Morgunblaðið - 24.07.2014, Page 18

Morgunblaðið - 24.07.2014, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Utanríkis-stefna álitla Ís- landi er dálítið sér- stök að því marki sem hún er ekki ljósrit af stefnu annarra. Um þessar mundir er Ísraelsríki í hernaði á Gaza- svæðinu með öllum þeim hörm- ungum sem fylgja því þegar vel vopnuð ríki stefna í stríð. Á Íslandi er hrópað að sjálfsagt sé að landið, eitt ríkja, slíti stjórnmálasambandi við Ísrael! Hernaðurinn skaðar álit Ísr- aels mjög. Samt er látið eins og Ísrael hafi farið í þessa her- ferð að fyrra bragði, án nokk- urs tilefnis og gagngert til þess að myrða óbreytta borg- ara. Friðsamt fólk hlýtur svo sannarlega að flykkja sér um þann málstað að vera á móti stríðsaðgerðum og óhugnað- inum sem þeim fylgir. Það er sjálfsagt að krefjast þess að hernaði sé hætt, vopnahléi sé komið á og innrásarher verði á bak og burt. En það felur ekki í sér heimild til að samsama sig málstað annars aðilans og af- flytja málstað hins. Slíkt reyn- ist sérhverjum málstað illa. Ísraelsmenn fullyrða, að þeir hafi búið við það að sprengjuflaugum sé skotið frá Gaza á Ísrael í þúsundavís. Það er óboðlegt að halda því fram að þarna sé um heimatilbúnar og hættulitlar flaugar að ræða, það sjáist af því að þær hafi ekki náð að granda óbreyttum borgurum í Ísrael. – Því þess- um flaugaskara er jú eingöngu beint að óbreyttum borgurum. Einungis þeir sem fastir eru í áróðursumræðu hafna því að megnið af árásarflaugunum er smyglað til Gaza, flestum frá Íran. Kjánalegt er að láta eins og flaugarnar séu skaðlitlar. Ástæða þess að hinar öflugu og tæknilega fullkomnu írönsku flaugar hafa ekki náð að drepa ísraelska borgara, eins og að var stefnt, er sú, að Ísraelar eru með hátæknivarnar- flaugar, sem hafa náð að granda allt að 95% árásar- flauganna. (Hver varnarflaug er sögð kosta svipað og mynd- arlegur fjölskyldubíll). Þá hef- ur fjöldi manna verið fluttur af svæðunum, sem legið hafa best við árásum flauganna, og þús- undir hafast við í neðanjarðar- birgjum hverja nótt, því þá rignir sprengjunum. Um þessa þætti er naumast deilt. Ríkisstjórn Ísraels segir að engin þjóð léti slíkt regn yfir sig ganga og spurningin var því eingöngu sú, hvenær mæl- irinn fyllist. Morð á ísraelskum piltum var dropinn sem fyllti mælinn nú, að þeirra sögn. Á Íslandi er látið af sumum, jafnvel fullburða stjórnmála- flokkum, eins og það land hafi eitt af öllum skyldu til að sýna Ísrael sérstaka andúð og beri að kokgleypa ásak- anir annars deilu- aðilans, en gera ekkert með sjón- armið hins. Á Gaza er naumast nokkur einkennisklæddur her sjáan- legur, þótt þaðan sé skotið þúsund eldflaugum, sumum há- þróuðum, að óbreyttum borg- urum í Ísrael. Nú er sagt að 30 hermenn Ísraels hafi fallið á Gaza og verður því væntanlega að ætla, að óbreyttir borgarar á Gaza hafa fellt þá. Egyptar reyndu að miðla málum eftir að Ísrael réðst inn á Gaza og lagði fram tillögu um vopnahlé, sem Ísrael sam- þykkti en Hamas hafnaði. Ef Ísrael er eini hernaðaraðilinn, hefði samþykkt vopnahlés væntanlega þýtt að Ísraelsher hefði einn látið af aðgerðum sínum, eða hvað? Hvers vegna var þá vopnahléi hafnað? Obama, forseti Bandaríkj- anna, sjálfur friðarverðlauna- hafi Nóbels, réttlætir innrás Ísraels inn á Gaza, með þeim orðum að „Ísrael hafi rétt til að verja sig.“ Forsetinn lítur því á innrásina sem fyrirbyggj- andi varnaraðgerð. Hann fellst á yfirlýsingar Ísraelsmanna um að erindi þeirra inn á Gaza nú sé að eyðileggja leynigöng „hryðjuverkamanna“ og farga vopnabúrum og eldflauga- birgðum. Bandaríkjaforseti bætir svo gjarnan við, að hann vonist til, að aðgerðirnar verði takmarkaðar, svo sem fært sé, svo tjón verði minna en ella. Nú eru sjónarmið Obama, þótt friðarpáfi sé, ekki endanlegur dómur í málinu. En þau eru, með öðru, innlegg í málið. Örlög Palestínumanna, að- búnaður, aðstaða og fátækleg- ar framtíðarhorfur, hljóta að kalla á samúð umheimsins. Kostir þeirra eru bæði fáir og rýrir. Lýðræðislegur réttur er takmarkaður af þeirra eigin forystu og lakari á