Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 4
Flóðbylgjur Vatn flæddi alla leiðina ofan í Víti, gíginn fyrir miðri mynd. „Þetta var svolítið vígalegur mökkur,“ sagði Stefán Valur Jóns- son, björgunarsveitarmaður í Skagfirðingasveit á Sauð- árkróki. Stefán var að sinna hálendisgæslu Slysa- varnafélagsins Landsbjargar ásamt þremur öðrum norðan Vatnajökuls þegar þau sáu mökkinn stíga upp frá Öskjuvatni. Mökkurinn myndaðist þegar gríðarstór skriða féll rétt fyrir miðnætti á mánu- dagskvöld. Að því er best er vitað voru þau einu sjónar- vottarnir að því sem þarna gerðist, þótt þau sæju ekki sjálfa skriðuna né flóðbylgjurnar sem mynduðust. Farið var að vatninu í fyrradag og þá kom í ljós hvað gerst hafði. una@mbl.is Vígalegur mökkur SKÝ STEIG UPP FRÁ ÖSKJU ÞEGAR SKRIÐAN FÉLL 4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014 Guðni Einarsson Una Sighvatsdóttir Skriðan sem féll seint að kvöldi mánudags við Öskjuvatn er um 1,2 km breið þar sem hún er breiðust og nær hún um einn kílómetra frá fjallseggjum og fram á vatnsbakk- ann. Áætlað er að skriðan hafi alls verið að lágmarki um 50 milljónir rúmmetra og þar af hafi 24 milljónir rúmmetra af efni farið fram í Öskju- vatn. Vísindamenn skoðuðu svæðið í gær og halda því áfram í dag. Vænta einhverrar niðurstöðu á morgun. Almannavarnir Vísindamenn frá Veðurstofunni og Háskóla Íslands sátu í gær fund með almannavarnadeild ríkislög- reglustjóra og Vatnajökuls- þjóðgarði. Í framhaldi af fundinum var ákveðið í samráði við lög- reglustjórann á Húsavík og Vatna- jökulsþjóðgarð að loka næsta ná- grenni Öskjuvatns, það er við norðurbarm Vítis og annars staðar þar sem flóðsins gætti og hætta er talin vera á ferðum. Landverðir Vatnajökulsþjóðgarðs settu upp merkingar um lokanir leiða í gær. Hálendisvakt björgunarsveitanna aðstoðaði við eftirlit og upplýs- ingagjöf til ferðamanna. Veginum inn að Öskju verður lokað við Dreka- gil frá klukkan 19.00 á kvöldin til klukkan 9.00 að morgni, að sögn al- mannavarnadeildar ríkislögreglu- stjóra. Vísindamenn hafa skoðað að- stæður betur og var gert ráð fyrir að flogið yrði með þá yfir berghlaupið í þyrlu Landhelgisgæslunnar í dag svo þeir gætu betur lagt mat á um- fang hennar og hvort hætta væri tal- in á frekari skriðuföllum. Niðurstaða þeirrar athugunar mun líklega liggja fyrir á morgun og ljóst að áð- urnefnd lokun muni a.m.k. gilda þangað til, að sögn almannavarna. Aðalgönguleiðin er opin „Þetta er stór viðburður í jarð- fræðinni,“ sagði Hjörleifur Finns- son, þjóðgarðsvörður á norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs, um skriðuna sem féll í Öskjuvatn undir miðnætti á mánudagskvöld. Hann sagði að að- al-gönguleiðin frá bílastæðinu hjá Vikraborgum inn í Öskju og að Víti væri opin. „Við lokum fyrir það hins vegar að fólk fari inn á svæðið sem skemmd- ist í sjálfum flóðunum,“ sagði Hjör- leifur. Hann sagði að þar hefði orðið mjög mikið rof við atburðinn. Vik- urlögin væru mjög viðkvæm og rofn- uðu auðveldlega. Brúnirnar væru því stórhættulegar. Svæðið þyrfti að jafna sig áður en nokkurt vit væri í að hleypa fólki að Öskjuvatni. Hjör- leifur sagði að þessi lokun væri ekki mjög íþyngjandi því langmesti ferðamannastraumurinn lægi frá bílastæðinu að Víti og aftur til baka. Tiltölulega mun færri ferðamenn færu alveg niður að Öskjuvatni. Ferðamenn hafa gjarnan fengið sér bað í Víti. Hjörleifur taldi ólík- legt að það yrði leyft í sumar. Hann benti á að vatn hefði flætt úr Öskju- vatni í Víti og gæti hafa kólnað í Víti við það. Hefði getað farið verr „Það er alveg klárt mál að þetta hefði farið verr ef þetta hefði verið um miðjan dag,“ sagði Ármann Höskuldsson, jarðfræðingur, sem var við Öskjuvatn. Hann var að skrá ummerki eftir skriðuna sem féll rétt fyrir miðnætti á mánudag. Ármann sagði hlíðina enn óstöðuga og óráð- legt að fara niður að vatninu. „Það er bara bráðabani. Menn verða aðeins að doka við í nokkrar vikur meðan við erum að sjá hvort hlíðin er stöðug eða ekki,“ sagði Ár- mann. Ármann sagði að skriðan sem féll í Öskjuvatn hefði líklega ekki myndað eina flóðbylgju heldur fjórar um 50 metra háar bylgjur sem svo slettust upp um veggi öskjunnar. Hann benti á að bylgjurnar magnist á grynning- unum við Víti, einmitt á því svæði sem ferðamenn gangi. Tekið skal fram að umrætt svæði er nú lokað fyrir umferð. Ármann taldi að skriðuna mætti rekja til hreyfinga í hringsprungum í kringum öskjuna. Auk þess væri einhver ólga í Víti. Ingibjörg Jónsdóttir, dósent í landfræði við HÍ, sagði að von væri á nýjum gervihnattamyndum af Öskjusvæðinu á næstu dögum. Þá yrði hægt að bera þær saman við eldri myndir. Eins þyrfti að skoða hvort greina mætti einhverja fyrirboða þessa at- burðar á myndunum. 50 milljóna rúmmetra skriða  Vinsælasta gönguleiðin að Víti er opin  Bannað að ganga inn á flóðasvæðið við Öskjuvatn  Vís- indamenn kanna skriðuna miklu og afleiðingar hennar  „Þetta er stór viðburður í jarðfræðinni“ Ljósmynd/Gunnar Víðisson Öskjuvatn Skriðan olli líklega fjórum flóðbylgjum í vatninu. Mikið rof varð við þennan atburð og brúnirnar geta því verið stórhættulegar. Skriðan í Öskju Víti Vikraborgir Öskjuvatn Skriðan Merkt gönguleið, auðveld Merkt gönguleið, krefjandi Svæði sem sérstakar regla gilda um Ljósmynd/Stefán Valur Jónsson Hjörleifur Finnsson Hamfarir í Öskju Mökkur Það steig upp mikið og stórt ský frá Öskju er skriðan féll. Ármann Höskuldsson Stefán Valur Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.