Morgunblaðið - 24.07.2014, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Naver Collection GM7722 Viður/Corian Toppur
220x92 stækkun 1 x 100 cm.
Fáanlegt í eik og hnotu.
Rúmlega 250 leyfi til að selja bresk
vopn til Rússlands eru enn í gildi
þrátt fyrir að David Cameron, for-
sætisráðherra Bretlands, hafi lýst
því yfir í þinginu á mánudag að ríkis-
stjórnin hafi sett á algert bann við
vopnasölu til landsins. Þetta kemur
fram í skýrslu breskrar þingnefndar
sem hefur rannsakað vopnaútflutn-
ing og birt var í gær.
Á meðal þess vopnabúnaðar sem
leyfin ná til er búnaður til að skjóta á
loft og stjórna flugskeytum, skot-
færi, rifflar fyrir leyniskyttur og
íhlutir fyrir herþyrlur. Verðmæti
búnaðarins er sagt nema um 132
milljónum punda.
Málið er neyðarlegt fyrir Came-
ron þar sem hann hefur áður gagn-
rýnt aðrar Evrópuþjóðir, þar á með-
al Frakka, fyrir að halda áfram að
selja Rússum vopn þrátt fyrir stuðn-
ing þeirra við aðskilnaðarsinna í
Úkraínu.
„Vopnasala frá hvaða Evrópulandi
sem er ætti ekki að halda áfram. Við
höfum nú þegar stoppað hana frá
Bretlandi,“ sagði Cameron við þing-
ið á mánudag.
Sir John Stanley, fv. varnarmála-
ráðherra Bretlands og formaður
þingnefndarinnar, segist þegar hafa
ritað Philip Hammond, utanríkisráð-
herra, bréf til að krefja hann skýr-
inga á áframhaldandi vopnasölu til
Rússa.
Ekki notað í Úkraínu
Michael Fallon, varnarmálaráð-
herra Bretlands, segir að Bretar
flytji ekki vopn til rússneska hersins
sem hægt væri að nota til „kúgunar
innanlands“.
„Það hefur alltaf verið viðvarandi
stefna. Við erum með einhverja
ströngustu vopnasölustefnu í heim-
inum. Það er alls enginn búnaður
sem er seldur til Rússlands sem gæti
mögulega verið notaður í Úkraínu,“
sagði Fallon við breska ríkisútvarpið
BBC. kjartan@mbl.is
Bresk vopn áfram
seld til Rússlands
Neyðarlegt fyrir David Cameron
AFP
Misræmi Niðurstaða þingnefndar-
innar stangast á við orð Camerons.
FRÉTTASKÝRING
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Lík hluta þeirra 298 sem fórust með
malasísku farþegaþotunni sem var
skotin niður yfir Úkraínu komu til
Hollands í gær. Réttarmeinafræð-
inga og flugslysarannsakenda bíða
nú þau krefjandi og tímafreku verk-
efni að bera kennsl á líkin og að kom-
ast að því hvað og hver grandaði vél-
inni.
Vélin féll til jarðar á fimmtudag
fyrir viku eftir að hún varð fyrir
flugskeyti frá aðskilnaðarsinnum
hliðhollum Rússum, að því er talið
er. Ótti manna er að á þeirri viku
sem liðin er frá hörmungunum hafi
aðskilnaðarsinnar átt við möguleg
sönnunargögn.
Eftirlitsmenn frá Öryggis- og
samvinnustofnun Evrópu hafa farið
nokkrum sinnum á staðinn þar sem
vélin kom niður. Michael Bociurkiw,
talsmaður eftirlitsteymisins, segir
að stórir hlutar af braki vélarinnar,
þar á meðal stélið, líti öðruvísi út en
það gerði við fyrstu skoðun. Helst
líti út fyrir að skorið hefði verið í þá.
Erfitt að fela verksummerkin
Venjan er að slysstaðir séu lokaðir
af eins og vettvangur glæps þangað
til rannsóknarteymi nái að kanna að-
stæður. Því hefur hins vegar ekki
verið að heilsa í Úkraínu. Brot úr
vélinni virðast hafa dreifst yfir stórt
svæði og skiptir sú dreifing máli.
Hafi hlutar braksins verið færðir
gæti það spillt fyrir rannsókninni.
Engu að síður væri það ákaflega
erfitt fyrir aðskilnaðarsinna að
hylma yfir ábyrgð sína með því að
skipta út flugvélarhlutunum eða fela
skemmdir. Hafi flugskeyti grandað
vélinni ætti rannsókn á brakinu að
leiða það í ljós, að mati David Gleave,
flugmálasérfræðings við Lough-
borough-háskóla á Englandi.
Flugritar vélarinnar bárust til
breskra flugmálayfirvalda í gær. Þó
að mögulegt sé að eiga við þá er talið
ólíklegt að hægt hafi verið að falsa
gögn á þeim á svo skömmum tíma.
Robert Francis, varaformaður
samgönguöryggisnefndar Banda-
ríkjanna, segir að flugritar geti
skemmst þannig að ómögulegt sé að
lesa gögnin á þeim. Hann hafi hins
vegar aldrei heyrt um að átt hafi ver-
ið við upplýsingarnar á þeim. Litlar
líkur séu á því að flugritarnir úr mal-
asísku vélinni veiti ekki góðar upp-
lýsingar um hvað gerðist.
Tekur líklega fleiri mánuði
Alþjóðlegt teymi undir stjórn Hol-
lendinga og Interpol mun sjá um að
bera kennsl á líkin og ljóst er að þess
bíður ærinn starfi. Búist er við því að
hægt verði að bera kennsl á þau með
DNA-rannsóknunum en það verður
afar tímafrekt. Mark Rutte, for-
sætisráðherra Hollands, varar við
því að það gæti tekið marga mánuði.
