Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014
mbl.is
alltaf - allstaðar
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Gaslampi / hitari á pallinn,
hæð 220 cm. Verð 74.600.
Bindir & stál ehf, Hvaleyrar-
braut 39, 220 Hafnarfirði.
Uppl. í síma 864 9265 eða á
www.el-bike.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
N.P. þjónusta auglýsir
Tek að mér bókhald, endurútreikn-
inga, uppgjör o.þ.h.
Hafið samb. í GSM 861 6164.
Byggingar
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Teg. 925 Mjúkir og þægilegir dömu-
inniskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 36 - 42. Verð: 12.900.
Teg. 6103 Mjúkir og þægilegir
dömuinniskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Litir: rautt og svart. Stærðir: 36 - 42.
Verð: 12.900.-
Teg. 407 Mjúkir og þægilegir dömu-
inniskór úr leðri, skinnfóðraðir. Litir:
svart, rautt og hvítt. Stærðir: 36 - 42.
Verð: 12.900.
Teg. 406: Mjúkir og þægilegir dömu-
inniskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 36–42. Verð: 12.900.
Teg. 2178 Mjúkir og þægilegir
dömuinniskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 36 - 42. Verð: 13.550.
Teg. 6935 Fallegir, mjúkir og þægi-
legir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 36 - 42. Verð: 13.550.
Teg. 6935 Fallegir, mjúkir og þægi-
legir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 36 - 42. Verð: 13.550.
Teg: 70118 Mjúkir og þægilegir
dömusandalar úr leðri, skinnfóðraðir.
Litir: hvítt og silfrað. Stærðir: 36 - 43.
Verð: 5.500.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.– föst. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
Til sölu Toyota Prius, Plug in
Rrafmagns og hybrid bíll, árg. 2012.
Mjög vel með farið eintak.
Verð tilboð.
Upplýsingar í síma 863-7656.
Hópbílar
Bjóðum hópferðabíla frá 8-67 farþega.
Guðmundur Tyrfingsson ehf
gt@gtbus.is www.gtbus.is
S. 568-1410 / 482-1210
Hópferðabílar til leigu
með eða án bílstjóra
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
NICOLAI
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Hreinsa ryð af þökum,
hreinsa þakrennur,
laga veggjakrot
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Í dag kveðjum
við Ingu.
Inga var elst og
lengi vel vorum við
tvær systur í for-
eldrahúsum. Okkur kom ekkert
sérlega vel saman en með ár-
unum og auknum þroska breytt-
ist það í systrakærleik og við
urðum mjög nánar þótt við ætt-
um heima hvor í sínum lands-
hlutanum.
Inga flutti ung að heiman,
rauðhærður strákur frá Kefla-
vík, Sverrir Elentínusson, fór að
venja komur sínar og til Kefla-
víkur flutti hún, 17 ára gömul,
og fyrsti sonurinn fæddist þegar
hún var aðeins 18 ára.
Hún systir mín varð fyrir-
myndarhúsmóðir, eldaði, bakaði,
saumaði og prjónaði, allt lék
þetta í höndunum á henni. Dug-
legir og kraftmiklir fjórir synir
og nóg að gera á stóru heimili.
Gestkvæmt var á þeirra heim-
ili enda vinamörg og ákaflega
gestrisin. Oft komum við fjöl-
skyldan að norðan og vorum hjá
þeim í nokkra daga og þá var
glatt á hjalla og árlega heim-
sóttu þau okkur til Akureyrar.
Inga veiktist snögglega árið
1983 þegar hún fékk blóðgúl í
höfuðið en með snarræði lækna
tókst að fjarlægja meinið áður
en það sprakk. Þessi stóra höf-
uðaðgerð setti spor sín á systur
mína, hún þurfti að læra að tala
upp á nýtt og ekki þekkti hún
eiginmann sinn eða syni. „Hvað
eru allir þessir karlmenn alltaf
að gera hérna“ spurði hún
hjúkrunarkonuna. Smám saman
kom þó minnið og að lokum
komst hún heim og gat stundað
léttustu heimilisverk en hún var
breytt persóna, þurfti að læra að
tala upp á nýtt en sem betur fer,
alltaf glöð og jákvæð.
Eftir andlát eiginmanns henn-
ar báru synir Ingu hana á hönd-
um sér og seinna tengdadætur
og barnabörn. Hún var yndis-
lega góð amma enda fáar ömm-
ur eins viljugar og hún að spila
við barnabörnin eða horfa á
James Bond bíómyndir.
Ingveldur
Eyjólfsdóttir
✝ Ingveldur Eyj-ólfsdóttir
fæddist 29. júní
1938. Hún lést 15.
júlí 2014. Útför
Ingveldar fór fram
23. júlí 2014.
Spilagenin fékk
hún Inga úr
móðurættinni.
Eftir að við höfð-
um báðar misst
maka okkar fórum
við árlega í sumar-
ferðir saman. Það
var gaman að
ferðast með Ingu,
hún alltaf létt í
lundu og naut þess
að keyra í bíl og
horfa á fallega landið okkar.
