Morgunblaðið - 24.07.2014, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir
gith@mbl.is
Reykholtshátíð verður haldin í átj-
ánda sinn nú um helgina, dagana 25.-
27. júlí en þetta er annað ár Sig-
urgeirs Agnarssonar sem listræns
stjórnanda hátíðarinnar. Aðspurður
segist Sigurgeir ekki hafa umturnað
skipulagi hátíð-
arinnar í sinni tíð.
„Nei, nei, en auð-
vitað kemur mað-
ur með sínar
áherslur. Reyk-
holtshátíðin hefur
alltaf lagt áherslu
á 19. aldar tónlist
og auðvitað verð-
ur áfram svo en
ég hef örlítið yngt
tónlistina upp og
við erum þannig að stækka ramm-
ann. Þar má til dæmis nefna verk eft-
ir Prokofiev og Sjostakovitsj sem eru
á efnisskránni í ár. Það er 20. aldar
tónlist, þannig að hún er nær okkur í
tíma en þó alls engin framúrstefnu-
tónlist,“ segir Sigurgeir kíminn.
Í landi þar sem tónlistarlíf er jafn-
gróskumikið og hér er raunin, hlýtur
að vera erfitt starf að velja tónlist-
arfólk og verk til flutnings á til-
tölulega stuttri hátíð? „Jú, það er að
mörgu að hyggja og það getur verið
púsluspil að setja þetta saman. Það
má segja að þetta sé sambland af
ákveðnum verkum sem manni finnst
spennandi og langar til að hafa á há-
tíðinni og síðan verður maður auðvit-
að líka að horfa í hvaða mannskap
maður hefur. Í flestum tilfellum valdi
ég tónlistarmennina fyrst og spurði
þá líka hvort það væru einhver sér-
stök verk sem þá langaði að spila.
Þannig að þetta eru nokkrir ólíkir
þættir sem vinna saman, enda mik-
ilvægt að verkin séu áheyrileg en
einnig að tónlistarmennirnir hafi
áhuga á að spila þau.“
Norsk hátíðardagskrá
Sigurgeir segir ekkert eitt þema
vera gegnumgangandi í efnisskrá
helgarinnar. „Ekki annað en það að
tónlistin á Reykholtshátíð er yfirleitt
mest 19. aldar tónlist. Annars má
kannski segja að það sé svolítið
norskt þema hjá okkur í ár.“
Norðmenn fagna 200 ára afmæli
stjórnarskrár sinnar í ár og af því til-
efni tóku Reykholtshátíð og Snorra-
stofa höndum saman og boðuðu til
sérstakrar hátíðardagskrár. „Okkur
fannst liggja beinast við að spila eitt-
hvað norskt og á laugardaginn verða
einmitt tvö norsk verk flutt, annað
þeirra strengjakvartett nr. 1 í g-moll,
ópus 27, eftir Edvard Grieg. Sama
dag verður ráðstefna á vegum
Snorrastofu í Reykholti milli kl. 13 og
16 vegna afmælisins. Reykholtshátíð
verður með innslag í ráðstefnunni en
svo verðum við með okkar eigin tón-
leika seinna um daginn. Á þeim tón-
leikum verður líka norskt yfirbragð
og einnig á kammertónleikunum sem
haldnir eru á laugardagskvöld.“ Sig-
urgeir nefnir að í huga margra sé
Reykholtshátíð fyrst og fremst tón-
listarhátíð en málið sé hins vegar
flóknara en svo. „Samstarf Snorra-
stofu og Reykholtshátíðar liggur í
raun mjög beint við, því Reykholts-
hátíð var stofnuð árið 1997 þegar
kirkjan í Reykholti var vígð og hefur
síðan þá verið haldin á vígsluafmæli
kirkjunnar. Hátíðarguðsþjónusta er
jafnan haldin á sunnudegi Reyk-
holtshátíðar af tilefni vígsluafmælis
kirkjunnar og listamenn frá hátíðinni
koma þar fram. „Reykholt og saga
Snorra Sturlusonar eru náttúrlega
mjög samofin, þannig að þetta sam-
starf á vel við og hátíðardagskrá
vegna stjórnarskrárafmælisins end-
aði á þessari helgi, sem er skemmti-
legt.“ Sigurgeir segir að jafnvel megi
búast við tignum gestum af þessu til-
efni, jafnt íslenskum sem erlendum,
m.a. forseta norska stórþingsins.
