Morgunblaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014
fi p y j g p
C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam
með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa
mauki Bruchetta eykmeð tvír
ðlahangikjöti, bal- samrau
og piparrótarsósu hetBruc
ta með hráskinku, balsam
nmgrill uðu Miðjarðar- hafsgræ
K r a b b a - salat f
ðboskum kryddjurtum í brau
B r u c h e t t a Mimeð
jarðarhafs-tapende aR i s
rækja á spjóti með peppadew Silunga hrogn ónmeð japönsku maj
sinnepsrjóma-osti á bruchettuBirkireykt-ur lax alioá bruchettu með
grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry
taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill
tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli
satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is
MöndluMix og KasjúKurl
er ekki bara hollt snakk.
Líka gott á salatið.
Hollt oggott frá Yndisauka.
Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum,
Melabúðinni, Fjarðarkaup, Miðbúðinni,
Kjöthöllinni, Hreyfingu, Garðheimum,
Mosfellsbakaríi og Bakaríinu við brúna
Akureyri.
Á vefsíðunni www.list25.com er að
finna ótal áhugaverða lista sem sam-
anstanda af tuttugu og fimm atrið-
um, eins og til dæmis 25 stærstu eyj-
arnar. Þar er Ísland á lista ásamt
öðrum fögrum eyjum. Auk listans yfir
eyjarnar er þar marga aðra fróðlega
lista að finna. Sumir þeirra eru
spaugilegir og fróðlegir í senn, til
dæmis þar sem misskilningur vegna
menningarmismunar er í forgrunni.
„Tuttugu og fimm leiðir til að koma
sér í klandur á ferðalögum“ er gott
dæmi um lista sem best er að komast
hjá að sannreyna.
Fjölmargir listar tengdir ferðalög-
um geta kveikt löngunina til að fara á
flakk, eins og til dæmis listinn yfir
tuttugu og fimm staði sem virðast
tilheyra annarri veröld og listinn yfir
tuttugu og fimm veitingastaði með
óviðjafnanlegu útsýni.
Listarnir ná yfir ótal svið og sumir
eru til þess fallnir að vekja ugg í
brjósti lesenda: Tuttugu og fimm teg-
undir af fælni, tuttugu og fimm smá-
sögur sem fá hárin til að rísa og síð-
ast en ekki síst listi yfir
óhugnanlegar staðreyndir um mat
sem betra er að vita ekki. Það getur
einmitt verið raunin að sumt sé ein-
faldlega best að vita sem minnst um.
Þá getur verið betra að skoða þægi-
legri lista á borð við: Spaugileg smá-
skilaboð frá foreldrum, bráðfyndnar
fyrirsagnir í dagblöðum eða kjánaleg-
ar spurningar á Yahoo og enn kjána-
legri svör við þeim.
Vefsíðan www.list25.com
AFP/FRANCK FIFE
Bólivía Saltbreiður Salar De Uyuni.
Listar yfir hið
magnaða í
veröldinni
Í kvöld á milli 18:45 og 19:45 verður
friðarstund í jógasal Ljósheima í
Borgartúni 3. Allir sem áhuga hafa á
að finna frið, hið innra og ytra, eru
velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Ætlunin er að viðstaddir hugleiði
saman, finni frið í hjörtum og með
því að stilla saman strengi senda
friðarstrauma til þeirra staða á jörð-
inni þar sem stríðsástand er.
Þátttaka í friðarstund Ljósheima
er ókeypis.
