Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014 ÁLÞAKRENNUR Viðhaldslitlar Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki, ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun. Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar. Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki. Smiðjuvegi 4C Box 281 202 Kópavogur Sími 587 2202 Fax 587 2203 hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is HAGBLIKK ehf. KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! HREINSI- OG SMUR- EFNI, GÍROLÍUR, SMUROLÍUR OG RÚÐUVÖKVI FYRIR ALLAR GERÐIR BIFREIÐA Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. Höfðatorg Íslandshótel opna hér 342 herbergja hótel á næsta ári. Reykjavíkurapótek KEA-hótelin opna hér 45 herbergja hótel í haust. Hótel Borg Herbergjum fjölgar um 43 á þessu sögufræga hóteli. Morgunblaðið/Eggert Hótel Kultura Framkvæmdir eru í fullum gangi á Hljómalindarreit. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Mikil fjölgun hótelherbergja í mið- borg Reykjavíkur á næstu árum mun auka samkeppnina um við- skiptavini verulega og gæti nýtingin yfir veturinn því minnkað. Það gæti aftur leitt til tapreksturs þá mánuði þegar eftirspurnin er minnst. Þetta er mat Bergs Rósinkranz, eiganda Hótels Fróns á Laugavegi 22a í Reykjavík, sem rifjar upp ró- lega vetrarmánuði framan af öldinni. Veturnir hafa stórbatnað „Nýtingin hjá okkur yfir sumarið er mjög áþekk og hún var. Veturnir hafa hins vegar stórbatnað. Áður var vertíðin hjá okkur búin um miðjan september en nú lýkur henni ekki fyrr en undir miðjan nóvember. Því má segja að ró- legi tíminn hjá okkur standi yfir frá miðjum nóv- ember og út jan- úar. Þeir mánuðir eru enn dálítið ró- legir,“ segir Bergur. „Áður var hluti af hótelinu í lang- tímaleigu á vet- urna. Nú þarf þess ekki. Við vorum til dæmis með erlenda prófessora og aðra langtímagesti yfir veturinn til þess að vera ekki með hálftómt hót- elið á veturna. Þetta hefur breyst mikið síðustu árin en mest síðustu fjögur árin. Framboðið af hótelum mun aukast mikið á næstu misserum. Framboðs- aukning liggur fyrir. Ef það verður ekki þeim mun meiri eftirspurn á veturna en er nú þurfum við að berj- ast um viðskiptavinina. Þá þurfum við að lækka verð og þá bera veturn- ir sig ekki. Ég hef mestar áhyggjur af því að veturinn gæti þynnst út aft- ur,“ segir Bergur um hugsanlega þróun á markaði. „Það er umhugsunarefni fyrir lánastofnanir að lána ekki of mikið í þessa grein á stuttum tíma.“ Fimmföldun hótelherbergja Bergur segir að ef spár um mikla fjölgun ferðamanna á næstu árum rætast muni þurfa að stórauka fram- boð af afþreyingu í miðborg Reykja- víkur. Ekki sé nóg að bjóða upp á veitingastaði og verslanir sem selja minjagripavörur. „Vinsælustu ferðamannastaðirnir úti á landi eru orðnir þéttsetnir. Ef það á að auka gistirými í miðborginni um 80% þarf að taka vel til hendinni og byggja upp innviði. Hótel Frón var opnað með 20 her- bergjum árið 1998 og segir Bergur aðspurður að samkeppnisaðilar hafi þá verið með úrtölur. Hótelið hefur síðan vaxið ár frá ári og er nú með fimmfalt fleiri herbergjum en í upp- hafi. Starfsmenn voru fimm í byrjun en eru nú 21. Frekari stækkun er ekki fyrirhuguð að sinni. „Miðbærinn þarf að stækka til að geta tekið á móti fleiri ferðamönn- um, flýta þarf uppbygginu á hafnar- svæðinu og á Granda. Verslunin þarf að vera fjölbreyttari til að mæta þörfum mismunandi markhópa og það má ekki gleymast að uppbygg- ingin þarf að vera í íslenskum anda,“ segir Bergur. Óttast offramboð á veturna  Eigandi Hótels Fróns telur hættu á að vetrarmánuðirnir verði aftur rólegir  Vegna mikillar aukningar í framboði muni hótelin slást um viðskiptavini Bergur Rósinkranz bergi muni koma ný á markaðinn á höfuðborgarsvæðinu, en að fjölgunin næstu árin þar á eftir verði mun minni. Samanlagt segir hann að gera megi ráð fyrir því að heildarfjárfest- ing í nýjum hótelum í Reykjavík á þessum tveimur árum verði um 19 til 20 milljarðar króna, fyrir utan hót- elið við Hörpuna, sem hefur verið metið á 6 til 7 milljarða kr. Davíð segir að með þessari upp- byggingu sé miðbærinn að ganga í endurnýjun lífdaga, en að árin 1970- 2000 hafi vægi miðbæjarins minnkað með flutningi margra fyrirtækja í ný hverfi austar í borginni. Nú sé aftur á móti barist um laus pláss þar. hótela kortinn Fylgist ekki að » Fjölgun ferðamanna og hótelherbergja fylgist ekki að. » Nýtingarhlutfall hótela í Reykjavík er nú í sögulegu há- marki, það var 77% að meðal- tali í fyrra. » Sérfræðingur hjá Lands- bankanum áætlar að fjárfest verði í nýjum hótelum í Reykja- vík fyrir 26 milljarða á næstu 2-3 árum. Björg Jónsdóttir, rekstrarstjóri KEX Hostels á Skúlagötu 25 í Reykjavík, segir reksturinn hafa gengið vel síðan hostelið var opnað í maí 2011. Þar eru nú í boði 12 hótel- herbergi og 185 hostelrúm. Allt að þrír gestir geta verið á hverju hótel- herbergi og er því samtals rúm fyrir um 215-220 gesti. Björg segir stækkun hostelsins til skoðunar. „Það er verið að skoða möguleika hér í kring hvort við get- um bætt við fleiri herbergjum.“ – Hvar sjáið þið helst tækifæri? „Við sjáum helst sóknarfæri í því að við njótum velvildar meðal gesta. Orðsporið er gott og við vildum gjarnan geta boðið fjölbreyttari gistimöguleika. Líklega myndum við bæta við einkaherbergjum fremur en að fjölga kojuherbergjum.“ Morgunblaðið/Sigurgeir S. Á baklóðinni Tónleikasvið í portinu við Kex Hostel á Skúlagötu. KEX íhugar stækkun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.