Líkin eru í misgóðu ástandi. Öll
lágu þau rotnandi undir berum himni
í tvo daga í sumarhita og rigningu,
sum eru þar ennþá, og auk þess eru
þau misheilleg. Réttameinafræðing-
ar þurfa að ná DNA-sýnum úr þeim,
annaðhvort úr holdi eða beinum.
Annars styðjast þeir við tennur eða
sérkenni eins og ör eða húðflúr.
Þegar búið er að safna sýnunum
eru þau borin saman við sýni frá per-
sónulegum munum eða heimilum
fórnarlambanna. Rannsakendur
hafa þegar byrjað að afla þeirra. Ef
sýnin eru ekki fyrir hendi er erfða-
efnið borið saman við náskylda ætt-
ingja, foreldra eða systkini. Dæmi
eru hins vegar um að heilu fjölskyld-
urnar hafi farist með þotunni. Þá
þarf að leita til fjarskyldari ættingja
en þá þarf sýni úr 3-5 einstaklingum
til þess að hægt sé að fá áreiðanlegar
niðurstöður. Það mun því taka sinn
tíma áður en hægt verður að bera
kennsl á alla þá sem voru um borð.
Rannsóknin verður tímafrek
Ólíklegt að hægt hafi verið að breyta sönnunargögnum um afdrif flugs MH17
Mikið verk bíður réttarmeinafræðinga að bera kennsl á lík fórnarlambanna
AFP
Heimkoma Hollenskir hermenn bera líkkistu með líkamsleifum eins fórnarlambanna við komuna til Eindhoven.
Brak á víð og dreif
Grabove
Stærsti hluti
braksins
Hreyfillinn
Stél vélarinnar
14 km
Brunnir
akrar
Meira brak
úr vélinni
Lík færð í kælda
lestarvagn í Torez
Á ökrum og
á milli bygginga
Dreift um akra
500 m
Eldflaugar: 70 kg
sprengjuoddar
Nákvæmni: 90-95%
Hámarksdrægi:
22 km
(M.v. M2E-gerð)
Buk/SA-11-flugskeyti skotið frá jörðu niðri
Skotin niður á átakasvæði
Tveir flugritar voru afhentir
breskum flugmálayfirvöldum til
greiningar í gær.
Alþjóðlegir eftirlitsmenn segja
að fleiri líkamsleifar haldi áfram
að rotna á brotlendingarstaðnum
Vísbendingar sem bandaríska
leyniþjónustan hefur aflað bendir
til þess að aðskilnaðarsinnar hafi
skotið SA-11 flugskeyti á loft frá jörðu
Líkunum var flogið til Hollands
í gær
Hollenskir sérfræðingar segja
að aðeins 200 lík hafi verið
afhent hingað til.
Lík sem voru fjarlægð frá
brotlendingarstaðnum voru flutt
með lest til borgarinnar Karkív
sem er á valdi úkraínskra
stjórnvalda.
Miðvikudagur
Heimild: Malaysia Airlines/Flightradar24/
Airbus DS/ AllSource Analysis
Rannsókn á MH17-harmleiknum
Boeing 777-200-vél Malaysian Airlines með 298 manns um borð á leið frá Amsterdam til Kúala Lúmpúr
féll til jarðar á yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna í Austur-Úkraínu 17. júlí
20 km
Svæði sem
aðskilnaðarsinnar stjórna
Grabove
Donetsk
Shaktarsk
13:13 GMT
RUSSIA
DONETSK
UKRAINE
Pelahiivka
Vopnin sem talin eru hafa verið notuð
Ástand kóralrifs-
ins mikla utan
við austurströnd
Ástralíu hefur
ekki verið verra
frá því að rann-
sóknir á því hóf-
ust, að sögn vís-
indamanna.
Áströlsk þing-
nefnd rannsakar
nú hvernig
stjórnvöld og ríkisstjórnin í
Queensland-ríki hafa séð um rifið
sem er stærsta kóralrif í heimi og
er friðað. Þá metur UNESCO hvort
rifið verði sett á lista yfir heims-
minjar sem eru taldar í hættu.
Rifið er í hættu vegna hlýnunar
sjávar af völdum loftslagsbreytinga
en vísindamenn hafa einnig tjáð
þingnefndinni að efnisflutningar
vegna hafnardýpkunar ógni því.
Ástandið muni því enn versna á
komandi áratugum.
ÁSTRALÍA
Kóralrifið er mikil-
vægt vistkerfinu.
Ekki verra frá því að
mælingar hófust
Yfir fjörutíu manns fórust þegar
flugvél taívanska flugfélagsins
TransAsia Airways hrapaði í Taív-
an í gær. Flugvélin skall á tveimur
húsum eftir að flugmenn hennar
höfðu hætt við lendingu.
Að sögn yfirvalda voru 58 manns
um borð í vélinni. Hún hrapaði
nærri Magong-flugvelli á Penghu-
eyju eftir að flugmennirnir höfðu
beðið um leyfi til að gera aðra til-
raun til lendingar.
Heimildum bar ekki saman um
fjölda látinna í gær. Flugmála-
yfirvöld sögðu 51 líklega látinn en
fjölmiðlar töluðu um 45.
Vélin brotlenti á
tveimur húsum
TAÍVAN
Bið Fréttamenn bíða upplýsinga við
þjónustuborð flugfélagsins í Tapei.