Endilega …
… finnið frið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Friður Viðstaddir hugleiða saman.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Örlygur Hálfdánarson,fæddur árið 1929, bjó íViðey fyrstu tólf ár ævisinnar og er virkur í Við-
eyingafélaginu. Félagið hefur í mörg
ár verið að byggja upp félagsaðstöðu
í Vatnstankinum á eynni. „Bernska
mín í Viðey var yndisleg, enda er
Viðey yndisleg. Eyjuna mætti nota
mun meira til útivistar. Þarna eru
frábærar fjörur og þegar ég var að
alast þarna upp voru skepnur í Við-
ey, hestar, kýr og kindur. Hjá Við-
eyjarstofu var kúabú og mjólkin var
seld til Reykjavíkur.“
Á annað hundrað manns eru í
Viðeyingafélaginu. Félagið saman-
stendur af afkomendum þeirra sem
bjuggu á eynni og áhugafólki um
eyna sjálfa, enda gegnir hún miklu
sögulegu hlutverki. Örlygur telur sig
seinasta drenginn sem fæddist á
eynni. „Ég fæddist í Viðey og bjó þar
fram á tólfta ár. Ég held ég að sé síð-
asta drengbarnið sem fæddist á
sjálfri eyjunni. Algengt var að konur
færu í land til að eignast börn, en við
erum samt öll jafnmiklir Viðeyingar
þrátt fyrir það. Við krakkarnir vor-
um um það bil tíu talsins á öllum
aldri. Allir krakkarnir sátu saman í
skólastofu, eldri krakkarnir öðrum
megin og yngri krakkarnir hinum
megin. Það var bara þannig.“
Fann ástina í Viðey
Þótt fáir byggju á eynni fann
Örlygur ástina þar. „Tengdafaðir
minn, Þorgeir í Gufunesi, var bóndi í
Viðey. Ég kynntist henni Þóru, dótt-
ur hans og eiginkonu minni, þegar
ég var fimm ára í Viðey.“
Fáir bjuggu á eynni þegar Ör-
lygur ólst upp þar, þar sem útgerðin
hafði liðið undir lok. „Þetta var orðið
afskaplega fámennt þegar ég ólst
upp á eynni. Þá hafði útgerðin liðið
undir lok. Þarna voru nokkrar fjöl-
skyldur og kennari, en skólinn
heyrði undir Mýrarhúsaskóla á Sel-
tjarnarnesi. Björn Bjarnason, verk-
stjóri hjá útgerðarfélaginu Kára, bjó
við hliðina á okkur, en hann ferjaði
m.a. ein frægustu hjón veraldar á
þeim tíma, Lindbergh-hjónin, til
Viðeyjar, en ég var of lítill til að
muna eftir því. Byggðin lagðist síðan
af þegar Seltjarnarneshreppur til-
kynnti að hann hefði ekki lengur efni
á að halda úti kennara á eynni. Í dag
eru þó nokkrir lifandi sem bjuggu á
eynni, en afkomendur þeirra eru þó
fjölmargir. Hópurinn er samt hægt
og rólega að týna tölunni en við
reynum að vera í sambandi reglu-
lega.“
Charles Lindbergh var fyrsti
maðurinn til að fljúga yfir Atlants-
hafið frá Ameríku til Íslands. Hann
kom til Íslands árið 1934 til að kanna
flugleiðir milli Evrópu og Bandaríkj-
anna fyrir bandaríska flugfélagið
Pan American. Hann var afar hlé-
drægur maður og vildi ekki láta
ónáða sig, þannig að hann gisti í Við-
ey fremur en á Hótel Borg.
Öll húsin voru í niðurníðslu
Magnús Sædal er mikill sér-
fræðingur um byggð í Viðey og hef-
ur leitt fólk um eyna, en hann var
framkvæmdastjóri nefndar um end-
urbyggingu Viðeyjarstofu og Viðeyj-
arkirkju á árunum 1986-1988. Öll
húsin á eynni voru í niðurníðslu og
ákvað Reykjavíkurborg að gera þau
upp. „Í tilefni 200 ára afmælis
Reykjavíkurborgar gaf Þjóðkirkjan
Reykjavík Viðeyjarkirkju en ríkið
gaf Viðeyjarstofu. Þegar Davíð
Oddsson, þáverandi borgarstjóri,
tók við gjöfinni sagði hann að séð
yrði til þess að Viðeyjarstofa yrði
gerð upp á tveimur árum, jafn-
löngum tíma og það hefði tekið að
byggja hana. Þegar þessi ákvörðun
var tekin var ekkert rafmagn í Við-
ey, ekkert ferskvatn og engin höfn.
Við þurftum að flytja til Viðeyjar um
2.000 tonn af byggingarefni, þar með
alla möl, allan sand og allt sement
Eyjarskeggjarnir í
Reykjavík nútímans
Snemma á 20. öldinni var blómlegt mannlíf í Viðey. Fjölskyldur bjuggu á eynni og Milljónarfélagið rak þar
útgerð. Árið 1943 lagðist þorpið í eyði eftir að Seltjarnarneshreppur ákvað að halda ekki lengur úti skóla í
Viðey. Á árunum 1986-1988 var hafist handa við að endurbyggja Viðeyjarkirkju og Viðeyjarstofu, en eyjan er
í dag meðal merkustu menningarverðmæta Reykjavíkur. Árlega heimsækir fjöldi fólks þennan merka stað.
Magnús Sædal Svavarsson Örlygur Hálfdánarson
Menningarverðmæti Viðeyjarstofa eins og hún lítur út í dag. Mikill metnaður var lagður í endurbygginguna.