Morgunblaðið - 24.07.2014, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2014
Ökufærni er lykilatriðið
þegar ungmenni hefja akstur.
Hvar fær ungmennið þitt kennslu?
Hluti námsins fer fram í fullkomnum ökuhermi
Áhersla lögð á færni nemenda og öryggi þeirra í umferðinni
Allt kennsluefni innifalið
Ökukennsla www.bilprof.is
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 • Opið 10-17 alla daga.
Hringdu
núna
og bóka
ðu
ökuskól
ann
ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD
– yfir 40 ár í fagmennsku.
Þekking og reynsla í fyrrirúmi
Frábært tilboðsver
ð,
aðeins 10.990.000 kr.
20” álfelgur, loftpúðafjöðrun, lyklalaust aðgengi og ræsing.
Rafmagnshleri, Xenon og led ljós, panorama, Nappa leðursæti
með hita og kælingu, hiti í stýri, fjarlægðaskynjarar að framan
og aftan. Alpine hljómkerfi með 8,4” snertiskjá, 40 GB hörðum
disk, Bluetooth fyrir símann og tónlistina í símanum þínum.
Bakkmyndavél, 8 gíra, sjálfskiptur, mjög fullkomið fjórhjóladrif
með lágu drifi. V6, 3.6, 290 hö með eyðslu aðeins 10,4 í
blönduðum akstri og 8,2 í langkeyrslu, Rosalega flottir og
vel búnir bílar.
17” álfelgur, lyklalaust aðgengi og ræsing. Rafmagnshleri,
rafdrifnar afturhurðar, 7 manna. Glertopplúga, leðursæti með
hita, hiti í stýri, fjarlægðaskynjarar að aftan. Stow’n go, Xenon,
Alpine hljómkerfi með 7” snertiskjá, 40 GB hörðum disk, Blue-
tooth fyrir símann og tónlistina í símanum þínum. Bakkmynda-
vél, Blue Ray DVD spilari með 2 skjám afturí og aukatengi
möguleikum, HDMI, USB o.fl. V6, 3.6, 290 hö með eyðslu
aðeins 11,8 í blönduðum akstri og 9,4 á langkeyrslu, 6 gíra
sjálfskiptur. Rosalega flottir, vel búnir og mjög rúmgóðir bílar.
Jeep Grand Cherokee
Overland 2014
Chrysler Town
& Country Limited 2014
Við sérpöntumallar gerðirbíla frá USA
og Evrópu
Bestu lúxus
jeppakaupin
í dag
Hin fullkomni
fjölskyldubíll með
öllum lúxus
Frábært tilboðsver
ð,
aðeins 8.390.000 kr.
Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ - Sími 534 4433 - Fax 534 4430 - isband@isband.is - www.isband.is
Opið alla virka daga frá 10-18 – LOKAÐ laugardaga
Komdu til okkar og skoðaðu
Sigurlaug
Gísladóttir, bet-
ur þekkt sem
tónlistarkonan
Mr. Silla, mun
efna til tónleika
í menningar-
húsinu Mengi
næstkomandi
laugardag. Mr.
Silla hefur
meðal annars
unnið sér það
til frægðar að hafa unnið með
sveitum á borð við múm, Snorra
Helgasyni, Mice Parade og Low
Roar en hún kemur einmitt fram
á nýútkominni plötu síðastnefndu
sveitarinnar, 0. Mr. Silla nýtur
stuðnings þeirra Kristins Gunn-
ars Blöndal, Gunnars Arnar Ty-
nes, Halldórs Ragnarssonar,
Magnúsar Trygvasonar Eliassen
og Gylfa Blöndal. Mr. Silla mun
flytja nýtt efni í bland við eldra
og hefst viðburðurinn á slaginu
kl. 21.
Mr. Silla í menn-
ingarhúsinu Mengi
Góð Mr. Silla kem-
ur fram í Mengi.
Alþjóðlega glæpasagnahátíðin Iceland Noir, Bandalag
þýðenda og túlka og Hið íslenska glæpafélag standa að
Ísnálinni – Iceland Noir-verðlaununum 2014, fyrir bestu
þýddu glæpasöguna. Dómnefnd hefur nú tilnefnt fimm
bækur en þær eru eftirfarandi: Að gæta bróður míns
(Veljeni vartija) eftir Antti Tuomainen í þýðingu Sig-
urðar Karlssonar, Brynhjarta (Panserhjerte) eftir Jo
Nesbø í þýðingu Bjarna Gunnarssonar, Hún er horfin
(Gone Girl) eftir Gillian Flynn í þýðingu Bjarna Jóns-
sonar, Manneskja án hunds (Människa utan hund) eftir
Håkan Nesser í þýðingu Ævars Arnar Jósepssonar og
Sannleikurinn um mál Harrys Quebert (La Vérité sur
l’affaire Harry Quebert) eftir Joël Dicker í þýðingu Frið-
riks Rafnssonar.
