Morgunblaðið - 24.07.2014, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014
Fótboltakonanog nýstúd-entinn Hug-
rún Elvarsdóttir
fagnar tvítugs-
afmæli í dag. Hug-
rún útskrifaðist úr
Verzlunarskóla Ís-
lands í maí og hefur
unnið hjá inn-
heimtufyrirtækinu
Codex síðan.
„Ég fer í vinnuna
og fæ síðan flestar
vinkonur mínar til
mín í smá-afmælis-
partí í kvöld,“ segir
hún aðspurð um
plan dagsins. Hug-
rún segir teitið þó
einnig vera eins
konar kveðjupartí.
„Ég er nefnilega að
flytja út til Banda-
ríkjanna í byrjun
ágúst,“ segir hún.
Hugrún mun flytja
ein til Bandaríkj-
anna, en hún fékk
fótboltastyrk í skóla
í Flórída og ætlar
sér að tvinna saman
fótbolta og nám.
„Það hefur alltaf verið efst í huga með fótboltanum að reyna að fá
styrk svo þetta er algjör draumur,“ segir hún. Hugrún hefur lengi
spilað fótbolta, fyrst með Stjörnunni, en nú með meistaraflokki FH.
Hvað námið varðar ætlar hún að leggja fyrir sig sálfræði ásamt
mannauðsstjórnun. „Það er tekið tillit til þess í skólanum að ég sé í
fótboltanum líka svo ég get vel tvinnað þetta saman,“ segir hún.
Að eigin sögn er Hugrún mikið afmælisbarn. „Við mamma erum
þvílík afmælisbörn svo við gerum afmælisdagana okkar alltaf góða
og skemmtilega.“ Eftirminnilegustu afmælisgjafirnar segir hún þó
vera þær sem hún nýtur með liðinu sínu. „Ég hef oft verið að keppa
á afmælisdaginn og þá vonast maður alltaf eftir sigri í afmælisgjöf,“
segir hún kát að lokum. if@mbl.is
Hugrún Elvarsdóttir er 20 ára í dag
Fótboltastelpa Hugrún hefur lengi æft fót-
bolta og hyggst flytja til Bandaríkjanna í ágúst
þar sem hún fer í háskóla á fótboltastyrk.
Þykir best að fá
sigur í afmælisgjöf
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Mosfellsbær Stefanía fæddist 30.
september kl. 2.43. Hún vó 3.180 g
og var 49 cm löng. Foreldrar hennar
eru Hrönn Helgadóttir og Davíð
Ólafsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Óskar Guðmundur Jón-
asson fæddist 19. mars kl. 13.55.
Hann vó 3.140 g og var 50 cm langur.
Foreldrar hans eru Engilráð Ósk Ein-
arsdóttir og Jónas Þorkelsson.
M
atthildur fæddist í
Reykjavík 24.7.
1964 og ólst upp á
höfuðborgarsvæð-
inu, fyrst í Hlíð-
unum til 1977 og síðan í Kópavogi.
Hún var í Austurbæjarskóla, Ísaks-
skóla, Æfingadeild Kennaraháskól-
ans sem nú er Háteigsskóli og í Víg-
hólaskóla í Kópavogi.
Matthildur fór í Menntaskólann í
Kópavogi og útskrifaðist þaðan vor-
ið 1985. Hún stundaði nám í jarð-
fræði við HÍ og útskrifaðist með
B.Sc.-gráðu í jarðfræði í febrúar
1997 og lauk M.Sc.-gráðu í jarð-
efnafræði 1999.
Á unglingsárunum vann Matt-
hildur í Vinnuskóla Kópavogs á
sumrin. Hún fór í ævintýraleit aust-
ur á Djúpavog 1984 þar sem hún var
í fiskvinnslu og sinnti hótelstörfum.
Hún var ritari hjá Tölvufræðslunni
1985, gjaldkeri hjá Búnaðarbank-
anum í Austurstræti 1985-86, var
fulltrúi í lánadeild Iðnaðarbankans,
síðar Íslandsbanka við Háaleit-
isbraut 1986-90, var tölvari hjá
Reiknistofu bankanna 1990-94 og
starfaði þar í afleysingum samhliða
háskólanámi til 1996.
Matthildur var blaðamaður í
Matthildur B. Stefánsdóttir deildarstjóri – 50 ára
Systramót Matthildur með fjórum systrum sínum og nokkrum fleiri fjölskyldumeðlimum þeirra.
Vegaframkvæmdir
í sátt við náttúruna
Nýskírð Matthildur með foreldrum sínum, Stefáni og Mattheu.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is