Mörg gullkorn hrukku af vörum
hennar í þessum ferðum því eftir
höfuðaðgerðina vantaði hana oft
orð eða sagði röng orð eins og
þegar við vorum á Suðurlandi
þar sem eru margar einbreiðar
brýr. Þegar við komum að einni
sagði hún: „Komum við nú ekki
að enn einni einnota brú“. Ég
þurfti að stoppa bílinn, ég hló
svo mikið en mest hló Inga, hún
var ekkert viðkvæm fyrir vit-
lausu orðunum sem hún sagði.
Margskonar veikindi hrjáðu
Ingu síðustu árin. Alltaf reis hún
þó upp og var ótrúlega jákvæð
og dugleg. Synir hennar sáu til
þess að hún átti alltaf góða bíla
og daglega fór hún rúntinn um
Keflavík og í Garð og Sandgerði
og fylgdist vel með uppbyggingu
bæjanna. Fyrir tveim mánuðum
þurfti að taka af henni annan
fótinn fyrir neðan hné vegna lé-
legrar blóðrásar og þá var frels-
ið farið, ekki var lengur hægt að
fara út í bíl og taka smá rúnt.
Hún var nýbúin að koma sér vel
fyrir á nýju heimili fyrir aldraða
í Reykjanesbæ þegar kallið kom
óvænt.
Ég kveð nú með orðunum
sem Inga kvaddi mig með í lok
símtals þegar hún var að ná tök-
um á talmálinu eftir höfuðað-
gerðina. „Sé þig elskan á næsta
leiti“.
Vertu ævinlega Guð falin,
elsku systir mín.
Helena.
Margar voru sögurnar sem
amma Inga sagði og þrátt fyrir
að hún hefði sagt okkur þær oft
og mörgum sinnum var alltaf
gaman að hlusta á þær aftur.
Hún rifjaði oft upp stundir þeg-
ar við vorum lítil, þegar við vor-
um að rúnta saman, horfa á
skemmtilegar bíómyndir í sjón-
varpinu eða spila saman. Amma
Inga var sú allra vinsælasta hjá
okkur barnabörnunum og var
slegist um að fá að gista hjá
henni.
Guðmundi þótti sérstaklega
gaman að hringja í ömmu Ingu
og spyrja hana hvað væri spenn-
andi í sjónvarpinu í kvöld, ekki
dugði honum að láta mömmu
lesa sjónvarpsdagskrána því
amma Inga sagði alltaf svo
spennandi frá. Oft þegar Guð-
mundur kom í heimsókn var
hann beðinn um að ryksuga eða
þrífa gluggana því það gerði það
enginn jafn vel og hann að henn-
ar sögn. Það voru ófá skiptin
sem við fórum í hádegismat til
ömmu Ingu því henni fannst fátt
skemmtilegra en að elda ofan í
vini og ættingja. „Ham og egg“-
samloka varð oftast fyrir valinu
enda gerði enginn jafn góða
samloku og amma Inga.
Ingveldi yngri þótti alltaf jafn
gaman að koma með möndlu-
köku óvænt til hennar þar sem
hún ljómaði öll þegar hún fékk
óvæntar heimsóknir og ekki
skemmdi að kakan fylgdi. Sævar
Freyr heldur mikið upp á næt-
urnar sem hann gisti hjá ömmu
Ingu og horfði á James Bond
með henni. Það voru hennar
uppáhaldsmyndir.
Ömmu Ingu fannst mjög
gaman að rúnta um götur bæj-
arins og spurðu vinir okkar
stundum hvort amma Inga fengi
greitt fyrir að rúnta því þeir
mættu henni nánast daglega og
stundum oft á dag. Amma Inga
lifði fyrir fjölskylduna sína og
var mjög dugleg að koma í heim-
sókn. Hún kom nánast daglega í
heimsókn, í kaffi og spjall. Er
árin liðu og heilsan versnaði
sagði amma Inga okkur að henni
þótti einna verst að komast ekki
eins oft út á rúntinn og hana
langaði til þess að sjá bæinn og
fólkið.
Amma Inga var ótrúlega góð
og skemmtileg kona. Okkur leið
alltaf svo vel hjá henni. Hún var
sönn amma. Jákvæðari mann-
eskju er erfitt að finna. Þrátt
fyrir nokkra sjúkrasögu og
makamissi var amma Inga alltaf
hress og jákvæð, alveg fram á
síðasta dag. Ingveldi yngri þykir
afar dýrmætt að hafa fengið að
annast ömmu sína á hjúkrunar-
heimilinu Hrafnistu. Þar áttu
þær góðar stundir saman.
Nú er komið að endalokum og
kveðjum við þig, elsku amma
okkar. Nú hittir þú loksins afa
Sverri. Þín barnabörn,
Guðmundur Árni,
Ingveldur og
Sævar Freyr.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi
liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felligluggan-
um. Einnig er hægt að slá inn
slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og hve-
nær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks
hvaðan og klukkan hvað útförin
fer fram. Þar mega einnig koma
fram upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast er
til að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður, en
ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
skal senda hana með æviágripi í
innsendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent er ráðlegt að
senda myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og láta umsjón-
armenn minningargreina vita.
Minningargreinar