Morgunblaðið - 24.07.2014, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014
Vegfarendur í Öskjuhlíðinni vest-
anverðri hafa að undanförnu orðið
varir við mikið rusl í kringum rusla-
stamp við göngustíg. Hefur snakk
og annað rusl flotið upp úr stamp-
inum og ekki verið hirt. Var greini-
legt að stampurinn hafði ekki verið
tæmdur í nokkurn tíma.
„Um er að ræða stamp sem settur
var upp samhliða framkvæmdum við
lagningu á nýjum hjólreiðastíg á
svæðinu. Stígur var tilbúinn til notk-
unar fyrir um mánuði, en eftir var að
afhenda hann skrifstofu reksturs og
umhirðu til umsjár, sem jafnframt
sér um losun ruslastampa á þessu
svæði. Við höfðum því ekki vitneskju
um þennan stamp og því fór sem
fór,“ segir Elfa Björk Ellertsdóttir,
upplýsingafulltrúi hjá Reykjavík-
urborg. Hún segir að eftir að ábend-
ing hafi borist borginni um umhirðu
við ruslastampinn hafi ruslið verið
tæmt úr honum.
„Hann var tæmdur sama dag og
ábending barst og fer síðan í reglu-
lega losun þar á eftir. Að jafnaði eru
stampar losaðir vikulega eða oftar
eftir þörfum,“ segir Elfa í svari til
Morgunblaðsins. ash@mbl.is
Óþrifnaður við rusla-
stamp í Öskjuhlíð
Morgunblaðið/Kristinn
Rusl Farið var að flæða upp úr ruslastampinum við Öskjuhlíð.
Óvenjumikið vatn rennur yfir veg-
inn í Múlagöngum sem liggja á milli
Ólafsfjarðar og Dalvíkur. Göngin
eru einbreið og hefur vatnsaginn,
sem rekja má til sprungna í veggj-
unum, vakið vangaveltur um það
hvort öryggi vegfarenda sé stefnt í
hættu.
Gísli Eiríksson, yfirmaður jarð-
gangadeildar hjá Vegagerðinni, tel-
ur svo ekki vera.
„Það er ekkert nýtt undir sólinni.
Þetta hefur alltaf verið svona.
Klæðningin í göngunum er eitthvað
skemmd. Svo á vatnið það til að
flytja sig til og koma þar sem ekki
er klæðning. Það er vissulega
óvenjumikið vatn núna. Alla jafna
er meira vatn á sumrin en á vet-
urna sem helgast af snjóbráðnun,“
segir Gísli.
Brugðist við í haust
Hann á von á því að brugðist
verði við þessum vanda með haust-
inu. „Það er ekkert hægt að gera
nema að klæða göngin betur og
setja meira af niðurföllum,“ segir
Gísli en samkvæmt upplýsingum
frá Vegagerðinni þekur klæðningin
um helming ganganna. Verið er að
taka í gegn rafmagnskerfi og ör-
yggisbúnað í göngunum auk þess
sem sett hafa verið upp fleiri ljós og
nýir símar. Þeim aðgerðum lýkur
með haustinu. „Næsta verk er að
skoða þessi vatnsmál,“ segir Gísli.
Hann segir að Vegagerðinni hafi
borist ábendingar frá vegfarendum
vegna vatnsins. „Fólki finnst þetta
sjálfsagt einkennilegt, en við höfum
þá trú á því að þetta sé ekki hættu-
legt og erum frekar rólegir yfir
þessu,“ segir Gísli.
Múlagöng, eða Ólafsfjarðargöng,
eru 3,4 km einbreið veggöng sem
tekin voru í notkun árið 1991. vid-
ar@mbl.is
Vatnsagi á veginum í Múlagöngum
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Múlagöng Vatnsagi er í Múlagöngum og vatn rennur yfir veginn. Vegagerðin
telur vatnið ekki skapa hættu fyrir vegfarendur. Fjölga á niðurföllum.
Gripið til aðgerða með haustinu Öryggi farþega ekki stefnt í hættu að mati Vegagerðarinnar
Knattspyrnumótið Rey Cup var sett í 13. sinn í
Laugardal í gærkvöldi og hafa þátttakendur
aldrei verið fleiri, eða um 1.300 talsins. 87 lið eru
skráð til leiks í mótinu, þar af koma 14 erlendis
frá. Alls verða spilaðir 260 leikir á níu völlum í
Laugardalnum og á Fram-vellinum í Safamýri.
Þá fer úrslitaleikurinn í hverjum flokki fram á
sjálfum Laugardalsvellinum. Yfir 400 sjálf-
boðaliðar koma að framkvæmd mótsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þátttakendur á Rey Cup hafa aldrei verið jafn margir
Til stendur að
færa verkefni frá
ráðuneytum og
stofnunum til
nýrra embætta
sýslumanna sem
taka til starfa um
næstu áramót,
segir í tilkynn-
ingu frá innan-
ríkisráðuneytinu.
Embættin verða
níu í stað 24 nú.
Hanna Birna Kristjánsdóttir inn-
anríkisráðherra kynnti í gær skip-
an í embættin. Þórólfur Hall-
dórsson, sem nú er sýslumaður á
Suðurnesjum, verður sýslumaður á
höfuðborgarsvæðinu. Í stað hans
kemur Ásdís Ármannsdóttir, sem
nú er sýslumaður á Siglufirði og
Akureyri. Ólafur K. Ólafsson, sýslu-
maður í Stykkishólmi, verður sýslu-
maður á Vesturlandi, Svavar Páls-
son á Húsavík verður sýslumaður á
Norðurlandi eystra og Lára Huld
Guðjónsdóttir á Hólmavík tekur við
embætti sýslumanns í Vest-
mannaeyjum. Getið var um skipan
annarra embætta í blaðinu í gær,
meðal annars að Anna Birna Þrá-
insdóttir, sýslumaður í Vík, verður
sýslumaður á Suðurlandi.
Þórólfur skipaður
sýslumaður á höf-
uðborgarsvæðinu
Þórólfur
Halldórsson