbrauðið okkar? Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.