Fjölbreytt efnisskrá
Ýmissa grasa kennir á efnisskrá
Reykholtshátíðar í ár en alls verða
tónleikar hátíðarinnar fernir. Hátíðin
hefst með tónleikum kl. 20 annað
kvöld, 25. júlí. Þar eru á dagskrá Són-
ata fyrir tvær fiðlur eftir Prokofiev,
Strengjakvartett nr. 7 eftir Dmitri
Sjostakovitsj og Píanókvartett eftir
Peteris Vasks. „Að því er ég best veit,
þá er þetta frumflutningur á píanó-
kvartettinum, en þetta er mjög
áhrifamikið verk sem ég er spenntur
fyrir að heyra,“ segir Sigurgeir. Á
laugardegi verða söngtónleikar kl. 17
í umsjón Hönnu Dóru Sturludóttur
mezzósóprans og Steinunnar Birnu
Ragnarsdóttur píanóleikara, fyrrum
listræns stjórnanda Reykholtshátíð-
ar og núverandi tónlistarstjóra
Hörpu. Á laugardagskvöldi verða
haldnir kammertónleikar þar sem
m.a. mun hljóma Píanótríó Bedrichs
Smetana og Strengjakvartett eftir
Edvard Grieg. Lokatónleikar hátíð-
arinnar fara síðan fram á sunnudeg-
inum kl. 16 en þar verður fluttur Pí-
anókvintett Césars Franck, auk þess
sem frumflutt verður nýtt verk eftir
Huga Guðmundsson er ber heitið
„Söngvar úr Hávamálum“. „Ég bað
Huga að semja verkið og það er því
samið sérstaklega fyrir Reykholtshá-
tíðina. Það er líka gaman að því að
það hefur þessa skírskotun í Hávamál
og tengist þannig Snorra og Reyk-
holti,“ segir Sigurgeir, sem segist vel
geta hugsað sér að endurtaka leikinn
að ári og biðja tónskáld að semja
verk, sérstaklega fyrir hátíðina. „Það
setur skemmtilegan svip á efnis-
skrána en maður verður auðvitað að
athuga hvað er til í pyngjunni,“ segir
Sigurgeir að lokum. Tekið skal fram
að miðasala fer fram á midi.is en
einnig í Reykholti um helgina.
Norskt þema á Reykholtshátíð
Listrænn stjórnandi hátíðarinnar færir efnisskrána nær nútímanum Snorrastofa og Reyk-
holtshátíð taka höndum saman vegna afmælis norsku stjórnarskrárinnar Íslenskt verk frumflutt
Morgunblaðið/Þórður
Æfingar Ljósmyndari Morgunblaðsins leit inn á æfingu tónlistarmanna hátíðarinnar í gær. F.v.: Ari Þór Vilhjálms-
son, Lonneke von Straalen, Þórunn Ósk Marinósdóttir, Sigurgeir Agnarsson og Jan Bastiaan Neven.
Reykholt Umhverfi Reykholtshátíðarinnar er fallegt en hátíðin er haldin ár
hvert á vígsluafmæli Reykholtskirkju. Hátíðin er nú haldin í átjánda sinn.
Ljósmynd/Guðlaugur Óskarsson
Sigurgeir
Agnarsson
Gjafavöruverslun með íslenska & erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja
Gaurarnir sem sjá til fless a›
ekki sjó›i upp úr pottunum
2 í pakka, hvítur og rauður aðeins kr. 1.790,-
LID SID
Bjargvættirnir á brúninni
Lendi listunnendur sem staddir
eru í Reykjavíkurborg aðfaranótt
næstkomandi laugardags í því að
geta ekki sofið, þá þurfa þeir ekki
að örvænta. Dúoið Samferða, sem
samanstendur af Hrefnu Lind Lár-
usdóttur og Halldóru Markús-
dóttur, hyggst nefnilega vaka
fram á laugardag í Tjarnarbíói og
býður almenningi að taka þátt.
„Nóttin verður lokahnykkur á
vinnustofu sem við Hrefna höfum
verið með í Tjarnarbíói síðustu tvo
mánuði,“ segir Halldóra. „Við höf-
um unnið með líkamlega þjálfun
fyrir listamenn og einmitt hluti
eins og að leyfa sér að verða
þreyttur og athuga hvað gerist.“
Stöllurnar munu væntanlega kom-
ast að því aðfaranótt laugardags-
ins en gjörningurinn stendur frá
miðnætti fram til kl. 8 á laugar-
dagsmorgun. „Við höfum haldið
svipaðar opnar þjálfanir að degi til
en þetta fer þannig fram að einn
leiðir hópinn og gerir ýmsar æf-
ingar en hinir elta. Það má ekki
tala en tónlistarmaðurinn Auðunn
Lúthersson spinnur tónlist á staðn-
um. Þetta er tilraun sem snýst um
að taka út allan óþarfa og vinna
einungis þessa líkamlegu grunn-
vinnu,“ segir Halldóra en tilgang-
urinn er að einstaklingurinn geti
sleppt takinu á fyrirfram
ákveðnum hugmyndum í list-
sköpun sinni. „Þessu ævintýri er
að ljúka en Samferða er þó hvergi
nærri hætt og ýmislegt er á döf-
inni,“ segir Halldóra að lokum.
Tekið skal fram að ekki er skylda
fyrir viðstadda að taka þátt, einnig
má horfa á. Áhugasamir eru beðn-
ir að skrá sig á netfangið hrefna-
smunk@gmail.com.
gith@mbl.is
Vökustaurar í
Tjarnarbíói
Ljósmynd/Gabrielle Motola
Samferða Listrænn innblástur fæst
úr líkamsæfingum.
Svefngalsi að nóttu til