Tilnefningar til Ísnálarinnar voru tilkynntar á fæðing-
ardegi glæpasagnahöfundarins Raymonds Chandlers,
sem fæddur var 23. júlí árið 1888, en hann nýtti sér ísnál
sem morðvopn í bók sinni The Little Sister frá árinu
1949. Bókin kom út á íslensku árið 1990, í þýðingu Þor-
bergs Þórssonar, og hét þá Litla systir. Verðlaunin verða
veitt á Iceland Noir-glæpasagnahátíðinni í Norræna
húsinu 22. nóvember næstkomandi. Í dómnefnd sitja
Katrín Jakobsdóttir, alþingismaður og fyrrverandi
menntamálaráðherra, Kolbrún Bergþórsdóttir blaða-
maður og bókmenntagagnrýnandi, Magnea J. Matthías-
dóttir, formaður Bandalags þýðenda og túlka, Quentin
Bates rithöfundur og þýðandi og Ragnar Jónasson rit-
höfundur. davidmar@mbl.is
Best þýddu glæpasögurnar
Morgunblaðið/Sverrir
Glæpasagnahátíð Verðlaunin verða veitt 22. nóvember
næstkomandi í Norræna húsinu í Reykjavík.
Tilnefningar til Ís-
nálarinnar tilkynntar
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Hlustendur mega eiga von á reggí-
plötu sem verður blönduð mikilli sól
og pólitískum þankagangi,“ segir
Gnúsi Yones, einn forsprakka reggí-
sveitarinnar AmabAdamA en sveitin
vinnur hörðum höndum um þessar
mundir að sinni fyrstu breiðskífu. Að
sögn Gnúsa er ekki enn komið nafn á
plötuna, sem kemur út í byrjun októ-
ber, en nokkrar hugmyndir eru þó á
lofti.
Textasmíðin mikilvæg
„Við veltum mikið fyrir okkur rétt-
læti og kærleika og reynum að taka á
því í textagerð okkar. Eins og áður
kom fram eru textarnir okkar oft og
tíðum heldur pólitískir enda mikið
rugl í gangi í heiminum í dag, til að
mynda í Palestínu. Það er gott að geta
reynt að taka á því í einhverskonar
listsköpun,“ segir hann. Lagið „Hossa
Hossa“ hefur fengið talsverða spilun í
útvarpi landsmanna en það má ein-
mitt finna á væntanlegri plötu.
„Ég hugsa að við reynum að koma
öðru lagi í spilun áður en platan kem-
ur út í haust,“ segir Gnúsi og bætir við
að það krefjist mikillar skipulagn-
ingar að koma allri sveitinni saman á
æfingar og í upptökur en meðlimir
hennar telja tíu manns. Nafn sveit-
arinnar, AmabAdamA, hefur vakið
talsverða athygli en sveitin hefur ein-
mitt stundum verið titluð Amaba
Dama. Gnúsi segir þetta byggt á mis-
skilningi. „Okkur fannst svo sniðugt
að hafa nafnið í einu orði þar sem það
speglast í miðjunni. Á fésbókarsíðu
okkar er nafnið hinsvegar í tveimur
orðum og það er vesen að breyta því
þar sem ekki er hægt að skipta út
nafni þegar ákveðið margir hafa líkað
við síðuna. Planið hefur þó alltaf verið
að hafa þetta í einu spegilorði,“ segir
hann ákveðinn.
Reggíið á uppleið
Gnúsi telur bjarta tíma framundan
í íslenskri reggímenningu en sveitir á
borð við Hjálma og Ojba Rasta, að
ógleymdu RVK Soundsystem, hafa
verið að gera góða hluti upp á síðkast-
ið.
„Það eru hljómsveitir sem maður
þekkir vel að standa sig vel og svo
hefur maður heyrt af bílskúrsreggí-
hljómsveitum sem skjóta vonandi upp
kollinum bráðum. Ég held því að
reggíið sé klárlega á uppleið. Fólk er
að átta sig á því að þetta er tónlist
sem hægt er að hlusta á hvenær sem
er. Ef manni líður illa þá hughreystir
hún mann og ef manni líður vel þá líð-
ur manni enn betur við það að skella
reggíi á fóninn. Ég upplifi reggíið að
minnsta kosti þannig,“ segir Gnúsi.
„Við stefnum á að fylgja plötunni
eftir með tónleikahaldi. Við viljum í
raun spila eins mikið og við getum og
kynna plötuna fyrir sem flestum,“
segir hann að lokum en þess skal get-
ið að sveitin mun efna til veglegrar út-
gáfuveislu þegar platan lítur loks
dagsins ljós.
Reggí AmabAdamA er ansi fjölmenn sveit en meðlimir hennar eru tíu talsins.
Réttlætiskennd
í reggíbúningi
AmabAdamA vinnur að breiðskífu