hinu mikla þéttbýli á Gaza-svæðinu en á Vesturbakkanum. Átökin á Gaza nú munu litlu breyta um friðarhorfur á þessu svæði. Þær munu ekki vænkast fyrr en deiluaðilarnir og þeir sem næst þeim standa viður- kenna, bæði í orði og á borði, sjálfbæran tilverurétt þjóð- anna sem eiga í hlut. Næsta nágrenni þeirra stendur í björtu báli núna. SÞ telja að á þriðja hundrað þús- und manna hafi fallið í fárra kílómetra fjarlægð, í Sýrlandi, síðustu árin. Milljónir hafa hrakist úr landi og búa við öm- urleg kjör. Vafalítið er, að all- ur þorri hinna föllnu eru óbreyttir borgarar. Íslenskir stjórnmálaflokkar eru ekki uppteknir af örlögum þeirra. Hvers vegna er þessi mikli munur? Sjálfsagt er að for- dæma innrás á Gaza, en jafnframt að fara rétt með} Saklaust fólk og sannleikurinn illa úti U mræður um ástandið á Gaza- svæðinu hafa verið fyrir- ferðarmiklar síðastliðna daga og það með réttu. Okkur berast daglega nýjar fregnir og myndir af rústum húsa, grátandi mönnum og myrtum börnum. Rétt í þessu gerði einhver Facebook- vinur minn mér þann grikk að setja inn mynd af ungum dreng, með heilann flæðandi í fang föðurs síns. Ég mun líklega ekki sofa rótt næstu nætur en af hverju ætti ég svo sem að gera það þegar enginn sefur í Gaza. Þessi drengur „lét“ ekki lífið. Hann „féll“ heldur ekki í átökunum eins og svo oft er sagt. Hann var myrtur, með köldu blóði. Stjórnvöld í Ísrael ákváðu að sókn væri besta vörnin gegn nánast árangurslausum árásum Hamas og vörpuðu sprengju á óbreytta borgara, að því er virðist án þess að hugsa sig tvisvar um. Fórnarlömbum Ísraelshers fjölgar með hverjum deginum og því er ekki að undra að stuðningur við Palestínu fari vaxandi. Í dag styð ég hvorki Palestínu né Ísraelsríki. Margir myndu benda mér á hin fleygu orð Desmonds Tutu um að ef ég er hlutlaus gagnvart óréttlæti hef ég valið hlið kúg- arans og þar með hlið hins morðóða Ísraelsríkis, en ég er ekki hlutlaus. Það fólk sem er við stjórn beggja ríkja er jafnslæmt. Bæði ríki eru að reyna að drepa, það vill bara svo til að Ísrael er að takast það en ekki Palestínu. Ég vil hvorki styðja liðið sem er að vinna né liðið sem er að tapa ef þau eru bæði í ofbeldisfullum sóknarleik. Þau eru bæði kúgarinn. Ég vil velja hlið hinna kúg- uðu, hlið saklausra og valdalausra áhorfenda, hlið almennings í báðum ríkjum. Ég vil styðja þær ísraelsku fjölskyldur sem lifa í ótta. Ég vil styðja þær palestínsku fjöl- skyldur sem upplifa nú sína verstu martröð. Ég vil að alþjóðasamfélagið viðurkenni að morðtilraunir eru aldrei í lagi, sama hvort þær takast eða ekki og sama hvort notaðar eru aumingjalegar eldflaugar eða atómsprengjur. Ég vil að „hann byrjaði“ hætti að vera tekið gilt sem rök fyrir fjöldamorðum og að þjóð- arleiðtogar heimsins taki sig saman um að binda enda á átökin. Mannvonskan er beggja megin múrsins. Þó Ísraelsher hætti árásum sínum hættir Hamas þeim ekki og ef Hamas leggur niður vopn held- ur Ísrael áfram að skerða frelsi og lífsgæði Palestínumanna. Því er ljóst að Ísland, eins og önnur ríki heimsins, þarf að þrýsta á báða deiluaðila, ekki bara annan þeirra, að leggja niður vopn og setjast fyrir alvöru að samningaborð- inu. Fyrst þegar morðtilraunum á báða bóga lýkur er tímabært að tala aftur um landsvæðadeiluna. Þar til eitthvert æðra afl hefur tekið í taumana og komið á friði vonast ég til þess að fólk hætti að taka afstöðu gegn Ísraelum eða Palestínumönnum enda elur það á hatri sem er síst uppbyggilegt í þessum deilum. Það er ekkert til sem heitir slæm þjóð, aðeins slæmir, ef ekki illir, þjóð- arleiðtogar. annamarsy@mbl.is Anna Marsibil Clausen Pistill Með hverjum heldur þú? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Skúli Halldórsson sh@mbl.is Komið hefur fram í tölumfrá innanríkisráðuneytinuað frá árinu 2008 til ársins2012 veittu dómstólar landsins heimild til 875 símhlerana. Á sama tíma var sex beiðnum hafnað og voru því símhleranir heimilaðar í 99,3% tilfella. Þetta hlutfall þykir vera gríðarlega hátt, en til dæmis hefur Mannréttindadómstóll Evrópu gert athugasemd við þó lægra hlut- fall í dómskerfi Moldóvu, en þar var hlutfallið á bilinu 97,9 til 99,2%. Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrr- verandi hæstaréttardómari, segir að tölurnar bendi til þess að dómstól- arnir bjóði rannsóknaryfirvöldum nánast upp á sjálfsafgreiðslu í þess- um málaflokki, sem sé miður gott. Í áttundu grein mannréttinda- sáttmála Evrópu segir að ekki megi ganga á rétt manna til friðhelgi „nema samkvæmt því sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræð- islegu þjóðfélagi vegna þjóðarör- yggis, almannaheilla, eða efnalegrar farsældar þjóðarinnar, til þess að firra glundroða eða glæpum, til verndar heilsu manna eða siðgæði eða réttindum og frelsi annarra.“ Jón Steinar segir að í ákvæðinu sé mögulega ekki nógu skýr heimild fyrir símhlerunum sem eru til þess gerðar að upplýsa glæp sem þegar hefur verið framinn. „Í þeim tilfellum virðist vera hæpin heimild fyrir dómara til að fallast á símhlerunarbeiðni sam- kvæmt lagatextanum. Þegar menn sitja yfirheyrslur hjá lögreglu þá ber að gera þeim ljóst að þeim sé óskylt að svara spurningum. Mér þykir ein- kennilegt að lögreglunni beri að gera þetta þegar hún getur svo farið af stað með símhleranir um leið og þeim grunaða er sleppt úr haldi, án hans vitneskju,“ segir Jón Steinar og bæt- ir við: „Svo virðist vera sem dómarar hafi gefið lögreglunni heimildir til að hlera síma manna eftir að þeim er sleppt úr haldi, þar sem einu rök- semdirnar eru þær að þeir kunni að ræða brot sín við aðra. Mér þykir þetta vera komið út fyrir öll vébönd þar sem texta laganna virðist ekki ætlað að vera beitt í þessu skyni.“ Skúli Magnússon, formaður Dómarafélags Íslands, hafnar því að um sé að ræða einhvers konar sjálfs- afgreiðslu á símhlerunarheimildum. Hann telur hins vegar að bæta þurfi dómskerfið. „Það liggur fyrir að það er svigrúm til umbóta og núver- andi fyrirkomulag er ekki hafið yfir gagnrýni. Fjárhagur dómstólanna gerir það að verkum að sá dómari sem fær málið til meðferðar þarf að sinna því ásamt sínum venjulegu málum, sem eykur álagið.“ Tvær leiðir til umbóta Skúli segir að hægt sé að styrkja umgjörð dómstóla umtalsvert og tek- ur sem dæmi að betur færi á ef einn dómari sæi eingöngu um að sinna málum sem þessum. Þá gætu lög- lærðir aðstoðarmenn einnig verið dómaranum innan handar. Hann nefnir að bent hafi verið á tvær leiðir til að auka aðhald við dómstóla. Annars vegar er það hin svokallaða danska leið, þar sem sak- borningi er skipaður málsvari meðan á aðgerðum stendur. Skúli telur þó vafa leika á hversu mikið aðhald fel- ist í slíkri ráðstöfun. Að mati Skúla er hins vegar hægt að fara þá leið, að eftir að sak- borningi hefur verið tilkynnt um rannsóknaraðgerð, þá geti hann skotið málinu til Hæstaréttar og fengið endurskoðun á aðgerðinni þrátt fyrir að hún sé þá yfirstaðin. „Að mínu viti væri það mjög ein- falt skref og þá gæti aðhaldið aukist til muna.“ Stunda símhleranir án athugasemda Morgunblaðið/Ernir Héraðsdómur Beiðnir lögreglu um heimildir til símhlerana valda auknu álagi á dómara, að mati Skúla Magnússonar, formanns Dómarafélagsins. Réttur manns til að fella ekki á sig sök er almennt talinn felast í ákvæðum stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evr- ópu um réttláta málsmeðferð. Reimar Pétursson hæstarétt- arlögmaður hefur bent á að oft sé lítil virðing borin fyrir trún- aðarsamskiptum sakborninga. „Hleranir allra þeirra sam- tala sem menn eiga við trún- aðarmenn sína, svo sem maka, fjölskyldumeðlim eða lögmann, hljóta að ganga mjög hart að rétti manna til að tjá sig ekki.“ Reimar tekur sem dæmi grunaðan mann sem yfirheyrð- ur er af lögreglu, en hann á rétt á að tjá sig ekki um sak- argiftir. „Maðurinn kýs kannski að nýta sér þann rétt meðan á yf- irheyrslunni stendur, en gengur svo út og hringir í konuna sína. Með því að hlera símtalið er mögulega verið að fara á svig við þessi réttindi sem honum eru annars tryggð í lögum.“ Eiga rétt á að tjá sig ekki TRÚNAÐUR LÍTILS VIRTUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.